Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2008, Qupperneq 3
þriðjudagur 23. september 2008 3Fréttir
Þóra Sigurðardóttir, eða Þóra
úr Stundinni okkar eins og margir
þekkja hana,
er stödd hér
á landi þessa
dagana. Þóra á
nú von á sínu
fyrsta barni með
meistarakokk-
inum Völundi
Snæ Völund-
arsyni. Hún er
hingað kom-
in til að fæða
frumburðinn en
eins og flestir
vita hafa þau hjónin komið sér
vel fyrir á Bahamas þar sem þau
reka veitingastað. Sjö vikur eru í
áætlaðan fæðingardag og ætlar
Þóra sem hefur sjaldan litið betur
út en einmitt nú að njóta lífsins á
Íslandi þangað til.
Hvað segir pabbi?
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.Veður
Veðrið í dag kl. 18 ...og næstu daga
sólarupprás
05:06
sólsetur
21:46
Benjamín Þorgrímsson Ragnar Magnússon
bruninn tengist bílabrennu í Vogum
„Jú, þetta var bíllinn minn,“
segir Benjamín Þór Þorgrímsson
einkaþjálfari, en lúxusjeppi hans
af Volkswagen Touareg-gerð brann
til kaldra kola við Naustabryggju í
Grafarvogi í fyrrinótt. Nær öruggt er
að kveikt hafi verið í bílnum, enda
kveðst Benjamín hafa orðið var við
mannaferðir fyrir utan heimili sitt
um það leyti sem bíllinn brast í ljósa
loga. Lögregla rannsakar málið.
Benjamín kveðst gruna að það sé
Ragnar Magnússon veitingamaður
sem standi að baki íkveikjunni. „Það
er nú eiginlega bara einn maður sem
kemur til greina, jafnvel þótt hann sé
farinn til Taílands,“ segir Benjamín.
„Þetta er ekkert flókið.“
Ragnar Magnússon var eigandi
tíu glæsibíla sem brenndir voru til
kaldra kola í porti við höfnina í Vogum
við Vatnsleysuströnd 9. desember
síðastliðinn. Nú í mars kærði Ragnar
sjö menn, Benjamín þar á meðal,
fyrir að neyða hann til þess að láta
skemmtistaði sína af hendi með
hótunum um líkamsmeiðingar,
bæði gagnvart honum og fjölskyldu
hans. Ragnar sagði Benjamín vera
alræmdan handrukkara, sem gengið
hefði undir nafninu Ólafsvíkur-
Bensi. Benjamín hafði þó orðið fyrri
til og kært Ragnar fyrir að dreifa um
sig rógi. Glæsibílar Ragnars voru í
vörslu Annþórs Karlssonar í Vogum
þegar kveikt var í þeim. Annþór
á sér langa sögu ofbeldisverka og
fíkniefnabrota. Hann situr nú á
Litla-Hrauni fyrir aðild að umfangs-
miklu fíkniefnasmygli með póst-
sendingum. Bíll Banjamíns, sem
brann í fyrrinótt, var nýlegur, rétt
um ellefu milljón króna virði,
og aðeins ekinn þrjátíu þúsund
kílómetra. Jón Stefán Björnsson var
í nærliggjandi íbúð þegar kviknaði
í bílnum. „Það komu tveir stórir
hvellir og við héldum að flugeldar
væru að springa. Þegar við fórum út
að glugga sáum við bara eldhafið og
svo tóku dekk og rúður að springa
með látum,“ segir hann.sigtryggur@dv.is
Fæðir á Íslandi
rÍkari en Fellur
samt á listanum
Hinir ríku verða ríkari er niður-
staða The Sunday Times sem birti
í gær lista sinn yfir ríkustu menn
og konur Bretlandseyja. Björgólf-
ur Thor Björgólfsson er sem fyrr
ríkasti Íslendingurinn sem þar býr.
Þrátt fyrir að hann hafi aukið auð
sinn milli ára fellur Björgólfur Thor
um sex sæti. Hann var 23. ríkasti
maður landsins á síðasta ári en
þetta árið dugar auður Björgólfs
honum aðeins í 29. sætið. Blaða-
menn The Sunday Times meta
auð Björgólfs Thors á tvo milljarða
enskra punda og sjötíu milljónum
betur. Þegar það hefur verið reikn-
að til íslenskra
króna er auður
Björgólfs met-
inn á heila 303
milljarða króna
og reyndar 110
milljónir
króna að
auki.
norðanáttin áFram
Áfram verða norðlægar áttir á
landinu með stinningskalda
og éljum norðanlands í dag.
Veðurstofan spáir að bjartara verði
sunnan heiða. Heldur bætir í vind
í dag og hiti nær frá frostmarki allt
upp undir tíu gráður sunnan til.
Gera má ráð fyrir stífri norðanátt
næstu daga með éljum á Norður-
og Austurlandi.
Þri Mið Fim Fös
vindur í m/s
hiti á bilinu
stykkishólmur
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
Þri Mið Fim Fös
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
<5 Mjög hægur vindur 5-10 Fremur hægur vindur. 10-20 Talsverður vindur 20-30 Mjög hvasst,
fólk þarf að gá að sér. >30 Stórviðri, fólk ætti ekki að vera á ferli að nauðsynjalausu.
Höfn
reykjavík egilsstaðir
ísajörður Vestmannaeyjar
patreksfjörður kirkjubæjarkl.
akureyri selfoss
sauðárkrókur Þingvellir
Húsavík keflavík
Mán Þri Mið Fim
hiti á bilinu
kaupmannahöfn
hiti á bilinu
osló
hiti á bilinu
stokkhólmur
hiti á bilinu
Helsinki
hiti á bilinu
london
hiti á bilinu
parís
hiti á bilinu
Berlín
hiti á bilinu
palma
Mán Þri Mið Fim
hiti á bilinu
tenerife
hiti á bilinu
róm
hiti á bilinu
amsterdam
hiti á bilinu
Brussel
hiti á bilinu
marmaris
hiti á bilinu
ródos
hiti á bilinu
sanFrancisco
hiti á bilinu
newYork
hiti á bilinu
Barselóna
hiti á bilinu
miamiVe
ðr
ið
ú
ti
í
He
im
i í
d
ag
o
g
næ
st
u
da
ga
Vindaspá á hádegi á morgun. Hitaspá á hádegi á morgun. Veðurstofa íslanDs
5-7
4/5
9-10
2
4-8
1/3
6
0
7-8
2
4-5
2/3
6-8
1/2
4-10
2/3
11-19
4/7
2-5
3/9
15-18
4-6
9-10
2/6
6-11
1/7
11-13
2/4
3-7
2/5
8-11
0/3
2-6
-2/3
2-6
-2/1
6-13
-1/2
6-8
0/1
6-8
-2/2
8-19
0/3
16-23
0/4
2-4
1/6
17-21
0/4
11-12
-3/4
6-14
-3/3
11-12
2/3
4-6
5/10
11-14
3/4
4-9
2/4
5-11
1/2
8-12
1/5
5-6
3/4
5-6
2/3
4-8
3/4
12-14
5/7
2-5
6/11
11
4/9
12-13
5/9
7-15
7/8
11-12
4/8
4-6
7/8
12-15
3/4
5-8
3/6
6-8
2/3
6-10
1/6
4
3/4
5-6
2/4
5-8
2/4
10-17
6/7
3
8/9
8-12
37/8
8-12
7/9
8-12
7
8-10
5/7
12/15
11/14
7/12
5/9
7/15
8/13
11/21
11/17
11/18
19/24
12/22
7/11
9/13
6/16
15/15
9/25
12/13
22/29
10/16
9/16
7/14
6/11
7/12
9/12
10/21
15/17
12/19
18/21
10/16
10/15
10/16
10/20
17/18
8/19
8/15
21/30
9/14
10/15
7/12
8/13
7/12
7/15
12/19
13/20
11/20
17/19
9/19
8/14
7/15
8/17
17/17
10/17
10/13
21/29
10/15
10/14
8/12
8/15
9/15
8/17
10/20
12/17
10/19
18/19
8/19
5/14
5/16
9/23
16/19
8/21
13/14
22/28
Núna eru þau 52 kílóin sem eru farin!
Þar af 30 kíló á 5 mánuðum.
Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar í síma 891 6264 eða á allax@simnet.is
Sendum fríar prufur og höfum vigtunar og stuðningskvöld
í boði fyrir alla, og einstaklingsviðtöl eftir umtali.
allax@simnet.is.
Lr-Henning kúrinn hefur slegið í gegn
Kúrinn er hraðvirkur og árangursríkur
Einstaklega ríkur af bætiefnum
Betri svefn, aukin orka, bætt vellíðan
Ekkert blóðsykurflökt og margt fleira.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
1
2
7
6 9
8
1
1
21
5
9
4
6
1
8
5
7
56
Til kaldra kola kveikt var í tíu glæsibíl-
um á Vatnsleysuströnd í desember.
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
dv.is
besta rannsóknarblaðamennska ársins
Tugir foreldra og barna fá ekki að hiTTasT
þar sem foreldrið með forræðið kemur í
veg fyrir samskipTin, segir lúðvík börkur
Jónsson, formaður félags um for-
eldraJafnréTTi.
mánudagur 11. ágúst 2008 dagblaðið vísir 144. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295
Tugir fá ekki að
hiTTa börnin sín
benJamín þ. þorgrímsson myndaður við að berJa mann:
ragnar Magnússon tálbeita þáttarins
sjónvarpsmenn mynduðu átökin
benjamín grunar ragnar um íkveikju
ragnar lýsti benjamín sem handrukkara
kveikt í bílum beggja seinustu misseri
fréTTir
krefst
logbanns
a kompas
FH-ingar styrktu stöðu sína á toppnum með sigri í Frostaskjóli
hoTað
LáTnuM syni
„það er óTTalega óþægi-
legT að fá svona hóTun-
arbréf,“ segir guðmund-
ur guðJónsson, faðir
ungs manns sem lésT á
síðasTa ári. Trygginga-
sTofnun krefsT íTrekað
upplýsinga frá láTnum
syni guðmundar.
Fimmtudagur 14. Ágúst 2008 9Fréttir
Benjamíns Þórs Þorgrímssonar
Ragnari Magnússyn
Tilraunum Benjamíns Þórs Þor-
grímssonar til að fá lögbann á
Kompássþátt var hafnað af sýslu-
manni Reykjavíkur. Myndskeiðið
á að sýna Benjamín ganga í skrokk
á veitingamanninum Ragnari
Magnússyni. Ástæðan fyrir ósætt-
inu er samkvæmt heimildum sú
að Ragnar sakaði Benjamín um
að vera handrukkari í fjölmiðlum.
Benjamín, eða Benni Ólsari eins
og hann er oft kallaður, starfar sem
líkamsræktarþjálfari í World Class
og neitar öllum ásökunum um að
tengjast handrukkunum. Benja-
mín náðist engu að síður á mynd-
skeið sem Kompás tók upp þar sem
hann gengur í skrokk á Ragnari.
Ákvörðun sýslumanns hefur verið
áfrýjað samkvæmt heimildum.
Laminn við hafnarvog
Líkamsræktarþjálfarinn Benja-
mín óskaði eftir lögbanni á þátt
Kompáss í síðustu viku en upp-
takan er frá því á fimmtudaginn
fyrir verslunarmannahelgi. Þá bað
Benjamín veitingamanninn Ragn-
ar um að hitta sig og féllst hann
á það. Þeir ákváðu að hittast við
höfnina í Hafnarfirði, nálægt hafn-
arvoginni. Þegar Benjamín kom á
vettvang vissi hann ekki að Ragn-
ar var vopnaður hljóðupptökutæki
og Kompássmenn sátu stutt frá
með myndavél. Þar á Benjamín að
hafa gengið í skrokk á Ragnari með
þeim afleiðingum að kalla þurfti
á sjúkrabíl. Ragnar hlaut nokkur
meiðsl og þar á meðal rifbeins-
brot.
Átök í sundlaug
Aðeins tveimur dögum áður
en myndskeiðið var tekið upp
var Ragnar að vinna í sundlaug.
Þá á Benjamín að hafa mætt í
laugina eftir lokun og logið að
starfsmönnum að hann væri
vinur Ragnars. Honum var þá
vísað í kjallara laugarinnar þar
sem hann fann Ragnar við vinnu
sína. Þar áttu átök sér stað en
þau voru víst ekki neitt í líkingu
við líkamsárásina við hafnarvog-
ina. Ragnar hefur kært árásina
sem Kompás náði á myndband
en ekki þá sem átti sér stað í hús-
næði sundlaugarinnar. Þegar
hefur Ragnar kært Hilmar Leifs-
son og veitingamennina Arn-
ar Þór Gíslason, Loga Helgason,
Níels Hafsteinsson, Hafstein Eg-
ilsson og Þórð Ágústsson. Allir
segja ásakanir Ragnars út í hött.
Í felum
Nú er svo komið að Ragnar er í
felum af ótta við Benjamín. Hann
vill samkvæmt heimildum meina
að Benjamín hafi krafist fimm
milljóna króna fyrir að vera sakað-
ur um að vera handrukkari.
Í viðtali við DV síðastliðið vor
sagði Ragnar: „Það sem mér finnst
verst eru þessar ógeðfelldu leiðir
sem menn fara með þetta mál. Ef
þeir voru svona vissir um að mál-
ið myndi vinnast fyrir dómstólum,
af hverju fóru þeir þá ekki með það
þá leið?“ Þá vildi hann meina að
Benjamín, ásamt Hilmari Leifs-
syni, hefði neytt hann til þess að
afsala sér skemmtistöðunum Ol-
iver, Lídó, Barnum, Q-bar og Iðu-
sölum. Það gerði hann og hélt því
fram í viðtali að skaði hans næmi
að minnsta kosti hundrað milljón-
um króna.
Úrskurði sýslumanns áfrýjað
Eftir að Ragnar kærði Benja-
mín og skemmtistaðaeigendur
var hann kærður til baka af Benja-
mín. Þá hélt Benjamín því fram að
Ragnar færi með rógburð.
Kompássmenn vildu ekki tjá sig
um málið þegar eftir því var leit-
að fyrr í vikunni heldur áréttuðu
eingöngu að sýningar á Kompás
hæfust í september. Því má búast
við að fyrsti þátturinn verði held-
ur magnaður en Kompás hefur
fylgst með þróun máls Ragnars í
að minnsta kosti hálft ár. Ákvörð-
un varðandi áfrýjun Benjamíns
á lögbannsúrskurði verður ljóst
innan skamms.
vaLuR gRettisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Benjamín Þór Þorgrímsson
Lögbannskröfu hans á Kompás-
myndskeið var hafnað en hann hefur
áfrýjað ákvörðuninni.
Lögbanni á
Kompás hafnað
„Það sem mér finnst verst eru þess-
ar ógeðfelldu leiðir sem menn fara
með þetta mál. Ef þeir voru svona
vissir um að málið myndi vinnast
fyrir dómstólum, af hverju fóru
þeir þá ekki með það þá leið?“
Það var í desember í fyrra sem
fregnir bárust af því að tíu glæsi-
bílar hefðu brunnið til kaldra kola í
Vogum við Vatnsleysuströnd. Í ljós
kom að eigandi bílanna var maður
að nafni Ragnar Magnússon sem þá
var veitingamaður og rak skemmti-
staðina Oliver, Lídó, Barinn, Q-bar
og Iðusali. Lögreglan hóf rannsókn
á málinu og grunaði sterklega að
um íkveikju væri að ræða. Síðar
kom í ljós að bílarnir höfðu verið
í vörslu þjóðþekkts handrukkara,
Annþórs Karlssonar, og sögurn-
ar spruttu upp. Ragnar fékk við-
urnefnið Brunabíla-Ragnar. Síðar
kom í ljós að Ragnar átti í rekstrar-
erfiðleikum með skemmtistaðina.
Nú er svo komið að Ragnar hefur
kært fyrri eigendur staðanna fyrir
að beita handrukkunum í viðskipt-
um. Þá hefur hann eldað grátt silfur
við líkamsræktarþjálfarann Benja-
mín Þór Þorgrímsson.
Verðlaunaþáttur-
inn Kompás er
kominn í mál-
ið. Þeir hafa
undir hönd-
um mynd-
skeið sem sýn-
ir Benjamín
ganga í skrokk
á Ragnari. Hann
hefur óskað eftir
lögbanni á mynd-
skeiðið en ekki
fengið. Sam-
kvæmt heimild-
um DV er Ragn-
ar í felum þessa
dagana.
Ógeðfelldar hótanir
Upphaf málsins má rekja til bíla-
brunans en þá var Ragnar nýbúinn
að festa kaup á skemmtistöðunum
sem áður voru í eigu þeirra Arnars
Þórs Gíslasonar, Loga Helgasonar,
Níelsar Hafsteinssonar, Hafsteins
Egilssonar og Þórðar Ágústssonar.
Svo virðist sem Ragnar hafi lent í
rekstrarerfiðleikum með staðina og
að auki ekki getað staðið alfarið við
samning við fyrri eiganda. Um það
var þó deilt en hitt er ljóst að Ragn-
ar sakaði fimmmenningana um að
hafa kúgað sig til að skrifa undir
afsal fyrir stöðunum. Hann kærði
þá félaga auk Benjamíns Þórs og
Hilmars Leifssonar fyrir það. Þeir
neituðu þeir alfarið ásökunum
Ragnars.
„Ég var beinlínis neyddur til
þess að skrifa undir pappírana,“
sagði Ragnar Magnússon í viðtali
við DV í vor en sjálfur taldi hann
að beint tjón vegna undirskriftar-
innar hefði numið rúmlega hundr-
að milljónum króna. Hann sagði í
sama viðtali ástæðuna fyrir því að
hann skrifaði undir að lokum hafa
verið ógeðfelldar hótanir Hilmars
og Benjamíns þar sem honum var
meðal annars hótað limlestingum
og að tennur hans yrðu brotnar.
Þá þurfti fjölskylda Ragnars
einnig að þola ofsóknir af hálfu
mannanna tveggja að hans sögn.
Kærir fyrir falskar sakargiftir
Fáir tjáðu sig um ásakanir Ragn-
ars en þegar haft var samband við
líkamsræktarþjálfarann Benjamín
Þór brást hann ókvæða við. Hann
hafði kært Ragnar til baka fyrir
meiðyrði.
Í viðtali við DV í vor sagði hann:
„Það er alveg hrikalegt að lenda í
svona manni.“
Benjamín neitaði að hafa hótað
Ragnari á nokkurn hátt. Hann sagð-
ist hafa hitt Ragnar tvisvar og þá
hefðu fleiri verið með. Aldrei hefði
hann hótað neinum. Hann sakar
Ragnar um að hafa dreift óhróðri
um sig og kærði Ragnar fyrir falsk-
ar sakargiftir. Hann segir það ekki
rétt að hann sé handrukkari líkt og
Ragnar vill meina eða að hann hafi,
með hótunum, neytt hann til að af-
sala sér stöðunum með hjálp Hilm-
ars Leifssonar.
Kveikt í bíl
Það var síðan í vor sem óprútt-
inn aðili kveikti í bíl Benjamíns
Þórs fyrir utan heimili hans í
Bryggjuhverfinu við Grafarvoginn.
Benjamín var þá brattur í viðtölum
og taldi sig vita hver væri sökudólg-
urinn í málinu.
„Það er nú eiginlega bara einn
maður sem kemur til greina, jafn-
vel þótt hann sé farinn til Taílands,“
sagði Benjamín í viðtali við DV þá.
„Þetta er ekkert flókið,“ bætti hann
svo við.
Á sama tíma var Ragnar í fríi úti
á Taílandi og segist ekki hafa komið
nálægt brunanum. Engu að síður
var þetta bókstaflega olía á eldinn
þeirra á milli.
Lögreglan rannsakaði málið.
Benjamín auglýsti hálfrar milljón-
ar króna verðlaun fyrir hvern þann
sem gæti upplýst hann um það hver
kveikti í bílnum. Engar upplýsingar
fengust og málinu er enn ólokið.
Laminn við höfnina
Samkvæmt heimildum kom
Kompás inn í málið nokkuð
snemma. Þá mun Ragnar hafa tek-
ið upp mikið af samskiptum sín-
um við fyrri eigendur skemmti-
staðanna og lét Kompás fá í heild
sinni. Að lokum var líkamsárásin
tekin upp þar sem Benjamín Þór
gekk í skrokk á Ragnari við höfnina
í Hafnarfirði, nálægt hafnarvog-
inni. Þá var Ragnar það illa útleik-
inn að kalla þurfti á sjúkrabíl. Í ljós
kom að hann var rifbeinsbrotinn
og marinn. Hann kærði Benjamín
til lögreglunnar í kjölfarið fyrir lík-
amsárás en yfirlögregluþjónn sagði
í viðtali við DV að óskað hefði verið
eftir myndskeiði Kompáss.
Lögfræðingur Benjamíns, Vil-
hjálmur H. Vilhjálmsson, óskaði
eftir lögbanni á myndskeið Komp-
áss hjá sýslumanninum í Reykjavík
stuttu eftir verslunarmannahelg-
ina. Sýslumaður hafnaði beiðn-
inni. Þeirri ákvörðun var síðan
áfrýjað og er beðið eftir niður-
stöðu vegna þess.
Ragnar í felum
Málið er hið forvitni-
legasta. Ragnar held-
ur sig í felum af ótta
við Benjamín og því
næst ekki samband
við hann. Ástæðan
fyrir því að Benja-
mín lamdi Ragn-
ar, auk fyrri mála,
var sú að Ragnar
sakaði Benjamín
um að vera hand-
rukkari. Í kjölfarið
á hann að hafa sektað
Ragnar um fimm milljónir
króna vegna ummæla sem hann lét
falla um Benjamín í fjölmiðlum. Að
auki segja heimildir að Ragnar hafi
undir höndum samtöl við fyrri eig-
endur skemmtistaðanna þar sem
honum er hótað handrukkun. Það
er þó ekki ljóst hvað leynist í upp-
tökum Ragnars en Kompás mun
hafa þær undir höndum.
Kærur Ragnars eru í rannsókn
hjá lögreglunni á höf- uð-
borgarsvæð-
inu. Ekki
hefur ver-
ið gefin
út ákæra
vegna
þeirra.
föstudagur 15. ágúst 200810 Helgarblað DV
Ragnar Magnússon
Benjamín Þór Þorgrímsson
vaLuR gRettisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
BílaBrenna og
handrukkarar
Ragnar Magnússon
Lifir í ótta við handrukk-
ara og heldur sig í felum.
Jóhannes Kristjánsson ritstjóri
Kompáss hefur undir höndum
myndband sem sýnir Benjamín ganga í
skrokk á ragnari. Lögreglan hefur óskað
eftir að fá myndbandið.
Benjamín Þór Þorgrímsson Hefur
meðal annars keppt í vaxtarrækt en
ragnar sakar hann um að vera
handrukkari. Því neitar Benjamín og
hefur kært ragnar fyrir falskar
sakargiftir.
Dularfullur bílabruni Kveikt var í
lúxusbílum ragnars á síðasta ári. Það voru
fyrstu teiknin um að allt væri að fara í háaloft.
„Það er alveg hrika-
legt að lenda í svona
manni.“
Fréttir
Ir
Bróðir stúlkunnar einnig yfirheyrður
Benjamín Þ. Þorgrímsson hefur
samkvæmt heimildum DV óskað eft-
ir lögbanni á Kompásþátt sem verð-
ur sýndur í september. Ástæðan fyrir
lögbannskröfunni er sú að Kompás
náði myndum af Benjamín þar sem
hann gekk í skrokk á Ragnari Magn-
ússyni veitingamanni. Benjamín hef-
ur sakað Ragnar um að hafa kveikt í
bíl Benjamíns fyrr í sumar.
Hvorki Jóhannes Kristjánsson,
umsjónarmaður Kompáss, né Benja-
mín hafa viljað tjá sig efnislega um
málið en lögbannskrafan hefur verið
sett fram.
Hótanir um limlestingar
Málið á sér talsvert langan að-
draganda. Ragnar sakar Benjamín,
sem er oft kallaður Benni Ólsari,
um að vera handrukkari og að hafa
haft í hótunum við sig. Ragnar segir
Benjamín hafa hótað sér vegna veit-
ingahúsakaupa.
Ragnar vildi meina að Benjamín
hefði í slagtogi við Hilmar Leifsson
haft uppi ógeðfelldar hótanir um
limlestingar og að tennur hans yrðu
brotnar skrifaði hann ekki undir af-
sal af staðnum. Ragnar segist hafa
skrifað undir undir plöggin til-
neydd-
ur
með
þeim afleiðingum að hann hafi orð-
ið af hundrað milljónum króna.
Hrikalegt að lenda í svona
manni
Ragnar talaði við fjölmiðla í kjöl-
farið og sagði frá hremmingum sín-
um og að auki lagði hann fram kæru
þar sem hann sakaði Benjamín um
að vera handrukkari. Benjamín brást
ókvæða við og kærði Ragnar á móti
og sakaði um að bera út róg um sig.
Benjamín vann þá sem líkamsrækt-
arþjálfari og gerir enn.
„Það er alveg hrikalegt að lenda í
svona manni,“ sagði Benjamín í við-
tali við DV í mars síðastliðnum og
neitaði alfarið ásökunum Ragnars.
Kveikt í jeppa
Það var svo í apríl sem lúxus-
jeppi Benjamíns stóð í ljósum
logum við heimili hans. Í við-
tölum var Benjamín fullviss
um að Ragnar hefði
kveikt í bílnum þó
það hafi aldrei ver-
ið sannað. Hann
lýsti eftir vitn-
um gegn hálfr-
ar milljón króna greiðslu en enginn
gaf sig fram. Ragnar neitaði þó full-
um fetum ásökunum um íkveikju
en hann var staddur í Tælandi þegar
atvikið átti sér stað. Hitt var þó ljóst
að samskiptin þeirra á milli fóru
versnandi.
Tóku upp slagsmál
Það var síðan fyrr í sumar sem
Ragnar á að hafa beðið Benjamín um
að hitta sig. Benjamín þáði boðið en
vissi ekki að Kompás var með Ragn-
ari í ráðum en sjálfur mun Ragnar
hafa verið vopnaður upptökutæki.
Þegar þeir hittust á að hafa soðið
upp úr í samskiptum þeirra og þeir
lent í átökum. Kompás náði því öllu
á myndband og er verið að undir-
búa þátt um handrukkara sem verð-
ur á dagskrá í september. Þegar leit-
að var eftir viðbrögðum Jóhannesar í
Kompási vegna málsins sagðist hann
ekki tjá sig um málefni sem varða
þáttinn. Hann sagði aðeins að sýn-
ingar hæfust um miðjan september.
Lögbannskrafan hefur ekki ver-
ið samþykkt en lögfræðingur Benja-
míns hefur óskað eftir því við sýslu-
mann og er beðið eftir niðurstöðu.
Benjamín Þ. Þorgrímsson Ragnar Magnússon
Vill lögbann
á Kompás
Það var síðan fyrr í sum-
ar sem ragnar á að hafa
beðið Benjamín um að
hitta sig.
valuR gReTTisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Ragnar Magnússon
á að hafa verið laminn
af Benjamín á meðan
Kompás tók það upp.
Jóhannes Kristjánsson
Vill ekki tjá sig efnislega
um málið.
Bílabrenna í vogum ragnar átti
lúxusbílana sem urðu eldi að bráð í
Vogunum undir lok síðasta árs og lék
grunur á að um íkveikju væri að ræða.
Benjamín Þ. Þorgríms-
son Hefur óskað eftir
lögbanni á Kompásþátt.
með glerflösku
sem var skorinn í hálsinn með
dags. Lögreglumenn sem komu
á vettvang sögðu aðkomuna afar
ljóta. Menn óttuðust um líf fórn-
arlambsins þar til kom í ljós að
slagæð í hálsi hafði ekki rofnað.
Maðurinn lifði árásina því af og
var færður á sjúkrahús. Þaðan
Talið er að tveir menn hafi
ráðist á fórnarlambið en þeir eru
extíu milljónir
í sjóstangveiði
Um 60 milljónir króna hafa
verið settar í að markaðssetja
sjóstangveiði í Bolungarvík að
undanförnu. Það hefur þegar
skilað árangri því samningar
hafa náðst við ferðaskrifstof-
ur í Póllandi, Svíþjóð, Tékk-
landi, Englandi og Þýskalandi.
Bæjarráð Bolungarvíkur hefur
úrskurðað að ekki verði hægt
að úthluta lóðum til ferðaþjón-
ustufyrirtækjanna Hvíldarkletts
og Sumarbyggðar í bráð, en
utanvegaakstur
ur átti sér stað. Náðist annar
krónur. Um mjög gróft brot
ramminn 300 þúsund krón-
ur. Leit að hinni bifreiðinni
stendur yfir og má ökumað-
sekt þar sem um gróft brot
er að ræða. Landverðir hafa
um og skemmdunum sem
valdið. Þó að menn haldi sig
sloppna, þá verður haft sam-
Dv 11. ágúst fjallað
hefur verið ítarlega um
erjur ragnars og
Benedikts í dV.
Aðstandendum fréttaskýringaþáttar-
ins Kompáss hefur verið stefnt fyrir
Héraðsdóm Reykjavíkur. Það er lík-
amsræktarþjálfarinn Benjamín Þór
Þorgrímsson sem kærir. Ástæðan er
sú að hann krefst lögbanns á sýningu
myndskeiðs sem á að sýna Benjamín
ganga í skrokk á veitingamanninum
Ragnari Magnússyni.
Áður hefur Ragnar sakað líkams-
ræktarþjálfarann um að vera hand-
rukkari. Samkvæmt heimildum er
gerð úttekt á handrukkurum í þættin-
um sem fyrirhugað var að sýna í sept-
ember. Málið verður ekki dómtekið
fyrr en 1. september. Lögfræðingar
beggja aðila neita að tjá sig um málið.
Óvíst með sýningu
Benjamín, sem starfar sem líkams-
ræktarþjálfari hjá World Class, ósk-
aði eftir lögbanni á myndskeiðið hjá
sýslumanninum í Reykjavík. Hann
hafnaði kröfunni. Benjamín var ekki
sáttur við þá niðurstöðu og kærði því
ákvörðunina og verður hún því tekin
fyrir hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.
Ritstjóri Kompáss, Jóhannes
Kristjánsson, vildi ekki tjá sig efnis-
lega um málið þegar eftir því var leit-
að en tók hins vegar fram
að sýningar á Komp-
ás hæfust um
miðjan septemb-
er. Óvíst er hvaða
áhrif dómsmálið
hefur á sýningu
hins svokallaða
handrukkaraþátt-
ar þeirra félaga.
Fallist dómari á
kröfu Benjamíns
um lögbann á
sýningu þátt-
arins
eða myndskeiðsins kemur það í veg
fyrir að atvikið komi fyrir sjónir al-
mennings. Málaferlin geta líka leitt til
tafa á sýningu þáttarins meðan mál-
ið gengur sinn gang jafnvel þó dóm-
ari úrskurði á endanum með Komp-
ásmönnum.
Hundrað milljóna tap
Kompás hefur fylgst með viðskipt-
um Ragnars við veitingahúsaeigend-
urna Arnar Þór Gíslason, Loga Helga-
son, Níels Hafsteinsson, Hafstein
Egilsson og Þórð Ágústsson. Ragnar
keypti staðina Cafe Oliver, Lídó, Iðu-
sali og Q-bar af þeim félögum á síð-
asta ári en virðist ekki hafa efnt til
fulls sinn hluta af samningum. Hann
vill meina að veitingamennirnir hafi
fengið þá Hilmar Leifsson og Benja-
mín Þór til þess að neyða sig til að
skrifa undir afsal af stöðunum. Sjálfur
hefur Ragnar sagt í viðtali við DV að
skaðinn hafi numið að minnsta kosti
hundrað milljónum króna.
Fluttur með sjúkrabíl
Veitingamennirnir neita ásökun-
um alfarið og Benjamín að auki sem
hefur kært Ragnar á móti fyrir að bera
á hann falskar sakargiftir. „Ég kærði
Ragnar áður en hann kærði mig, en
hann var búinn að vera að dreifa ein-
hverjum rógi um mig,“ sagði Benja-
mín í vor.
Sjálfur hefur Ragnar skrásett mik-
ið af sínum samskiptum við þá sem
koma við sögu í málinu og hefur til að
mynda kært Benjamín fyrir líkams-
árás þegar hann á að hafa misþyrmt
Ragnari við hafnarvogina í Hafnar-
firði. Lögreglan rannsakar málið og
hefur óskað eftir myndskeiðinu frá
Kompási. Við átökin á Ragnar að hafa
rifbeinsbrotnað auk þess að hljóta
mar víðs vegar um líkamann. Að lok-
um þurfti sjúkrabíll að flytja hann á
sjúkrahús þetta kvöld rétt fyrir versl-
unarmannahelgina.
Segist vera ofsóttur
Ragnar segist hafa verið ofsóttur
af handrukkurum síðan þá. Aðeins
tveimur dögum áður en myndskeið-
ið var tekið upp á Benjamín að hafa
gengið í skrokk á Ragnari í kjallara
sundlaugar sem Ragnar starfaði þá í.
Hann hefur einnig kært þá árás. Þá
hefur hann margsagt í viðtölum að
hann hafi fengið ógeðfelldar hótan-
ir. Í DV í vor sagði hann þá Hilmar og
Benjamín hafa hótað sér barsmíðum
og að tennur hans yrðu brotnar. Þessu
neitar Benjamín alfarið.
Þá vill Ragnar meina að
ósætti Benjamíns snú-
ist um að hann hafi
kallað hann hand-
rukkara í fjölmiðlum.
valur@dv.is
fimmtudagur 21. ágúst 20086 Fréttir
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Enn dragast
yfirheyrslur
„Yfirheyrslur standa enn yfir
en þeim mun vonandi ljúka í
næstu viku,“ sagði Kristján Ól-
afur Guðnason aðstoðaryfir-
lögregluþjónn í samtali við DV
þann 11. júlí um gang rann-
sóknar á meintum lögbrotum
atvinnubílstjóra sem mótmæltu
háu eldsneytisverði. Nú eru
fimm vikur liðnar en yfirheyrsl-
um virðist enn ekki lokið. „Nei,
ég hef enn ekki verið boðaður til
yfirheyrslu og hef ekkert heyrt
í þeim,“ segir Sturla Jónsson,
talsmaður vörubílstjóra, spurður
um stöðu mála. Lögreglan hefur
í sumar rannsakað meint brot
vörubílstjóra sem mótmæltu
harkalega álögum ríkisins á
eldsneyti á vordögum. Um tíu
manns verða yfirheyrðir að sögn
lögreglu.
Benjamín Þór Þorgrímsson
Jóhannes Kristjánsson
Ragnari Magnússyni
Kompás bErst
fyrir birtingu
valuR gRettiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
„ég kærði ragnar áður
en hann kærði mig, en
hann var búinn að vera
að dreifa einhverjum
rógi um mig.“
Jóhannes Kristjánsson
ritstjóri Kompáss vildi ekki tjá
sig um lögbannskröfu á þáttinn.
Héraðsdómur Reykjavíkur
Kompás mun berjast fyrir
sýningarrétti á þætti sínum í
Héraðsdómi reykjavíkur þann
1. september.
Benjamín Þór Þorgrímsson
Líkamsræktarþjálfarinn fer
með málið fyrir dómstóla.
Ragnar Magnússon
Hefur verið í felum síðan hann
var laminn og Kompás náði
því á myndband.
Segir nauðgunina sviðsetta
„Þetta var sviðsetning,“ segir mað-
ur á sjötugsaldri sem hefur verið
kærður til lögreglunnar á Akureyri
fyrir að nauðga konu á þrítugsaldri á
Skagaströnd. Unnusti konunnar sagði
í viðtali við DV fyrir viku að maðurinn
hefði lokkað konuna heim til sín á
þeim forsendum að einhverja vinnu
væri að fá. Hún stundaði íhlaupa-
vinnu hjá honum en í þetta skipt-
ið var enga vinnu að hafa. Maðurinn
á síðan að hafa nauðgað konunni á
heimili hans. Þegar hann lauk sér af á
konan að hafa rifið sig lausa og hlaup-
ið á brott. Hún kærði athæfið sama
kvöld en unnustinn heldur því fram
að maðurinn hafi verið ölvaður þegar
atvikið átti sér stað.
„Ég hef ekki verið dæmdur fyr-
ir nauðgun,“ sagði maðurinn í viðtali
við DV. Hann neitar sök og talaði um
sviðsetningu. Þegar hann var spurður
hvað hann ætti við með orðinu svið-
setningu neitaði hann að skýra það
frekar.
„Ég ræði þetta bara við minn lög-
fræðing,“ svaraði maðurinn þá og
vildi ekki ræða málið nánar.
Eftir að konan kærði hann var
maðurinn handtekinn og haldið í
gæsluvarðhaldi í þrjá daga. Heim-
ili mannsins var innsiglað á meðan
rannsókn stóð yfir en hann er farinn
aftur þangað núna. Hann er kvænt-
ur en aðspurður hvort hún byggi enn
með honum svaraði maðurinn með
þeim orðum að hann vildi ekki tjá sig
um málið.
Lögreglan rannsakar málið en
játning liggur ekki fyrir.
valur@dv.is
Mynd / DV Sigtryggur
Skagaströnd
maður á sjötugsaldri
segir meinta nauðgun
hafa verið sviðsetta.
Þarf að mála í
sex mánuði
Veggjakrotari var staðinn
að verki við fjölbýlishús á
höfuðborgarsvæðinu í gær.
Um var að ræða unglingspilt
sem reyndi að komast und-
an en einn íbúanna náði til
hans og kallaði til lögreglu.
Stráksi játaði á sig sök en ljóst
er að tjónið er nokkurt. Óhjá-
kvæmilega fylgir því kostnað-
ur að ná veggjakrotinu af en í
þessu máli náðust sættir sem
felast í því að pilturinn málar
sjálfur yfir krotið. Hann mun
ennfremur mála yfir allt ann-
að veggjakrot sem kann að
koma á þessa fasteign næsta
hálfa árið. Standi veggjakrot-
arinn við sinn hlut munu
íbúarnir ekki leggja fram
kæru í málinu. Það skal tekið
fram að forráðamaður pilt-
sins lagði sitt af mörkum til
að þessi niðurstaða fengist.
mýrarboltamót
endurtekið
Hópur breskra kvikmynda-
tökumanna sækir Vestfirði heim
eftir rúma viku og tekur upp
kvikmynd. Þetta kemur fram á
fréttavef Bæjarins besta. Myndin
segir frá áhugaljósmyndara sem
vann keppni á vegum Canon.
Hápunktur myndarinnar verður
þegar hann er sendur til þess að
taka myndir á Evrópumeistara-
mótinu í mýrarbolta. Keppnin
er nýbúin en verður endurtekin
fyrir myndagerðina.
fimmtudagur 28. ágúst 20088 Fréttir
„Þetta er alltaf sama sagan, ár eft-
ir ár, það eru rammafjárlög sem eru
í framkvæmd þannig að við fáum
ákveðnar fjárveitingar en það er al-
veg ljóst að með auknum verkefnum
og umsvifum eykst kostnaður. Það er
að sýna sig að ekki hefur verið tekið
tillit til þess kostnaðar við gerð fjár-
laga,“ segir Stefán Skarphéðinsson,
sýslumaður og lögreglustjóri í Borg-
arnesi.
Umdæmi lögreglunnar í Borgar-
firði og Dölum er landfræðilega eitt
það stærsta á landinu, rúmlega átta
þúsund ferkílómetrar, en þrengingar
undanfarið þýða að niðurskurður er
í kortunum. Lögregluembætti lands-
ins eru fjársvelt, hækkandi eldsneyt-
iskostnaður þrengir að og Stefán seg-
ir að þar á bæ finni menn fyrir því. Til
stendur að fækka lögreglumönnum
í umdæminu stóra þar sem ekkert
svigrúm er til að fara yfir uppgefna
fjárveitingu. „Erfiðleikarnir gera það
að verkum að við þurfum að fækka
lögreglumönnum og í starfsliði á
skrifstofu. Þar að auki þurfum við
jafnvel að fækka um eina lögreglu-
bifreið í kjölfarið,“ segir Stefán, sem
segir að slíkur niðurskurður komi
mjög niður á starfseminni þar sem
málunum fækkar ekki.
„Hækkandi eldsneytisverð kemur
ekki bara við bændur og einkaaðila
heldur einnig hérna hjá okkur. Kostn-
aður á eldsneyti hefur verið okkur
gríðarlega íþyngjandi því það kemur
inn í leiguverðið á bílunum frá Ríkis-
lögreglustjóra. Mikið er keyrt í eftirlit
í svona stóru embætti,“ segir Stefán
áhyggjufullur og bætir jafnframt við
að nýr einkennisbúningur lögregl-
unnar hafi verið lögregluembættum
þungur baggi. Málum sem koma inn
á borð embættisins fer fjölgandi með
árunum og álagið á starfsmönnum
er mikið. Stefán segir að í kjölfar nið-
urskurðarins búist hann þó ekki við
því að skerðing verði á þjónustu lög-
reglunnar, heldur fremur að birting-
arform hans verði í auknu álagi á þá
lögreglumenn sem fyrir eru. „Und-
anfarin ár höfum við ítrekað farið
fram á aukna fjárveitingu til að bæta
við lögreglumönnum en ekkert hefur
gerst. Öll undanfarin ár hefur ásókn
í lögregluna hjá mér verið mikil og
aldrei skort neitt á,“ segir Stefán og er
fljótur til svars þegar hann er spurð-
ur hvar sökin liggi: „Eigum við ekki
að segja hjá fjárveitingavaldinu, það
má segja að það hefur aldrei verið of-
gert við þessi embætti.“ mikael@dv.is
Neyddir í niðurskurð vegna fjársveltis
Borgarnes sýslumaðurinn í
Borgarnesi neyðist til að skera
niður vegna þrenginga.
Hafsteinn Haraldsson
Ragnars Magnússonar
Breiðavíkurdrengur
missir aleiguna „Ég er bara svo sár yfir að hafa verið blekktur með þessum hætti.“
valuR gRettisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Ragnar Magnússon Lét ábyrgð falla á
lásasmið eftir að lásasmiðurinn hafði
margbeðið hann að taka hann úr ábyrgð.
„Við spjölluðum oft um viðskipti
og úr varð að við stofnuðum félag
og reyndum við fasteignaviðskipti,“
segir Hafsteinn Haraldsson, sem
þurfti að selja hús sitt og bíl til þess
að greiða skuldir sem féllu á hann
vegna vanefnda veitingamannsins
Ragnars Magnússonar, sem hefur
stigið krappan dans og vill sjálfur
meina að hann sé ofsóttur af hand-
rukkurum. Hafsteinn rak eignafé-
lagið Jr - Klettur ehf. ásamt Ragnari
til skamms tíma. Hann dró sig út úr
fyrirtækinu fyrir áramót en Ragnar
skipti aldrei um ábyrgðarmann. Að
lokum féllu skuldir félagsins á Haf-
stein. Í dag hefur hann selt allt sem
hann á og stefnir á að fara á sjóinn.
Blankur á fimmtugsaldrinum
Lásasmiðurinn Hafsteinn er
sennilega mörgum kunnugur enda
rak hann til fjölda ára fyrirtækið
Neyðarþjónustuna sem sér um að
skipta um lása á hurðum og hleypa
fólki inn sem hefur týnt lyklunum
sínum. Hann ákvað fyrir áramót að
fara í samstarf með Ragnari með
það að sjónarmiði að hagnast á
fasteignum. Hafsteinn segir að síð-
ar hafi komið í ljós að hann hafði
ekki tíma til þess að sinna fyrir-
tækinu sem skyldi. Hann óskaði
eftir að draga sig út úr því sem
og hann gerði í samkomulagi
við Ragnar.
„Síðan ætlaði hann að
taka mig úr ábyrgðum.
Hann sagðist alltaf ætla
að redda þessu, en hann
gerði það aldrei,“ segir
Hafsteinn sem stend-
ur í dag slyppur og
snauðum á fimm-
tugsaldrinum.
Ógeðfelld
hundsun
„Það sem mér
fannst ógeðfelldast
var að hann hætti að
svara skilaboðum mín-
um,“ segir Hafsteinn sem
hefur reynt allar leiðir til þess að
ná í Ragnar. Hann sendi honum
tölvupóst, smáskilaboð og hringdi
ítrekað í alla sem hann þekkti til að
reyna að ná í Ragnar. En uppskar
ekkert fyrir erfiðið. Hann segist síð-
an í desember hafa skrifað reglulega
bréf þar sem hann biður Ragnar um
að gera upp skuldir sínar vegna fyr-
irtækisins, vanefndir Ragnars komi
sér ekki við og honum þyki sárt að
þurfa að borga skuldir Ragnars með
öllu sem hann á.
Upphaflegu skuldirnar sem Haf-
steinn átti að greiða námu
fimmtíu milljónum
króna. Eitthvað hefur
kvarnast af því og þeg-
ar hefur Hafsteinn
borgað 20 milljónir í
skuldir vegna Ragn-
ars.
var á Breiðavík
„Ég seldi íbúðina mína á nítj-
án milljónir og svo bílinn og mót-
orhjól sem ég átti,“ segir Hafsteinn
sem er sár. Hann segist vera í sömu
sporum og þegar hann var fjórtán
ára gamall, aðeins ári eftir að hann
slapp frá Breiðavík þegar það heim-
ili var upp á sitt versta. Hafsteinn
segir að eftir Breiðavík hafi hann
farið á sjóinn og reynt að koma ár
sinni fyrir borð.
„Ég er bara svo sár yfir að
hafa verið blekkt-
ur með þessum
hætti,“ segir Haf-
steinn en Ragnar
hefur ekki svar-
að honum efn-
islega um málið
síðan í desem-
ber. Hafsteinn
segist þó hafa
hitt hann í mý-
flugumynd á
fasteignasölu í
mars. Þá hafi
Ragnar
lofað
að
tala við hann síðdegis. Hann hafði
aldrei samband.
Foreldarnir að missa húsið
„Mér finnst þetta ömur-
legt, en ég gat bara ekki fundið
annan ábyrgðarmann á sínum
tíma,“ segir Ragnar. Hann segir að
það hafi ekki verið möguleiki að
losa Hafstein undan ábyrgð á
sínum tíma. Það hafi staðið til,
en áður en það tókst hafi allt
farið úrskeiðis í lífi sínu. Hann
segist hafa misst skemmtistaði
sem hann festi kaup á og það
hafi kostað hann að minnsta
kosti hundrað milljónir króna.
Hann segist hafa boðið Haf-
steini eignir í staðinn en hann
hafi viljað pening frekar. Þeg-
ar haft var samband við Haf-
stein vegna þessa sagði hann
eignirnar sem honum hafi ver-
ið boðið hafa verið skuldsettar
upp í topp og ekki þess virði að
eiga þær. Hann hafi í raun
reynt að borga
skuldir með
skuldum.
Ragnar
segir að sér
líði illa vegna
málsins.
Hann sé sjálfur á vanskilaskrá og
skuldi mörgum vegna skemmti-
staðamálsins.
„Jafnvel foreldrar mínir eru að
missa húsið sitt,“ segir Ragnar að
lokum.
„Jafnvel
foreldrar
mínir eru að
missa húsið
sitt.“
Hafsteinn Haraldsson Lásasmiðurinn
og Breiðavíkurdrengurinn Hafsteinn
missti allt sem hann átti vegna ragnars.
mánudagur 1. september 20086 Fréttir
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
„Það var ljóst frá upphafi að þeir
hefðu ekki komið nálægt neinu sem
er refisvert,“ segir Erlendur Þór Gunn-
arsson, lögmaður veitingahúsaeig-
endanna Arnars Þórs Gíslasonar,
Loga Helgasonar, Níelsar Hafstein-
sonar, Hafsteins Egilssonar og Þórð-
ar Ágústssonar. Fyrrum veitingahúsa-
eigandinn Ragnar Magnússon kærði
þá fyrir beita fyrir sig handrukkurum
til þess að neyða hann til að skrifa
undir afsal af skemmtistöðunum Ol-
iver, Lídó, Barnum, Q bar og Iðusöl-
um. Sjálfur vildi Ragnar meina að
hann hefði glatað að minnsta kosti
hundrað milljónum vegna framferðis
þeirra. Nú hefur ásökunum Ragnars
verið vísað á bug og lögreglan hætt
rannsókn.
Milljónatap
Það var um miðjan mars sem Ragn-
ar kærði veitingahúsaeigendurna fyrir
að beita fyrir sig Hilmari Leifssyni og
Benjamín Þór Þorgrímssyni. Þá sak-
aði Ragnar þá um að hafa handrukk-
að sig og neytt til þess að skrifa undir
afsal af skemmtistöðunum sem hann
hafði keypt af veitingahúsaeigendun-
um. Ragnar kvittaði undir og fengu
þeir þá skemmtistaðina aftur í sín-
ar hendur. Ragnar sagðist hafa tapað
að minnsta kosti hundrað milljónum
króna vegna málsins. Lögreglan hóf í
kjölfarið rannsókn en auk þessa máls
hefur Ragnar kært Benjamín Þór fyrir
líkamsárás sem á að hafa átt sér stað
í lok júlí. En Kompás náði því atviki á
myndband.
Kæra hugsanlega rógburð
Sjálfur sagði Arnar Þór í viðtali við
visir.is í mars að ásakanir Ragnars
væru með ólíkindum. Þær væru róg-
burður sem ekki væru svara verðar.
Núna hefur komið í ljós að lögreglan
sér ekki grundvöll til þess að sækja
málið og hefur þar með hreinsað veit-
ingahúsaeigendurna af allri sök.
„Við hittumst í vikunni og það var
rætt hvað væri hægt að gera varðandi
rógburð sem þennan,“ segir Erlend-
ur Þór, lögfræðingur þeirra, en það er
enn í skoðun hvort þeir kæri Ragnar
fyrir að bera út rógburðinn. Sjálfir hafi
þeir skaðast vegna málsins.
Brunabílar í Vogunum
Upphaf þess að veitingahúsaeig-
endurnir fengu staðina aftur var ein-
faldlega vegna þess að Ragnar borg-
aði ekki uppsett verð fyrir staðina.
Þeir vildu meina að Ragnar hefði ekki
staðið við efndir sínar í málinu en það
mátti rekja til þess að lúxusbílar sem
voru í eigu Ragnars og í vörslu Ann-
þórs Karlssonar í Vogunum, brunnu
á bílaplani. Lögreglan rannsakaði
málið sem íkveikju. Enn hefur eng-
inn verið kærður vegna málsins. Bíla-
bruninn var áfall fyrir Ragnar en talið
var að andvirði bílanna hafi hlaupið á
tugum milljóna króna. Aðeins þrem-
ur mánuðum eftir brunann skrifaði
hann undir afsal af stöðunum og eru
þeir því í eigu upphaflegra eigenda.
Lögbannsmál þingfest
Málið allt hefur hinsvegar haft þær
afleiðingar að Benjamín Þór hefur sak-
að Ragnar um hefndaraðgerðir þeg-
ar hann á að hafa kveikt í lúxusjeppa
sem var í hans eigu. Sú rimma náði
hámarki í lok júlí þar sem Benjamín
Þór á að hafa lamið Ragnar við hafn-
arvogina í Hafnarfirði. Í ljós kom að sá
fundur var tekinn upp af fréttamönn-
um Kompáss og náðu þeir myndskeiði
af Benjamín að ganga í skrokk á Ragn-
ari. Benjamín vissi ekki af myndavél-
unum og vildi lögbann á birtingu
mynd-
skeiðs-
ins. Hann kærði til
sýslumanns Reykjavíkur
sem synjaði beiðninni. Í kjöl-
farið kærði Benjamín ákvörðun
sýslumanns og verður það mál
þingfest fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur í dag.
Ragnars Magn-
ússonar
Benjamín Þór Þorgímsson
Hilmari Leifssyni
bareigendur
saklausir af
handrukkun
„Við hittumst í vikunni og það var
rætt hvað væri hægt að gera varð-
andi rógburð sem þennan.“
VaLuR gRettisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Ragnar Magnússon Lögreglan
hefur vísað frá kærum sem
ragnar lagði fram á hendur fimm
veitingahúsaeigendum.
St
rí
ð
ið
u
m
S
k
em
m
ti
St
a
ð
in
a
q bar oliver
iðusalirlídó
barinn
skotið á heimili
Um tvöleytið aðfaranótt
laugardags barst lögreglunni á
Suðurnesjum tilkynning um að
skotið hefði verið úr loftbyssu í
rúðu íbúðarhúss við Faxabraut
í Keflavík. Íbúar sáu þann aðila
er mundaði skotvopnið og gáfu
nokkuð greinagóða lýsingu á því
ökutæki sem hann var í ásamt
tveimur öðrum. Ekki náði þó
lögreglan að hafa uppi á þeim
sem stóðu að árásinni og hvetur
hún þá sem voru að verki til að
gefa sig fram við lögreglu.
samstarf
við litháen
Björn Bjarnason dóms- og
kirkjumálaráðherra ritaði á
föstudag undir samstarfsáætlun
með Petras Baguska, dómsmála-
ráðherra Litháens í Viliníus.
Samkvæmt áætluninni munu
dómsmálaráðuneyti landanna
efla samstarf sitt, þar á meðal á
sviði fangelsismála.
Fyrr á árinu komust ráðherr-
arnir að samkomulagi um að
fangar frá Litháen í íslenskum
fangelsum skyldu taka út refs-
ingu í heimalandi sínu, enda
væru þeir dæmdir til nokkurra
ára refsivistar. Á fundi ráðherr-
anna í gær var staðfest, að þrír
fyrstu fangarnir væru á förum til
Litháens.
kannabis
á busaballi
Á föstudagskvöldið var lög-
reglan á Akureyri með eftirlit
með fíkniefnum vegna árlegs
busaballs VMA. Lögreglan hafði
afskipti af fjórum einstaklingum
og fundust meint kannabisefni
á einum þeirra ásamt tækjum
og tólum til neyslu fíkniefna.
Umbúðir utan af fíkniefnum
fundust á öðrum. Það var fíkni-
efnahundur lögreglunnar sem
notaður var við eftirlitið og stóð
hann sig með stakri prýði. Sama
dag náði hundurinn að koma
upp um mann á Akureyrarflug-
velli, sem hafði komið fyrir 10
grömmum af ætluðu kókaíni í
endaþarmi.
„Þú ert að biðja um
að vera laminn“
Ragnar Magnússon leitaði til
sjónvarpsþáttarins Kompáss og
sagðist sæta ofbeldishótunum af
hálfu Benjamíns Þórs Þorgríms-
sonar, öðru nafni Benna Ólsara.
Benjamín er sagður hafa vilj-
að rukka Ragnar vegna ummæl-
anna, en sjálfur segist Benjamín
hafa verið að rukka fyrir bíl sinn,
sem hann segir Ragnar hafa látið
brenna.
Eftirfarandi er samtal Ragnars
og Benna, sem Kompás tók upp á
laun. Ekki er um samfellt samtal að
ræða, þar sem á nokkrum stöðum
virðist hafa verið klippt úr upptök-
unni.
Samtal Ragnars og
Benna Ólsara
Ragnar: Heldurðu að ég fari að borga
þér einhverjar fleiri milljónir, hérna,
af því að ég sagði sannleikann við
þig?
Benjamín: Nei, þú nefnilega sagðir
ekki sannleikann, sko.
Ragnar: Nú?
benjamín: Nei, þú varst bara að ljúga,
sko.
Ragnar: já, já.
Benjamín: þú tókst þetta ansi langt
fram í sviðsljósið sem varð til þess,
næstum því, að ég missti vinnuna,
ragnar.
Ragnar: já, já.
Benjamín: já.
Benjamín: Ég lenti í þvílíkum djöfulsins
vandræðum út af þér.
Ragnar: Já, já.
Benjamín: já. ef ég væri þessi hálfviti
og vitleysingur sem þú segir að ég sé,
heldurðu að ég væri að vinna þá í
World Class? að ég fengi að vinna
þarna niður frá?
Ragnar: Nei.
benjamín: Nei. það er bara svoleiðis,
sko. það er lög og regla hér í landinu,
sko.
Ragnar: já, já.
Benjamín:
já, það er
svoleiðis,
sko. þú
ert búinn
að
komast
ansi
langt,
sko.
Ragnar: en
þú?
Benja-
mín:
það getur bara vel verið, sko.
Ragnar: já, já.
Benjamín: en ég beiti ekki ofbeldi.
ragnar. Nú, réðistu ekki á mig?
Benjamín: já, veistu það, ég var að
passa mig að meiða þig ekki. þú veist.
Áttaðu þig á einu, að ef þú gengur ekki
frá mér, þá eru bara svo margir sem
ætla að ganga frá þér.
Ragnar: Hvað, átt þú þá að fara að
vernda mig, eða?
Benjamín: Ha? Nei, nei, nei, nei. Ég
bara læt þig í friði. þá er enginn að
fokka í þér. þú verður bara að borga.
Ragnar: Ég er ekki að fara að borga
neitt.
Benjamín: þá verðurðu bara terroris-
eraður það sem eftir er ævi þinnar.
Ragnar: Nú, já.
Benjamín: þú veist, það er bara
svoleiðis.
Ragnar: Nú, já.
Benjamín: þú getur ekki neitt gert í
því. ekki neitt, sko. ef þú ætlar að bara
að vera fífl, sko. svo er líka eitt með þig,
hortugheitin og kjafturinn og svona,
sko. þú ert líka að biðja um að vera
laminn. Hvað veit ég nema það sé búið
að setja upp myndavélar og læti, sko?
þú ert bara bullandi, sko. þú veist ...
strákurinn í smáranum sem á kaffihúsið
þar er búinn að tapa einhverjum tíu
milljónum ... á þér. Á einhverju
pítsadæmi. þetta er bara einn af
þeim gæjum, sem eru ekki einu
sinni að spá í það. af því að þeir
geta ekki sótt þig. sko, lagalega
séð. þetta er bara indælis-
drengur. þeir eru nokkrir sem
eiga peninga hjá þér, sko,
sem vilja sækja þig, sko.
... Hvernig viltu hafa
þetta ...? Viltu bara vera
með augu í
hnakkanum,
drullustressaður á
því og skít-
hræddur alla
daga?
Ragnar spyr hvað hann eigi að
gera ef Benjamín komi aftur að
heimta meiri pening.
Benjamín: það er heiðursmannasam-
komulag, veistu ekki hvað það er?
Ragnar: Ég er ekki viss um að þú vitir
það. Ég ætla ekki að gera...
Benjamín: þú verður að sleppa út úr
þessu.
Ragnar: Ég er ekki að fara að borga þér
neitt. það er bara alveg á tæru.
Benjamín: þú gerir það samt, sko.
Ragnar: Nehei. það er bara alveg á
tæru.
Benjamín: það er ekki svoleiðis.
Ragnar: gleymdu þessu! Ég er að segja
þér það.
Benjamín: Nei, það er ekki svoleiðis.
Ragnar: Ég er að segja þér það, ég er
ekki að fara að borga þér neitt. það er
bara alveg á tæru.
Benjamín: jú, það er svoleiðis... Ég
ætla samt ekkert að snerta þig neitt
núna, sko ... ef þú vilt ekki sleppa bara
eins og maður, að lifa lífinu á Íslandi,
sko, sem er bara fínt fyrir þig. þá
geturðu verið að skúra áfram ... Ég á
örugglega fleiri vini en þú.
Ragnar: já, er það? það er gott hjá þér.
Benjamín: það er svoleiðis. Ég er mjög
vel liðinn, sko.
Ragnar: það er bara gott hjá þér.
Benjamín: Ég er rosa sanngjarn líka,
sko. Ég er með mjög sterka réttlætis-
kennd.
Ragnar: aha.
Benjamín: Ég er það, í alvöru talað.
Ragnar: jáá...
Benjamín: Ég er ekki algjör fáviti, sko.
en þú svíkur og prettar eins og ekkert
sé ... þú ert einn af einstökum aðilum
sem ég hef talað við svona, eins og ég
er að tala við þig. af því að þú sérð
bara eina leið. það er bara þín leið... en
ég vil að þú borgir mér peningana
mína. þú verður að gera það, sko.
annars förum við bara í stríð við þig.
sem þú tapar, alveg örugglega ...
Benjamín: mér langar svo að berja þig,
ragnar. stúta þér. af því að þú átt
ekkert annað skilið, sko. spáðu í því.
þessar umsagnir sem þú sagðir ...
Benjamín lætur hnefana tala.
Kompás hringir á lögregluna eftir
að barsmíðarnar stigmagnast.
Samtal fyrir framan myndavélar Kompáss endaði með ofbeldi:
„Hvað veit ég nema
það sé búið að setja
upp myndavélar og
læti?“
Úr Kompásþættinum í gærkvöldi
benjamín þór stendur ógnandi frammi
fyrir ragnari, sem neitar að borga.
Benjamín Þór Þorgrímsson barði
ragnar magnússon eftir langt samtal
og segist hafa verið espaður upp.
annÞór var lífvörður ragnars
við sig. „Það má koma skýrt fram að
þetta er ofnotað orð á Íslandi, það
eru allir orðnir handrukkarar ef þeir
vilja fá launin sín borguð.“
Benjamín gerir einnig athuga-
semdir við fráganginn á þættinum og
segir hann hafa verið klipptan með
það í huga að gera sinn hlut sem ver-
stan: „Það sem þeir pössuðu sig á í
þættinum var að ég var að hitta hann
útaf bílnum mínum, bara persónu-
lega en þeir klipptu það út. Ég var
bara að rukka manninn fyrir bílinn
minn og það að drulla yfir mig í fjöl-
miðlum. Þetta var bara persónulegt
á milli mín og Ragga og það tengd-
ist ekki neinum öðrum. Það var líka
klippt út þegar ég hringi aftur í Ragga
og Jóhannes svarar í símann og er
bara með hortugheit við mig og er að
reyna að fá mig til þess að hóta sér í
símann. Hann nánast sagði við mig,
núna erum við búnir að góma þig.“
Þá saknaði Benjamín þess að allar ög-
ranir Ragnars komu ekki fram. „Ragn-
ar var búinn að segja við mig „þú ert
vitleysingur“ og eitthvað svona sko.
Hann segir svona nokkur vel valin orð
sko. Og ég fann það á mér eins og ég
sagði þarna á myndbandinu: „Hvað
ertu með myndavél eða diktafón
hérna?“ Ég fann það á mér sko.“
Rekinn frá World Class
DV hafði samband við Jóhann-
es Kristjánsson riststjóra Kompáss
og spurði hann út í ásakanir Benja-
míns þess efnis að orð Ragnars
hafi verið klippt út úr þættinum.
„Ég ætla ekkert að fara út í þetta og
hef ekkert um þetta að segja. Ég vil
ekki kommentera á þetta,“ segir Jó-
hannes og bætir þessu við; „Komp-
ás stendur við þennan þátt og
vinnubrögðin voru fagleg og góð.“
Þess má einnig geta að Jóhannes
sagði frá því í gærdag að sér hefði
verið hótað lífláti vegna fyrirhug-
aðrar sýningar á þættinum um-
talaða. Benjamín gefur hins vegar
ekki mikið fyrir þau orð og segir Jó-
hannes aðeins hafa verið að draga
enn meiri athygli að þættinum.
Hafdís Jónsdóttir annar eigandi
World Class segir við DV að Benja-
mín starfi ekki lengur á líkams-
ræktarstöðinni. Hún segir stjórn-
endur fyrirtækisins hafa tekið þá
ákvörðun að hann myndi hætta
um leið og Kompásmálið kom fyrst
í fjölmiðlum. „Það er náttúrulega
bara skrítið að sjá svona sko,“ segir
hún þegar hún er spurð út í mynd-
skeiðið þar sem Benjamín ræðst á
Ragnar.
Klipptur til benjamín, eða benni Ólsari
eins og hann er stundum kallaður, vill
meina að þátturinn hafi verið klipptur til
og orð ragnars hafi verið klippt út.