Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2008, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2008, Blaðsíða 9
fimmtudagur 28. ágúst 2008 9Fréttir Taka sveig framhjá húsinu Íbúar við Laufrima eru margir hverjir ósáttir við að Ágústi Magnússyni skuli leyft dvelja í hverfi þeirra. Hann var dæmdur í fimm ára fangelsi árið 2004 fyrir að níðast kynferðislega á sex drengjum. Foreldrar eru uggandi og börn breyta leið sinni til og frá skóla. Íbúar í Laufrima og nágrenni eru margir hverjir mjög ósáttir við að Ágúst Magnússon, dæmdur barnaníðingur, haldi til í hverf- inu og þar með í nágrenni við þrjá leikskóla og einn grunnskóla. Þeir furða sig á því að Fangelsismála- stofnun samþykki að Ágúst sé í svo barnmörgu hverfi. Kvartanir íbúanna við Fangelsismálastofn- un og lögreglu hafa engan árang- ur borið. Stofnunin má ekki tjá sig um einstaka mál en samkvæmt regl- um getur hún sett ákveðin skil- yrði fyrir reynslulausn fanga. Ekki fékkst uppgefið hvaða skilyrðum Ágúst er bundinn. Skilyrðin geta verið margskonar. Allt frá vinnu- stað, dvalarstað, umgengni við annað fólk og jafnvel iðkun tóm- stundastarfa. Hvert mál er einstakt og lýtur sjálfstæðu mati með tilliti til skilyrða. Séu þau brotin er hægt að afturkalla reynslulausnina. Foreldrar áhyggjufullir DV greindi frá því í síðustu viku að Ágúst býr í foreldrahúsum í Rimahverfi í Grafarvogi. Hann er með útsýni yfir leikskóla sem er í aðeins nokkurra skrefa fjarlægð frá íbúð föður hans. Íbúar í blokk- inni sem Ágúst býr í eru uggandi yfir veru hans þar og afar áhyggju- fullir yfir velferð sinna barna. Sagði einn íbúinn í samtali við DV að það væri ekki til pabbi í blokkinni sem væri ekki til í að ganga í skrokk á honum. Hann bætti þó við að það myndi engum tilgangi þjóna. Íbúarnir væru búnir að láta lögregluna vita af veru hans en ekkert væri aðhafst. Úrræð- in sem lögregl- an hefur eru fá þegar hann hef- ur ekkert brotið af sér. Hefur ekki brotið af sér Brjóti fangi á reynslulausn af sér er hann umsvifalaust settur aft- ur í fangelsi. Ágúst hefur ekki brot- ið þessi skilyrði hingað til. Hann stundar sína vinnu og mætir á sína fundi með sálfræðing. Skilyrðin sem hann hefur fengið frá Fang- elsismálastofnun virðast sam- kvæmt því vera þau að hann búi í Laufrima í foreldrahúsum. Ágúst fær póstinn sinn sendan í Laufrimann. Hann reyndi að selja manni tölvu ekki alls fyrir löngu en íbúi í húsinu varð vitni að því að væntanlegum kaupanda virtist allt í einu bregða og flýtti sér í kjöl- farið út. Börnin taka sveig framhjá húsinu Hverfið sem Ágústi var komið fyrir í er rólegt fjölskylduhverfi með fjölda barna. Nú þeg- ar allir skólar landsins eru teknir til starfa eru börn- in í Rimahverfi eðli- lega skelkuð. Þau vilja ekki labba framhjá húsinu þar sem Ágúst býr vegna hræðslu við hann. Sum taka stór- an sveig á leiðinni heim úr skólanum sem nú er ný- hafinn. „Ég skil ekki af hverju hann er ekki settur bara meðal eldri borgara. Þeim stafar enginn ógn af honum. Að planta honum hér í rótgrónu barnahverfi er algjörlega út í hött,“ sagði einn íbúinn sem DV ræddi við. Barnagirnd á háu stigi Ágúst hefur lokið tveimur þriðju hluta afplánunar sinnar og er á reynslulausn. Samkvæmt sálfræði- mati hefur Ágúst barnagirnd á háu stigi en dómurinn sem hann fékk árið 2004 er einn sá þyngsti sem fallið hefur hér á landi. Meðan á réttarhöldum í málinu stóð reyndi Ágúst að tæla til sín barn í gegnum netið. Hann gekk í gildru Kompáss sem lagði gildru á netinu með tálbeitu. Benedikt Bóas HinRiksson blaðamaður skrifar: benni@dv.is Rólegt fjölskylduhverfi Hverfið þar sem ágúst dvelur hefur haft orð á sér fyrir að vera rólegt og þægilegt fjölskylduhverfi. MYnd RakeL Barnaníðingur ágúst var dæmdur í fimm ára fangelsi árið 2004 fyrir gróf kynferðisbrot gegn sex drengjum. Litla-Hraun ágúst á hættu á að verða sendur aftur á Litla-Hraun ef fangelsismála- stofnun telur hann brjóta skilyrði sem honum voru sett þegar hann fékk reynslulausn. Skilyrðin geta verið margs konar. Allt frá vinnustað, dvalar- stað, umgengni við annað fólk og jafn- vel iðkun tómstunda- starfa. Lögregluembætti landsins búa við krappan kost: Neyddir í niðurskurð vegna fjársveltis REYKJAVÍK Ið n ó Fr ík Ir k ja n H á s k ó la b íó Ið n ó Fr ík Ir k ja n O r g a n Fr ík Ir k ja n O r g a n H á s k ó la b íó n a s a g la u m b a r n O r r æ n a H ú s Ið V O n a r s a lu r I n g ó lF s n a u s t Iðnó FríkIrkjan Háskólabíó Iðnó FríkIrkjan Organ nasa glaumbar Háskólabíó Iðnó PO RT h ön nu n w w w. m idi .is JAZZHÁTÍÐ 2008 Fimmtudagur 28. ágúst • • KL 21 Háskólabíó - Gítarhátíð Bjössa Thor Philip Catherine, Kazumi Watanabe, Maggi Eiríks, Þórður Árnason RAUÐI JAZZPASSINN GILDIR Kr3000/2000 Gítarhátið Bjössa Thor er fastur liður í Jazzhátíð Reykjavíkur. Gítarleikarinn snjalli ferðast tónlistarmanna mest og kemst þannig í návígi við vopnabræður sína um víða veröld. Með gítarveislunni er ætlunin að koma á föstum grundvelli fyrir vinsælasta hljóðfæri tónlistarsögunnar. Gestir ársins eru Kazumi Watanabe frá Japan og jazzleikari Evrópu árið 2007 PhilipCatherine frá Belgíu. Magnús Eiríksson og Þórður Árnason verða fulltrúar lands og þjóðar auk ryþmaparsins Jóhanns Hjörleifssonar trommuleikara og Jóns Rafnssonar bassaleikara. Einn heppinn tónleikagestur vinnur gæðagítar frá Tónastöðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.