Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2008, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2008, Blaðsíða 12
fimmtudagur 28. ágúst 200812 Fréttir Enga afsökun vegna offitu Breskir íhaldsmenn segja að fólki eigi ekki að bjóðast afsökun vegna eigin offitu. Þeir telja að fólk eigi að axla meiri ábyrgð á lífsstíl sín- um, matarvenjum og hreyfingu. Íhaldsmenn ætla ekki að styðja að matvæli yrðu sérstaklega merkt sem fitandi eða sykurrík heldur einbeita sér að ráðleggingum um heilbrigðara fæði í stað þess að ala á ótta við ruslfæði. Andrew Lansley í Skuggaráðu- neytinu sagði að heilbrigðar mat- arvenjur þyrftu ekki að fela í sér útilokun til frambúðar á frönsk- um kartöflum, eða rjómaís, en það mætti aldrei teljast eðlilegt að verða of feitur. Rússar halda áfram að ögra Vestur- löndum og með þeirri ákvörðun að viðurkenna sjálfstæði aðskilnaðar- héraðanna Suður-Ossetíu og Abkas- íu, þvert gegn ráðleggingum, hafa Rússar undirstrikað viðhorf sín. Rússar segjast ekki óttast neitt, þar með talið nýtt kalt stríð við þá sem standa gegn þeim í málinu. Rússar hundsa alþjóðasamfélagið Forseti Rússlands, Dmitry Med- vedev, samþykkti kosningu rúss- neska þingsins sem í byrjun vikunn- ar ákvað einróma að viðurkenna héruðin tvö sem sjálfstæð ríki. Með aðgerðunum hundsa Rússar ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og ganga þvert á vilja vestrænna ríkja um að landamæri Georgíu yrðu virt. Á þriðjudagskvöldið sakaði Medved- ev svo ríkisstjórn Bandaríkjanna um að dulbúa vopna- og hergagnasend- ingar sínar til Georgíu sem neyðar- aðstoð. Rússar eru sagðir hafa með þessu manað Evrópu og Bandarík- in til að bregðast við ákvörðun sinni. Rússar telja þó að skiptar skoðan- ir séu á gjörðum sínum meðal Evr- ópuríkja, og því verði aðgerðir gegn þeim af skornum skammti af hálfu Evrópuríkja. Óttumst ekki kalt stríð Yfirvöld í Washington fordæmdu ákvörðun Rússa. Bretar kalla eftir því að Evrópuríki sameinist gegn ágangi Rússa. Svíar segja að Rússar hafi kallað yfir sig árekstur við Vestur- lönd, á meðan alþjóðlegar stofnan- ir segja yfirlýsingu Medvedev ólög- mæta og óásættanlega. „Við óttumst ekki neitt, ekki heldur nýtt kalt stríð ef til þess kemur,“ sagði Medvedev á þriðjudaginn. „Rússland er ríki sem mun tryggja sína hagsmuni hvívetna við landamæri sín. Um það skal eng- inn efast,“ sagði Rússlandsforseti afar ógnandi. Georgíumenn saka Rússa um að halda hinni mikilvægu Svartahafshöfn Poti í hverkví, en því neita Rússar. Medvedev gekk skref- inu lengra og sakaði Bandaríkja- menn um að nota Poti til að flytja hergögn inn í Georgíu. „Það er engin herkví til staðar. Öll skip geta lagst að bryggjunni í Poti. Bandarísk skip og önnur nota hana til að flytja mann- úðaraðstoð til Georgíu. Og það sem Bandaríkjamenn kalla mannúðarað- stoð í þessu tilfelli, kalla aðrir vopn,“ er haft eftir Medvedev á BBC frétta- stofunni. Bitlaus Vesturlönd Utanríkisráðherra Rússlands, Sergei Lavrov, var fullur sjálfstrausts þegar hann lýsti því yfir að allar að- gerðir vestrænna ríkja gegn Rússum væru í mesta lagi orðin tóm og dipl- ómatískar refsiaðgerðir sem væru þolanlegar. „Ég hef ekki trú á því að einangrun Rússa í alþjóðasamfélag- inu sé yfirvofandi. Þetta verður eng- inn dómsdagur,“ sagði Lavrov. Suður-Ossetía þungamiðjan Baráttan um Suður-Ossetíu var kveikjan að átökum fyrir nokkrum vikum síðan milli Rússa og Georgíu- manna. Í héraðinu búa um 70 þúsund manns sem telja sig Rússa frekar en Georgíumenn. Hið fátæka og glæpum hrjáða fjallahérað er talið eiga lítinn raunhæfan möguleika á að verða sjálf- stætt ríki, og er talið að yfirlýsing Rússa sé fyrirboði um innlimun héraðsins í Rússland að sögn Mikheil Saakashvili, forseta Georgíu. Upphaf átakanna má rekja til misheppnaðrar tilraunar Georgíumanna og Saakashvili til að ná aftur yfirráðum yfir Suður-Ossetíu. Rússar svöruðu með hernaðaraðgerð- um þar sem þeir töldu árás Georgíu- manna ógna lífi og limum rússneskra hjálparstarfsmanna og ríkisborgara í héraðinu. Síðan þá hafa ásakanir um þjóðernishreinsanir gengið á víxl. Stuðningsmenn Baracks Obama hafa lengi beðið þess að Hillary Clin- ton lýsi yfir skilyrðislausum stuðningi við hann. Lengi vel virðist sem það hafi vafist fyrir henni og djúpt hefur verið á endanlegri uppgjöf. Á landsþingi demókrata sem fram fer í Denver virðist sem henni hafi fundist tími til að lýsa yfir stuðn- ingi við Barack Obama, enda hefur hann farið frekar halloka en hitt sam- kvæmt skoðanakönnunum. Ekki hef- ur verið til bóta fyrir Barack Obama að stór hluti þeirra sem studdu fram- boð Hillary Clinton hafa lýst því yfir að þeir muni ekki greiða Obama at- kvæði sitt. „Það er mér heiður að vera hér í kvöld. Stolt móðir. Stoltur demókrati. Stoltur Bandaríkjamaður. Og stoltur stuðningsmaður Baracks Obama,“ sagði Hillary í opnunarræðu sinni í gærkvöldi. Hillary lagði áherslu á mikilvægi einingar innan flokksins og með tár í augunum sagði hún: „Nú er tíminn til að sameinast eins og einn flokkur með eitt markmið.“ Samkvæmt fréttum er Bill Clin- ton, eiginmaður Hillary og fyrrver- andi forseti, eitthvað tregari til að horfa fram veginn. Vinir hans segja að hann eigi erfitt með að segja skil- ið við biturleikann sem setti mark sitt á forkosningarnar. Bill er ósáttur við gagnrýni Obamas á þann tíma sem Bill var í Hvíta húsinu og þá ásökun að Bill hefði notað „kynþáttakortið“ í ákneðnum forkosningum. Kannanir á landsvísu sýna að tut- tugu prósent þeirra sem hefðu kos- ið Hillary Clinton munu kjósa John McCain, frambjóðenda repúblikana, þegar á hólminn kemur, eða jafnvel sleppa því að kjósa. „Barack Obama er minn fram- bjóðandi. Og hann verður að verða forseti okkar,“ sagði Hillary Clinton í ræðu sinni á landsþinginu. Skilaboð hennar gætu ekki verið skýlausari, en hvort þau komi til með að hafa áhrif á hörðustu stuðningsmenn hennar verður tíminn að leiða í ljós. Hillary Clinton hefur loks gert það sem beðið hefur verið eftir: „Obama er minn frambjóðandi“ Obama fylgist með ræðu Hillary Clinton Hillary hefur borið klæði á vopnin í slag sínum og Baracks. mynd/afP SiguRðuR Mikael jÓnSSOn blaðamaður skrifar: mikael@dv.is „Við óttumst ekki neitt, ekki heldur nýtt kalt stríð ef til þess kemur.“ – Dmitry Medvedev RússaR óttast EkkERt Ákvörðun Rússa að viðurkenna sjálfstæði Suður-Ossetíu og Abkasíu er ögrun við Vesturlönd. Rússar óttast ekki refsi- aðgerðir og því síður að þeir hafi lagt línurnar að nýju köldu stríði. Forseti Rússlands sakar Bandaríkin um að dulbúa vopnasendingar til Georgíu sem neyðaraðstoð. Sjálfstæði fagnað Íbúar suður-Ossetíu fagna sjálfstæðisyfirlýsingu rússa með fánaburði og skotvopnum. mynd/afP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.