Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2008, Blaðsíða 14
fimmtudagur 28. ágúst 200814 Umræða
Viska silfursins
svarthöfði
reynir TrausTason riTsTjóri skrifar Skýr merki eru um að vofa davíðskunnar leikur ljósum logum.
Forsetanum ýtt til hliðar
Leiðari
Undanfarin ár hafa einkennst af óvæginni baráttu ákveðinna afla í samfélaginu gegn Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands. Brögðum hefur verið beitt til að ýta forsetanum til hliðar
við stóratburði sem snerta alla þjóðina. Þegar þjóð-
in fagnaði 100 ára heimastjórnarafmæli gætti Davíð
Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, þess jafn-
an að vera í sviðsljósinu. Hámarki náðu deilurnar
við forsetann þegar hann greip til þess drengskap-
arráðs að stöðva illræmd fjölmiðlalög sem sett voru
fram af blindri heift gegn einstökum fyrirtækjum. Sú
aðgerð var ekki til þess að bæta andrúmsloftið gagn-
vart forsetanum. Þegar Geir H. Haarde tók við völd-
um sem forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðis-
flokksins, kviknuðu vonir um að árásum á forsetann
myndi linna. Því miður er það ekki svo. Þegar sönn-
um hetjum Íslands, handboltalandsliðinu, var fagnað í
miðborg Reykjavíkur var forsetinn án hlutverks.
Skýr merki eru um að vofa davíðskunn-
ar leikur ljósum logum. Í stað
þess að fara þess á leit við
þjóðhöfðingjann að hann
yrði í fararbroddi þjóðar við
að fagna landsliðinu sigursæla var honum hald-
ið til hliðar. Menntamálaráðherrann lét sem
þjóðhöfðingi og ávarpaði mannfjöldann á
sigurstund allrar þjóðarinnar. Þótt ákveðið
hefði verið fyrir nokkru að veita landslið-
inu fálkaorðuna við heimkomuna höfðu
ráðamenn ekki félagslegan þroska til þess
að óska eftir því að sú athöfn færi fram
þar sem mannfjöldinn fagnaði hetjum
sínum. Forsetanum var vikið til hliðar
en mátti náðarsamlegast vera viðstadd-
ur hátíðina sem statisti. Orðuveitingin
fór fram á Bessastöðum, fjarri almenn-
ingi, í stað þess að leyfa þjóðinni að njóta
þeirrar stundar. Forsetinn er þjóðkjörinn
sem sameiningartákn allra Íslendinga í
gleði sem sorg. Athyglissjúkir ráðherrar
mega ekki komast upp með að nið-
urlægja embættið. Landslið-
ið í handknattleik, silfri
skreytt, á ekki að
nota í óprúttnu
valdatafli.
spurningin
„Silfrið er í tísku
núna. Ég var
frumkvöðull í
silfurumræðunni
og því mun nafnið
standa,“ segir
Egill Helgason
léttur í bragði.
Egill stýrir sem kunnugt er umræðu-
þættinum silfri Egils en málmurinn
silfur hefur verið áberandi á Íslandi
undanfarna daga, eftir frækilegt afrek
handboltaliðsins á Ólympíuleikunum.
Egill mun sum sé halda sig við silfrið.
Mun þáTTurinn
heiTa egils gull?
sandkorn
n Mikið gekk á í undirbúningi
hátíðar vegna komu landsliðs-
mannanna í handknattleik til
Íslands í gær. Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamála-
ráðherra lagði á það gríðarlega
áherslu að
halda sjálf
sviðinu við
athöfnina
og að Ólaf-
ur Ragnar
Grímsson
kæmist ekki
að til að
stela sen-
unni. Þá var einnig óróleiki í
kringum orðuveitinguna. Þrýst
var á orðunefnd að fjölga þeim
sem fengju slíkt djásn. Þar var
mest áhersla á að Kristján Ara-
son, formaður landsliðsnefndar,
fengi sína orðu. En nefndin gaf
sig ekki og ákvörðun forsetans
stóð óhögguð.
n Enn bólar ekkert á nýjum
forstjóra Landsvirkjunar í stað
Friðriks Sophussonar sem
hyggst setjast í helgan stein í
skjóli konu sinnar, sendiherrans
Sigríðar Dúnu Kristmundsdótt-
ur. Innan Sjálfstæðisflokksins
er vaxandi vilji fyrir því að Árni
Mathiesen fjármálaráðherra
taki starfið og hæfari fjármála-
ráðherra fáist þannig í ráðu-
neytið. Árni mun enn ekki hafa
látið undan þrýstingi en allt gæti
þó gerst á næstu vikum.
n Grétar Þorsteinsson mun
láta af störfum sem forseti ASÍ
síðar á þessu ári og verður nýr
forseti kosinn á ársfundi sam-
bandsins þann 23.-24. október
næstkomandi. Enn sem komið
er hefur enginn lýst áhuga á
forsetastólnum, enda er tíðrætt
innan verkalýðshreyfingarinnar
að slíkt yrði
meirihátt-
ar tímasó-
un. Víst er
talið að Gylfi
Arnbjörns-
son, fram-
kvæmda-
stjóri ASÍ,
muni ganga
í embættið nánast sjálfkrafa og
tala menn jafnvel um að það sé
fyrirfram ákveðið formsatriði og
fara þannig í fótspor Ásmund-
ar Stefánssonar sem breyttist
úr framkvæmdastjóra í forseta.
Hvort það svari kalli verkalýðs-
hreyfingarinnar um nýtt blóð í
forystuna skal ósagt látið.
n Mikil umsvif eru hjá Mosfells-
bæ í kringum hátíðina Í túninu
heima sem haldin verður um
helgina. Það er nýi upplýsinga-
stjórinn, Sigríður Dögg Auðuns-
dóttir, sem stjórnar markaðs-
setningunni
en við hlið
hennar, í
ráðgjafa-
hlutverki,
er Valdimar
Birgisson,
auglýs-
ingastjóri
Eyjunnar
og eiginmaður hennar. Það er
stutt á milli hjónanna eins og
sjá má á því að Mosfellsbær
auglýsir með nokkrum stæl á
Eyjunni. Allt í túninu heima.
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á nEtinu: dv.is
aðalnúmEr: 512 7000, ritstjÓrn: 512 7010,
áskriftarsÍmi: 512 7080, auglýsingar: 512 70 40.
Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Læknarnir hér
heima vildu
ekki skrifa upp
á að þetta væri
lífsnauðsynleg með-
ferð, sem þetta er, og
þeir eru búnir að vera
mjög erfiðir við mig.“
n Ragna Erlendsdóttir um hversu erfitt það
hefur reynst að fá Tryggingastofnun til að greiða
lífsnauðsynlega læknismeðferð dóttur hennar í
Bandaríkjunum. - DV
„Að öðryum ólöstuðum
er Einar Þorvarðarson
sá maður sem hefur
haldið Handknattleiks-
sambandi Íslands uppi
árum saman.“
n Ívar Benediktsson blaðamaður Morgunblaðs-
ins um hversu fáranlegt það sé að Einar
Þorvarðarsson framkvæmdarstjóri HSÍ sé ekki
sæmdur með orðu eins og aðrir í kringum liðið.
- Morgunblaðið
„Þegar leikurinn
er búinn var
hann á þessu
hættusvæði að
fara að steita
görn við dómarann,
það kann ekki góðri
lukku að stýra.“
n Logi Ólafsson þjálfari KR um rauða spjald
Viktors Bjarka Arnarssonar. - fotbolti.net
„Hann var bláedrú með
kókglas í hendi.“
n Ásdís Rán um Ólaf F.
Magnússon fyrrverandi
borgarstjóra sem hún hitti á
skemmtistaðnum Rex þegar
hann var ennþá í embætti. -
Fréttablaðið
bókstafLega
Íslenska þjóðin hefur gengið í gegnum djúpstæða hugarfars-byltingu undanfarna daga. Í fyrsta skiptið í áratugi hefur þjóð-
in sætt sig við að vera ekki best, og
hreinlega tekið því fagnandi. Þetta eru
silfuráhrifin.
Sálfræðilegar afleiðingar silfur- áhrifanna eru geigvænlegar. Þær felast fyrst og fremst í fyrir-bæri, sem hefur lengst af verið
óþekkt hérlendis, en er þekkt sem
hófsemd eða hófstilling í hinum stóra
heimi. Forngrikkir nefndu þennan
eiginleika sófrosýne, en hann hefur
ekki náð fótfestu hér á landi nema hjá
nauðugum bændum, og þá í formi
örbirgðar. Annar eiginleiki hefur aftur
á móti verið ráðandi. Hann kölluðu
Grikkir hybris, eða ofmetnað.
Íslendingar hafa á undanförnum áratugum verið uppfullir af hybr- is. Hljómsveitir stefndu jafnan á heimsyfirráð og mistókst í öllum
tilfellum. Íslenskar hljómsveitir tóku
sér nöfn eins og Beating Bishops og
Shooting blanks, og meira að segja
Bubbi reyndi að verða heimsfrægur.
Einungis Sigur Rós, hefur náð teljandi
árangri, enda býr hún yfir sófrosýne,
sem sýndi sig í því að syngja á íslensku
og neita að stytta lög fyrir Jay Leno.
Upp úr aldarmótunum varð það þannig, að íslenskir við-skiptamenn gátu hugsað sér fátt ömurlegra en að
reka hófstilltan rekstur innanlands.
Skuldsett útrás íslenskra banka og
viðskiptamanna var knúin áfram af
ofmetnaði. Kreppan er nú að refsa
okkur fyrir ofmetnaðinn.
Fögnuðurinn yfir silfrinu hef-ur gætt þjóðina sófrosýne. Nú þurfa Íslendingar ekki endilega að vera hamingju-
samastir í heimi, ríkastir í heimi og
vinna mest í heimi. Menn geta jafnvel
hugsað sér að eiga næstflottasta hús-
ið í götunni og næstflottasta bílinn.
Þannig gætu silfuráhrifin leitt til þess
að þjóðin verður ekki sú skuldsettasta
í heimi mikið lengur.
Silfrið kom eins og hin full-komna lexía á þeim dögum sem við erum að súpa seyðið af ofmetnaði
síðustu ára.
Hamingjan er ekki kapphlaup, heldur
hófstilling. Við verðum ekkert ham-
ingjusamari við að keppast við að
svara sem jákvæðast í alþjóðlegum
rannsóknum á hamingju. Hófstilling
og nægjusemi er lykillinn að ham-
ingjuríku lífi og fyrsta skrefið er að
taka silfrinu fagnandi. Mikilvægi
handboltalandsliðsins kemur enn
á ný í ljós.
Það hefði reynst katastrófa ef Íslendingar hefðu unnið gull-ið. Við hefðum ekkert lært af því og ofmetnaðurinn hefði
einungis færst í aukana, jafnvel farið
að trúa því raunverulega að Ísland
væri „stórasta land í heimi“.
Verst að við skyld-um vera
meira en tvö
þúsund
árum á eftir
öðrum að
öðlast hófs-
emd.