Fréttablaðið - 25.06.2015, Qupperneq 10
25. júní 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Frá kr. 69.900
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
69
74
0
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
Akureyri • Sími 461 1099
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
BODRUM – Eken Resort
Bodrum og Marmaris eru meðal eftirsóttustu áfangastaða
Tyrklands. Tyrkir taka vel á móti ferðamönnum og veðurfar
er afar gott en hafgolan sér um að tempra hitann.
Hér er verðlag hagstætt, fallegar smábátahafnir með iðandi
mannlífi, brosandi fólk, fjörugt næturlíf og heillandi markaðir.
BODRUM – Risa Hotel
MARMARIS – AliBey Boutique Hotel
MARMARIS – Begonville
Frábært verð
Frá kr. 89.900
m/allt innifalið
Netverð á mann frá
kr. 89.900 m.v. 2 fullorðna
og 2 börn í herbergi.
Netverð á mann frá
kr. 115.900 m.v. 2
fullorðna í herbergi.
Frábært verð
Frá kr. 89.900
m/allt innifalið
Netverð á mann frá
kr. 121.900 m.v. 2
fullorðna og 1 barn í
herbergi.
Netverð á mann frá
kr. 119.900 m.v. 2
fullorðna í herbergi.
Frábært verð
Frá kr. 69.900
m/morgunmat
Netverð á mann frá
kr. 69.900 m.v. 2 fullorðna
og 1 barn í herbergi.
Netverð á mann frá
kr. 86.900 m.v. 2 fullorðna
í herbergi.
Frábært verð
Frá kr. 89.900
m/allt innifalið
Netverð á mann frá
kr. 89.900 m.v. 2 fullorðna
og 1 barn í herbergi.
Netverð á mann frá
kr. 104.900 m.v. 2
fullorðna í herbergi.
Bodrum &
Marmaris
Bókaðu sól á
29. júní í 10 nætur
2FYRIR1
2FYRIR1
2FYRIR1
2FYRIR1
47.450
Flugsæti frá kr.
MANNÚÐARSTARF „Við hörmum það
sérstaklega að ekki hafi fundist
neinar pólitískar lausnir á þessum
pólitíska vanda, sem hefur hrak-
ið fólk á flótta í stórum stíl,“ segir
Elhadjs As Sy, framkvæmdastjóri
Alþjóðasambands Rauða krossins
og Rauða hálfmánans.
Finnist ekki pólitískar lausnir
á þeim átökum sem flóttafólkið er
að flýja, sé vart við því að búast að
flóttamannastraumnum linni. En
hvernig hefur Rauða krossinum tek-
ist að sinna þeim verkefnum, sem
fylgja því að flóttafólk í heiminum
er nú fleira en nokkru sinni fyrr?
„Í aðra röndina erum við afskap-
lega ánægð með það hve vel hefur
gengið að virkja starfsemi Rauða
krossins þar sem þörfin er brýnust,“
segir As Sy. „En á hinn bóginn erum
við fyrst til að viðurkenna að and-
spænis þeim vanda sem við blasir
þá hafa viðbrögð okkar engan veg-
inn dugað til. Þess vegna höldum við
áfram að kalla eftir alþjóðlegri sam-
stöðu allra landa.“
Sérstaklega segir hann þó mikil-
vægt að flóttafólkinu verði gert
kleift að snúa aftur til síns heima,
„þannig að fólk geti í raun endur-
heimt virðingu sína sem fullgildir
borgarar í landi sínu, í staðinn fyrir
að vera á flótta og háð því að fá mat-
arpakka og aðra neyðaraðstoð sem
við getum veitt.“
Vernd og réttindi
Evrópusambandið kynnti nýlega
aðgerðir gegn flóttamannastraumn-
um yfir Miðjarðarhafið, sem meðal
annars ganga út á hernað gegn þeim
sem smygla fólki yfir hafið. As Sy
segist vonast til þess að Evrópusam-
bandið láti ekki þar við sitja.
„Málið er að smyglararnir finna
bara aðrar leiðir og þær gætu
orðið enn hættulegri fyrir flótta-
fólkið sjálft. Ef ætlunin er í alvöru
að koma í veg fyrir smygl á fólki
og koma í veg fyrir að fólk lendi í
þessum skelfilegu aðstæðum, þá
er auðvitað hægt að opna á aðrar
leiðir með því að viðurkenna að
flóttamenn eiga sér skýr réttindi í
alþjóðalögum. Til dæmis með því að
spyrja sig hvernig hægt sé að auð-
velda hælisleitendum að fá úrlausn
sinna mála, hvernig hægt sé að ein-
falda fólki að fá vegabréfsáritanir,
og þá líka þannig að fólk geti bæði
komist inn og farið út án þess að
festast.“
Hann minnir á að flóttamenn séu
ekkert nýtt fyrirbæri í sögunni.
„Þetta hefur átt sér stað um allan
heim, líka í Evrópu, og það er hægt
að bregðast við með því að leggja
áherslu á að vernda fólk og tryggja
réttindi þess, frekar en að ætla að
leysa málið með einföldum inngrip-
um.“
Ábyrgðin er víða
„Menn þurfa samt að átta sig á því
að öll þessi lönd hafa brugðist flótta-
fólkinu, bæði þau lönd sem flótta-
mennirnir koma frá, þau lönd sem
þeir ferðast um og svo þau lönd sem
eru áfangastaðir þeirra. Við þurf-
um að skoða hvað hægt er að gera
á öllum stöðum í þessu ferli,“ segir
As Sy.
„Rauði krossinn hefur lagt
áherslu á að veita fólki upplýsingar
og vara það við blekkingum þeirra
sem vilja græða á því. Við reynum
að vara fólk við því að leggja upp í
þetta ferðalag. En þegar fólk er svo
komið af stað, þá þarf að huga að
því hvað hægt sé að gera fyrir það á
leiðinni. Það þarf að veita flóttafólk-
inu mannúðaraðstoð og líklega er
einna mikilvægast að láta fólk ekki
afskiptalaust þannig að það drukkni
þegar það er komið út á hafið.
Evrópulönd geta eflt leitar- og
björgunarstörf sín. Ég held að fólk
sé að átta sig á því hve mikilvægt
það er. Evrópulönd geta líka tryggt
flóttafólkinu betri vernd, og svo
þegar flóttafólkið kemur að strönd-
um Evrópuríkja með vonir í brjósti
þá geta Evrópulönd tekið á móti því
af gestrisni og látið það njóta þeirra
réttinda, sem flóttafólki eru tryggð.
En allt þetta leysir upprunalöndin
ekki alltaf undan ábyrgð. Sérstak-
lega ekki þau sem eru laus við styrj-
aldir.“
Verkefnin eru óþrjótandi
Flóttamannavandinn er þó engan
veginn eina verkefnið, sem Rauði
krossinn stendur frammi fyrir víða
um heim.
„Satt að segja höfum við aldrei
áður þurft að glíma við neyðar-
ástand á jafn mörgum stöðum á
sama tíma,“ segir As Sy. „Þegar
saman koma áhrifin af loftslags-
breytingum, hlýnun jarðar og bágu
ástandi í umhverfismálum þá eykst
stöðugt hættan á náttúruhamförum.
Víða er fólk illa undir slíkt búið og
ekki er hægt að reikna með nein-
um fyrirvara til að grípa strax til
aðgerða. Við getum staðið skyndi-
lega frammi fyrir ástandi eins og
kom upp í Nepal nýlega þegar jarð-
skjálfti reið þar yfir og sömuleiðis á
Haítí fyrir nokkru. Þannig að vissu-
lega eru verkefnin yfirþyrmandi, en
einmitt þess vegna er þörfin meiri
en nokkru sinni. Og þess vegna
erum við að hittast hér til að efla
samstarfið,“ segir As Sy, og vísar
þar til tilefnis heimsóknar sinnar
hingað til lands nú í vikunni, en hér
er hann til þess að vera viðstaddur
fund fulltrúa Rauða krossins frá tíu
smáríkjum í Evrópu.
„Fulltrúar þessara landa hittust
hér til að deila reynslu sinni af við-
brögðum við mannúðarvanda af öllu
tagi. Það getur verið allt frá því að
sinna veikburða fólki heima fyrir,
öldruðum, sjúkum og heimilislaus-
um, til þess að bregðast við neyðar-
ástandi á borð við flóð eða eldgos
eða jarðskjálfta. Smæð þessara tíu
landa og ólíkar þarfir þeirra gera
það að verkum að þau eru nú að
bera saman bækur sínar og læra
hvert af öðru. Ísland er nærri full-
kominn staður til þess, vegna þess
hve Íslandsdeild Rauða krossins á
sér sterkar rætur í hreyfingunni
auk þess sem hún hefur starfað með
almannavörnum, þannig að frá sjón-
arhóli alþjóðasambandsins er líka
mikilvægt að notfæra sér þessa
reynslu til þess að sjá hvernig ein-
stök þjóðríki taka þátt í alþjóðlegu
samstarfi eins og til dæmis í Nepal.“
gudsteinn@frettabladid.is
Flóttafólk á réttindi
Evrópulönd geta ekki vísað frá sér ábyrgðinni á örlögum flóttafólks, sem nú
streymir yfir Miðjarðarhafið frá stríðshrjáðum löndum á borð við Sýrland og Írak,
segir framkvæmdastjóri Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans.
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
ELHADJ AS SY Framkvæmdastjóri Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans er staddur hér á landi í stuttri heimsókn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
60milljónir
manna eru fl óttamenn.
4milljónir
þeirra koma frá Sýrlandi.
Flestir þeirra eru í nágranna-
löndunum Tyrklandi, Líb-
anon, Jórdaníu og Írak.
Undanfarna
18 mánuði
hafa meira en
320 þúsund
manns reynt að komast yfi r
Miðjarðarhafi ð til Evrópu-
ríkja í von um að fá þar hæli.
Meira en
fimm þúsund
þeirra létu lífi ð á leiðinni.
Langfl estir þeirra komust til
Ítalíu eða Grikklands.
Langfl estir þeirra eru komn-
ir frá Sýrlandi eða Erítreu.
Satt að segja
höfum við aldrei
áður þurft að
glíma við neyðar-
ástand á jafn
mörgum stöðum á
sama tíma.
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
D
2
-F
4
8
C
1
7
D
2
-F
3
5
0
1
7
D
2
-F
2
1
4
1
7
D
2
-F
0
D
8
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
5
6
s
_
2
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K