Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2008, Síða 9
þriðjudagur 23. september 2008 9Fréttir
„Okkur er mismunað. Við sitjum ekki
við sama borð og sjúklingar sem búa
á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Alex-
ander Björn Gíslason. Hann er HIV-
smitaður og búsettur á Akureyri.
Alexander þarf reglulega að sækja
heilbrigðisþjónustu til Reykjavíkur
og gagnrýnir að hann þurfi sjálfur að
greiða fyrir gistingu í borginni þeg-
ar svo ber undir. Að hans mati ætti
hún að vera að fullu niðurgreidd af
heilbrigðisyfirvöldum í stað þess að
hann líði fyrir það fjárhagslega að
vera búsettur úti á landi.
Enginn sérhæfður læknir
„Sú sérþekking sem nauðsyn-
leg er til að þjónusta HIV-smitaða
er aðeins til staðar í Reykjavík,“ seg-
ir Alexander. Hann bendir á að um
þrjátíu ár séu síðan HIV-veiran var
greind á Íslandi og undrast að sér-
fræðiþjónusta fyrir smitaða sé ekki
til staðar á landsbyggðinni. Smit-
sjúkdómalæknir er starfandi á Akur-
eyri en Alexander telur sig í öruggari
í höndum lækna sem hafa sérhæft
sig í hans sjúkdómi. Alexander segist
hafa fundað með heilbrigðisstarfs-
fólki á Norðurlandi sem lýst hafi yfir
áhuga á að koma þar upp sértækri
þjónustu við HIV-smitaða en ekkert
hafi orðið af því.
„Það er engin afsökun að við
séum fá,“ segir hann og finnst eðli-
legt að HIV-smitaðir geti fengið sér-
hæfða þjónustu í hverjum lands-
fjórðungi.
Sjúkrahótelið fullt
Alexander tekur lyf daglega til
að halda sjúkdómnum í skefjum og
fer reglulega í eftirlit til læknis. Þeg-
ar hann kemur til Reykjavíkur þarf
hann sjálfur að láta út fyrir gistingu.
Mjög sjaldan hefur hann fengið inni
á Sjúkrahótelinu á Rauðarárstíg
en yfirleitt hefur það verið yfirfullt.
„Mér finnst það grundvallaratriði
að sjúklingar þurfi ekki að borga fyr-
ir gistingu þegar þeir þurfa að sækja
heilbrigðisþjónustu utan heima-
byggðar,“ segir Alexander sem er ör-
yrki og hefur því afar takmarkað fé
á milli handanna. „Stundum hef ég
bara keyrt fram og til baka sama dag-
inn til að sleppa við að borga fyrir
gistinguna,“ segir hann.
Félagi Alexanders, sem einn-
ig er HIV-smitaður, hefur leitað til
umboðsmanns Alþingis og kvartað
undan því að gisting á sjúkrahótel-
inu væri ekki gjaldfrjáls.
Keyrir fram og til baka
Tryggingastofnun niðurgreiðir
ferðakostnað Alexanders þegar hann
þarf að fara til Reykjavíkur. Hann
þarf þá sjálfur að láta út fyrir ferðinni
og fær síðar endurgreitt frá stofnun-
inni. „Ef ég tek flug suður með stutt-
um fyrirvara þarf ég að láta út um
tuttugu prósent af mínum tekjum,“
segir Alexander. Oft kýs hann því
frekar að keyra þar sem hann hefur
vart til hnífs og skeiðar ef hann þarf
að bíða eftir endurgreiðslu frá Trygg-
ingastofnun vegna flugsins.
Þegar blaðamaður hafði sam-
band við heilbrigðisráðuneytið feng-
ust þau svör að ráðuneytið hefði
á sínum tíma ákveðið, í samstarfi
við Landspítalann, að styrkja þjón-
ustu sjúkrahótelsins. Þó líti
ráðuneytið svo á að gisting
á sjúkrahóteli falli ekki
undir þjónustu sem rík-
inu sé skylt að veita og
skýri það af hverju
hún er ekki niður-
greidd að fullu.
Við vinnslu
fréttarinnar náð-
ist ekki tal af Þor-
valdi Ingvarssyni,
framkvæmdastjóra
lækninga á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á
Akureyri.
HIV-SMITUÐUM MISMUNAÐ
Alexander Birni Gíslasyni finnst hann ekki sitja við sama borð og sjúklingar á höfuðborgarsvæðinu. Hann
er HIV-smitaður og býr á Akureyri en enginn starfandi læknir þar hefur sérhæft sig í sjúkdómnum. Alexand-
er þarf því að leita til Reykjavíkur eftir læknisaðstoð og gagnrýnir að hann þurfi sjálfur að greiða fyrir gist-
ingu þar. Heilbrigðisráðuneytið lítur ekki á gistinguna sem þjónustu sem skylt er að veita.
ErlA HlynSdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Gert upp á milli alexander
birni gíslasyni finnst gert upp á
milli sjúklinga eftir því hvar þeir
búa á landinu.
Mynd SiGtryGGur Ari
Skortir sérhæfinguna Á akureyri er
starfandi smitsjúkdómalæknir en enginn sem
hefur sérhæft sig í þjónustu við HiV-smitaða.
Mynd GuðMundur ViGfúSSon
„Það er engin afsökun
að við séum fá.“
4you.is l Digranesvegi 10 l 200 Kópavogur l Sími 564 2030 690 2020
Vöruflutningar frá Kína
Erum með skrifstofur og fagfólk í Kína sem
aðstoða fyrirtæki,stofnanir, gistiheimili, hótel og
byggingaverktaka að kaupa vörur þaðan.
Fylgst er með allri framleiðslu og
gæðaeftirlit áður en varan er sett í gám.
Getum fundið allar vörur sem hugurinn girnist
Vilt þú versla vörur frá Kína á ódýrari verði?
H
ild
ur
H
lín
J
ón
sd
ót
ti
r
/ h
ild
ur
@
d
v.
is