Hagskýrslur um dómsmál - 01.01.1973, Page 7

Hagskýrslur um dómsmál - 01.01.1973, Page 7
Inngangur. Introduction. 1. Almennar athugasemdir. General statement. Skýrslur þær, sem hér birtast, eru hinar fjórðu í röðinni af skýrslum Hagstofu um dómsmál. Fyrri skýrslur Hagstofu voru fyrir árin 1913—1918, 1919—1925 og 1946—1952. Engar skýrslur hafa komið út fyrir árin 1926—1945 né heldur fyrir 1953—1965. Stafaði það aðallega af erfiðleikum á iimheimtu gagna frá skýrslu- gefendum, þótt fleira hafi komið til. Er þess ekki að vænta, að skýrslur fyrir þessi ár komi út héðan af. Þess skal þó getið, að í Tölfræðihandbók Hagstofu, sem út kom árið 1967, eru töflur um dómsmál, gerðar sérstaklega fyrir það rit. Var þar um að ræða 2 töflur um afgreidd opinber mál hjá sakadómaraembættinu í Reykjavík 1932—1964 eftur kæruefni og úrslitum mála, enn fremur töflu um gjaldþrot á öllu landinu 1926—1964, svo og töflu um mál, sem stefnt var fyrir Hæstarétt 1920—1964. Skýrslur áranna 1966—68, sem hér birtast, eru allmikið frábrugðnar þeim dómsmálaskýrslum, sem seinast komu út, svo og eldri skýrslum. Breytingar á niður- skipan efnis stafa að þessu sinni fyrst og fremst af breyttu fyrirkomulagi á eyðu- blöðum og gagnaöfluninni að öðru leyti. Frá og með árinu 1966 var ákveðið að taka í notkun ný eyðublöð til skýrslugerðar héraðsdómara um einkamál og hin ýmislegu dómsmálastörf þeirra önnur en varðandi opinber mál. Var lögð mikil vinna í að byggja gagnaöflunina upp að nýju, en regluleg söfnun upplýsinga til dómsmálaskýrslna hafði lengi verið ófullkomin og raunar legið niðri á sumum svið- um. Jafnframt var innheimtu á skýrslum héraðsdómara um opinber mál hætt, en þess í stað var fenginn aðgangur að heimildargögnum hjá sakaskrá, sem er í umsjá saksóknara ríkisins. Heimildir að upplýsingum um opinber mál í skýrslum þessum eru annars vegar afrit af kærubók sakadómaraembættisins í Reykjavík, hins vegar seðlar til sakaskrár frá héraðsdómurum utan Reykjavíkur, þar sem tilkynnt er um afdrif opinberra mála. Að hvoru tveggja fékkst aðgangur hjá saksóknara ríkisins. í sam- ræmi við þennan tvenns konar efnivið eru töflur um opinber mál í tvennu lagi: Annars vegar sakadómsmál í Reykjavík (töflur 1—7), liins vegar opinber mál fyrir héraðsdómi utan Reykjavíkur (töflur 8—11). Þá koma töflur 12—19 um einkamál í Reykjavík og utan, og um önnur dómsmálastörf héraðsdómara, svo og um sátta- mál. Um starf8emi Siglingadóms er fjallað sérstaklega í 5. kafla þessa inngangs. í 6. kafla hans er yfirlit um málskot til Hæstaréttar og um afdrif mála þar. Ætlunin var að birta einnig yfirlit um afgrciðslu mála hjá embætti saksóknara ríkisins, en af því gat ekki orðið að sinni. Allar upplýsingar í þessu hefti, aðrar en þær, er varða Hæstarétt (sjá 6. kafla þessa inngangs), eru miðaðar við það almanaksár, er dómsmál eru til lykta leidd á

x

Hagskýrslur um dómsmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um dómsmál
https://timarit.is/publication/1129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.