Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2008, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2008, Blaðsíða 2
fimmtudagur 28. ágúst 20082 Fréttir Ólafur Stefánsson var hetja gærdags- ins þegar hann flutti auðmjúkur og nærri því orðlaus ræðu fyrir hönd landsliðsins fyrir framan tugþúsund- ir Íslendinga. Ólafur hóf ávarp sitt með frægasta frasa landsins síðustu daga. „Bíp,“ var það fyrsta sem hann sagði. „Það er ótrúleg gjöf að vera Ís- lendingur,“ sagði Ólafur svo eftir að hafa klórað sér um stund í höfðinu. Fyrir framan hann stóðu gapandi áhorfendur sem biðu þess að heyra landsliðsfyrirliðann ávarpa fjöldann. „Það eru aðeins þrjú hundruð þúsund manns sem hafa fengið þá gjöf að vera Íslendingur, frá þeim þarna uppi, eða hverjum sem er,“ sagði hann, benti til himins og upp- skar gríðarleg fagnaðarlæti um það bil 50 þúsund Íslendinga við Arnar- hól. Af þeim rúmlega þrjú hundruð þúsundum sem fengu þá gjöf að vera Íslendingar voru um sautján prósent samankomin í miðborginni í gær til þess að halda upp á árangur lands- liðsins. Reykjavík heyrði í þotunni Íslenska þjóðin stóð sannarlega á öndinni í gær þegar Icelandair Cargo flugvél hringsólaði yfir Reykjavík um klukkan fjögur í gær. Að þessu sinni voru ekki stríðstæki á leið til Georg- íu farmur vélarinnar. Þeirra í stað voru annars konar vopn um borð. Nefnilega íslensku fallbyssurnar og víkingarnir sem tryggðu sér silfur- verðlaun á Ólympíuleikunum í Pek- ing. Eftir að silfurhetjurnar lentu á Reykjavíkurflugvelli var þeim tekið fagnandi af fjölskyldum, fjölmiðla- mönnum og æstum aðdáendum. Því næst lá leiðin á Kjarvalsstaði þar sem Reykjavíkurborg hélt mót- töku til heiðurs landsliðinu. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri upplýsti á athöfninni á Kjarvalsstöð- um að sérstakur Silfursjóður hefði verið stofnaður fyrir reykvísk börn. Skólar í Reykjavík munu geta sótt um fjármagn úr sjóðnum árlega, fram að næstu ólympíuleikum árið 2012. Gerum okkar besta Mannfjöldinn sem var saman- kominn á Skólavörðustíg til að hylla landsliðið var meiri en flestir hefðu getað ímyndað sér. Ólafur Stefáns- son lýsti því yfir á Arnarhóli, seinna um daginn, að ferð landsliðsins á opna pallbílnum hefði verið ein ótrúlegasta stundin í lífi hans. Þús- undir manna veifuðu og fögnuðu hetjunum þegar þær gerðu sér leið niður Skólavörðustíginn. Um það bil fimmtíu þúsund manns voru samankomin við Arn- arhól, þegar Stuðmaðurinn Val- geir Guðjónsson hóf að kynda upp í mannskapnum. Hann bað gesti að mynda orku á álver áður en þjóðin brast í söng með vel völdum ættjarð- arlögum. Landsliðsmennirnir, þjálf- ararnir og starfsliðið voru svo kynnt, hver á fætur öðrum, og ætlaði allt um koll að keyra þegar þjóðhetjan Ólaf- ur var kynnt upp á svið. Á sviðinu voru samankomn- ir valdir ráðherrar úr ríkisstjórninni ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, for- seta Íslands, og Hönnu Birnu. Ráð- herrarnir tóku á móti leikmönnunum á sviðinu, ýmist með handabandi, kossum eða faðmlögum. Allt eftir því hvað hverjum datt í hug. BÍP, BREYTUM HEIMINUM Ólafur Ragnar hélt ekki ræðu við Arnarhól í gær heldur féll það Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur í skaut að halda stutta ræðu. valGEIR ÖRN RaGNaRSSON blaðamaður skrifar: valur@dv.is Þjóðin fagnaði íslenska handboltalandsliðinu í gær. Tugir þúsunda voru samankomnir við Arnarhól, þar sem ráðherr- ar úr ríkisstjórninni, forsetinn og borgarstjórinn höfðu rað- að sér upp á svið til þess að hylla hetjurnar. Ólafur Stefánsson stal senunni með hjartnæmu ávarpi til þjóðarinnar, þar sem hann lýsti yfir stolti sínu af því að vera Íslendingur. Hann sagði að Íslendingar ættu að halda áfram að vera bestir. Stal senunni Ólafur ávarpaði íslensku þjóðina með sínum hætti og stal senunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.