Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2008, Qupperneq 13
þriðjudagur 23. september 2008 13Fréttir
Óvíst um afdrif eins Dana eftir sprengjutilræðið í Islamabad:
Háttsettir embættismenn áttu að
vera á Marriott-hótelinu í Islama-
bad þegar sprengjutilræðið var gert
á laugardaginn. Að sögn Rehmans
Malik hjá innanríkisráðuneytinu áttu
Asif Zardari, nýkjörinn forseti Pakist-
ans, forsætisráðherra og háttsettir yf-
irmenn í hernum að vera á hótelinu á
þeim tíma.
Malik sagði að það hefði orðið
mikið áfall ef svo hefði verið, en vildi
ekki gefa upp ástæður þess að áætl-
anir fyrrnefndra manna breyttust, en
þeir höfðu ráðgert miðdegisverðar-
fund á hótelinu. Á síðustu stundu var
fyrirætlunum breytt og ákveðið var að
halda fundinn á heimili forsætisráð-
herrans.
Að minnsta kosti fimmtíu og þrír
fórust í tilræðinu og hátt í þrjú hundr-
uð manns særðust. Flestir hinna látnu
eru Pakistanar, en á meðal fórnar-
lambanna er einnig að finna einn Víet-
nama, einn Þjóðverja og einn Banda-
ríkjamann. Sprengjan skildi eftir sig
sex metra gíg og talið er að sprengjan
hafi verið á vörubíl og sprengd með
fjarstýringu.
Dönsk stjórnvöld eru uggandi
vegna mögulegra afdrifa eins starfs-
manna öryggislögreglunnar, PET, en
ekkert hefur heyrst frá honum síðan
tilræðið átti sér stað. Vitað er að hann
var á Marriott-hótelinu fyrir sprengu-
tilræðið, en hann var þar á vegum
PET og átti að auka öryggi starfs-
manna danska sendiráðsins í Islama-
bad. Starfsmenn sendiráðsins gengu í
gær út frá því að maðurinn væri á lífi,
en erfitt er um vik fyrir björgunarfólk
að bera kennsl á lík margra sem eru
óþekkjanleg sökum bruna.
Enn hafa engin samtök lýst ábyrgð
á hendur sér vegna tilræðisins, en
pakistanskir talibanar eru sterklega
grunaðir um hryðjuverkið.
Leiðtogar sluppu fyrir horn
Marriott-hótelið í Islamabad danir
eru uggandi um afdrif starfsmanns
dönsku öryggislögreglunnar. Mynd AFP
Aðskilnaðarsinnar minna á sig
Bílsprengja í norðurhluta Spánar í
gærmorgun varð einum hermanni
að bana auk þess sem tíu borgarar
særðust. Stjórnvöld segja að að-
skilnaðarsamtök Baska, ETA, beri
ábyrgð á tilræðinu. Þetta var þriðja
sprengjutilræðið á einum sólar-
hring sem eignað er ETA, en eina
mannfallið.
Þetta er þriðja dauðsfallið á þessu
ári sem eignað er ETA sem sögð
eru bera ábyrgð á dauða yfir átta
hundruð manns síðan barátta
þeirra fyrir sjálfstæði Baska hófst.
ETA eru skilgreind sem hryðju-
verkasamtök af Evrópusamband-
inu og Bandaríkjunum.
Lengi hefur verið grunnt á því góða
á milli Írans og Ísraels og Mahmoud
Ahmadinejad, forseti Írans, hef-
ur ekki farið í grafgötur með álit sitt
á Ísrael og hvað réttast væri að gera
ríkið. Nú keppast háttsettir embætt-
ismenn í Íran við að færa sönnur á
hvrsju mjög þeir eru andvígir Ísrael
og síonisma. Í hinum opinberu kreð-
sum í Íran er litlum efa undirorpið
að síonismi er af hinu illa, og jafnvel
undirrót all þess sem illt er í heimin-
um. Forseti Írans hefur farið fremst-
ur í flokki í gagnrýni sinni gegn Ísrael
og þau ummæli hans að „þurrka ætti
Ísrael af heimskortinu“ voru fyrstu
teikn um að hann yrði umdeildur í
forsetaembætti. Reyndar eru einhver
áhöld um nákvæma þýðingu um-
mæla hans.
Vinur forsetans, vinur Ísraela
En nú gerast undur og stórmerki
því náinn vinur Ahmadinejad for-
seta er sakaður um að vera of vin-
veittur ríki gyðinga, í það minnsta
íbúum þess. Í viðtali í júlí lét Es-
fandiar Rahim Mashaei, yfirmað-
ur menningar- og ferðamannamála
í Íran, ummæli falla sem vakið hafa
hörð viðbrögð heima fyrir. Haft var
eftir honum að Íranar væru vin-
ir ísraela þrátt fyrir að ríkisstjórnir
landanna elduðu grátt silfur saman.
„Í dag eru Íranar vinir Bandaríkja-
manna og ísraelskra borgara. Engin
þjóð í heiminum er óvinur okkar,“
sagði Mashaei. Í ummælum sínum
skírskotar Mashaei til staðlaðra um-
mæla frá utanríkisráðuneyti Banda-
ríkjanna: „Við erum ekki óvinir
þjóðar X-ríkis, eingöngu leiðtoga
hennar.“
Í því andrúmslofti sem svífur yfir
vötnunum í Íran valda öll ummæli
þar sem ekki er gengið út frá því að
allt sem varðar Ísrael sé af hinu illa
fjaðrafoki. Sú varð raunin í þessu til-
felli. Haldnar voru bænastundir, rit-
stjórnarpistlar fjölluðu um málið,
kvörtunum rigndi yfir þing landsins
og mótmæli voru höfð í frammi.
Mashaei situr við sinn keip
Á fréttamannafundi sem halfinn var
í síðustu viku fór mestur hluti tímans í
að fjalla um málefnið og umdeild orð
Esfandiar Rahim Mashaei. Mahmoud
Ahmadinejad studdi ummæli vinar
síns, en notaði tækifærið til að halda
eina mestu skammarræðu sem hann
hefur haldið um „leiðtoga síonismans“.
Í máli forsetans kom fram að það
væri einungis handfylli síonista sem
fyllti valdakjarna vestrænna ríkja,
aðeins um tvöþúsund síonistar. Þeir
væru trúleysingjar sem vildu ráða
heiminum og ganga í auðæfi annarra
þjóða.
Aukinheldur hélt Mahmoud Ah-
madinejad því fram að margir þeirra
sem byggju í Ísrael hefðu verið blekkt-
ir til að flytja þangað af þessari hand-
fylli síonista. Það væri kominn tími til
að opna hliðin og leyfa þeim að snúa
heim. Þeir ættu samúð hans, sagði
hann, rétt eins og George W. Bush,
Bandaríkjaforseti, ætti samúð hans.
Hann hefði getað orðið betri mann-
eskja, þrátt fyrir þá óteljandi glæpi
sem hann hefði á samviskunni.
Æðstiklerkur kveður sér hljóðs
En hörð orð Mahmoud Ahmad-
inejad í garð Ísraels nægðu ekki
til að lægja öldurnar og þess var
skammt að bíða að Ayatollah Kham-
enei, æðstiklerkur léti í sér heyra.
Við föstudagsbænir ítrekaði Aya-
tollah Khamenei að hann hefði enga
samúð með þegnum Ísraels. „Hverj-
ir eru Ísraelar? Þeir gleypa húseignir,
jarðsvæði, ræktarlönd og viðskipti.
Þeir eru bardagamenn sem aðgerð-
arsinnar síonista hafa aðgang að,“
sagði Khamenei.
„Þjóð múslima getur ekki látið
sér á sama standa um slíkt fólk sem
er handbendi til reiðu erkióvinum
múslima,“ sagði erkiklerkurinn við
föstudagsbænir.
Esfandiar Rahim Mashaei lýsti
umsviflaust yfir fullum stuðningi
við erkiklerkinn, en dró ummæli sín
ekki til baka. Stjórnmálaskýrendur
telja að Ahmadinejad, forseti, hafi
lagt blessun sína yfir ummæli Mas-
haei og að þau séu jafnvel undan
hans rifjum runnin. Vinsakap þeirra
má rekja til þess tíma þegar þeir
þjónuðu í byltingarverðinum og
þeir eru einnig tengdir fjölskyldu-
böndum því dóttir Mashaei er gift
syni Ahmadinejad.
Forleikur að friði
Menn hafa leitt líkur að því að
með þessum leik vilji Ahmadinejad
útfæra og þróa hugmyndina um
heim án Ísraels, eða sé að undirbúa
jarðveginn fyrir árlega för sína til
New York á aðalráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna.
Ef hið síðara er raunin er erfitt
að sjá stjórnkænskuna í aðferðinni,
því það getur ekki talist vænlegt til
árangurs í friðarviðleitni að saka
viðmælandann um að vera í greip
fárra illra trúleysingja.
Þess utan eru engin teikn á lofti
um að Íranar ætli að sér að leggja
til hliðar kjarnorkuáætlun sína,
en hún hefur lengi verið Þrándur
í götu í samskiptum landsins við
vestræn ríki.
Kannski er málið miklu einfald-
ara en horft til hér að framan og
eingöngu um að ræða deiluefni í
æðstu stjórn landsins sem ætlað
er að skilgreina nákvæmlega mörk
andsíonismans sem þjóðin virðist
nota til að skilgreina eigin tilvist.
Ísrael og síonismi verða Írönum ávallt hugleikin. Nú ber svo við að
Esfandiar Rahim Mashaei, varaforseti Írans, og Ayatollah Kham-
enei, æðsti trúarleiðtogi þjóðarinnar, eru á öndverðum meiði. Vara-
forsetinn er vinur ísraelskra borgara en æðsti klerkurinn óvinur
þeirra. Mahmoud Ahmadinejad, forseti landsins, styður varafor-
setann en les Ísraelum og síonistum pistilinn sem aldrei fyrr.
ÍrAnir rÍfAst um ÍsrAel
Ayatollah Khamenei Æðsti trúarleiðtogi
írönsku þjóðarinnar nýtti föstudagsbænir til
að undirstrika álit sitt á Ísraelum.
Þeir ættu samúð hans, sagði hann, rétt eins
og George W. Bush Bandaríkjaforseti ætti
samúð hans. Hann hefði getað orðið betri
manneskja, þrátt fyrir þá óteljandi glæpi
sem hann hefði á samviskunni.