Fréttablaðið - 25.06.2015, Side 40
25. júní 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 28
BÆKUR ★★ ★★★
Hryðjuverkamaður snýr heim
Eiríkur Bergmann
SÖGUR ÚTGÁFA
Valur, aðalpersónan í nýrri skáld-
sögu Eiríks Bergmann Hryðju-
verkamaður snýr heim, er smá-
krimmi úr Breiðholtinu sem eftir
mislukkað hryðjuverk á leiðtoga-
fundinum í Höfða 1986 hefur
verið í felum í Þýskalandi. Árið
2008 kalla þær upplýsingar að
hann eigi 18 ára dóttur, sem hann
hefur aldrei vitað af, hann aftur
heim til Íslands þar sem fyrrver-
andi félagar hans úr Breiðholtinu
eru orðnir mikils metnir menn í
fjármálaheiminum og pólitíkinni.
Heimkoman verður óhjákvæmi-
lega til þess að Valur rifjar upp
fortíðina og reynir um leið að ná
áttum í íslensku útrásarsamfélagi
og undirheimum Reykjavíkur þar
sem dóttirin, Kolbrá, er komin í
slæman félagsskap. Það reynist
hægar sagt en gert.
Sagan rokkar á milli Breiðholts-
ins í upphafi níunda áratugarins,
Austur-Þýskalands á barmi upp-
lausnar í lok sama áratugar og
Berlínar og Reykjavíkur árið 2008.
Af þessum sögusviðum eru lýsing-
arnar á uppvexti Vals í Breiðholt-
inu til muna best heppnaðar og
sömuleiðis er fróðlegt að fylgjast
með lýsingum höfundar á aðdrag-
anda hruns Berlínarmúrsins en
heldur versnar málið þegar sögu-
tíminn er orðinn 2008. Þar virðist
viðmiðið stjórnast alfarið af amer-
ískum glæpamyndum og verður að
segjast að allt það umhverfi er
hið ótrúverðugasta.
Engin tilraun
gerð til
að kafa
í ástand
m á l a í
fjármála-
geiranum,
þótt sögu-
sviðið bjóði
vissulega upp
á það, heldur
rekur hér hver
æsiviðburður-
inn annan og
íslenskur lesandi
rekur hvað eftir
annað upp stór
augu þegar lýst er
umhverfi og fólki.
Glæpaklíkuforing-
inn Krummi virðist
til dæmis hafa dottið
inn í söguna úr amer-
ískri melludólgamynd í
sínum rjómagulu jakka-
fötum með blingeyrnalokkana og
ekki verður sagan trúverðugri
þegar í ljós kemur að skuldabréf
sem varða hlutabréfakaup upp á
milljónir eru geymd undir laus-
um gólffjölum á skrifstofu fjár-
málafyrirtækis. Það eru fjanda-
kornið takmörk fyrir því hversu
langt lesandi er tilbúinn að ganga
í kaupum á skálduðum heimi
þegar hann hefur á ytra borði
svona rammgerð tengsl við veru-
leikann.
Sú hugmynd að stilla þess-
um þremur heimum upp
hlið við hlið er góð og les-
andinn er fullur forvitni
og tilhlökkunar við upp-
haf lesturs. Byrjunin
lofar góðu og endurlitin í
Breiðholtið vekja áhuga
á að vita meira um það
hvernig persónurn-
ar sem þar koma við
sögu þróist. Lýsing-
ar á Bader-Meinhof
hópnum og áhrif-
um aðgerða hans á
róttæku og reiðu
ungu mennina
í Fellunum eru
líka skemmti-
l e g a r o g
umhugsunar-
verðar og vel
til fundið að
rokka á milli
aðdragandans
að hruni Alþýðulýð-
veldisins þýska og fjármála-
bólu Íslands. Það eru því djúp von-
brigði að sagan skuli hálfpartinn
renna út í sandinn og enda í amer-
ískri B-mynd.
Friðrika Benónýsdóttir
NIÐURSTAÐA: Góð hugmynd og
góðir sprettir nægja ekki til að gera
Hryðjuverkamaður snýr aftur að
áhugaverðri skáldsögu. Til þess eru
ódýru lausnirnar of margar og sagan
ristir of grunnt.
Hryðjuverk hjartans
TÓNLIST ★★ ★★★
Davíð Þór Jónsson og
Skúli Sverrisson
impróvíseruðu í Hallgrímskirkju
REYKJAVÍK MIDSUMMER MUSIC
LAUGARDAGINN 20. JÚNÍ
Ég fór á kammerhátíðina Reykja-
vík Midsummer Music um helgina.
Flytjendurnir voru allir í fremstu
röð og verkefnavalið var einstaklega
áhugavert. Víkingur Heiðar Ólafsson
var listrænn stjórnandi hátíðarinn-
ar og ástríða hans og þekking á tón-
list skein í gegn. Eitt af því sem var
svo skemmtilegt við hátíðina var að
bæði voru þarna misgömul tónverk
sem hafa staðist tímans tönn, og svo
fékk tilraunamennska veglegan sess
í dagskránni. Auðvitað heppnast til-
raunir ekki alltaf, en lífið væri svo
sannarlega aumt ef maður þyrði
aldrei að taka áhættu.
Á laugardaginn komu tveir snill-
ingar fram í Hallgrímskirkju, þeir
Skúli Sverrisson á rafmagnsbassa
og Davíð Þór Jónsson píanóleikari
og altmuligmand. Davíð spilaði á
stærsta hljóðfæri landsins, Klais-
orgelið svonefnda. Báðir tónlistar-
mennirnir eru vanir því að leika af
fingrum fram, og það var einmitt
það sem þeir ætluðu að gera nú. Ég
hugsaði mér gott til glóðarinnar, það
er ekki langt síðan Davíð og fiðlu-
leikarinn Pekka Kuusisto göldruðu
fram þvílíkan tónaseið að lengi verð-
ur í minnum haft.
En spuninn í Hallgrímskirkju var
þunnur þrettándi. Upphafshending-
arnar í orgelinu voru ekki bitastæðar
og þær urðu aldrei að neinu mark-
verðu. Bassaleikur Skúla var líka
undarlega einhæfur, aðallega ein-
hvers konar drunur sem urðu fljótt
leiðigjarnar.
Hugsanlega hafði Davíð Þór ekki
gefið sér nægilegan tíma til að kynn-
ast orgelinu og möguleikum þess.
Þeir eru gríðarlega fjölbreyttir, það
eru ekki orðin tóm að orgelið (og þá
sérstaklega voldugt orgel Hallgríms-
kirkju) er kallað drottning hljóðfær-
anna. Orgelleikarar eru almennt
þjálfaðir í að leika af fingrum fram;
ég hef heyrt undursamlega spuna í
þarna í kirkjunni. Spuninn nú var
hins vegar óttaleg flatneskja; fæstar
af hinum fjölmörgu röddum orgels-
ins fengu að njóta sín. Og rödd bass-
ans hafði lítið að segja. Þetta voru
vonbrigði.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Tveir frábærir listamenn
náðu aldrei almennilega saman og spun-
inn sem þeir báru á borð einkenndist af
hugmyndafátækt.
Þunnur þrettándi í Hallgrímskirkju
„Ég er fæddur á Siglufirði en alinn
upp í Kópavogi. En ég var alltaf á
Siglufirði á sumrin þannig að ég er
víst svokallaður sumaralningur,“
segir Gunnsteinn Ólafsson, list-
rænn stjórnandi og upphafsmaður
Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði.
En hátíðin hefur vaxið og dafnað
allt frá stofnun enda bráðskemmti-
leg viðbót við bæði tónlistar- og
ferðaflóru Íslendinga.
Gunnsteinn segir að upphaf
hátíðarinnar megi í raun rekja
allt aftur til þess þegar hann sneri
heim úr sínu tónlistarnámi, en þá
hafi hann meðal annars starfað
sem leiðsögumaður fyrir norðan.
„Mér fannst vera brýn þörf á því
að gera íslenskri þjóðlagatónlist
hærra undir höfði og kom því að
máli við Siglfirðinga með þá hug-
mynd að koma á laggirnar bæði
þjóðlagasetri og þjóðlagahátíð.
Bjarni Þorsteinsson bjó á Siglu-
firði og þar gaf hann út sitt þjóð-
lagasafn fyrir ríflega öld og því
fannst mér að Siglfirðingum ætti
að renna blóðið til skyldunnar með
að sinna þessum mikilvæga arfi.
Siglfirðingar tóku auðvitað undir
það og komu svo aftur að máli við
mig og fengu mig til verksins –
svona hugmyndir rata þannig auð-
vitað aftur til upphafsins,“ segir
Gunnsteinn og hlær.
„En Þjóðlagasetrið er orðið að
veruleika í Maðdömuhúsi, þar
sem séra Bjarni var búsettur, og
hátíðin dafnar. Auðvitað er alltaf
ákveðinn barningur að fjármagna
svona hátíðir. En það er gaman
að segja frá því að tónlistarmenn
sækjast eftir því að koma og taka
þátt, þannig að það margt spenn-
andi í boði.
Að þessu sinni koma margir
góðir gestir frá Norðurlöndunum
og þar á meðal hópur tónlistar-
manna sem ætlar að flytja tón-
list frá tímum Ólafs helga Noregs-
konungs sem er mjög spennandi
viðburður. Þá má ég til með að
nefna bandaríska fiðlusnillinginn
Jamie Laval og eins portúgölsku
snillingana Joao Afonso og Filipe
Raposo sem flytja ástar- og bylt-
ingarsöngva landa síns, Josés
Afonso. Svo ætla þeir félagar í
Hundur í óskilum að mæta með
Lúðrasveitina Svaninn og flytja
úrval af sínum vinsælustu lögum.
En þetta er nú bara svona brot af
því besta og erfitt að vera að gera
upp á milli.“
Eitt það allra skemmtilegasta
við Þjóðlagahátíðina á Siglufirði
er að þar er boðið upp á ýmis
skemmtileg námskeið og öllum
gefst tækifæri til að taka þátt.
„Námskeiðin eru bæði fyrir hljóð-
færaleikara og þá sem vilja koma
og sækja sér fræðslu og skemmt-
an. Við reynum að virkja alla því
þannig njótum við öll hátíðarinn-
ar sem best. Það þarf nefnilega að
sinna þjóðlagaarfinum til þess að
hann haldi áfram að lifa með þjóð-
inni. Ég hvet fólk til þess að kynna
sér vel hvað er í boði á vefsíðunni
okkar folkmusik.is og koma svo og
hafa gaman af þessu með okkur.“
magnus@frettabladid.is
Þjóðlögin lifa
með okkur
Gunnsteinn Ólafsson er listrænn stjórnandi Þjóð-
lagahátíðar á Siglufi rði sem verður haldin 1.–5. júlí.
FJÖLBREYTNI Það koma gestir víða að á Þjóðlagahátína á Siglufirði og fólkið í
Fjallabyggð lætur ekki heldur sitt eftir liggja.
Mér fannst vera
brýn þörf á því að gera
íslenskri þjóðlagatónlist
hærra undir höfði og
kom því að máli við
Siglfirðinga með þá
hugmynd að koma á
laggirnar bæði þjóðlaga-
setri og þjóðlagahátíð.
Gunnsteinn Ólafsson,
listrænn stjórnandi
MENNING
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
D
2
-1
1
6
C
1
7
D
2
-1
0
3
0
1
7
D
2
-0
E
F
4
1
7
D
2
-0
D
B
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
5
6
s
_
2
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K