Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2008, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2008, Síða 22
fimmtudagur 28. ágúst 200822 Fólkið Jón Gnarr og Pétur Jóhann Sigfússon voru við veiðar í gær við Kiðafellsá. Á myndinni með Jóni Gnarr er Gunnar Bender frá Akranesi. Eins og kemur fram á kjos.is sagði Gunnar að mikið af fiski væri í ánni. Einnig segir þar að þeir félagar hafi landað nokkr- um fiskum, bæði laxi og einum vænum sjóbirtingi. Hingað til hafa Jón Gnarr og Pétur Jóhann ver- ið þekktir fyrir margt annað en fiskveiðar en miðað við árang- ur þeirra í ánni fer það eflaust að breytast. Gestir veitingarstaðarins Flór- unnar í Grasagarðinum í Laugar- dalnum fengu óvæntan glaðning í gærkvöldi þegar söngkonan Björk leit við með fylgdarliði sínu. Björk sem hafði nýlokið tónleik- um ásamt hljómsveitinni Wonder- brass og Jónasi Sen í Langholtskirkju gæddi sér á góðum veitingum í góð- um hópi fólks sem hafi komið fram með henni á tónleikunum. Mikil stemming var í hópnum og tók kór- inn meðal annars lagið, sem gladdi óneitanlega gesti Flórunnar. Björk gleður gesti Byrjuðu á Botninum Kvikmyndahjónin Halldór Þorgeirsson og Guðný Hall- dórsdóttir eru nýir kennarar við Kvikmyndaskóla Ís- lands. Á laugardaginn fer fram heldur óvenjulegur en einkar líflegur úti- markaður Varmársamtakanna í Álafosskvosinni, en markaðurinn er hluti af bæjarhátíðinni Í túninu heima. Meðal þeirra sem leggja sam- tökunum lið er Jón Baldvin Hanni- balsson fyrrverandi ráðherra en hann hefur þann merka titil að vera yfir-rósameistari Varmár- samtakanna. „Hið alþjóðlega tákn jafnað- armanna í heiminum er rósin og hnefinn. Rósin táknar mildi og mannúð en hnefinn segir hingað og ekki lengra gegn ranglætinu,“ segir Jón Baldvin aðspurður um skýringuna á því að hann gegni þessu blómlega embætti. „Einhvern tímann háði ég nú kosningabaráttu og þá var á öllum mínum fundum sungið lagið Átján rauðar rósir. Ég komst nú aldrei almennilega uppá lag með það að syngja lagið sjálfur en það var alltaf sungið fyrir mig. Enn í dag er staður í Kópavoginum sem ber þetta fína nafn, Átján rauðar rósir. Með öðrum orðum sagt þá er eðli- legt að gamli kratinn sé yfir-rósa- meistari Varmársamtakanna.“ Auk rósasölu Jóns Baldvins, leikrits frá Ásgarði, flóamark- aðs og kaffiveitinga mun Elísabet Brekkan stýra uppboði á prins- essukjólum. Aðspurður um það hvort hann ætli ekki að bjóða í einn slíkan fyrir betri helming sinn, Bryndísi Schram sem verður fjarri góðu gamni í spænsku- námi í Andalúsíu svarar Jón: „Nei hún Bryndís þarf nefni- lega bara drottning- arkjóla.“ Nánari upplýsingar um hátíðina má finna á heimasíðu samtakanna: varmarsamtokin.blog.is. krista@dv.is gamli kratinn er rósameistarinn Jón Baldvin Hannibalsson er titlaður yfir-rósameistari Varmársamtakanna: „Þetta er mjög spennandi verkefni og ólíkt því sem við höfum verið að gera,“ segir Halldór Þor- geirsson kvikmyndaframleiðandi um nýtt verk- efni sem hann og eiginkona hans Guðný Hall- dórsdóttir takast nú á við. „Við fengum tölvupóst þess efnis að það vant- aði kennara við Kvikmyndaskóla Íslands sem er skemmtilegt því við hjónin höfðum einmitt verið að ræða það að við værum tilbúin að prufa eitt- hvað nýtt. Og slógum við því til.“ Aðspurður hverju þessi reyndu og hæfileika- ríku hjón ætli sér að miðla til nemenda Kvik- myndaskólans segir Halldór að hann muni kenna heimildamyndagerð og jafnvel koma inn á kvikmyndaframleiðslu á meðan Guðný mun kenna handritsgerð, leikstjórn og sjónvarpsgrín. Halldór og Guðný hafa bæði starfað við kvik- myndir frá unga aldri. „Þegar ég var nítján ára gamall heyrði ég af því að það ætti að gera kvik- myndina Snorri Sturluson og gerði ég allt sem í mínu valdi stóð til að fá vinnu við kvikmyndina. Ég suðaði og suðaði og notaði allar þær mögu- legu klíkur sem ég gat til að komast að, sem og ég gerði á endanum. Ég bara varð að vinna við þessa mynd. Á þessum tíma var kvikmyndagerð ekki kennd og því þurfti maður að byrja á botnin- um og vinna sig upp.“ Guð- ný gerði slíkt hið sama og vann við sína fyrstu kvik- mynd árið 1974 sem aðstoðarsaumakona. Sex árum síðar hélt svo hún utan í kvikmyndanám og var á meðal fyrstu kvenna hér á land til að læra fagið. Halldór og Guðný unnu um árabil hjá Ríkis- sjónvarpinu og vill Halldór meina að sú reynsla hafi gefið þeim mikið. „Hjá Sjónvarpinu lærðum við allar undirstöður fagsins, stofnunin var rekin fagmannlega og það voru miklar kröfur gerðar til starfsmanna. Við vorum bæði mest skóluð þar,“ segir Halldór. Blaðamaður spyr Halldór hvort hann telji unga fólkið í dag vera tilbúið að leggja sambæri- lega vinnu á sig og þau þegar þau voru að byrja í kvikmyndunum. „Í öllum myndunum sem við höfum gert hef ég ekki orðið var við neitt annað en að fólk sé tilbúið að vinna vinnuna sína. Stundum fær fólk svolítið sjokk enda um gríðarlega vinnu að ræða. Kvikmyndaheimurinn er ekki eins mikill glamúr og margir halda.“ Halldór og Guðný er með fleiri verkefni á döfinni enda ekki þekkt fyrir annað en að hafa mikið fyrir stafni. „Við erum ævinlega með eitthvað á prjónunum, við erum til að mynda með kvikmyndina Storm eftir samnefndri bók tilbúna í töku. Peningakreppan hefur hins vegar snert allar greinar og því tökum við því rólega. Maður er búinn að læra af reynslunni að hoppa ekki út í eldhafið.“ Að lokum forvitnast blaðamaður um hvern- ig náið samstarf þeirra hjóna sem nú brátt munu leggja mark sitt á ungt og efnilegt kvikmyndafólk hafi gengið í gegnum árin. „Við erum ekki á leið til Borgardómara og það eru engin glóðaraugu. Segir það ekki allt sem segja þarf?“ segir Halldór léttur í lundu að lok- um. Spennandi verkefni guðný Halldórsdóttir og eiginmaður hennar Halldór Þorgeirsson munu kenna kvikmyndagerð við Kvikmyndaskóla Íslands í vetur. Að störfum guðný og Halldór hafa gerð ófáar kvikmyndir. Við veiðar Jón Baldvin Hannibalsson selur rósir á laugardaginn „Einhvern tímann háði ég nú kosningabaráttu og þá var á öllum mínum fundum sungið lagið átján rauðar rósir.“ Halldór Þorgeirsson og guðný Halldórsdóttir:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.