Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2008, Side 2
þriðjudagur 23. september 20082 Fréttir
„Þetta voru víst alveg svakalegar
sprengingar,“ segir Ragnar Magnús-
son, veitingamaður á Café Oliver og
eigandi tíu glæsivagna sem brunnu
til kaldra kola um klukkan sex í gær-
morgun. Rannsókn lögreglu gengur
út frá því að um íkveikju hafi verið að
ræða og segir yfirmaður í lögregluliði
á Suðurnesjum að áleitnar spurning-
ar hljóti að vakna þegar tíu glæsikerr-
ur brenni í porti á Vatnsleysuströnd.
Fram eftir gærdeginum rannsak-
aði lögreglan vettvang og mun sú
rannsókn halda áfram í dag. Í dag
munu rannsóknarlögreglumenn
hefjast handa við að reyna að átta sig
á því hver geti haft hagsmuni af því
að brenna bílana. Ragnar Magnús-
son segir tjónið nema að lágmarki
sjötíu milljónum króna. Bílarnir séu
þó allir kaskótryggðir.
Einhverjir hlupu
Ragnar hitti lögreglumenn undir
lok dags í gær. Hann segir lögreglu á
þeirri stundu ekki hafa viljað tjá sig
mikið um málið. „Þeir segja að það
muni taka nokkra daga að fá niður-
stöður úr fyrstu rannsóknum. Það
sást hins vegar til einhverra hlaupa
á brott frá vettvanginum þarna um
morguninn,“ segir Ragnar. Hann
kveðst eiga bágt með að ímynda sér
að einhver geti hafa átt svo sökótt við
sig að kveikja hafi þurft í öllum bílun-
um. „Ég hefði velt þeim möguleika
fyrir mér ef það hefði verið skorið á
dekkin, en þetta er býsna mikil að-
gerð,“ segir hann.
Fyrstu fréttir benda til þess að
kveikt hafi verið í með því að brjóta
rúður og kasta logandi hlutum inn í
bílana. Sjónarvottur sagði í samtali
við Ríkisútvarpið í gær að eldurinn
hafi breiðst ört út.
Braskað með bíla
Sjálfur segist Ragnar Magnússon
hafa ætlað sér að selja flesta bílana.
Einhverjir þeirra höfðu staðið á bíla-
sölum og beðið þess að fá nýja eig-
endur. Hann hafi ætlað sér í sam-
vinnu við félaga sinn að taka bílana í
gegn, þrífa þá og taka af þeim myndir
og auglýsa þá svo aftur til sölu.
„Tveir bílanna voru reyndar al-
gjör safneintök sem ég ætlaði bara
að eiga sjálfur. Svo voru þarna Hum-
mer, Mercedes-Benz, BMW, Ford
Econoline og fleiri eigulegir bílar. Ég
hef braskað aðeins með bíla svona í
hjáverkum og þessir bílar voru allir
þannig komnir til,“ bætir Ragnar við.
Fornleifabruni í nágrenninu
Kvöldið fyrir þennan mikla bruna
í Vogunum kviknaði einnig í torf-
kofa sem var í næsta nágrenni við
geymslustað bílanna. Lögreglan tel-
ur ekki loku fyrir það skotið að teng-
ing sé þarna á milli, enda sé svæðið
fáfarið.
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri í
Vogum, segir að sveitarfélagið syrgi
rústirnar. Þær hafi haft talsvert forn-
leifagildi. „Það lítur út fyrir að í þeim
hafi verið kveikt og við höfum nú
fengið fornleifafræðing til þess að
koma til okkar í dag til þess að leggja
mat á skemmdirnar,“ segir Róbert.
Hann segist að öðru leyti ekki þekkja
til brunans á bílunum.
sigtryggur@dv.is
mánudagur 10. desember 20072 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Borgi að fullu
365 miðlar verða að greiða
fyrrverandi starfsmanni
sínum 388 þúsund krónur í
vangoldin laun. Þetta er nið-
urstaða Héraðsdóms Reykja-
víkur.
Sveinn Thorarensen var
einn starfsmanna NFS sem
sagt var upp þegar fréttasjón-
varpsstöðin var lögð niður.
Samið var við hann um að
hann þyrfti ekki að vinna upp-
sagnarfrestinn gegn því að
hann fengi borguð laun í tvo
mánuði í stað þriggja. Þetta
sagði dómurinn að stæðist
ekki lög og gerði félaginu að
greiða Sveini ógoldin laun.
Hafa selt tvær
risajarðýtur
Hekla seldi Fossvélum á
Selfossi á dögunum 117 tonna
risajarðýtu frá Caterpillar. Þetta
er önnur risajarðýtan þessarar
tegundar sem fyrirtækið selur á
árinu og þykir mönnum þar á bæ
þetta mikil tíðindi. Venjan er sú
að aðeins þrjár til fjórðar slíkar
risajarðýtur séu seldar til fyrir-
tækja í allri Evrópu á ári hverju.
Það að tvær slíkar séu seldar til
lítils lands eins og Íslands á sama
árinu þekkist vart.
Nýja risajarðýtan verður not-
uð í Þórustaðanámu í Ingólfs-
fjalli.
Góðgerðarmál
í stað jólakorta
Þórunn Sveinbjarnardótt-
ir umhverfisráðherra afhenti á
föstudag forsvarsmönnum Al-
næmisbarna og Alnæmissamtak-
anna styrk upp á 200.000 krónur
fyrir hvor samtökin. Hún ákvað
að ekki yrðu send út jólakort með
kveðjum frá ráðherra og öðrum
starfsmönnum heldur andvirði
sett í góðgerðamál.
Félagið Alnæmisbörn styður
ungar stúlkur í Úganda sem hafa
fengið alnæmi. Samtökin á Ís-
landi vinna að því aukinni þekk-
ingu á sjúkdómnum auk þes að
hjálpa aðstandendum.
„Við höfum reynt að þrýsta á
dómstólana um að leyfa okkur að
nota gæsluvarðhaldið meira, sér-
staklega þegar um er að ræða far-
andverkamenn eða annað fólk sem
á engin sérstök tengsl við landið og
er líklegt til þess að láta sig hverfa,“
segir Jóhann R. Benediktsson, lög-
reglustjóri á Suðurnesjum. „Dóm-
stólar hafa hins vegar ekki viljað gefa
okkur mikið svigrúm. Okkur skortir
úrræði í þessum efnum og kerfið er
ekki skothelt.“
Przemyslav Pawel Krymski, einn
fimm karlmanna sem voru í farbanni
vegna rannsóknar á nauðgunar-
máli á Selfossi, komst af landi brott
vegna þess að lögreglunni á Selfossi
láðist að tilkynna öðrum embættum
um farbannið. „Ef við vitum ekki að
maðurinn er í farbanni getum við
ekki passað þetta,“ segir Jóhann.
Vegabréf eru tekin af þeim sem
settir eru í farbann, en þó eru nokkr-
ar leiðir til þess að komast úr landi
án vegabréfa. Þrír karlmenn úr
þjófagengi frá Litháen, sem nú eru í
farbanni, reyndu að komast af landi
brott á föstudagsmorgun. Þegar lög-
regla gerði sig líklega til handtöku
létu þeir sig hverfa. „Ég á ekki von á
að þeir reyni þetta aftur í bráð,“ segir
Jóhann. sigtryggur@dv.is
Farbannið ekki skothelt
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
dómstólar hafa ekki veitt lögreglu
nægilegt svigrúm.
„Ég hef gert allt rétt eins og vant
er,“ segir Guðni Ágústsson, for-
maður Framsóknarflokksins og
þáverandi landbúnaðarráðherra,
hlæjandi þegar hann er inntur eft-
ir viðbrögðum við niðurstöðu
Ríkisendurskoðunar . Hann
bendir að hann eina aðkoma
hans að málinu hafi verið með
viljayfirlýsingunni og því ekki
ástæða fyrir hann til að tjá sig
um yfirtöku vatnsréttindanna.
Ríkisendurskoðun telur
samkomulag milli íslenska
ríkisins og Landsvirkjun-
ar um yfirtöku vatnsrétt-
inda í neðri hluta Þjórs-
ár ekki bindandi þar sem
ekki var aflað til þess
lagaheimilda. Eðlilegt
hefið verið að gera sam-
komulagið með fyrirvara
um samþykki Alþingis.
Samkomulagið felur ekki í sér
sölu eða aðra ráðstöfun á eignar-
réttindum að jörðinni Þjótanda
heldur aðeins viljayfirlýs-
ingu landbúnaðarráðu-
neytisins um að taka
upp viðræður um sölu
jarðarinnar, að mati
Ríkisendurskoðunar.
Fyrir hönd íslenska
ríkisins komu Árni
Mathiesen fjármálaráð-
herra, Jón Sigurðsson
þáverandi iðnaðarráð-
herra, ásamt Guðna,
að samkomulaginu.
Við vinnslu
fréttarinnar náð-
ist hvorki tal af
Árna né Jóni.
erla@dv.is
Guðni sver framsal af sér
Guðni Ágústsson
segist ekki hafa
komið að yfirtöku
vatnsréttindanna.
SÁUST HLAUPA BURT
„ég hef braskað að-
eins með bíla svona í
hjáverkum og þessir
bílar voru allir þannig
komnir til.“
Til kaldra kola Kveikt var í tíu
glæsibifreiðum í porti við höfnina í
Vogum snemma í gærmorgun. Fyrr
um nóttina var kveikt í torfkofa á
svipuðum slóðum, sem hafði
nokkurt minjagildi. Lögregla leggur
kapp á rannsóknina.
SiGTryGGur Ari jóhAnnSSon
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
Gjörónýtur hummer ragnar
magnússon, eigandi bílanna, segist
hafa ætlað að þrífa bílana, mynda
og auglýsa þá aftur til sölu.
Sameinast um
íslensku geitina
Þingmenn úr öllum flokkum
hafa sameinast um þingsályktun-
artillögu með það að markmiði
að efla íslenska geitafjárstofninn
sem þeir segja einstakan í sinni
röð fyrir hreinleika sakir.
Þingmennirnir lýsa áhyggjum
af því að aðeins 400 vetrarfóðrað-
ar geitur séu hér og að stofninn
sé í útrýmingarhættu. Við þessu
segja þeir að verði að bregðast.
Þannig vilja þingmennirnir að
geitabændur fái fjárstyrki og að
erfðamengi íslenskra geita verði
rannsakað.
GreininGardeildir
úti að aka
annþór átti
að þrífa
bílana
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
þriðjudagur 11. desember 2007 dagblaðið vísir 206. tbl. – 97. árg. – verð kr. 295
Segir bílana ekki hafa
verið í umSjá annþórS. „Ég og
hann og fleiri piltar
ætluðum að þvo bílana
þarna.“ mætti til yfir-
heyrSlu hjá lögreglu og var
Sagt að gylltur bíll hefði
SÉSt keyra burt. Sjá blS 4.
ragnar magnússon sár út í sögusagnir vegna kunningsskapar við annþór karlsson:
>> „Þetta er kannski ekki stórfeng-
legt skáldverk, en börnin fylgdust
með af áhuga frá upphafi til
enda þegar ég sá sýninguna á
laugardaginn. Ég sá heldur ekki
betur en margt fullorðna fólkið
skemmti sér einnig ágætlega;
sumir nánast breyttust í börn
í framan ...“
Nóg framboð
af jólaskapi
að duGa eða drepast
liverpool berSt upp á líf og dauða í meiStaradeild evrópu í kvöld. þá ræðSt hvort liðið, Sem hefur
tviSvar leikið til úrSlita á SíðuStu árum, komiSt áfram eða falli úr leik þegar riðlakeppninni lýkur.
dv sport
tveir
nýir
þættir
>> Búa og félögum á
Reykjavík FM berst
liðsauki í vikunni.
Frosti Gringó sem
spreytti sig þegar einn
útvarpsmannanna var
í prófum fær sinn eigin
þátt. Sömu sögu er að
segja af tónlistarvisku-
brunninum KGB.
greiningardeildir bankanna höfðu rangt
fyrir SÉr þegar Spáð var fyrir um þróun
úrvalSvíSitölunnar á árinu. greiningardeild-
ir bankanna Spáðu því fleStar að úrvalSvíSi-
talan Stæði í um 8.500 Stigum í lok árS. eigi
það að ganga eftir þarf hún að hækka um
25 próSent á þeim 20 dögum Sem eftir eru
af árinu.
Fólk
föstudagur 1. febrúar 200818 Helgarblað DV
Annþór Kristján Karlsson
Handrukkari vegna eineltis
Annþór Kristján Karlsson var hand-
tekinn á miðvikudaginn vegna
gruns um stórfellt fíkniefnasmygl
með hraðsendingu í pósti frá Þýska-
landi. Annþór hefur oft verið kallað-
ur handrukkari Íslands en árið 2005
var hann ásamt Ólafi Valtý Rögn-
valdssyni dæmdur fyrir hrottalega
handrukkun. Þá lömdu þeir rúm-
liggjandi mann til óbóta því hann
skuldaði leigu.
Saga Annþórs er sláandi. Faðir
hans, Karl Jensen Sigurðsson, telur
að rótina mega finna í rætnu einelti.
Þegar Annþór var unglingur var
hann lagður inn á Barna- og ungl-
ingageðdeildina á Daulbraut vegna
ofbeldisofsans. Annþór er fæddur
1. febrúar 1976 og fagnar því afmæli
sínu í fangaklefa á Suðurnesjum í
dag.
Erfiður unglingur
Þegar Annþór var barn varð það
fljótlega ljóst að hann ætti erfitt með
skap sitt. Fólk sem kannaðist við
hann á þeim tíma segir hann hafa
verið ákaflega óþekkan, jafnvel of-
virkan. Honum er lýst sem stórum
unglingi, þéttum og ógnvekjandi.
„Hann var kannski ekki góð-
ur nemandi en hann var ekki með
mikil læti í skólanum,“ segir fyrrver-
andi skólafélagi Annþórs úr Haga-
skóla. Annar nemandi segir hegð-
un Annþórs hafa verið ákaflega
ofbeldisfulla og ganga sögur af því
að hann hafi látið menn hanga fram
af svölum.
Eftir að foreldrar Annþórs kom-
ust í vandræði með hann var Ann-
þór lagður inn á Barna- og unglinga-
geðdeild Landspítalans á Dalbraut.
Ástæðan var hegðunarvandamál og
ofbeldishneigð.
„Það var ekki fyrr en eftir ferm-
ingu hans sem mér varð ljóst að
ekki var allt með felldu. Það var
þegar drengurinn var sendur á
Dalbraut vegna vandræða. Ég
held að ástæðan hafi verið sú
að Annþór var lagður í einelti
í skóla og þar sé upphafsins
að leita,“ sagði faðir Ann-
þórs, Karl Jensen Sigurðs-
son, um æsku sonar síns.
Duglegur strákur
Eftir grunnskólann lagði
Annþór námsbækurnar á hill-
una en sótti námskeið í sjó-
mennsku. Hann fór hins vegar
ekki á sjóinn í kjölfarið. Hann
byrjaði að vinna í byggingar-
vinnu og hana hefur hann stund-
að ásamt afbrotum síðan þá.
„Hann er elskulegur og góður
drengur,“ sagði Sólveig Kristjáns-
dóttir, fiskvinnslukona og móð-
ir Annþórs, í viðtali við DV. Hún
keypti íbúð fyrir Annþór í Grafar-
holtinu þegar hann var um 16 ára.
Eins og aðrir sem þekkja til Ann-
þórs sagði hún drenginn duglegan
og góðan strák en vildi ekkert tjá sig
um hans mál frekar.
Annþór ólst upp hjá móður sinni
og var í litlu sambandi við föður
sinn, Karl Jensen Sigurðsson, sem
er forstöðumaður Raunvísinda-
deildar Háskóla Íslands.
Góður piltur
Annþór var mest í umsjá móður
sinnar meðan hann ólst upp en fað-
ir hans giftist annarri konu og eign-
aðist með henni tvö börn.
Annþór virðist vera elskulegur
gagnvart fjölskyldu sinni og í ein-
hverju sambandi við hana. Faðir
Annþórs segist þó aðeins sjá góðu
hliðina á honum, þeir hittist aldrei
þegar Annþór er í neyslu.
„Ég trúi því sem ég heyri og trúi
því sem ég les. Eins og málum er
komið vildi ég sjá son minn á bak
við lás og slá. Það verður að bregð-
ast við þessu öllu og ég veit að Ann-
þór hefði gott af því að taka út refs-
ingu. Ég veit það eitt að hann hafði
gott af því síðast þegar hann var
settur inn. Var miklu betri mað-
ur á eftir þar til allt fór í sama horf-
ið aftur. Yfirvöld verða að grípa í
taumana og láta menn ekki ganga
lausa þegar öllum má ljóst vera að
hegðun þeirra hlýtur að enda með
ósköpum,“ sagði Karl um son sinn í
viðtali við DV fyrir þremur árum en
hann ítrekaði þá að sonur hans ætti
aðra og betri hlið en þá sem nú snýr
að fólki.
Afbrotin byrja
Þegar Annþór var orðinn fimmt-
án ára hófst afbrotaferill hans fyr-
ir alvöru. Síðan þá hefur hann ver-
ið kærður til lögreglu nær hundrað
sinnum. Auk líkamsárása hefur
hann verið viðriðinn innbrot, skjala-
fals og fíkniefnamisferli. Seinni árin
hefur hann búið í Vogum á Vatns-
leysuströnd.
Annþór hefur margoft verið
kærður vegna líkamsárása en fórn-
arlömbin hafa iðulega dregið kær-
urnar til baka af ótta við hvers kyns
hefndaraðgerðir. Dæmi um það er
fórnarlamb Annþórs sem þá bjó á
Ísafirði og skuldaði honum hundr-
að þús- und
krónur. Annþór gekk ásamt félögum
sínum hrikalega í skrokk á mann-
inum og skáru þeir hann meðal
annars í andlitið. Þegar málið var
dómtekið dró fórnarlambið fram-
burð sinn til baka. Ástæðan var sú
að Annþór hafði fengið fimm félaga
sína til að mæta í réttarsalinn. Ótt-
inn varð yfirsterkari og Annþór var
ekki dæmdur í það skiptið.
Hataður í undirheimunum
Félagar Annþórs segja að á þess-
um tíma hafi hann verið orðinn
einn stærsti handrukkarinn í brans-
anum. Fleiri kærur fyrir líkamsárás-
ir streymdu inn og aðferðirnar urðu
sífellt harkalegri. Árið 1997 réðust
Annþór og Ólafur Valtýr Rögnvalds-
son, félagi hans, inn á fjölskyldu
þekkts dópista í bænum sem skuld-
aði pening. Þeir tóku fjölskylduna
í gíslingu og hótuðu að skera fing-
urna af fjölskylduföðurnum.
Umsátrinu lauk þegar lögreglan
braust inn á heimilið.
Ólafur Valtýr fékk eins árs fang-
elsi og Annþór hálft ár. Annþór og
Ólafur Valtýr áttu eftir að koma aft-
ur við sögu í mun fleiri dómsmál-
um, grófu ofbeldisbroti í apríl 2003
og stórfelldu fíkniefna-
smygli á sama ári.
Maður sem
sat á Litla-
Hrauni
með
Annþóri segir dæmi um að menn
hafi fengið slæma útreið fyrir það
eitt að heilsa Annþóri ekki nógu
virðulega. Sjálfur fékk hann þús-
und krónur lánaðar hjá Annþóri á
Hrauninu. Þegar út var komið rukk-
aði Annþór hann um hundrað þús-
und krónur. Maðurinn segist hafa
borgað peninginn enda hafi Ann-
þór mikla ánægju af að niðurlægja
menn og halda þeim hræddum
með hótunum áður en hann lætur
til skarar skríða.
„Hann er einn hataðasti bófinn
í undirheimunum en enginn þorir
annað en að vera almennilegur við
hann,“ sagði fyrrverandi samfangi
Annþórs.
Hjólað í handrukkara
Það var svo árið 2005 sem DV tók
að fjalla um Annþór. Þá hafði hann
slegið Friðrik Þór Friðriksson leik-
stjóra í andlitið á Ölstofunni. Í kjöl-
farið hótaði Annþór Mikael Torfa-
syni, þáverandi ritstjóra blaðsins.
Annþór gekk svo langt að
dvelja fyrir utan heimili hans
og hafa í hótunum. Eftir að
DV fór að skrifa um hand-
rukkaraógnina komu fjöl-
margir fram sem
sögðu sögu
sína af
sam-
skipt-
um
vAlur GrEttisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
tómas Kristjánsson
Vann hjá uPs-hrað-
sendingaþjónustunni
og er grunaður um að
vera viðriðinn smyglið á
efnunum.
Ari Gunnarsson fyrrverandi lands-
liðsmaðurinn í sundi er í gæsluvarðhaldi
vegna meints fíkniefnasmygls.
Jóhannes Páll Gunnars-
son Vann hjá fjármálaráðu-
neytinu en lögreglan gerði
húsleit þar í kjölfar þess að
bræðurnir voru handteknir.
Eldsvoðinn í vogum annþór tengdist
eldsvoðanum í Vogum á Vatnsleysuströnd þar
sem kveikt var í tíu rándýrum bílum. bílarnir voru
í hans umsjá og sagði eigandi bílanna, ragnar
Magnússon veitingamaður, að annþór hefði
ætlað að þvo bílana ásamt félögum sínum.
DV Helgarblað föstudagur 1. febrúar 2008 19
við Annþór. Hugtakið handrukkari
var þá tiltölulega óþekkt hér á landi.
Samfélagið hefur hins vegar tek-
ið miklum breytingum. Með harð-
ari dópheimi verða innheimtuað-
ferðirnar harkalegri. Í viðtölum við
handrukkara sem nær öll hafa verið
undir nafnleynd lýsa rukkararnir því
hvernig þeir bora í gegnum axlirnar
á fólki, brjóta hnéskeljar eða hella
bensíni yfir það og hóta að kveikja í.
Að sögn kunnugra er Annþór
Kristján Karlsson slíkur handrukk-
ari. Sögurnar sem ganga af honum
eru mun grófari en dómarnir yfir
honum sýna. Enn og aftur er komið
að því að fæstir sem lenda í hand-
rukkurum þora að kæra. Þeir sem
kæra draga kærurnar oftast til baka.
Þeir fáu sem láta málin standa eru
of óttaslegnir til að tjá sig.
Annþór og Byrgið
Það var svo sama ár og DV hóf
umfjöllun sína um handrukkara
að Annþór var dæmdur fyrir ógeð-
fellda líkamsárás. Þá lamdi hann
rúmliggjandi mann margsinn-
is með barefli vegna leiguskuldar.
Fórnarlambið reyndi að draga kær-
una til baka en brotið var of alvar-
legt – ríkissaksóknari greip fram fyr-
ir hendur fórnarlambsins og fékk
Annþór ásamt Ólafi Valtý dæmdan
í fangelsi. Annþór fékk þá þriggja
ára fangelsisdóm sem er með þeim
þyngri fyrir ofbeldisverk af þessu
tagi.
Annþór sat af sér dóminn á Litla-
Hrauni en dvaldi svo í Byrginu þeg-
ar hneykslið tengt Guðmundi Jóns-
syni, forstöðumanni Byrgisins, reið
yfir. Þá kom í ljós að Annþór og ann-
ar fangi sem þar hafði dvalið höfðu
verið nær frjálsir á meðan þeir
dvöldu í Byrginu. Þá kom einnig í
ljós að þeir höfðu neytt fíkniefna á
sama tíma.
Áður en Annþór var dæmdur fyr-
ir ofbeldisverkið var hann dæmdur
fyrir stórfellt fíkniefnasmygl árið
2003. Þá hlaut hann sjö mánaða
dóm.
Þegar Annþór var handtekinn í
vikunni hafði hann verið frjáls mað-
ur í tæpt hálft ár.
Undarlegt samkrull
Í nóvember síðastliðnum fann
tollgæslan á Keflavíkurflugvelli
póstsendingu fulla af fíkniefnum. Í
ljós kom að um var að ræða rúmlega
fimm kíló af kókaíni og amfetamíni.
Söluandvirði efnanna nemur tugum
milljóna króna. Bræðurnir Ari og
Jóhannes Páll Gunnarssynir ásamt
æskuvini Ara, Tómasi Kristjánssyni,
voru handteknir í þarsíðustu viku
vegna málsins. Lögreglan sá ástæðu
til þess að hneppa þá í gæsluvarð-
hald og var það framlengt í Héraðs-
dómi Reykjaness á miðvikudaginn.
Mennirnir hafa ekki orðið uppvísir
að slíkum brotum áður svo vitað sé.
Athygli vakti að lögreglan gerði hús-
leit í fjármálaráðuneytinu í kjölfarið
en það mun vera í fyrsta skiptið sem
slíkt er gert hér á landi.
Það var svo ekki fyrr en á mið-
vikudaginn sem Annþór var hand-
tekinn við Keflavíkurflugvöll og
húsleit gerð á heimili hans í Vogun-
um í kjölfarið. Ekki er vitað hvernig
þessir menn tengjast.
Hann á afmæli í dag
Annþór á afmæli í dag og mun
verja deginum í fangaklefa. Hann
verður þá þrjátíu og tveggja ára.
Hann var yfirheyrður í gær en lög-
reglan gefur ekkert upp um rann-
sókn málsins. Annþór er á þriggja
ára skilorði vegna dómsins sem
hann hlaut fyrir að misþyrma rúm-
liggjandi manni ásamt Ólafi Valtý.
Hugsanlega verða eftirstöðvar refs-
ingarinnar til þess að hann þurfi að
dvelja í fangelsi á ný. Hann hefur
hins vegar farið mikinn í skemmt-
analífinu í miðborg Reykjavíkur.
Síðast sást til hans með tvær stúlkur
upp á arminn á tónleikum Tommy
Lee sem fram fóru um síðustu helgi.
Það verður þá hugsanlega síðasta
skemmtikvöldið sem hann mun
eiga í talsverðan tíma þurfi hann að
dúsa í fangelsi vegna skilorðsrofs.
Brunabílar og Anni
Síðast komst Annþór aftur í um-
ræðuna eftir að glæsibílafloti í eigu
Ragnars Magnússonar brann í Vog-
um, heimabæ Annþórs, seint á síð-
asta ári. Þá kom í ljós að bílarn-
ir voru í umsjá Annþórs þegar þeir
brunnu. Eftir miklar rannsóknir
lögreglunnar kom í ljós að kveikt
var í bílunum. Enginn er grunaður
í því máli.
Svo virðist sem Annþór sé alls
ekki af baki dottinn með handrukk-
un því þegar rætt var við mann sem
tilheyrir undirheimum Suðurnesja
kom í ljós að Annþór er sagður enn
við sama heygarðshornið.
Annþór Kristján Karlsson fór á tónleika með
tommy Lee um síðustu helgi þar sem hann
stillti sér upp ásamt starfsstúlkum á staðnum.
Ofurölvi Íslendingur á Kastrup-
flugvelli varð til þess að seinka brott-
för flugvélar Iceland Express frá Kaup-
mannahöfn á sunnudag. Maðurinn
hafði týnt skilríkjum og öðrum pappír-
um þegar kom að því að stíga um borð
í vélina og að endingu var brugðið á
það ráð að fjarlægja farangur hans úr
lest flugvélarinnar og skilja hann eftir
á Kastrup.
„Maðurinn dúkkaði þarna upp og
þá var okkur tilkynnt að hann væri
ölvaður og skilríkjalaus og yrði þess
vegna skilinn eftir,“ segir Kristín Guð-
jónsdóttir sem var farþegi í flugvélinni
á sunnudag. Hún segir að í kjölfarið
hafi töskur verið fjarlægðar úr farang-
ursrýminu til þess að fjarlægja farang-
ur drukkna mannsins. Öryggisreglur
mæla fyrir um að farþegar og farang-
ur þeirra verði að fylgjast að í flugferð-
inni.
Með ölvun sinni náði maðurinn
því að seinka flugvélinni um þrjátíu
mínútur til viðbótar við ríflega þriggja
tíma seinkun sem stafaði af bilun í
flugvélinni áður en haldið var af stað
frá Keflavíkurflugvelli um morguninn.
„Í stað þess að lenda á Íslandi klukkan
kortér yfir tvö komum við ekki fyrr en
klukkan að verða sex um kvöldið,“ bætir
Kristín við. Hún segir að seinkunin
sem drukkni maðurinn olli hafi ekki
verið löng, en fyrir marga hafi hún
verið erfið viðbót við þá seinkun sem
þegar var orðin. „Þetta var viðbótar
hálftími, en það er vissulega pirrandi
þegar fólk er búið að vera í þriggja tíma
seinkun og þá bætist svona lagað við.
Auðvitað er fólk fúlt yfir því að lenda í
svona seinkun, það er alltaf svoleiðis.“
Kristín talar sérstaklega um að flug-
liðar Iceland Express hafi verið þurr-
ir á manninn þegar seinkunin tók að
lengjast. „Þær voru einhvern veginn
hálffúlar yfir þessu öllu og í vörn. Það
er einmitt á svona stundu, með fulla
flugvél af bíðandi fólki, sem flugfreyjur
þurfa að vera brosmildar og gefa meira
af sér en endranær,“ segir hún.
sigtryggur@dv.is
„Þetta leggst alveg svakalega vel í
mig,“ segir hinn tuttugu og fimm
ára Helgi Bersi Ásgeirsson, en
hann er búinn að kaupa skemmti-
staðinn Oliver fyrir ríflega hundr-
að milljónir króna. Sjálfur hefur
Helgi nokkuð góða reynslu af veit-
ingarekstri í gegnum föður sinn.
Hann heitir Ásgeir Þór Davíðsson
og er þekktastur fyrir að reka næt-
urklúbbinn Goldfinger. Uppruna-
lega ætlaði Ragnar Magnússon að
kaupa staðinn en samkvæmt frétt
á Visir.is, sem birtist í desember
síðastliðnum, átti hann erfitt með
að fjármagna þau kaup. Úr varð að
Helgi keypti staðinn með aðstoð
föður síns í gær.
Gott bú
„Ég tek við staðnum í vikunni,“ seg-
ir Helgi kampakátur en sjálfur er hann
ekki alfarið ókunnugur veitingarekstri
en áður rak hann næturklúbbinn Max-
im fyrir föður sinn á Hafnargötunni.
Núna rekur hann gistiheimilið Dúnu
og hefur gert í talsverðan tíma. Sjálfur
segir hann rekstur veitingahúsa vera
áhugasvið sitt og því lítur hann á Oliver
sem mikið og gott tækifæri. Hann segir
viðskiptin hafa gengið snurðulaust fyr-
ir sig: „Ég er að taka á móti mjög góðu
búi,“ segir hinn ungi vert.
Sonur föður síns
Eins og fyrr segir er Helgi sonur
Ásgeirs Þórs, oftar kallaður Geiri í
Goldfinger, og segist Helgi aðeins njóta
góðs af því: „Kallinn er heiðarlegur
í viðskiptum og fólk treystir honum.
Maður nýtur góðs af því,“ segir Helgi.
Aðspurður hvort hann hyggist
breyta rekstrinum segir Helgi ekkert
slíkt í kortunum, enn sem komið er.
Hann segir staðinn halda þeim strúkt-
úr sem hefur einkennt hann hingað til.
Að auki mun allt starfsfólk halda sinni
vinnu.
Brokkgeng saga
Bareigandinn Ragnar Magnússon
ætlaði sér að kaupa staðinn samkvæmt
frétt á visir.is sem birtist í desember
síðastliðnum. Þá á Ragnar að hafa
skuldbundið sig til þess að greiða hluta
af kostnaðinum með eignarhluta í ell-
efu raðhúsum í Laxatungu í Mosfells-
bæ. Þegar á hólminn var komið missti
hann húsin í hendur byggingarverk-
takans sem reisti þau. Hann er þó eig-
andi Q-Bars og Barsins ásamt Baldvini
Samúelssyni. Í kjölfarið var Café Oli-
ver seldur Helga Bersa sem lítur á nýja
starfið sitt sem mikið tækifæri.
Staðurinn mun hafa kostað nær 120
milljónum króna samkvæmt heimild-
um DV. Aðspurður hvort Helgi kvíði
ekki fyrir því að fara í jafnviðamik-
inn rekstur svarar hann: „Pabbi leiðir
mann í gegnum þetta.“
þriðjudagur 19. febrúar 2008 Dagblaðið vísir stofnað 1910
FréttaSkot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur.
Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Verður listdans
á Oliver?
KAUPA cAfé OliVer
á 120 milljónir KrónA
Helgi Bersi Geira
Snjór í Grikklandi Á sama tíma og vorveður hefur verið á Íslandi hefur snjó kyngt niður á Grikklandi. Á myndinni sjást skokkarar
í miðborg Aþenu. Þegar líða tekur á vikuna byrjar að snjóa á Íslandi eins og vera ber.
Fullur Íslendingur tafði millilandaflug
Íslenskir feðgar
handteknir
Lögreglan í bænum Lange-
bæk í Danmörku handtók seinni
partinn í gær íslenska feðga sem
grunaðir eru um að hafa gengið í
skrokk á dönskum karlmanni og
veitt honum áverka. Mennirnir,
sem sagðir eru 50 ára og 18 ára,
réðust að manninum sem er
49 ára á heimili hans en hann
hafði nýlega tekið upp sambúð
með fyrrverandi eiginkonu
föðurins. Veittu þeir manninum
áverka, meðal annars með
járnröri. Konan náði hins vegar
að hringja á lögregluna og
voru þeir handteknir skömmu
síðar. Frá þessu greindi danska
sjónvarpsstöðin TV2. Að sögn
lögreglu ferðuðust mennirnir
2.500 kílómetra leið gagngert til
þess að berja á manninum.
Í öndunarvél
eftir slys
Öðrum piltanna sem lentu í
árekstri á Akranesi í gær er haldið
sofandi í öndunarvél. Tveir 18
ára piltar voru í bílnum sem skall
harkalega á hús við Vesturgötu á
Akranesi um miðjan dag í gær. Þeir
voru báðir án meðvitundar þegar
að var komið. Annar var þegar í
stað fluttur suður til Reykjavíkur
en honum var í gærkvöldi
haldið sofandi í öndunarvél á
gjörgæsludeild Landspítala -
Háskólasjúkrahúss í Fossvogi. Líðan
hins piltsins er ágæt eftir atvikum
en hvorugur var í bílbelti þegar
óhappið átti sér stað.
„Pabbi leiðir mann í
gegnum þetta.“
Helgi Bersi Ásgeirsson Sonur Geira á
Goldfinger er nú stoltur eigandi Olivers.
valur GrettiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Konurnar fá
síður starf
Konur sem misstu lífsviðurværi
sitt í fjöldauppsögnum HB
Granda á Akranesi eiga erfiðara
en karlmenn með að fá nýtt starf.
Eftir að Verkalýðsfélag Akraness
gagnrýndi hvernig staðið var að
uppsögnunum ákvað HB Grandi
að aðstoða fólkið við atvinnuleit.
Nokkur fyrirtæki hafa lýst yfir áhuga
á að ráða karlmennina til starfa.
Til að koma til móts við konurnar
er fyrirhuguð kynning á starfsemi
Hrafnistuheimilanna í Reykjavík en
þar vantar sárlega fólk í vinnu.
iceland express Seinkun varð vegna
ölvaðs manns sem fann ekki vegabréfið.
marijúana
í Hveragerði
Lögreglan á Selfossi gerði hús-
leit í húsi í Hveragerði um helgina.
Lögreglumenn höfðu haft grun-
semdir um að eitthvað af fíkniefnum
væri að finna í húsinu. Fenginn
var úrskurður dómara til þess að
framkvæma leitina en fíkniefna-
leitarhundurinn Bea tók þátt í henni.
Bea var ekki lengi að gera vart við
sig því hún fann tuttugu grömm af ný-
lega ræktuðu marijúana en auk þess
fundust í húsinu kannabisfræ og tól
til neyslu efnanna. Karlmaður var
handtekinn og gekkst hann við því að
eiga efnin.
Kennari sýndi
nemanda brjóstin
Sænskur kennari hefur ver-
ið dæmdur til greiðslu skaða-
bóta fyrir kynferðislega áreitni
gagnvart einum nemanda sín-
um. Konan, sem er 49 ára, sýndi
einum nemanda sínum brjóstin
vegna þess að hann teiknaði
ítrekað klámfengnar myndir á
skólatöfluna.
Konan sagði við dómara að
atvikið ætti sér ekki neina kyn-
ferðislega skírskotun og hún
hefði einungis brugðist svona
við til að fá drenginn til að hætta
að teikna á töfluna. „Ég brjál-
aðist. Þetta var bara tilraun til
þess að fá drenginn til að hlýða,“
sagði hún.
Þrátt fyrir að reyna að rétt-
læta gjörðir sínar þurfti kennar-
inn að greiða nemandanum um
50 þúsund krónur í skaðabætur.
Þóra Sigurðardóttir, eða Þóra
úr Stundinni okkar eins og margir
þekkja hana,
er stödd hér
á landi þessa
dagana. Þóra á
nú von á sínu
fyrsta barni með
meistarakokk-
inum Völundi
Snæ Völund-
arsyni. Hún er
hingað kom-
in til að fæða
frumburðinn en
eins og flestir
vita hafa þau hjónin komið sér
vel fyrir á Bahamas þar sem þau
reka veitingastað. Sjö vikur eru í
áætlaðan fæðingardag og ætlar
Þóra sem hefur sjaldan litið betur
út en einmitt nú að njóta lífsins á
Íslandi þangað til.
Hvað segir pabbi?
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.Veður
Veðrið í dag kl. 18 ...og næstu daga
sólarupprás
05:06
sólsetur
21:46
Benjamín Þorgrímsson Ragnar Magnússon
bruninn tengist bílabrennu í Vogum
„Jú, þetta var bíllinn minn,“
segir Benjamín Þór Þorgrímsson
einkaþjálfari, en lúxusjeppi hans
af Volkswagen Touareg-gerð brann
til kaldra kola við Naustabryggju í
Grafarvogi í fyrrinótt. Nær öruggt er
að kveikt hafi verið í bílnum, enda
kveðst Benjamín hafa orðið var við
mannaferðir fyrir utan heimili sitt
um það leyti sem bíllinn brast í ljósa
loga. Lögregla rannsakar málið.
Benjamín kveðst gruna að það sé
Ragnar Magnússon veitingamaður
sem standi að baki íkveikjunni. „Það
er nú eiginlega bara einn maður sem
kemur til greina, jafnvel þótt hann sé
farinn til Taílands,“ segir Benjamín.
„Þetta er ekkert flókið.“
Ragnar Magnússon var eigandi
tíu glæsibíla sem brenndir voru til
kaldra kola í porti við höfnina í Vogum
við Vatnsleysuströnd 9. desember
síðastliðinn. Nú í mars kærði Ragnar
sjö menn, Benjamín þar á meðal,
fyrir að neyða hann til þess að láta
skemmtistaði sína af hendi með
hótunum um líkamsmeiðingar,
bæði gagnvart honum og fjölskyldu
hans. Ragnar sagði Benjamín vera
alræmdan handrukkara, sem gengið
hefði undir nafninu Ólafsvíkur-
Bensi. Benjamín hafði þó orðið fyrri
til og kært Ragnar fyrir að dreifa um
sig rógi. Glæsibílar Ragnars voru í
vörslu Annþórs Karlssonar í Vogum
þegar kveikt var í þeim. Annþór
á sér langa sögu ofbeldisverka og
fíkniefnabrota. Hann situr nú á
Litla-Hrauni fyrir aðild að umfangs-
miklu fíkniefnasmygli með póst-
sendingum. Bíll Banjamíns, sem
brann í fyrrinótt, var nýlegur, rétt
um ellefu milljón króna virði,
og aðeins ekinn þrjátíu þúsund
kílómetra. Jón Stefán Björnsson var
í nærliggjandi íbúð þegar kviknaði
í bílnum. „Það komu tveir stórir
hvellir og við héldum að flugeldar
væru að springa. Þegar við fórum út
að glugga sáum við bara eldhafið og
svo tóku dekk og rúður að springa
með látum,“ segir hann.sigtryggur@dv.is
Fæðir á Íslandi
rÍkari en Fellur
samt á listanum
Hinir ríku verða ríkari er niður-
staða The Sunday Times sem birti
í gær lista sinn yfir ríkustu menn
og konur Bretlandseyja. Björgólf-
ur Thor Björgólfsson er sem fyrr
ríkasti Íslendingurinn sem þar býr.
Þrátt fyrir að hann hafi aukið auð
sinn milli ára fellur Björgólfur Thor
um sex sæti. Hann var 23. ríkasti
maður landsins á síðasta ári en
þetta árið dugar auður Björgólfs
honum aðeins í 29. sætið. Blaða-
menn The Sunday Times meta
auð Björgólfs Thors á tvo milljarða
enskra punda og sjötíu milljónum
betur. Þegar það hefur verið reikn-
að til íslenskra
króna er auður
Björgólfs met-
inn á heila 303
milljarða króna
og reyndar 110
milljónir
króna að
auki.
norðanáttin áFram
Áfram verða norðlægar áttir á
landinu með stinningskalda
og éljum norðanlands í dag.
Veðurstofan spáir að bjartara verði
sunnan heiða. Heldur bætir í vind
í dag og hiti nær frá frostmarki allt
upp undir tíu gráður sunnan til.
Gera má ráð fyrir stífri norðanátt
næstu daga með éljum á Norður-
og Austurlandi.
Þri Mið Fim Fös
vindur í m/s
hiti á bilinu
stykkishólmur
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
Þri Mið Fim Fös
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
<5 Mjög hægur vindur 5-10 Fremur hægur vindur. 10-20 Talsverður vindur 20-30 Mjög hvasst,
fólk þarf að gá að sér. >30 Stórviðri, fólk ætti ekki að vera á ferli að nauðsynjalausu.
Höfn
reykjavík egilsstaðir
ísajörður Vestmannaeyjar
patreksfjörður kirkjubæjarkl.
akureyri selfoss
sauðárkrókur Þingvellir
Húsavík keflavík
Mán Þri Mið Fim
hiti á bilinu
kaupmannahöfn
hiti á bilinu
osló
hiti á bilinu
stokkhólmur
hiti á bilinu
Helsinki
hiti á bilinu
london
hiti á bilinu
parís
hiti á bilinu
Berlín
hiti á bilinu
palma
Mán Þri Mið Fim
hiti á bilinu
tenerife
hiti á bilinu
róm
hiti á bilinu
amsterdam
hiti á bilinu
Brussel
hiti á bilinu
marmaris
hiti á bilinu
ródos
hiti á bilinu
sanFrancisco
hiti á bilinu
newYork
hiti á bilinu
Barselóna
hiti á bilinu
miamiVe
ðr
ið
ú
ti
í
He
im
i í
d
ag
o
g
næ
st
u
da
ga
Vindaspá á hádegi á morgun. Hitaspá á hádegi á morgun. Veðurstofa íslanDs
5-7
4/5
9-10
2
4-8
1/3
6
0
7-8
2
4-5
2/3
6-8
1/2
4-10
2/3
11-19
4/7
2-5
3/9
15-18
4-6
9-10
2/6
6-11
1/7
11-13
2/4
3-7
2/5
8-11
0/3
2-6
-2/3
2-6
-2/1
6-13
-1/2
6-8
0/1
6-8
-2/2
8-19
0/3
16-23
0/4
2-4
1/6
17-21
0/4
11-12
-3/4
6-14
-3/3
11-12
2/3
4-6
5/10
11-14
3/4
4-9
2/4
5-11
1/2
8-12
1/5
5-6
3/4
5-6
2/3
4-8
3/4
12-14
5/7
2-5
6/11
11
4/9
12-13
5/9
7-15
7/8
11-12
4/8
4-6
7/8
12-15
3/4
5-8
3/6
6-8
2/3
6-10
1/6
4
3/4
5-6
2/4
5-8
2/4
10-17
6/7
3
8/9
8-12
37/8
8-12
7/9
8-12
7
8-10
5/7
12/15
11/14
7/12
5/9
7/15
8/13
11/21
11/17
11/18
19/24
12/22
7/11
9/13
6/16
15/15
9/25
12/13
22/29
10/16
9/16
7/14
6/11
7/12
9/12
10/21
15/17
12/19
18/21
10/16
10/15
10/16
10/20
17/18
8/19
8/15
21/30
9/14
10/15
7/12
8/13
7/12
7/15
12/19
13/20
11/20
17/19
9/19
8/14
7/15
8/17
17/17
10/17
10/13
21/29
10/15
10/14
8/12
8/15
9/15
8/17
10/20
12/17
10/19
18/19
8/19
5/14
5/16
9/23
16/19
8/21
13/14
22/28
Núna eru þau 52 kílóin sem eru farin!
Þar af 30 kíló á 5 mánuðum.
Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar í síma 891 6264 eða á allax@simnet.is
Sendum fríar prufur og höfum vigtunar og stuðningskvöld
í boði fyrir alla, og einstaklingsviðtöl eftir umtali.
allax@simnet.is.
Lr-Henning kúrinn hefur slegið í gegn
Kúrinn er hraðvirkur og árangursríkur
Einstaklega ríkur af bætiefnum
Betri svefn, aukin orka, bætt vellíðan
Ekkert blóðsykurflökt og margt fleira.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
1
2
7
6 9
8
1
1
21
5
9
4
6
1
8
5
7
56
Til kaldra kola kveikt var í tíu glæsibíl-
um á Vatnsleysuströnd í desember.
„Það er bara myndataka í gangi og
það er leikari öðrum megin en ekki
leikari hinum megin,“ segir Benja-
mín Þór Þorgrímsson, sem áhorf-
endur Stövar 2 gátu horft upp á
ganga í skrokk á Ragnari Magnússyni
í fréttaskýringaþættinum Kompás í
gær. „Þú verður að athuga það, ég var
ekkert að leika. Hann veit hvað hann
á að segja drengurinn og hann veit
hvað hann á ekki að segja. Þannig að
samtalið verður soldið skrítið,“ seg-
ir Benjamín og bætir við að klárlega
hafi verið beðið eftir því að hann léti
til skarar skríða gegn Ragnari fyrir
framan myndavélarnar. „Það er bara
verið að bíða eftir því. Það er eins og
ég segi, þú potar ekkert í rottweiler-
hund sem er við hliðina á þér og bíð-
ur eftir því að hann bíti þig. Af því að
hann bara bítur þig sko.“
Benjamín efast ekki um að til-
gangur Kompásmanna hafi fyrst og
fremst verið sá að fá hann til að beita
ofbeldi. „Þetta er eitthvað sem sel-
ur,“ segir hann og vill meina að um
hreina og klára æsifréttamennsku sé
að ræða. Hann viðurkennir þó fús-
lega að hafa beitt Ragnar ofbeldi. „Já,
ég gerði það og ég get ekkert afsakað
það neitt. Ég gerði ljóta hluti þarna.
Ég veit það. Það á ekkert að berja
fólk, það vita það allir. Þessi
maður bara gekk of langt. Mað-
urinn var búinn að láta kveikja
í bílnum mínum, ég meina,
halló! Hvað mundi ekki venju-
legur maður gera undir þess-
um kringumstæðum?“
Brunnir bílar og sviðin
jörð
Kompástál-
beitan
Ragnar Magnússon hefur skilið eft-
ir sig sviðna jörð. Tíu glæsibifreiðar
hans brunnu til kaldra kola í desem-
ber í fyrra en talið var að um íkveikju
væri að ræða. Nokkrum mánuðum
seinna skrifaði hann undir afsal af
veitingahúsum sem voru í hans eigu
en hann sagðist hafa verið neyddur
til þess af Hilmari Leifssyni og Benja-
mín Þór sem hann sagði beita hand-
rukkunum gegn sér. Í kjölfarið missti
Ragnar Magnússon allt og skuld-
ir hans féllu á ábyrgðarmenn hans.
Ragnar hefur meðal annars lýst því
yfir að foreldrar sínir hafi misst húsið
sitt vegna hans.
Það var í desember í fyrra sem
fregnir bárust af því að tíu glæsi-
bílar hefðu brunnið til kaldra kola í
Vogum við Vatnsleysuströnd. Í ljós
kom að eigandi bílanna var maður
að nafni Ragnar Magnússon sem þá
var veitingamaður og rak skemmti-
staðina Oliver, Lídó, Barinn, Q-bar
og Iðusali. Lögreglan hóf rannsókn
á málinu og grunaði sterklega að um
íkveikju væri að ræða. Síðar kom í
ljós að bílarnir höfðu verið í vörslu
þjóðþekkts handrukkara, Annþórs
Karlssonar, og sögurnar spruttu upp.
Ragnar fékk viðurnefnið Brunabíla-
Ragnar. Síðar kom í ljós að Ragn-
ar átti í rekstrarerfiðleikum með
skemmtistaðina.
Ákæran
Það var svo um miðjan mars sem
Ragnar kærði veitingahúsaeigend-
urna fyrir að beita fyrir sig Hilmari
Leifssyni og Benjamín Þór
Þorgrímssyni. Þá
sakaði Ragnar
þá um að hafa
handrukkað
sig og neytt til
þess að skrifa
undir afsal af
skemmtistöðunum sem hann hafði
keypt af veitingahúsaeigendun-
um. Ragnar kvittaði undir og fengu
þeir þá skemmtistaðina aftur í sín-
ar hendur. Lögreglan hóf í kjölfarið
rannsókn en auk þessa máls hefur
Ragnar kært Benjamín Þór fyrir lík-
amsárásina sem sýnd var í Kompás í
gær. Skemmtistaðaeigendurnir voru
þó á endanum hreinsaðir af ásökun-
um Ragnars um að hafa beitt hand-
rukkunum gegn honum.
Fjölskyldunni ógnað
„Ég var beinlínis neyddur til þess
að skrifa undir pappírana,“ sagði
Ragnar Magnússon í viðtali við DV
í vor en sjálfur taldi hann að beint
tjón vegna undirskriftarinnar hefði
numið rúmlega hundrað milljón-
um króna. Hann sagði í sama viðtali
ástæðuna fyrir því að hann skrifaði
undir að lokum hafa verið ógeðfelld-
ar hótanir Hilmars og Benjamíns þar
sem honum var meðal annars hótað
limlestingum og að tennur hans yrðu
brotnar. Þá þurfti fjölskylda Ragn-
ars einnig að þola ofsóknir af hálfu
mannanna tveggja að hans sögn.
Málið allt hefur hins vegar haft þær
afleiðingar að Benjamín Þór hefur
sakað Ragnar um hefndaraðgerð-
ir þegar hann á að hafa kveikt í lúx-
usjeppa Benjamíns. Sú rimma náði
hámarki í lok júlí þar sem Benjamín
Þór lamdi Ragnar við
hafnarvogina í
Hafnarfirði.
Breiðavík-
urdreng-
urinn
Lása-
smiðurinn
og Breiða-
víkur-
drengurinn Hafsteinn Haraldsson
ákvað fyrir áramót að fara í samstarf
með Ragnari með það fyrir augum
að hagnast á fasteignum. „Við spjöll-
uðum oft um viðskipti og úr varð að
við stofnuðum félag og reyndum við
fasteignaviðskipti,“ segir Hafsteinn,
sem hefur þurft að selja húsið sitt og
bíl til þess að greiða skuldir sem féllu
á hann vegna vanefnda Ragnars.
Hafsteinn rak eignafélagið Jr - Klett-
ur ehf. ásamt Ragnari til skamms
tíma. Hann dró sig út úr fyrirtækinu
fyrir áramót en Ragnar skipti aldrei
um ábyrgðarmann. Að lokum féllu
skuldi félagsins á Hafstein. Í dag hef-
ur hann selt allt sem hann á og stefn-
ir á að fara á sjóinn. „Mér finnst þetta
ömurlegt, en ég gat bara ekki fundið
annan ábyrgðarmann á sínum tíma,“
svaraði Ragnar.
Hreyfði sig ekki án Annþórs
Heimildir DV úr þeim kreðsum
sem Benjamín og Ragnar hrærast í
herma að Ragnar dragi „skuldahala
dauðans“ á eftir sér eins og einn við-
mælandi orðar það. Þá er Ragnar
sjálfur ekki sagður saklaus af því að
hafa beitt óhefðbundnum aðferðum
til þess að innheimta skuldir. Hann
hafi lagt lag sitt við handrukkara og
hafi meðal annars farið þess á leit við
Benjamín, fyrir margt löngu, að hann
tæki að sér að handrukka fyrir sig. Þá
er kunningsskapur Annþórs Karls-
sonar og Ragnars á flestra vitorði.
Eins og þegar hefur komið fram hafði
Annþór bíla Ragnars í sinni umsjón
þegar þeir brunnu og auk þess er tal-
að um að Annþór hafi á tímabili nán-
ast gegnt hlutverki lífvarðar Ragnars.
Hann hafi ekki hreyft sig án þess að
hafa Annþór með sér og hafi jafnvel
ekki farið út í sjoppu án þess að Ann-
þór færi með.
Benjamín hafnar því þó alfarið að
Ragnar hafi viljað fá hann til að rukka
fyrir sig áður en upp úr sauð. „Nei, ég
kannast ekki við það. En ég vil bara
að það komi fram hérna að þetta
er ekkert grín þetta helvítis kjaft-
æði. Við erum að tala um líf mitt
hérna sko,“ segir Benjamín og er
talsvert niðri fyrir. „Ég meina
maðurinn kveikti í bílnum
mínum, hvernig myndir þú
bregðast við? Og svo drullar
hann yfir mig í fjölmiðlum
og kallar mig handrukkara
og eitthvað.“
Ekkert frekar handrukkari en
andrukkari
Benjamín þvertekur fyrir að hann
sé handrukkari. „Nei, ég er ekkert
handrukkari, ekkert frekar en and-
rukkari. Ekkert frekar en andlegur
rukkari.“ Benjamín viðurkennir þó
að hann hafi látið eftir sér að ganga
í skrokk á Ragnari. „Jájá. Mig langaði
að berja hann, ég viðurkenni það al-
veg, þú sást það líka, það fer ekkert
á milli mála að ég hafi tekið aðeins í
manninn.“ Hann segir ómögulegt að
segja til um hvort hann hefði geng-
ið lengra hefði Kompás ekki verið á
staðnum og gripið í taumana. „Það
má guð vita. En hvernig væru Komp-
ás menn þá staddir í málunum?
Segjum að maðurinn hefði slasast
stórkostlega. Hvernig hefðu Komp-
ás menn þá legið í því? Þeir settu at-
riðið upp. Þeir biðu eftir einhverjum
áflogum.“
Benjamín segir orðið handrukk-
ari ofnotað og telur það ekki eiga
Annþór vAr lífvörður rAgnArs
Fréttaskýringaþátturinn Kompás sýndi í gær upptöku af því þegar Benjamín Þór Þor-
grímsson gekk í skrokk á Ragnari Magnússyni vegna fimm milljóna króna skuldar sem
Benjamín taldi sig eiga inni hjá Ragnari. Ragnar segir Benjamín vera handrukkara en
sjálfur hefur hann víða skilið eftir sig sviðna jörð í viðskiptum. Benjamín segir Ragnar og
Kompás hafa einsett sér að búa til æsifrétt og því hafi Ragnar æst hann upp. Hann hefði
alveg eins getað verið að pota í rottweiler-hund og auðvitað hlyti að enda með að hann biti
frá sér. Benjamín segir Ragnar hafa aflað sér fjölda óvina og á tímabili fór hann hvergi án
þess að hafa hinn landsþekkta handrukkara Annþór Karlsson sér við hlið.
Jón BJARKi MAgnússon
blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is
ÞóRARinn ÞóRARinsson
fréttastjóri skrifar toti@dv.is
Þá sakaði Ragnar þá um að hafa handrukk-
að sig og neytt til þess að skrifa undir afsal
af skemmtistöðunum sem hann hafði keypt af
veitingahúsaeigendunum.
Ragnar Magnússon brunabíla-ragnar
hefur skilið eftir sig sviðna jörð í
viðskiptum og að sögn benjamíns hugsa
fleiri honum þegjandi þörfina.
Annþór Karlsson þessi þekkti
handrukkari er sagður hafa gætt öryggis
ragnars sem virðist eiga sér óvildar-
menn í hverju horni.