Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2008, Side 20
fimmtudagur 28. ágúst 200820 Fókus
„Þetta er orðin árleg gítarveisla.
Við byrjuðum á síðasta ári og þá
gekk hún svo vel að það var ákveðið
á stjórnarfundi að gera þetta bara að
árlegum viðburði. Stefnan hjá okkur
er að vera alltaf með einhverjar ís-
lenskar gítarkempur ásamt erlend-
um súperstjörnum,“ segir gítarleikar-
inn Björn Thoroddsen sem stendur
fyrir hinni árlegu gítarveislu á Jazz-
hátíð í Háskólabíói í kvöld.
Það má með sanni segja að Björn
Thor hafi valið sérlega áhugaverða
gítarleikara til að spila með sér í ár.
„Japaninn Kazumi Watanabe og
Philip Catherine frá Belgíu komu til
landsins í gær en þeir eru báðir gríð-
arlega færir djassleikarar. Philip var
meðal annars valinn djassleikari Evr-
ópu í fyrra og Watanabe hefur verið
kosinn besti djassleikari ársins í tut-
tugu og fjögur ár samfleytt í Swing Jo-
urnal í Japan.“
Spila saman og hver í sínu lagi
Auk erlendu súperstjarnanna
koma ásamt Birni fram tveir af bestu
gítarleikurum Íslands, þeir Magn-
ús Eiríksson og Þórður Árnason.
„Magnús Eiríksson er einn af okkar
aðalblúsgítarleikurum og Stuðmað-
urinn Þórður Árnason er náttúrulega
alveg frábær líka. Við ætlum bæði
að spila allir saman og einir sér svo
það verða mörg sýnishorn af hinu og
þessu spiluð í kvöld.“
Philip og Kazumi komu til lands-
ins í gær og hafa strákarnir náð að
taka eina æfingu saman sem gekk
einstaklega vel. „Þetta verða mjög
skemmtilegir tónleikar, ég lofa því.
Við ætlum svo sannarlega að hafa
gaman af og ég efast ekki um að
áhorfendur eigi eftir að gera það
líka,“ segir Björn.
Rándýr gítar í verðlaun
Þess má geta að einn heppinn
áhorfandi vinnur veglegan og flott-
an gítar í boði Tónastöðvarinnar.
„Það verður dregið úr vinningspotti
úr seldum miðum og einn heppinn
áhorfandi fær afhentan á staðnum
mörghundruðþúsund króna gítar frá
Tónastöðinni.“
Hin árlega gítarveisla fer sem fyrr
segir fram í Háskólabíói í kvöld og
hefst klukkan níu. Hægt er að nálgast
miða á midi.is og við innganginn.
krista@dv.is
á f i m m t u d e g i
shorts&docs lýkur
Kvikmyndahátíðinni Reykjavík shoRts&Docs lýkur næstkomandi föstudag.
myndirnar sem sýndar verða í dag er Óður til Íslands, to die in Jerusalem,
monastery, usa vs. al-arian og Empire of Evil. myndirnar eru frá sjötíu og sex
mínútum upp í hundrað og fjörtíu mínútur. sýningar eru í austuRbæjaRbíói.
gítarkempur og
stórstjörnursamsýning
kristjönu
og Baltasars
Listamennirnir Kristjana Samper og
Baltasar Samper opna samsýningu í
Dalí Gallery laugardaginn 30. ágúst
klukkan fimm. Á sýningunni verða
sýnd málverk eftir Baltasar sem
unnin eru upp úr goðafræði, sér-
staklega Eddukvæðum og skúlptúr-
ar eftir Kristjönu sem vísa til fornrar
trúar. Kristjana Samper vinnur eink-
um í þrívidd, í stein, járn, tré, leir og
steinsteypu en Baltasar vinnur með
blandaða tækni í myndverkum sín-
um og síðasta áratug hefur hann að-
allega unnið með innbrennt vax og
var hann valinn heiðurslistamaður
Kópavogs 2007. Sýningin stendur til
14. september og eru allir velkomnir.
Aftan festival
í sandgerði
Tónlistarveisla verður haldin í Sand-
gerði í kvöld. Svokallað Aftan festival
fer fram á Mamma mía í Sandgerði
og hefjast tónleikarnir klukkan
níu. Fram koma meðlimir úr Hinu
alþjóðlegu trúbardorasamsæri og
hljómsveitin The Rockville Play-
boys. Tónlistarveislan er vettvang-
ur tónlistarmanna í Sandgerði og
nágrannasveitafélögum til að koma
list sinni á framfæri. Aftan festival er
upphafið á Sandgerðisdögum sem
fara fram 29-31. ágúst. Aldurstak-
mark er tuttugu ár og er aðgangur
ókeypis.
ArtFart
að ljúka
Um helgina líkur ArtFart-há-
tíðinni sem er samstarf ungra
sviðslistamanna á Íslandi. Verkið
Brák er nýtt leikverk eftir Bryn-
hildi Guðjónsdóttur og fjallar um
Þorgerði brák, ambátt Skalla-
gríms Kveldúlfssonar landnáms-
manns í Borgarfirði, og fóstru
Egils Skallagrímssonar. Sýning á
verkinu er klukkan þrjú á laugar-
daginn í Landnámssetrinu í Borg-
arnesi. Leikstjóri sýningarinnar
er Atli Rafn Sigurðarson.
Þegar margir einstaklingar
ákveða að fara saman út að borða
getur verið erfitt að ákveða hvert
skuli fara.
Einhverjir
vilja flott-
ar steikur og aðrir vilja fá sér góðar
pítsur. Í síðustu viku ætluðum við
vinkonurnar að gera okkur glaðan
dag og fara saman út að borða. Ein-
róma var ákveðið að fara á Reykja-
vík Pizza Company. Þar sem við
vorum fleiri en fimm ákvað ég að
hringja og panta borð. Strákurinn
sem svaraði flissaði að mér og sagði
að það þyrfti ekki að panta borð á
miðvikudegi og sérstaklega ekki á
meðan annar pítsustaður í borginni
væri með sína vinsælu tilboðsviku.
Þegar við mættum um hálf sjö var
ég fegin að hafa pantað borð, því
staðurinn var fullur af erlendum
ferðamönnum. Við fengum borð á
efri hæðinni á frekar huggulegum
stað. Þegar við vorum allar mætt-
ar kom afgreiðslustúlkan til okkar
og tók pöntun. Við spurðum hvort
það væri löng bið þar sem við vor-
um á smá hraðferð því við áttum að
mæta á annan stað þremur korter-
um seinna. Afgreiðslustúlkan sagð-
ist geta sett okkur framfyrir röðina
og vorum við mjög þakklátar fyr-
ir það. Maturinn kom rétt um tut-
tugu mínútum síðar og við náðum
að njóta matarins í botn. Pítsurn-
ar voru rosalega girnilegar og mjög
bragðgóðar. Eldbakaðar pítsur
klikka seint. Starfsfólkið var mjög
indælt og vildi nánast allt fyrir okk-
ur gera. Eina sem ég gæti kannski
sett út á staðinn var salernisaðstað-
an en hún var í minni kantinum en
þó hreinleg og því er varla hægt að
kvarta yfir því. Staðurinn fær topp
einkunn hjá mér og ég býst við því
að næst þegar mig langar í góða pít-
su mæti ég aftur á Reykjavík Pizza
Company.
Berglind Bjarnadóttir
BeRglind BjaRnadóttiR
fór á Reykjavík Pizza Company á
Laugarveginum
HRaði: HHHHH
VeitingaR: HHHHH
Viðmót: HHHHH
UmHVeRfi: HHHHH
VeRð: HHHHH
Eldbakaðar pítsur klikka sEint
í skyndi
Árleg gítarveisla Bjössa Thor fer fram í Háskólabíói í kvöld. Þar koma fram, ásamt Birni,
þeir Kazumi Watanabe, Philip Catherine, magnús eiríksson og Þórður Árnason.
Björn thoroddsen mundar gítarinn
í kvöld Hin árlega gítarveisla Björns fer
fram í Háskólabíói í kvöld.