Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2008, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2008, Blaðsíða 4
þriðjudagur 23. september 20084 Fréttir InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Wathne fyrir dóm Réttarhöld í máli Gunnars Stef- áns Wathne munu halda áfram í Kaliforníu á fimmtudaginn. Áætl- að er að verjendur Gunnars Stef- áns muni flytja mál sitt í dómsal á fimmtudaginn. Gunnar Stefán á yfir höfði sér langa fangelsisvist verði hann fundinn sekur um pen- ingaþvætti upp á hundruð millj- óna króna, sem hann er ákærður fyrir. Gunnar Stefán neitar allri sök í málinu. Samkvæmt heimild- um DV mun málsvörn verjenda Gunnars Stefáns að nokkru leyti snúast um að fyrrverandi skólafé- lagi hans í Harvard hafi komið á hann sök í málinu. Leiðrétting Vegna mistaka birtist röng mynd á Fókussíðu DV í gær þar sem átti að vera mynd úr dönsku kvikmyndinni Hræði- leg hamingja. Hlutaðeig- andi eru beðnir velvirðingar á þessu myndabrengli. Rétt mynd er hér að ofan. Leiðrétting Í nærmynd af Björgólfi Guðmundssyni í helgar- blaði DV sagði á einum stað að hann hefði litið við í KR- heimilinu eftir að hann hafði afplánað fangavist sína. Hið rétta er að þetta gerðist þegar hann var laus úr margra mán- aða gæsluvarðhaldi sem hann var hnepptur í á meðan á rannsókn málsins stóð. Hann þurfti ekki að afplána fang- elsisdóm eftir að endanlegur dómur var kveðinn upp. Skólastjóri MÍ kom í veg fyrir óvissuferð og bannaði áratugagamlar hefðir: Yfirvofandi uppreisn í MÍ? Mikil óánægja hefur ríkt með störf skólastjóra Menntaskólans á Ísafirði á meðal nemenda Menntaskólans und- anfarið. Busavígslan árið 2007 fór eitt- hvað fyrir brjóstið á Jóni Reyni Sigur- vinssyni skólastjóra og ákvað hann því að taka fyrir áralangar hefðir og banna busun í því formi sem hún hefur ver- ið í undanfarna áratugi. Það sem fyllti mælinn var svo þegar Jón Reynir bann- aði óvissuferð einungis tveimur dög- um fyrir brottför en hann hafði vitað af undirbúningi ferðarinnar í meira en viku. Nokkrir nemendur tóku sig saman í kjölfarið og stofnuðu Facebook-síðu þar sem því er lýst yfir að Jón Reynir skólastjóri eigi að segja af sér. Sumir nemendanna hafa einnig talað um að fara í verkfall og hætta að mæta í skól- ann þar til Jón Reynir sýni meiri vilja til samvinnu við nemendur. DV ræddi við frammámann í nem- endafélagi skólans sem sagði marga nemendur vera mjög óánægða. Hann tekur fram að óánægjan snúist einna helst um vinnubrögð Jóns Reynis sem hafi tekið fyrir óvissuferðina með allt of stuttum fyrirvara. Brynjólfur Óli Árnason, formaður nemendafélags Menntaskólans á Ísafirði, segir lausn í sjónmáli og að verið sé að skipuleggja aðra ferð með breyttu sniði, sem farið verður í síðar. Hann segir margt gott vera að gerast í Menntaskólanum og segir ólíklegt að þessi mál muni leiða til verkfalls nemenda. „Busavígslunni var breytt í haust úr því að vera ofbeldisfullar innvígsluat- hafnir eins og hafði tíðkast í áratugi og fór versnandi með ári hverju og í það að vera hófstillt athöfn þar sem nýnemar eru boðnir velkomnir í skólann með já- kvæðum hætti,“ segir Jón Reynir við DV. Hann segist ekki skilja fólk sem verð- ur reitt fái það ekki að beita aðra and- lega eða líkamlegu ofbeldi, en þannig hafi busavígslurnar verið orðnar. Varð- andi gagnrýni þess efnis að hann hafi látið vita of seint að ekki gæti orðið af óvissuferðinni segir hann: „Eftir á að hyggja hefði ég átt að tilkynna fyrir ári að óvissuferðir nemenda í nafni skól- ans yrðu ekki farnar aftur.“ Óánægja margir nemendur í menntaskólanum á Ísafirði eru ekki sáttir við störf skólastjórans og hafa nemendur stofnað Facebook-síðu til að lýsa óánægju sinni. 10-11 löggan neitar sök Lögreglumaðurinn sem ákærður er fyrir að hafa tekið ungan dreng kverkataki í verslun 10-11 í Grímsbæ í maí, neitar sök í málinu. Ákæra gegn lögreglu- manninum var þingfest í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær. Atvikið sem lögreglumaðurinn er ákærð- ur fyrir náðist á myndband og var hlaðið inn á YouTube-vefsvæð- ið. Hann var leystur frá störf- um tímabundið en kom aftur til starfa hjá lögreglunni í sumar. Líkfundur í Fossvogi Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu rannsakar nú andlát manns sem fannst í fjörunni í Fossvogi í fyrradag. Gangandi vegfarendur fundu líkið um klukkan tíu um morguninn. Talið er að maðurinn hafi látist um nóttina eða fyrr um morg- uninn. Friðrik Smári Björg- vinsson, yfirmaður rannsókn- ardeildar lögreglunnar, segir að ekki leiki grunur á að neitt saknæmt hafi átt sér stað í tengslum við lát mannsins. Því er talið líklegt að hann hafi lát- ist af slysförum en það fæst þó ekki staðfest fyrr en niðurstöð- ur krufningar liggja fyrir. „Þetta er svo mikil hörmung og hryllingssaga að það hefur eng- inn gott af því að lesa hana,“ seg- ir viðmælandi DV sem þekkir vel til mannsins sem grunaður er um að hafa beitt þrjú börn sín hrotta- legu ofbeldi. Mikill uggur er með- al barna í hverfi mannsins og segja nágrannar börn sín lengi hafa tal- ið hann ógnvekjandi án þess þó að hann hafi nokkurn tímann gert þeim neitt. Fregnir af þeirri lög- reglurannsókn sem nú stendur yfir hafa hins vegar gefið óttanum byr undir báða vængi. Þegar viðmælandi blaðsins er spurður hvort hann telji manninn hafa gert börnum sínum það sem hann er sakaður um, er svarið: „Ég trúi öllu upp á hann.“ Heillaður af heimsstyrjöldinni Maðurinn hefur lengi haldið úti bloggsíðu þar sem hann segir frá áhugamálum sínum. Sagnfræði ber þar hæst og einna helst allt sem tengist seinni heimsstyrjöldinni. Adolf Hitler er að hans mati ekki sá sem ber höfuðábyrgð á þeirri styrj- öld heldur var hún óhjákvæmileg afleiðing hatrammra deilna á milli Frakka og Þjóðverja. Prescott Bush, afi núverandi Bandaríkjaforseta, bar þarna öllu meiri ábyrgð enda hafi hann komið Hitler til valda með gífurlegum fjármunum sín- um. Morðið á John F. Kennedy er manninum einnig hugleikið og er hann sannfærður um að frammá- menn í bandarískum fjármála- heimi á þeim tíma hafi staðið á bak við ódæðið. Ástæðuna megi rekja til þess að Kennedy ætlaði að af- nema einkaleyfi seðlabankans á prentun dollaraseðla. Síðan er hann sannfærður um að múslimar hafi ekki staðið á bak við árásina á Tvíburaturnana þann 11. september 2001 heldur sjálfur forsetinn, George W. Bush. Algjör fjarstæða Börn mannsins hafa undanfarin ár búið hjá honum einum eftir að slitnaði upp úr sambandi hans við móður þeirra sem er langt leiddur fíkniefnaneytandi. Frá því að lög- reglan hóf að rannsaka meint of- beldi á hendur börnunum hafa þau dvalist hjá ömmu sinni og afa. Í samtali við DV í fyrradag sagði maðurinn ásakanir um ofbeldi á heimilinu vera komnar frá móður- fjölskyldunni. Samkvæmt traustum heimildum blaðsins er það hins vegar fjarstæða og leið mannsins til að draga athyglina frá sér sjálfum. Eftir því sem blaðamaður kemst næst var eitt barnanna vissulega með áverka eftir eggvopn og leik- ur grunur á að maðurinn hafi veitt barninu þá. Sárin eru nú að mestu gróin. Lögreglan hefur hins vegar ekki viljað staðfesta þetta. Við vinnslu fréttarinnar náðist ekki tal af þeim grunaða. ErlA HlynsdÓttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is Mikill uggur er meðal barna í hverfi mannsins sem grunaður er um að hafa beitt þrjú börn sín hrottalegu ofbeldi. Sárin sem eitt barnanna fékk eru að gróa. Maðurinn er áhugamaður um seinni heimsstyrjöldina og telur að George W. Bush standi á bak við árásirnar á Tvíburaturnana. „Ég trúi öllu upp á hann“ F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð dv.is besta rannsóknarblaðamennska ár sins Ásdís RÁn vaR þRemuR tímum fRÁ dauðanum mánudagur 22. september 2008 dagb laðið vísir 174. tbl. – 98. árg. – verð kr . 295 sakaður um að nota barnið sitt sem skotskífu: „fjölskyldan mín er vön að fá fregnir af mé r í lífsháska“ Kennir ættingjum barnsmóður sinnar um ásakanir um ofbeldi Bókstafstrúarmaður sem vitnar gjarnan í Biblíuna vildi láta fangelsa barnsmóðurina fRéttiR „eg er tekinn af lifi“ séRa GunnaR laGði út af helGi hjónaBandsins „hann gerði þetta ljómandi vel,“ segir brúðguminn fRéttiR aftuRviRK hæKKun BaRa fyRiR útvalda fRéttiR gagn- rýnir samning við ljós- mæður maKasKipti haGstæðust BENjamíN þór vill Bætur út af kompásþ ætti: seGist hafa veRið GinntuR út í ofBeldi spoRt neytenduR fhÁ ennþÁ séns fRéttiR „Þetta er svo mikil hörmung og hryllingssaga að það hefur eng- inn gott af því að lesa hana.“ Áhugamaður um sagnfræði maðurinn sem grunaður er um alvarlegt ofbeldi gegn þremur börnum sínum hefur sérstakan áhuga á seinni heimsstyrjöldinni. 22. septemb r 2008

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.