Fréttablaðið - 25.06.2015, Qupperneq 18
„Já, já. Feðraveldið verður að
svara því,“ sagði Brynjar Níels-
son (19,5) alþingismaður spaug-
samur, en fastur fyrir þegar
blaðamaður (18,7) hringdi í hann
að morgni laugardags og spurði
hvort hann væri ekki örugglega
búinn að reima á sig skóna og
útskýrði fyrir honum að þeir tveir
væru að fara að keppa í golfi við
Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur
(17,7), fyrrverandi varaformann
Sjálfstæðisflokksins, nú forstöðu-
maður hjá SA, og Kristínu Péturs-
dóttur (8,5) stjórnarformann
Virðingar hf. Kristín hafði kvöldið
áður talið einsýnt, þegar rætt var
um hverjir væru saman í liði, að
það væru stelpur á móti strák-
um. „Í tilefni dagsins,“ en þá var
Kvennadagurinn mikli, 19. júní.
Keppnisfyrirkomulagið „róninn“
Það viðraði vel til golfiðkun-
ar, gola af hafi og milt í veðri.
Við vorum að fara að spila einn
af allra bestu völlum landsins,
Keilis völlinn á Hvaleyrinni í
Hafnarfirði. „Sá eini á Íslandi
sem hefur komist á topp hundrað
lista yfir bestu golfvelli í Evrópu,
þá fyrir utan Bretland,“ segir
Ólafur Þór Ágústsson vallarstjóri
og kynnir á Golfstöðinni. Og það
kom á daginn að þar var engu
logið, völlurinn var í fínu ástandi,
flatirnar frábærar og öll umhirða
til fyrirmyndar. Valsmaðurinn
Brynjar var á útivelli; blaðamað-
urinn, Þorgerður Katrín og Krist-
ín eru hins vegar öll FH-ingar og
Hafnfirðingar. Keilisvöllurinn er
heimavöllur kvennanna og þær
áttu eftir að nýta sér það.
En, það var ekki vitað á þess-
ari stundu. Brynjar og blaða-
maðurinn voru býsna brattir og
keppnisfyrir komulagið var ákveð-
ið – „róninn“, eins og það er kallað
í golfklúbbi Setbergs: Besta skor
gefur einn punkt, samanlagt skor
liðsins einn punkt og fugl gefur
einn aukapunkt.
Ráðabrugg Þorgerðar Katrínar
Golfhringur Golfsíðunnar var
meðal annars lagður upp með það
fyrir augum að heyra hvað klukk-
an slær í innviðum Sjálfstæðis-
flokksins. Fyrir löngu var ákveðið
að keppa við Þorgerði Katrínu og
svo var hugmyndin að freista þess
að fá Bjarna Benediktsson for-
mann út á völl og svo Ragnheiði
Ríkharðsdóttur þingflokksfor-
mann, og ganga svo lymskulega á
formanninn með fulltingi Evrópu-
arms flokksins, með ýmsar spurn-
ingar. En, Bjarni, sem er liðtæk-
ur golfari, tók erindinu vel en átti
ekki heimangengt, var gras ekkill
þessa helgina og Ragnheiður taldi
golfgetu sína ekki þannig að hún
væri til frásagnar í fjölmiðlum.
Brynjar var fyrsti kostur í fjar-
veru formanns en þegar mögu-
leikum varðandi 4. mann var velt
upp, og það er svo sem ekkert auð-
ugan garð að gresja þegar golf og
stjórnmálamenn eru annars vegar,
þá tók Þorgerður ætíð vel í hinar
og þessar hugmyndir, nema kom
þeirri hugmynd alltaf að, svona í
aukasetningu: Svo væri náttúrlega
voðalega gaman að fá Kristínu
Péturs. Já, það vantaði ekkert upp
á það; Kristín var góður kostur en
það kom seinna í ljós að þetta var
úthugsað bragð af hálfu Þorgerðar
Katrínar. Kristín er frábær golfari
– fulltrúar Feðraveldisins áttu eftir
að komast að því fullkeyptu.
Feðraveldið sá aldrei til sólar
Þetta byrjaði rólega, stelpurnar
náðu einum punkti strax á fyrstu
holu og stöðugt seig á ógæfuhliðina
fyrir fulltrúa Feðraveldisins. Og
þegar Kristín negldi niður fugli á
sjöundu, þá var útlitið orðið veru-
lega svart.
Eftir fyrstu níu, Hraunið, þá
stóðu leikar þannig að stelpurn-
ar voru yfir með níu punkta. Það
reyndist of mikill munur. Og þó
tækist að halda seinni níu í sæmi-
legu jafnvægi, þá brugðust pútt
blaðamannsins algerlega þegar
færi voru á stigasöfnum upp í
skaðann. „Þú hugsar allt of mikið
til vinstri,“ sagði Brynjar þegar
blaðamaðurinn lokaði pútterhausn-
um einu sinni sem oftar og rúllaði
kúlunni fram hjá holunni.
Þó voru þarna taktar, eins og
þegar Brynjar náði að bjarga sér
glæsilega upp úr einni af hinum
djúpu og grimmu glompum Hval-
eyrarinnar og einpútta. En, það
dugði hvergi til. Og Þorgerður
Katrín og Kristín voru sem einn
maður, þá sjaldan að það hökti í
frábærri spilamennsku Kristínar,
þá var það yfirleitt þegar Þorgerð-
ur var að slá vel og náði að verja
fenginn stigahlut. „Þú verður að
láta það koma skýrt fram að þetta
var FH að leggja Val,“ sagði Þor-
gerður Katrín. Og hlustaði ekki á
að blaðamaður væri FH-ingur, það
taldist ekki með.
Pólitík rædd í klúbbhúsinu
Oft var rauðu kvennateigunum
blótað. Þeir eru nær holu en gulu
karlateigarnir og stundum fannst
Brynjari þeir vera nánast í flatar-
kantinum. Þá var leikurinn líka
svo gott sem tapaður. Og það var
svo enn til að strá salti í sárin
að báðir lentu blaðamaðurinn og
Brynjar í misheppnuðu upphafs-
höggi; kúlan náði ekki fram fyrir
kvennateiginn sem þýddi að þeir
skulduðu mótherjunum bjór. Sem
getur verið góður eftir hringinn
í glæsilegu klúbbhúsi Keilis. Þar
lengdust eyru blaðamannsins,
þegar farið var að ræða innan-
búðar mál Sjálfstæðisflokksins.
Þorgerði aftur í pólitíkina
„Það er búið að ákveða að þú
kemur inn fyrir næstu kosning-
ar,“ fullyrti Brynjar við Þorgerði
Katrínu eftir að hann hafði keypt
drykki á línuna, og vísaði til sam-
tala milli sín og ýmissa áhrifa-
manna í flokknum. Miðað við svip-
brigði Þorgerðar Katrínar taldi
hún þetta síður en svo fráleitt, en
svo gaut hún hornauga til blaða-
manns og ákvað að rétt væri að
gefa ekki út neinar yfirlýsing-
ar. Blaðamaður spurði hvernig
þeim sjálfstæðismönnum litist á
stjórnar samstarfið. Löng þögn.
„Það eru margir góðir fram-
sóknar menn,“ sagði Þorgerður
Katrín.
Kristín taldi ekki fráleitt að
hún væri á leið í pólitík: „Eitthvað
verður að gera.“ Þá eru menn helst
á því að Hanna Birna Kristjáns-
dóttir varaformaður muni hvergi
gefa eftir hvað varðar sína stöðu
innan flokks og líkast til mun ein-
hver bjóða sig fram gegn henni í
varaformennskuna á næsta Lands-
fundi. Svo var nú farið að ræða eitt
og annað „off rec“ – og víst verður
að virða það.
25. júní 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 18
Nánar verður greint frá þessari
viðureign á Vísi.
visir.is
Feðraveldið rassskellt á Hvaleyrinni
Brynjar Níelsson og blaðamaður Fréttablaðsins voru teknir í bakaríið af vöskum FH-stelpum, þeim Þorgerði Katrínu og Kristínu Péturdóttur.
SVEIFLA Þorgerður Katrín er með glæsilega golfsveiflu. Kristín og Brynjar fylgjast
með hverju fram vindur.
BÖRDÍ! Brynjar horfir sér til hrellingar á einn eitt pútt Kristínar rata í holuna. Þorgerður sviptir stönginni út áður en brestur á með þessu hljóði sem golfarar elska: Þegar kúlan hringlar í holunni. Fréttablaðið/Jakob
BRYNJAR PÚTTAR Þingmaðurinn hefur átt
betri daga á golfvellinum.
LEIKURINN TAPAÐUR Þegar þarna er komið sögu lá fyrir að þessi leikur var tap-
aður. Svipbrigðin segja í raun þá sögu alla.
Jakob Bjarnar
Grétarsson
jakob@frettabladid.is
ÚTIVIST
GOLF
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
D
2
-3
D
D
C
1
7
D
2
-3
C
A
0
1
7
D
2
-3
B
6
4
1
7
D
2
-3
A
2
8
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
5
6
s
_
2
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K