Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2008, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2008, Blaðsíða 16
fimmtudagur 28. ágúst 200816 Ættfræði 60 ára í dag 30 ára n Tomasz Kedzierski Sandgerðisvegi 7, Garður n Catalin Alexandru Sipoteanu Laugarvegi 5, Siglufjörður n Oddný Svana Friðriksdóttir Strandgötu 91, Eskifjörður n Rebekka Rut Rúnarsdóttir Dalbraut 10, Hnífsdalur n Jónas Þór Gunnarsson Háteigsvegi 40, Reykjavík n Ólafur Ragnar Ingvarsson Selvaði 7, Reykjavík n Ingi Þór Thorarensen Drekavogi 4, Reykjavík n Linda Kristín Adolfsdóttir Langholtsvegi 85, Reykjavík n Þóra Ósk Guðjónsdóttir Kirkjuhvoli, Eyrarbakki n Guðbjörn Dan Gunnarsson Blómvallagötu 13, Reykjavík n Edda Fanney Jónsdóttir Aðalstræti 129, Patreksfjörður 40 ára n Rimas Minderis Þórustíg 10, Njarðvík n Aldís Kristjánsdóttir Furugrund 16, Kópavogur n Jóhann Haukur Sigurðsson Smárarima 116, Reykjavík n Frosti Friðriksson Grettisgötu 20b, Reykjavík n Steinunn Arnars Ólafsdóttir Hjallahlíð 25, Mosfellsbær n Albert Hilmarsson Urðarmóa 12, Selfoss n Halldór Þráinsson Fagrahjalla 3, Kópavogur n Kristjana Hafliðadóttir Hraunbæ 120, Reykjavík n Bragi Rúnar Jónsson Trönuhjalla 7, Kópavogur n Guðmundur Jónsson Suðurvör 7, Grindavík n Unnsteinn B Árnason Hafnargötu 15, Bakkafjörður n Hrafn Ómar Gylfason Kristnibraut 87, Reykjavík 50 ára n Valdimar Stefánsson Höfðabrekku 21, Húsavík n Atli Elfar Atlason Bugðulæk 13, Reykjavík n Ingólfur Freysson Sólvöllum 6, Húsavík n Jóhann S Kristbergsson Greniteigi 21, Reykjanes- bær n Kristín Ágústsdóttir Grafhólum 8, Selfoss n Iðunn Gestsdóttir Seljabraut 36, Reykjavík n Jóhann Sigurólason Hofteigi 16, Reykjavík n Hallgrímur Bergsson Hlíðarvegi 24, Kópavogur 60 ára n Erna Jóna Arnþórsdóttir Álfhólsvegi 46b, Kópavogur n Erla Guðrún Hafsteinsdóttir Arnarsandi 1, Hella n Kolbrún Gunnarsdóttir Háahvammi 3, Hafnar- fjörður n Eðvarð Ingvason Bankastræti 14, Skagaströnd n Erna Hlöðversdóttir Hávallagötu 37, Reykjavík n Guðlaugur Loftsson Hamraborg 26, Kópavogur n Michael E Fitzgerald Norðurbrún 10, Reykjavík 70 ára n Margrét Þóra Vilbergsdóttir Hólmatúni 54, Álftanes n Sonja Valdemarsdóttir Sóleyjarima 7, Reykjavík n Dagbjört Kristín Torfadóttir Vesturvangi 4, Hafnarfjörður n Friðrik M Árnason Þorláksgeisla 6, Reykjavík n María Andrea Hreinsdóttir Brúnalandi 24, Reykjavík n Aðalgeir Gísli Finnsson Fjallalind 10, Kópavogur 75 ára n Steinunn Sveinsdóttir Hvassaleiti 25, Reykjavík n Laufey Aðalheiður Lúðvíksdóttir Þverholti 13, Mosfellsbær n Sólveig Guðr Eysteinsdóttir Sólheimum 23, Reykjavík 80 ára n Aðalheiður Lárusdóttir Mýrargötu 18, Neskaup- staður n Ásmundur Jónsson Seljalandi 5, Reykjavík n Sigvaldi Ármannsson Borgartúni 2, Hella n Magnea Magnúsdóttir Lambeyrarbraut 3, Eskifjörður n Sigríður G Guðjohnsen Meistaravöllum 7, Reykjavík n Trausti Magnússon Árstíg 7, Seyðisfjörður n Sigurjón Einarsson Hvassaleiti 20, Reykjavík n Klara Kristjánsdóttir Garðaflöt 1a, Stykkishólmur 85 ára n Ásdís Stefánsdóttir Sólvangi, Akureyri n Guðni E Guðnason Sóltúni 5, Reykjavík n Björn Jónsson Hólavegi 32, Sauðárkrókur 90 ára n Jóhann K Briem Árnason Fossheiði 56, Selfoss n Ásta B Ágústsdóttir Furugerði 1, Reykjavík n Ragnhildur Einarsdóttir Austurbyggð 17, Akureyri Magnús Þór sigMundsson tónlistarmaður og tónskáld Magnús fæddist í Njarðvíkum og ólst þar upp. Hann var í Barna- skóla Njarðvíkur og Gagnfræðaskóla Keflavíkur. Magnús lék, ásamt félaga sínum, Jóhanni Helgasyni, í hljómsveitinni Nesmönnum til 1970. Þeir störfuðu síðan saman sem dúett með kassag- ítara frá 1971 og sem laga- og texta- höfundar. Þá léku þeir skamma hríð með hljómsveitinni Ábót. Magnús og Jóhann fluttu til London 1973 og störfuðu þar með hljómveitinni Change næstu tvö árin en sveitin var stofnuð kringum lög og söng þeirra félaganna. Helstu meðlimir Change voru auk Magnús- ar og Jóhanns, þeir Birgir Rafnsson, Sigurður Karlsson og auk þess síðar, þeir Björgvin Halldórsson og Tómas Tómasson. Er hljómsveitin Change hætti í árslok 1975, varð Magnús um kyrrt í London, hóf sjálfstæðan feril, eink- um sem lagasmiður og sendi frá sér nokkrar plötur. Magnús flutti síð- an heim haustið 1978. Hann flutti í Hveragerði 2001 og hefur verið þar búsettur síðan. Plötur Magnúsar og Jóhanns: Magnús og Jóhann, 1972; Change 1974; Magnús og Jóhann (Hvíta platan), 1979; Magnús og Jóhann, 1980; Ljósaskiptin, 1984; Afmælis- upptökur, 1992; Lífsmyndir Magn- úsar og Jóhanns, safnplata með ýmsum söngvurum. Þá gáfu þeir út þó nokkrar litlar plötur í London og hér á landi, s.s. Yaketty yak, smack- etty smack. Sólóplötur Magnúsar: Happiness is Just a Rideaway, 1976; Still Pho- tograph, 1976; Börn og dagar, barna- plata 1978; Álfar, 1979; Draumur aldamótabarnsins, 1982; Óli prik, barnaplata 1984; Óli prik, barna- plata 1985; Cross Road, 1986; Ég ætla að syngja, barnaplata, 1987; Ís- land er land þitt, 1989; Íslandsklukk- ur, 1994; Iceland Folkmusic, 1996; Leggur og skel, barnaplata, 1999; Those Little Things, með söng dótt- ur hans, Þórunnar Antoníu; Hljóð er nóttin, 2005; Sea Son, 2007. Magnús hefur samið fjölda laga og texta fyrir yngri tónlistarmenn. Hafa mörg þeirra laga fengið góðar viðtökur og jafnvel unnið til verð- launa. Þá hefur hann komið að ýms- um plötuupptökum annarra tón- listarmanna. Í seinni tíð hefur hann auk þess samið fjölda texta fyrir aðra tónlistarmenn. Þekktastur slíkra texta er Þér við hlið en þekktustu lög hans fyrir aðra tónlistarmenn eru lögin Ást og Dag sem dimma nátt. Magnús og Jóhann komu síðast saman opinberlega á menningar- nótt í Reykjavík fyrir nokkrum dög- um og tóku þá mörg af sínum góð- kunnu, klassísku lögum, s.s. Mary Jane, Yaketty yak, smacketty smack, Ástin og lífið, Söknuður, Blue Jean Queen, Álfar, Ást og Ísland er land þitt. Fjölskylda Eiginkona Magnúsar er Jenný Borgedóttir, f. 2.1. 1965, leikskóla- kennari og leirkerasmiður. Börn Magnúsar frá því áður: Linda Magnúsdóttir, f. 5.3. 1967, snyrtifræðingur í Reykjavík; Thelma Magnúsdóttir, f. 7.1. 1972, viðskipta- fræðingur í Reykjavík; Baldvin, f. 15.5. 1982, tónlistarmaður í hljóm- sveitinni Forgotten Lores, í tónlist- arnámi í New York; Þórunn Antonía Magnúsdóttir, f. 28.7. 1983, söng- kona í hljómsveitinni Field í Lond- on. Synir Magnúsar og Jennýjar eru Sigmundur Magnússon; f. 26.4. 1989; Aðalsteinn Magnússon, f. 28.3. 1992. Magnús á sex barnabörn. Foreldrar Magnúsar: Sigmundur Baldvinsson, f. 4.10. 1918, d. 25.12. 2002, sjómaður í Njarðvíkum, og Anna Magnúsdóttir, f. 20.5. 1928, húsmóðir í Njarðvíkum. Afmælisdagur Magnúsar verður rólegheita dagur en þeir sem vilja kíkja við eru velkomnir í kaffi. Til hamingju með afmælið! Tinni fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Vesturbænum. Hann var í Melaskóla og Hagaskólanum, lauk stúdentsprófi frá VÍ 1998 og stund- aði nám við HÍ í verkfræði og bók- menntafræði. Tinni var leiðsögumaður í hesta- ferðum í Landsveitinni á mennta- skólaárunum, var blaðamaður við DV og síðan á Fréttablaðinu, var sviðsmaður í Þjóðleikhúsinu 2002- 2004, var ritstjóri Fókuss og síðar Sirkuss hjá DV 2004-2006 og hef- ur verið ritstjóri Húsa og híbýla frá 2006. Tinni var í hópi þeirra sem end- urvöktu Stúdentaleikhúsið árið 1999 eftir nokkurn dvala, sat í stjórn Stúdentaleikhússins og lék með því í nokkrum verkum. Þá hefur hann leikið nokkur hlutverk í Þjóðleik- húsinu. Hann er áhugamaður um kvikmyndagerð, hefur unnið með kvikmyndafélaginu Lorti sem vann meðal annars tvívegis Stuttmynda- daga í Reykjavík í kringum alda- mótin. Fjölskylda Eiginkona Tinna er Sigrún Edda Eðvarðsdóttir, f. 28.9. 1974, sem starfrækir verslunina Systur við Laugaveg. Börn Tinna og Sigrúnar Eddu eru Auður Mist Halldórsdóttir, f. 23.12. 2000; Hrafnkell Goði Hall- dórsson, f. 2.6. 2004. Systkini Tinna eru Hrafnhildur Eydal, f. 18.10. 1958, forstjóri í Nor- egi; Eyjólfur Sveinsson, f. 4.1. 1964, verkfræðingur í Reykjavík; Hléd- ís Sveinsdóttir, f. 2.5. 1965, arkitekt í Reykjavík; Sveinn Friðrik Eydal Sveinsson, f. 31.10. 1974, viðskipta- fræðingur í Reykjavík. Foreldrar Tinna eru Sveinn Eyj- ólfsson, f. 4.5. 1938, fyrrv. stjórnar- formaður Frjálsrar fjölmiðlunar og útgefandi DV, og k.h., Auður Eydal, f. 31.1. 1938, kennari og fyrrv. for- stöðumaður Kvikmyndaeftirlits rík- isins. Ætt Foreldrar Sveins: Eyjólfur Sveins- son, verslunarmaður í Reykjavík og k.h., Kristín Bjarnadóttir húsmóðir. Foreldrar Auðar: dr. Ástvald- ur Eydal, doktor í hagrænni landa- fræði og prófessor í landafræði við ríkisháskólann í San Francisco, og Fríða Þorgilsdóttir húsmóðir. Halldór Tinni sveinsson ritstjóri Húsa og Híbýla „Ég fer bara í skólann á afmæl- isdaginn,“ segir Rebekka. „Ég er að klára stúdentinn í Menntaskólan- um á Ísafirði.“ Rebekka býr í Hnífsdal þar sem hún segir að yndislegt og friðsælt sé að búa. Hún stefnir á að klára stúd- entinn á næsta ári og ætlar í meira nám að því loknu, jafnvel í sagn- fræði. „Ég held bara upp á afmælið með fjölskyldunni og kannski hitti ég vinkonurnar um helgina. Ég held það sé bara fínt að vera orðin þrí- tug, þetta er bara nýr kafli í lífinu.“ Aðspurð um eftirminnilegasta afmælisdaginn segir Rebekka að það sé tólf ára afmælisdagurinn. „Þegar ég varð tólf ára var bekkj- arpartí. Ég hef ekkert haldið upp á daginn að neinu ráði síðan ég var fimmtán ára, mér hefur ekki fund- ist það nógu merkilegt.“ Rebekka fer að hlæja þegar hún er spurð hvað hún vilji í afmælis- gjöf. „Það er ekkert sérstakt sem mig langar í í afmælisgjöf, bara hamingju.“ Það er nóg að gera hjá Rebekku, hún á tvö börn, tólf og fjögurra ára. „Ég baka eina súkkulaðiköku handa þeim, maður verður rukkaður um það,“ segir Rebekka að lokum. astrun@dv.is 30 ára í dag Rebekka Rut Rúnarsdóttir fagnar þrítugsafmæli sínu í dag: Yndislegt og friðsælt í Hnífsdal Rebekka Rut býr í Hnífdsdal þar sem hún segir að yndislegt og friðsælt sé að búa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.