Fréttablaðið - 25.06.2015, Page 28
FÓLK|TANNHVÍTTUN
CRISTIANO RONALDO
Ronaldo þykir með fallegri mönnum á fót-
boltavellinum og virðist njóta athyglinnar.
Hið fullkomna bros er þó ekki meðfætt
en hann hefur látið laga tannskekkju og
lýsa brosið.
NICOLAS CAGE
Cage leggur mikið á sig fyrir ferilinn. Fyrir
myndina Birdy lét hann rífa úr sér tvær tennur.
Hvort það útskýri útlit tannanna á efri mynd-
inni er ekki víst en víst er að hann lét síðar
skipta gömlu tönnunum út fyrir nýtt bros.
PERLUHVÍTA HOLLYWOOD-BROSIÐ
HVÍTASTA SETTIÐ Krafan um fullkomið útlit er hvergi meiri en í kvikmyndaiðnaðinum. Leikkonur finna líklega hvað mest fyrir
þrýstingi um að líta fullkomlega út en karlkyns leikarar fara ekki varhluta af því heldur. Hvítt og breitt bros þykir mikilvægt til að
komast áfram á hvíta tjaldinu. Hér má sjá nokkra leikara sem létu flikka upp á tanngarðinn til að efla starfsferilinn.
NIALL HORAN
Niall Horan er vinsæll meðal ungra aðdá-
enda One Direction. Hann var með skakk-
ar tennur eins og svo margir unglingar og
fór í tannréttingar.
MATTHEW LEWIS
Leikarinn er þekktur sem hinn ólukkulegi
Neville Longbottom í Harry Potter. Þessi
renglulegi unglingur með skökku tenn-
urnar hefur látið rétta tennurnar og þykir
nú með myndarlegri leikurum Bretlands.
MORGAN FREEMAN
Jafnvel stórleikarar á borð við Morgan
Freeman sem hafa fyrir löngu slegið í
gegn finna fyrir þrýstingnum um að flikka
upp á brosið.
Það mikilvægasta til að öðlast bjartara bros er að sjálfsögðu góð tannhirða, að bursta tennurnar og
nota tannþráð. Þá er mikilvægt að fara
til tannlæknis og láta fylgjast með heil-
brigði tannanna og fjarlægja tannstein.
Tannhvíttun er vinsæl í dag og það er
mikilvægt að hún sé framkvæmd í sam-
ráði við tannlækni. Þá er öruggt að ekki
sé verið að nota efni sem lítið er vitað
um og eru jafnvel ekki lögleg. Tann-
hvíttun ætti einungis að gera við heilar
tennur og heilbrigt tannhold. Mikilvægt
er að hreinsa tennur og tannstein áður
en hvíttun á sér stað,“ segir Kristín
Sandholt, tannlæknir hjá Kringlubrosi.
GETUR DUGAÐ Í ÞRJÚ ÁR
„Tannhvíttun getur dugað í eitt til þrjú
ár en endingin fer eftir tannhirðu og líf-
erni, það er hvort fólk til dæmis reykir
eða drekkur mikið kaffi og te,“ segir
Kristín en litur tanna ákvarðast annars
vegar af lit tannbeins og hins vegar af
yfirborðslit tanna.
„Yfirborðslitur tanna stjórnast meðal
annars af dökkum drykkjum, reyking-
um, óhreinindum sem setjast á tennur
ásamt tannsteini. Tannbein tanna getur
verið mismunandi á litinn, sem veldur
því að tennur eru stundum dekkri en
við viljum. Lýsingu tanna er hægt að
gera í tannlæknastól eða fá skinnu og
framkvæma hvíttunina heima.“
MINNKAR HROTUR UM 90%
Hrotubrjóturinn er búnaður til að
stöðva hrotur og er tiltölulega nýr
af nálinni, að sögn Kristínar. Hann er
gerður úr tveimur skinnum, yfir efri
og neðri góm, sem halda neðri kjálka í
ákveðnu frambiti svo loftvegurinn helst
opinn. Það kemur i veg fyrir hrotur eða
minnkar hrotur um 90%.
„Rannsóknir sýna að 40% manna
hrjóta svo það er mikil þörf fyrir
hrotubrjótinn. Kæfisvefn er alvarlegur
sjúkdómur sem getur valdið svefnleysi
og jafnvel alvarlegum blóðrásarsjúk-
dómum og hrotubrjótur getur minnkað
kæfisvefn um allt að 50%. Hann bætir
bæði þinn svefn og maka þíns,“ útskýrir
Kristín og segir hrotubrjótinn hafa
reynst vel.
„Fólk er virkilega ánægt með árangur-
inn en þeir sem glíma við kæfisvefn eru
oft mjög þreyttir.“
Nánari upplýsingar á www.kringlu-
bros.is.
HVÍTAR TENNUR
OG BETRI SVEFN
TANNLÆKNASTOFAN KRINGLUBROS KYNNIR Bjart bros er eftirsóknarvert
og með tannhvíttun má lýsa litatón tanna umtalsvert. Hjá Kringlubrosi fæst
einnig hrotubrjótur sem minnkar hrotur um allt að 90% og bætir svefn.
TANNHVÍTTUN Kristín Sandholt, tannlæknir á tannlæknastofunni Kringlu-
brosi, segir mikilvægt að tannhvíttun sé framkvæmd í samráði við tannlækni.
HROTUBRJÓTUR
Búnaður sem minnkar
hrotur um 90%.
Fallegt, fágað og töff
Allt fyrir brúðkaupin
Smáralind
facebook.com/CommaIceland
30%
til 70%
afsláttu
r
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
D
2
-1
1
6
C
1
7
D
2
-1
0
3
0
1
7
D
2
-0
E
F
4
1
7
D
2
-0
D
B
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
5
6
s
_
2
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K