Fréttablaðið - 25.06.2015, Page 8
25. júní 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
LAND ROVER DISCOVERY 3 SE
Nýskr. 12/06, ekinn 139 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.490 þús.
Rnr. 131325.
HYUNDAI i30 CLASSIC
Nýskr. 01/15, ekinn 1 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 3.190 þús.
Rnr. 120695.
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
NISSAN QASHQAI SE
Nýskr. 11/13, ekinn 14 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
Rnr. 142921.
CHEVROLET CRUZE LS
Nýskr. 10/12, ekinn 7 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.250 þús.
Rnr. 120703.
BMW 320i
Nýskr. 07/08, ekinn 95 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.790 þús.
Rnr. 282730.
SUBARU OUTBACK LUX
Nýskr. 05/13, ekinn 35 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.890 þús.
Rnr. 320314.
TOYOTA AVENSIS WAGON SOL
Nýskr. 02/13, ekinn 45 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 3.980 þús.
Rnr. 142726.
Frábært verð!
4.570 þús.
GOTT ÚRVAL
NOTAÐRA BÍLA
Skoðaðu úrvalið á
bilaland.is
ALLT AÐ 90%
FJÁRMÖGNUN
TÖKUM NOTAÐAN
UPPÍ NOTAÐAN!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
HEILBRIGÐISMÁL Könnun meðal
allra sjúklinga á Vogi sýndi að svo
gott sem allir sem þar leituðu sér
lækninga greindust með alvarleg-
an fíknivanda.
Könnunin náði til 1.727 ein-
staklinga sem lögðust inn á Vog
árið 2012, og eins og kemur fram
í frétt á heimasíðu SÁÁ greind-
ust 95,3% þessa hóps með sex
eða fleiri möguleg einkenni sem
stuðst er við þegar fíknisjúk-
dómur er greindur, samkvæmt
sjúkdómsgreiningarviðmiðum
bandarísku geðlæknasamtakanna
American Psychiatric Association.
Kannað er hvort sjúklingur sé eða
hafi undanfarna tólf mánuði verið
haldinn alls ellefu mögulegum ein-
kennum. Sjúklingar sem grein-
ast með 2-3 einkenni teljast hafa
vægan vanda, hjá þeim sem hafa
4-5 einkenni telst vandinn í meðal-
lagi. Ef sjúklingur greinist með sex
einkenni eða fleiri af þessum ellefu
telst hann eiga við mikinn vanda
að stríða. Af hópnum greindust 316
með öll einkennin, 161 með 10 ein-
kenni og 886 með níu einkenni, eða
51,3%. - shá
Af 1.727 sjúklingum á Vogi greindust 95,3% með alvarlegan fíknivanda:
Nær allir með alvarlegan vanda
Á VOGI Innskráðir 2012 voru 1.727 ein-
staklingar. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
LÖGREGLUMÁL „Lögreglan gerði
ekkert. Það þótti ekki nóg að
hann hótaði að koma heim til mín
í bræðiskasti, hann hefði þurft
að vera mættur inn á stofugólf,“
segir kona, sem var ofsótt um
margra mánaða skeið af gömlum
kunningja. Konan gagnrýnir við-
brögð lögreglu sem hún segir að
hafi verið áhugalaus um þá hættu
sem að henni steðjaði.
Maðurinn setti sig í samband
við konuna í október á síðasta
ári. Hann vildi taka upp gömul
kynni og var frekur á tíma henn-
ar. Þegar hún reyndi að slíta sam-
skiptum við manninn hóf hann að
ofsækja hana.
Maðurinn sendi henni ógnandi
skilaboð í gegnum netið um það
hvernig hann ætlaði að nauðga
henni og hvers konar pynding-
ar hún þyrfti að þola af hendi
hans. Ofsóknunum lauk nokkrum
mánuðum síðar þegar fjölskylda
mannsins greip inn í.
Önnur kona, sem Fréttablað-
ið ræddi við, hefur þurft að þola
ofsóknir í tuttugu ár. Hún vill
ekki koma fram undir nafni þar
sem ofsóknunum hefur ekki linnt
enn.
Konan hitti manninn sem
ofsækir hana fyrst í Reykjavík
þegar hún bjó sjálf í sjávarþorpi
á Suðurlandi. Maðurinn óskaði
eftir kynnum við hana sem hún
neitaði. Það var þá sem ofsókn-
irnar hófust.
Maðurinn heimsótti meðal ann-
ars heimabæ konunnar og spurð-
ist fyrir um hana. Síðar lét hann
þann orðróm ganga að hann væri
faðir dóttur hennar og væri kom-
inn til að hitta hana.
Hann hefur ítrekað beðið fólk
fyrir kveðju til hennar. Því segir
hann að konan sé góð vinkona sín
sem hann ann mjög heitt. Mað-
urinn hefur líka hringt heim til
konunnar og elt hana á göngu um
miðbæinn.
Í gegnum árin hefur maður-
inn bæði nálgast hana og dótt-
ur hennar á förnum vegi. Hann
hefur oft sent konunni póstkort
í gegnum þriðja aðila frá öðrum
löndum. Þá sér hún hann oft fyrir
utan heimili sitt og vinnu.
Konan segist hætt að óttast
að maðurinn vinni henni mein.
Hún hefur þó áhyggjur af því
að maðurinn, sem virðist hafa
tengst dóttur hennar, muni snúa
sér alfarið að ofsóknum á hend-
ur henni. Henni þyki hræðileg
tilhugsun að dóttirin, sem nú er
á þrítugsaldri, hafi alltaf þurft
að búa við ofsóknir og áreiti af
hendi mannsins.
snaeros@frettabladid.is
Hefur verið ofsótt af
manni í tuttugu ár
Árlega leita á bilinu fimmtán til tuttugu konur til Kvennaathvarfsins vegna of-
sókna. Lögregla bregst sjaldan við vandanum nema ofbeldi eigi sér stað. Erfitt að
aðhafast ef ofsóknir fela í sér löglegt athæfi. Ein kona hefur sætt ofsóknum í 20 ár.
ELT Ein kona sem Fréttablaðið ræddi við hefur þurft að búa við stöðugt áreiti og ónæði frá sama manninum. NORDICPHOTOS/GETTY
Um það bil eitt hundrað konur hafa leitað til Kvennaat-
hvarfsins á síðustu fimm árum vegna ofsókna. Ofsóknirnar
eru oftast af hendi fyrrverandi maka eða kærasta.
Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn segir mál
sem þessi oft flókin. „Ef menn eru ekki að brjóta neitt af
sér þá er erfitt fyrir lögreglu að aðhafast. Ef það er ekki
nálgunarbann í gildi þá er ekkert sem bannar fólki að vera
fyrir utan hús eða að hringja. Það verður þá að vera komið
upp á eitthvað ákveðið stig til að hægt sé að meta það sem
brot á friðhelgi. Lagaramminn er bara þessi.“
Ofsóttar af fyrrverandi sambýlismönnum
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
D
3
-1
7
1
C
1
7
D
3
-1
5
E
0
1
7
D
3
-1
4
A
4
1
7
D
3
-1
3
6
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
5
6
s
_
2
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K