Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2008, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2008, Blaðsíða 6
„Við erum að byggja hús hérna og ég er bara praktískur og setti upp hjól- hýsið,“ segir Kjartan Jón Bjarnason, íbúi í Mosfellsbæ. Kjartan hefur búið ásamt fjölskyldu sinni, eiginkonu og þremur börnum, í hjólhýsinu síðustu þrjá mánuði en þau eru þó með lög- heimili í miðbæ Reykjavíkur. Hann vinnur nú hörðum höndum að því að klára nýtt heimili fjölskyldunn- ar í Mosfellsbæ sem verður tilbúið á næsta ári. Þegar blaðamann bar að garði voru húsráðendur með gesti í heimsókn að drekka kaffi. Fullkomið heimili „Ég kem heim úr vinnunni og fer þá beint í húsið, ég vinn í því til svona tólf og fer þá út í hjólhýsi að sofa. Þetta er miklu hagstæðara en að vera að keyra frá miðbænum og hingað í sífellu,“ segir Kjartan. Börnin eru nýbyrjuð í skóla í Mos- fellsbæ og kýs faðirinn frekar að þau stundi nám í sama skóla í stað þess að þau hefðu skipt um skóla um áramót. Hann segir hjólhýsið nánast fullkomið til heimilishalds. „Ég er með allar græjur; sjónvarp, kalt og heitt vatn, klósett og mið- stöð,“ segir Kjartan og er sáttur við aðbúnaðinn í hjólhýsinu. Næsta verkefni fjölskyldunnar er að klára neðri hæðina sem fyrst og setja gler í gluggana. Þau gætu ef til vill byrjað á að búa á neðri hæð- inni. Kjartan kvíðir vetrinum ekkert. „Ef það fer að verða leiðinlegra veð- ur förum við bara aftur í miðbæinn, annars á ég ekki von á því að vetur- inn hafi áhrif á okkur hérna.“ Að- spurður hvað nágrönnunum finnist um heimilishaldið segir Kjartan: „Við erum ekkert „trailertrash“ hérna, ég er með Benz og Patrol hinum megin við húsið.“ Kjartan vinnur hjá Víkurverki sem selur hjólhýsi og er því vanur að stússast í hjólhýsum allan daginn. Salan gengur illa Leirvogstunguhverfið hefur risið hratt síðustu mánuði og eru mörg einbýlishús til sölu í hverfinu. Garð- ar Hólm, eigandi Remax fasteigna- sölu, segir að sala í hverfinu gangi örlítið betur en á öðrum svæðum í kring. „Flest húsin eru í höndum einkaaðila sem eru að byggja sjálf- ir hús á lóðum á svæðinu. Landeig- endurnir hafa lagt rosalega mikið upp úr uppbyggingu á svæðinu og það virkar aðlaðandi fyrir fólk,“ segir Garðar. Hann segir söluna hins veg- ar ekki ganga vel á þeirra fasteign- um á svæðinu. „Salan gengur ekki vel, það er stopp á nýbyggingum þarna eins og annars staðar. Þetta eru náttúrlega mjög erfiðir tímar.“ Mikill kuldi yfir vetrartímann Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur segir að ansi kalt geti orð- ið yfir vetrartímann í hjólhýsi í Mos- fellsbæ. „Mosfellsbærinn er kaldari yfir vetrartímann en Reykjavík, en það er alveg hægt að láta sig hafa þetta. Nú, ef hjólhýsið er bundið al- mennilega niður ætti þetta að geta gengið upp hjá þeim.“ Sigurður segir að ef frosthörku- tímabil komi í vetur þurfi þau að hafa plan b. „Það gæti orðið ansi þröngt á þingi hjá þeim, en ég hef mestar áhyggjur af að pissið frjósi hjá þeim, það gæti orðið snúið að losa salerni í hörkufrosti á Íslandi,“ segir Sigurður að lokum en hann er staddur á Spáni í tuttugu og níu stiga hita. þriðjudagur 23. september 20086 Fréttir InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Hinn íslenskættaði Paul Aðal- steinsson, öðru nafni Ian Strachan, sem dæmdur var í fimm ára fangelsi í Bretlandi fyrir að reyna að kúga fé út úr meðlim bresku konungsfjöl- skyldunnar, heldur uppi vörnum á vefsvæði sínu á myspace.com. „Þessi vefsíða er komin upp aftur eftir að hafa verið lokað af yfirvöldum. Ég hef þegar áfrýjað fangelsisdómnum, enda held ég fram sakleysi mínu,“ skrifar hann á vefsíðuna. Paul Aðalsteinsson hefur þegar afplánað tæplega eitt ár af fimm ára dómnum, en búast má við að hann muni afplána rúmlega tvö og hálft ár í fangelsi. Paul segir frá því á vef- síðunni að hann hafi í sumar ver- ið færður í lágmarksöryggisfangelsi, þar sem hann bíður eftir því að áfrýj- un hans verði tekin fyrir í Bretlandi. Paul virðist þó sjá húmor í þeim glæp sem hann situr inni fyrir, því í bakgrunni á vefsíðu hans er mynd af konunglegu bresku krúnunni. Eins og fram kom í fjölmiðlum á síðasta ári reyndi Paul, í félagi við annan mann, að kúga fé út úr með- lim bresku konungsfjölskyldunnar. Hann fór fram á 50 þúsund pund, sem jafngildir 8,2 milljónum króna á núgildandi gengi. Paul kvaðst hafa undir höndum upptöku af starfs- manni konungsfjölskyldunnar þar sem hann viðurkenndi að hafa haft samfarir við hinn konungborna fjöl- skyldumeðlim og neytt eiturlyfja með honum. Paul reyndi upphaf- lega að selja upptökuna til bresku götublaðanna, en hafði ekki erindi sem erfiði. valgeir@dv.is Paul Aðalsteinsson notar Myspace-síðu til að vekja athygli á máli sínu: Krúnukúgarinn hvergi banginn Paul Aðalsteinsson bíður eftir að mál hans verði tekið fyrir. Fimm manna fjölskylda í Mosfellsbæ fer athyglisverða leið til að spara peninga. Þau hafa búið í hjólhýsi síðustu þrjá mánuði og verða áfram þar í vetur. Faðirinn kvíðir ekki komandi vetri enda sé hjólhýsið útbúið öllum græjum sem heimili þarf. „Við erum ekkert „trailertrash“ hérna, ég er með Benz og Patrol hinum megin við húsið.“Boði logASon blaðamaður skrifar bodi@dv.is Búa í hjólhýsi til að spara Kjartan Jón Bjarnason Hefur búið í hjólhýsi síðustu fjóra mánuði þar sem bensínið er orðið svo dýrt. Íris Anna og Sigurbjörn Ágúst skemmta sér vel í hjólhýsinu og lita sér til afþreyingar. stolin borvél á Barnalandi Lögreglan á Selfossi þurfti að glíma við óvenjulegt mál í síðustu viku. Karlmaður hafði samband við lögreglu og greindi frá því að borvél hefði verið stolið frá honum og hann síðan séð hana auglýsta á barna- land.is. Lögregla fór til þess sem hafði auglýst vélina og við- urkenndi hann að hafa farið inn í fyrirtæki í Þorlákshöfn og tekið vélina. Hann kvað ástæðuna vera þá að fyrirtækið þar sem borvélin var skuldaði honum peninga. Maðurinn greindi síðan frá því að í ljós hefði komið að vélin hent- aði ekki í verkefni hans og hann síðan áttað sig á því að hann hefði farið húsavillt. Aðilinn sem á að hafa skuldað manninum var í næsta húsi við hliðina. Rændu Skólahreysti Talið er að óprúttnir aðilar hafi stolið tveimur kerrum sem notaðar voru í Skólahreysti 2009. Andrés Guðmundsson kraftajötunn lýsir eftir kerrun- um og heitir fundarlaunum. Þeim var stolið í Mosfellsbæ 13. september. Stærri kerran er sex metra löng og tveggja metra breið með númerinu ND 415. Sú smærri er 4,4 metra löng og 2,2 metra breið, núm- erslaus. Skólahreysti er krafta- og úthaldskeppni grunnskóla- nema. Undirbúningur fyrir Skólahreysti 2009 stendur nú yfir og er óhætt að segja að ránið á kerrunum setji strik í reikninginn. Andrés Guðmundsson heit- ir fundarlaunum ef hringt er í hann í síma 663 1111 og ljóstr- að upp um felustað kerranna. Á kókaíni með sveðju Lögreglan á Akranesi hafði afskipti af ökumanni bifreiðar á miðvikudaginn í síðustu viku. Reyndist hann vera undir áhrifum kókaíns, kannabisefna og amfet- amíns en auk þess reyndi farþeg- inn að losa sig við nokkur grömm af amfetamíni fyrir framan nefið á lögreglumönnunum. Þegar betur var að gáð reynd- ust vera kókaín, e-töflur og kanna- bisefni í bifreiðinni auk mikils magns af sterkum ávanabindandi lyfjum sem hvorugur maðurinn gat gert grein fyrir. Að síðustu fannst í bifreiðinni stór sveðja. Dóppartí leyst upp á Akureyri Fjögur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á Akur- eyri um helgina. Þrjú mál komu upp á föstudagskvöld- ið og eitt á laugardagskvöld- ið. Framkvæmdar voru þrjár húsleitir og hald lagt á nokkra neysluskammta af kannabis- efnum, amfetamíni og kókaíni auk tækja og tóla til fíkniefna- neyslu. Þá voru tveir karlmenn handteknir í vikunni grunað- ir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Á laugardagskvöld stöðvaði lögreglan fíkniefna- partí. Þar var lagt hald á nokkra neysluskammta af fíkniefnum og tæki og tól til neyslu þeirra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.