Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2008, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2008, Blaðsíða 10
þriðjudagur 23. september 200810 Neytendur Lof&Last n Lofið fær bensínstöðin N1 í mosfellsbæ. Viðskiptavinur stoppar oft á þeirri stöð á morgnana vegna þess hve æðislegt er að koma þangað. stöðin er ávallt snyrtileg, starfsfólk er vel til haft og tekur á móti hverjum sem er með brosi á vör. n Lastið fær starfs- maður Olís í garða- bæ. Kona bað um að fá skipt um peru. starfsmaðurinn tjáði henni strax að hún þyrfti að fara á verkstæði þar sem hann gæti ekki gert það. Konan reyndi að útskýra að hún hefði farið á bensín- stöð áður með bílinn en starfsmaður- inn bókstaflega rak hana í burtu. Hún var ekki ánægð með þjónustuna. Ýmislegt má gera fyrir íbúðina áður en hún er seld: Góð ráð fyrir seljendur Þegar kemur að því að selja íbúð- ina getur góð aðkoma skipt höfuð- máli fyrir skoðendur. Fáum finnst aðlaðandi að koma í íbúð sem er ekki snyrtileg, þegar fólk er á síðstu stundu með tiltekt eða gestir og dýr eru í íbúðinni. Það getur fælt fólk frá frekar en að laða það að. Það þarf ekki að taka langan tíma að hressa aðeins upp á útlitið og draga fram það besta sem íbúðin eða húsið hefur upp á að bjóða. Góð aðkoma skiptir máli og því ætti að vera snyrti- legt í kringum útidyrahurðina. Fólk skoðar yfirleitt öll smáatriði svo það er gott að vera búinn að lagfæra og mála ef þarf. Miklu skiptir að íbúð- in sé líka snyrtileg og nánast glansi af hreinlæti. Að hafa hreint baðher- bergi segir fólki mikið. Framkoma íbúðareigenda er veigamikil og getur aukið líkur á sölu. Best er að hafa rólegt umhverfi og helst að vera búinn að hella upp á kaffi. Utanaðkomandi gestir og gæludýr eru líklega ekki æskilegir á meðan á heimsókninni stendur svo gott er að koma dýrum fyrir og afþakka heimsóknir. Kurteisi kost- ar heldur ekkert sem og heiðarleiki. Fólk sem kemur hreint fram og seg- ir frá göllum sem vitað er um er lík- legra til að selja íbúðina eða hús- ið sitt þar sem fólk veit hverju það gengur að. Gullinbrú 164,70 179,60 Bensín dísel Skeifunni 163,10 177,90 Bensín dísel Skógarhlíð 164,20 178,00 Bensín dísel Eiðistorgi 163,00 177,80 Bensín dísel Melabraut 161,10 175,90 Bensín dísel Vatnagörðum 163,10 177,90 Bensín dísel Stórahjalla 164,20 180,10 Bensín díselel d sn ey t i Tími naumhyggjunnar er runninn upp. Þegar minna er af peningum til ráðstöfunar þarf að skipuleggja betur og ákveða útgjöldin. Hægt er að spara sér mikinn pening í vetur með því að nota frystikistuna. Víða er verið að auglýsa kjöt af nýslátruðu sem allir ættu að nýta sér. Það margborgar sig. Fylltu Frysti- kistunaPektólín hóstamixtúraÁ haustin fá margir kvef og flensu og þurfa eflaust á hóstamixtúru að halda. pektólín er vinsæl mixtúra sem fæst í flestum apótekum. Ódýrust í verðkönnun blaðsins var hún í garðs apóteki á 368 krónur. Mörgum finnst eflaust erfitt að hugsa til vetrarins með það fyrir augum að endar nái saman. Mat- vara hefur hækkað mikið í verði að undanförnu og erfiðara er fyr- ir fólk að kaupa sér það sem það langar í. Ekki þarf að örvænta því nú er mikið um tilboð á íslensku kjöti af nýslátruðu sem vel er hægt að frysta og nýta í haust. Nýslátrað á tilboði Lambaskrokkar af nýslátruðu, blóðmör, lifrarpylsa og svínakjöt eru á góðu verði þessa dagana. Og úti um allt má finna tilboð á magnkaupum. Boðið er upp á nið- urskorna lambaskrokka, hluta af skrokkum, frosið slátur á tilboði og sláturmarkað þar sem fólk get- ur keypt allt til sláturgerðar. Á tím- um kreppunnar ætti fólk að hugsa sig tvisvar um áður en það fer í dýru matvöruverslanirnar og kaupir kjötið sitt þar því buddan á eftir að léttast ansi hratt. Tími nýsjálenskra nautalunda og humars er búinn og tími hinna íslensku afurða er runn- inn upp. Matur í mánuð Sá sem á frystikistu sem tek- ur 14 kíló getur keypt ansi mik- ið í einu. Krónan auglýsir lamba- skrokk á 769 krónur kílóið. Sá sem kaupir 6 kílóa skrokk sem bútaður er niður í hluta borgar því fyrir það rúmar 4.600 krónur. Svo kaupir hann 6 kíló af frosnu slátri í Bón- us og borgar fyrir það um 2.400 krónur. Að lokum kaupir hann tvo svínabóga sem eru þrjú kíló hvor um sig á tæpar 3 þúsund krónur. Þá er hann kominn með máltíð- ir sem duga fjögurra manna fjöl- skyldu í um mánuð. Samhliða þessu er hægt að nýta uppskeru haustsins. Afurðir eins og kartöfl- ur, gulrætur, rófur og blómkál má vel nýta í haustsúpur. Nýta plássið Fyrir þá sem ekki eiga frystikistu, heldur lítinn frystikáp í ísskápnum, og eiga því erfiðara með að tileinka sér þennan sparneytna lífsstíl skipt- ir þó mestu að reyna að nýta það sem hægt er að nýta. Litlir frysti- skápar rúma nokkrar kótilettur og frosið slátur. Hrísgrjón eru ekki dýr og er hægt að gera marga góða rétti úr þeim. Gamli góði grjónagrautur- inn stendur fyrir sínu og þá er gott að eiga slátrið í frystinum. Í staðinn fyrir að kaupa rándýrt kjöt úr kjöt- borðinu er hægt að sækja kótilettur í frystiskápinn. Aðrir geta keypt sér litla frystikistu. Hún mun borga sig upp á stuttum tíma. Pektólín hóstamixtúra Garðs apótek 368 kr. rima apótek 471 kr. Apótekið 481 kr. lyf og heilsa 488 kr. lyfja 488 kr. laugarnesapótek 570 kr. Flokkaðu sorpið það er góður siður að flokka ruslið sitt. þá er ekki verið að tala eingöngu um mjólkurfernur og matarafganga. Föt sem ekki eru notuð lengur ætti að gefa í rauða krossinn. rafhlöður ætti að setja í sérstök ílát og skila í sorpu og hvert heimili ætti að geyma plastflöskur og skila þeim reglulega í sorpu gegn gjaldi. neytendur@dv.is umsjÓN: Ásdís björg jÓHaNNesdÓttir, asdisbjorg@dv.is Neyten ur tíu ráð fyrir seljendur: 1. Góð aðkoma 2. laga smáatriði 3. fjarlægja lausar snúrur 4. Hreinar hurðir 5. snyrtileg geymsla 6. Hreint baðherbergi 7. dregið frá gluggum 8. engin gæludýr 9. engir gestir 10. enginn hávaði „Þá er hann kominn með máltíðir sem duga fjögurra manna fjölskyldu í um mánuð.“ ÁsDÍs BJÖrG JÓHaNNEsDÓTTir blaðamaður skrifar: asdis@dv.is lambaskrokkar Hægt er að fá nýslátrað á góðu verði um þessar mundir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.