Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2008, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2008, Blaðsíða 13
þriðjudagur 23. september 2008 13Fréttir Óvíst um afdrif eins Dana eftir sprengjutilræðið í Islamabad: Háttsettir embættismenn áttu að vera á Marriott-hótelinu í Islama- bad þegar sprengjutilræðið var gert á laugardaginn. Að sögn Rehmans Malik hjá innanríkisráðuneytinu áttu Asif Zardari, nýkjörinn forseti Pakist- ans, forsætisráðherra og háttsettir yf- irmenn í hernum að vera á hótelinu á þeim tíma. Malik sagði að það hefði orðið mikið áfall ef svo hefði verið, en vildi ekki gefa upp ástæður þess að áætl- anir fyrrnefndra manna breyttust, en þeir höfðu ráðgert miðdegisverðar- fund á hótelinu. Á síðustu stundu var fyrirætlunum breytt og ákveðið var að halda fundinn á heimili forsætisráð- herrans. Að minnsta kosti fimmtíu og þrír fórust í tilræðinu og hátt í þrjú hundr- uð manns særðust. Flestir hinna látnu eru Pakistanar, en á meðal fórnar- lambanna er einnig að finna einn Víet- nama, einn Þjóðverja og einn Banda- ríkjamann. Sprengjan skildi eftir sig sex metra gíg og talið er að sprengjan hafi verið á vörubíl og sprengd með fjarstýringu. Dönsk stjórnvöld eru uggandi vegna mögulegra afdrifa eins starfs- manna öryggislögreglunnar, PET, en ekkert hefur heyrst frá honum síðan tilræðið átti sér stað. Vitað er að hann var á Marriott-hótelinu fyrir sprengu- tilræðið, en hann var þar á vegum PET og átti að auka öryggi starfs- manna danska sendiráðsins í Islama- bad. Starfsmenn sendiráðsins gengu í gær út frá því að maðurinn væri á lífi, en erfitt er um vik fyrir björgunarfólk að bera kennsl á lík margra sem eru óþekkjanleg sökum bruna. Enn hafa engin samtök lýst ábyrgð á hendur sér vegna tilræðisins, en pakistanskir talibanar eru sterklega grunaðir um hryðjuverkið. Leiðtogar sluppu fyrir horn Marriott-hótelið í Islamabad danir eru uggandi um afdrif starfsmanns dönsku öryggislögreglunnar. Mynd AFP Aðskilnaðarsinnar minna á sig Bílsprengja í norðurhluta Spánar í gærmorgun varð einum hermanni að bana auk þess sem tíu borgarar særðust. Stjórnvöld segja að að- skilnaðarsamtök Baska, ETA, beri ábyrgð á tilræðinu. Þetta var þriðja sprengjutilræðið á einum sólar- hring sem eignað er ETA, en eina mannfallið. Þetta er þriðja dauðsfallið á þessu ári sem eignað er ETA sem sögð eru bera ábyrgð á dauða yfir átta hundruð manns síðan barátta þeirra fyrir sjálfstæði Baska hófst. ETA eru skilgreind sem hryðju- verkasamtök af Evrópusamband- inu og Bandaríkjunum. Lengi hefur verið grunnt á því góða á milli Írans og Ísraels og Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, hef- ur ekki farið í grafgötur með álit sitt á Ísrael og hvað réttast væri að gera ríkið. Nú keppast háttsettir embætt- ismenn í Íran við að færa sönnur á hvrsju mjög þeir eru andvígir Ísrael og síonisma. Í hinum opinberu kreð- sum í Íran er litlum efa undirorpið að síonismi er af hinu illa, og jafnvel undirrót all þess sem illt er í heimin- um. Forseti Írans hefur farið fremst- ur í flokki í gagnrýni sinni gegn Ísrael og þau ummæli hans að „þurrka ætti Ísrael af heimskortinu“ voru fyrstu teikn um að hann yrði umdeildur í forsetaembætti. Reyndar eru einhver áhöld um nákvæma þýðingu um- mæla hans. Vinur forsetans, vinur Ísraela En nú gerast undur og stórmerki því náinn vinur Ahmadinejad for- seta er sakaður um að vera of vin- veittur ríki gyðinga, í það minnsta íbúum þess. Í viðtali í júlí lét Es- fandiar Rahim Mashaei, yfirmað- ur menningar- og ferðamannamála í Íran, ummæli falla sem vakið hafa hörð viðbrögð heima fyrir. Haft var eftir honum að Íranar væru vin- ir ísraela þrátt fyrir að ríkisstjórnir landanna elduðu grátt silfur saman. „Í dag eru Íranar vinir Bandaríkja- manna og ísraelskra borgara. Engin þjóð í heiminum er óvinur okkar,“ sagði Mashaei. Í ummælum sínum skírskotar Mashaei til staðlaðra um- mæla frá utanríkisráðuneyti Banda- ríkjanna: „Við erum ekki óvinir þjóðar X-ríkis, eingöngu leiðtoga hennar.“ Í því andrúmslofti sem svífur yfir vötnunum í Íran valda öll ummæli þar sem ekki er gengið út frá því að allt sem varðar Ísrael sé af hinu illa fjaðrafoki. Sú varð raunin í þessu til- felli. Haldnar voru bænastundir, rit- stjórnarpistlar fjölluðu um málið, kvörtunum rigndi yfir þing landsins og mótmæli voru höfð í frammi. Mashaei situr við sinn keip Á fréttamannafundi sem halfinn var í síðustu viku fór mestur hluti tímans í að fjalla um málefnið og umdeild orð Esfandiar Rahim Mashaei. Mahmoud Ahmadinejad studdi ummæli vinar síns, en notaði tækifærið til að halda eina mestu skammarræðu sem hann hefur haldið um „leiðtoga síonismans“. Í máli forsetans kom fram að það væri einungis handfylli síonista sem fyllti valdakjarna vestrænna ríkja, aðeins um tvöþúsund síonistar. Þeir væru trúleysingjar sem vildu ráða heiminum og ganga í auðæfi annarra þjóða. Aukinheldur hélt Mahmoud Ah- madinejad því fram að margir þeirra sem byggju í Ísrael hefðu verið blekkt- ir til að flytja þangað af þessari hand- fylli síonista. Það væri kominn tími til að opna hliðin og leyfa þeim að snúa heim. Þeir ættu samúð hans, sagði hann, rétt eins og George W. Bush, Bandaríkjaforseti, ætti samúð hans. Hann hefði getað orðið betri mann- eskja, þrátt fyrir þá óteljandi glæpi sem hann hefði á samviskunni. Æðstiklerkur kveður sér hljóðs En hörð orð Mahmoud Ahmad- inejad í garð Ísraels nægðu ekki til að lægja öldurnar og þess var skammt að bíða að Ayatollah Kham- enei, æðstiklerkur léti í sér heyra. Við föstudagsbænir ítrekaði Aya- tollah Khamenei að hann hefði enga samúð með þegnum Ísraels. „Hverj- ir eru Ísraelar? Þeir gleypa húseignir, jarðsvæði, ræktarlönd og viðskipti. Þeir eru bardagamenn sem aðgerð- arsinnar síonista hafa aðgang að,“ sagði Khamenei. „Þjóð múslima getur ekki látið sér á sama standa um slíkt fólk sem er handbendi til reiðu erkióvinum múslima,“ sagði erkiklerkurinn við föstudagsbænir. Esfandiar Rahim Mashaei lýsti umsviflaust yfir fullum stuðningi við erkiklerkinn, en dró ummæli sín ekki til baka. Stjórnmálaskýrendur telja að Ahmadinejad, forseti, hafi lagt blessun sína yfir ummæli Mas- haei og að þau séu jafnvel undan hans rifjum runnin. Vinsakap þeirra má rekja til þess tíma þegar þeir þjónuðu í byltingarverðinum og þeir eru einnig tengdir fjölskyldu- böndum því dóttir Mashaei er gift syni Ahmadinejad. Forleikur að friði Menn hafa leitt líkur að því að með þessum leik vilji Ahmadinejad útfæra og þróa hugmyndina um heim án Ísraels, eða sé að undirbúa jarðveginn fyrir árlega för sína til New York á aðalráðstefnu Samein- uðu þjóðanna. Ef hið síðara er raunin er erfitt að sjá stjórnkænskuna í aðferðinni, því það getur ekki talist vænlegt til árangurs í friðarviðleitni að saka viðmælandann um að vera í greip fárra illra trúleysingja. Þess utan eru engin teikn á lofti um að Íranar ætli að sér að leggja til hliðar kjarnorkuáætlun sína, en hún hefur lengi verið Þrándur í götu í samskiptum landsins við vestræn ríki. Kannski er málið miklu einfald- ara en horft til hér að framan og eingöngu um að ræða deiluefni í æðstu stjórn landsins sem ætlað er að skilgreina nákvæmlega mörk andsíonismans sem þjóðin virðist nota til að skilgreina eigin tilvist. Ísrael og síonismi verða Írönum ávallt hugleikin. Nú ber svo við að Esfandiar Rahim Mashaei, varaforseti Írans, og Ayatollah Kham- enei, æðsti trúarleiðtogi þjóðarinnar, eru á öndverðum meiði. Vara- forsetinn er vinur ísraelskra borgara en æðsti klerkurinn óvinur þeirra. Mahmoud Ahmadinejad, forseti landsins, styður varafor- setann en les Ísraelum og síonistum pistilinn sem aldrei fyrr. ÍrAnir rÍfAst um ÍsrAel Ayatollah Khamenei Æðsti trúarleiðtogi írönsku þjóðarinnar nýtti föstudagsbænir til að undirstrika álit sitt á Ísraelum. Þeir ættu samúð hans, sagði hann, rétt eins og George W. Bush Bandaríkjaforseti ætti samúð hans. Hann hefði getað orðið betri manneskja, þrátt fyrir þá óteljandi glæpi sem hann hefði á samviskunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.