Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2008, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2008, Side 17
„Við erum ekki með nein áform um að byggja stúku við Hásteinsvöll, en höfum lýst undrun okkar á því að KSÍ vilji koma í veg fyrir að lítið bæjarfé- lag taki þátt í keppni á meðal þeirra bestu,“ segir Elliði Vignisson, bæj- arstjóri í Vestmannaeyjum, eftir að KSÍ gerði Eyjamönnum ljóst að, að öllu óbreyttu, fengi félagið ekki að leika heimaleiki sína á Hásteinsvelli á næstu leiktíð, ef félagið kemst upp í efstu deild karla á ný. ÍBV er sem stendur efst í 1. deild karla í knatt- spyrnu með 8 stiga forskot á Stjörn- una sem er í þriðja sæti og ef félag- ið kemst upp í efstu deild þarf það að uppfylla viss skilyrði leyfiskerfis- ins svokallaða til þess að fá að leika þar. Eitt af þeim skilyrðum er að fé- lagið hafi yfirbyggða stúku sem skýl- ir í það minnsta helmingi áhorfenda. Nú þegar er stúka við Hásteinsvöll í Vestmannaeyjum en hún er ekki yf- irbyggð. Kaldar kveðjur frá KSÍ Í Vestmannaeyjum búa 4000 manns og Elliði segir mikla upp- byggingu vera í gangi í félaginu. „Við höfum lagt höfuðáherslu á að byggja upp íþróttaaðstöðu fyrir íþrótta- fólkið sjálft, aðalvöll, innanhússsali, lyftingaaðstöðu og erum að fara í að byggja knattspyrnuhús fyrir 300 milljónir. Því þykir okkur það horfa hálfundarlega við, þegar við höf- um unnið okkur sess á meðal þeirra bestu, að KSÍ vilji setja okkur fótinn fyrir dyrnar vegna þess að áhorfend- ur sitja ekki í yfirbyggðri stúku.“ Þórir Hákonarson, fram- kvæmdastjóri KSÍ, segir að lengi hafi legið fyrir að fé- lög í efstu deild hafi þurft að uppfylla skilyrði leyf- iskerfis sem þau sam- þykktu árið 2003. „Við erum aðilar að leyfis- kröfum UEFA og að- ildarfélögin á landinu samþykktu á sínum tíma að gangast und- ir þessar kröfur sem veita liðum meðal annars rétt til þess að leika heima- leiki sína í Evr- ópukeppni,“ seg- ir Þórir. Elliði telur aðlögunartíma þörf. „Vissulega hefur þetta leyfis- kerfi legið fyrir um hríð. En við féllum hins vegar niður í 1. deild og erum búnir að spila þar í tvö ár og erum að vinna okk- ur upp núna. Okk- ur finnst undarlegt ef við fáum ekki aðlögunartíma á ný. Því allir sem fylgjast með knatt- spyrnu hér á landi vita að það er eitt að vinna sér sæti í efstu deild en annað að halda sæti sínu þar. Því finnst okkur þetta svolítið kaldar kveðjur,“ segir Elliði. Hef trú á því að við náum að leysa málið Þórir Hákonarson hefur trú á því að hægt sé að leysa málið í sátt, en að óbreyttu fái ÍBV ekki að leika í Eyj- um á næstu leiktíð. „Ég hef fulla trú á því að við náum að leysa þetta mál í samráði við bæjaryfirvöld í Vestmanna- eyjum og knatt- spyrnufé- lagið ÍBV. Ég er ekki til- búinn að segja að það sé úti- lokað að félagið leiki á heimavelli sínum á næstu leiktíð. Að öllu óbreyttu get ég hins vegar ekki séð að félagið fái að leika í efstu deild á komandi leik- tíð, nema þá að fyrir liggi áætl- anir um hvernig uppbygg- ing eigi að fara fram,“ segir Þórir. Elliði Vignisson segir kröfu um stúku á þessum tímapunkti vera þungan bagga á bæjarfélaginu, þar sem önnur verkefni tengd íþróttum séu í forgangi. „Við skulum halda því til haga að ef við teljum bæði deild og bikar, þá eru 12 heimaleikir á ári hjá úrvalsdeildarliði. Með ein- földum hugarreikn- ingi geta all- ir séð að þetta mannvirki sem ver- ið er að fara fram á skiptir máli í 24 klukkustundir á ári. Dettur einhverj- um í hug að hagsmunir lítils sveitar- félags sem hugsar stórt liggi í því að byggja frekar yfir áhorfendur en ið- kendur?“ spyr hann. Óttast að minni bæjarfélög hætti íþróttaiðkun Elliði telur að minni bæjarfélög geti ekki keppt við þau stærri þegar kemur að íþróttaiðkun ef fram held- ur sem horfir. „Sjálfur sé ég ekki að krafa um stúkur í kringum keppn- isvelli í knattspyrnu hjálpi okkur í minni sveitarfélögunum til að eign- ast betra íþróttafólk, heldur þvert á móti er þessi krafa að trufla okkur í uppbyggingu á mannvirkjum sem skipta íþróttafólkið sjálft máli. Ég óttast að sá tími komi að sér- samböndin komi í veg fyrir að við í minni sveitarfélögunum getum elst við kröfurnar og þá er ef til vill sjálf- hætt í íþróttinni. Ég hins vegar neita að trúa því að KSÍ ætli sér að stilla Eyjamönnum upp hvað þetta varðar og teldi ég það kaldar kveðjur til bæj- arfélags sem staðið hefur jafn dyggi- lega við bakið á knattspyrnunni og þá sérstaklega á þeim tíma sem til stendur að verja hundruðum millj- óna í aðstöðu til knatt- spyrnuiðkunar. Vilji okkar og ætlun er alveg skýr. Við erum íþrótta- bær og ÍBV er flaggskip okkar. Með það í huga viljum við sam- vinnu við KSÍ eins og önn- ur sérsambönd um uppbygg- ingu íþróttalífs- ins,“ segir Elliði. fimmtudagur 28. ágúst 2008 17Sport Sport SKotar velja HÓpinn george Burley þjálfari skoska landsliðsins í knattspyrnu er búinn að velja landsliðshópinn sem mætir Íslendingum í undankeppni Hm 2010 þann 10. september næstkomandi. Í leikmannahópi skota ber helst að nefna darren fletcher leikmann manchester united og James mcfadden leikmann Birm-ingham og fyrrverandi leikmann Everton. Íslendingar leika einnig við Norð-menn á næstunni. KSÍ gaf út yfirlýsingu fyrir skömmu þar sem Eyjamönnum var tjáð að ef félagið ynni sér sæti í efstu deild fengi það ekki að leika á Hásteinsvelli á næsta ári sökum þess að það uppfyllir ekki allar kröfur leyfiskerfisins svokallaða. Leyfiskerfið tekur meðal annars til þess að félög þurfa að hafa helming stúku yfirbyggðan. Því er ekki að fagna í Vest- mannaeyjum en Eyjamenn eru ósáttir við kröfur KSÍ og segja aðlögunartíma stuttan. „Hefur legið fyrir frá árinu 2003,“ segir framkvæmdastjóri KSÍ. UrgUr í EyjamönnUm Margrét Kara ekki með Keflavík Kvennalið Keflavíkur í körfuknattleik verður án landsliðskonunar margrétar Köru sturludóttur í úrvals- deildinni á næstu leiktíð. margrét Kara ætlar að nema í Elon- háskólanum sem er í Norður- Karólínufylki í Bandaríkjunum. Þjálfari Keflavíkur, Jón Halldór Eðvaldsson, segir liðið koma til með að sakna hennar en maður komi í manns stað. „Þetta er alls ekkert reiðarslag fyrir okkur en við hefðum samt klárlega viljað hafa hana, enda er hún frábær leikmaður,“ sagði Jón Halldór í spjalli við dV. vidar@dv.is Milner á sölulista Kantmaðurinn James milner hefur beðið forráðamenn Newcastle um að verða settur á sölulista félagsins en þessi 22 ára gamli leikmaður vill breyta um umhverfi. „félagið er mjög vonsvikið yfir að James sjái framtíð sína ekki á st. James Park. Hann er mikilvægur leikmaður og það er einungis eitt ár síðan hann skrifaði undir langtímasamning,“ segir í yfirlýsingu á heimasíðu Newcastle. Þar kemur einnig fram að ekkert nægilega hátt tilboð hafi borist í kappann en milner hefur að mestu verið fastamaður í byrjunarliðinu síðan Kevin Keegan kom til félagsins. robinho fer til Chelsea fastlega er búist við því að brasilíski kantmaðurinn robinho fari til Chelsea frá real madrid innan fárra daga. málið hefur staðið um nokkra hríð en forráðamenn real madrid harðneituðu framan af sumri að robinho væri til sölu, en kantmaður- inn snaggaralegi vildi fara frá félaginu þar sem hann taldi sig ekki fá nægjanlega mörg tækifæri með liðinu á síðustu leiktíð. robinho þekkir vel til scolari, framkvæmda- stjóra Chelsea, enda eru kapparnir samlandar en robinho hefur margsinnis lýst yfir áhuga á því að vinna með honum. viðar GuðjÓnSSon blaðamaður skrifar: vidar@dv.is „Að öllu óbreyttu get ég hins vegar ekki séð að félagið fái að leika í efstu deild á komandi leiktíð.“ uppbygging Yfirbyggð stúka í Vestmannaeyjum kostar 60-70 milljónir króna. elliði vignisson Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum telur kröfur KsÍ á hendur ÍBV óraunhæfar og biður um aðlögunartíma. Þórir Hákonarson fram- kvæmdastjóri KsÍ segir að að öllu óbreyttu muni ÍBV ekki leika á heimavelli á næsta ári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.