Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2008, Side 12
þriðjudagur 23. september 200812 Fréttir
Látin á klósettinu
Sextug sænsk kona fannst látin á
klósettinu um helgina og hafði ver-
ið þar um tveggja mánaða skeið.
Frá þessu segir í Aftonblaðinu. Það
er víst litlum efa undirorpið að
konan hefur lifað einmanalegu lífi,
en hún fannst vegna þess að það
höfðu verið vandræði með loft-
ræstinguna í húsinu sem hún bjó í.
Þegar viðgerðarmaður mætti á
svæðið til að fara yfir loftræstikerf-
ið fékk hann ekkert svar úr íbúð
konunnar og kallaði lögregluna
á staðinn sem kom að þessum
óhugnanlegu aðstæðum.
Danska fyrirtækið Arla Foods hef-
ur sent þrjá sérfræðinga til Kína til
að tryggja að framleiðsla mjólkur-
dufts hjá Mengniu, dótturfyrirtæki
Arla í Mongólíu, sé örugglega laus við
melamín. Fyrir um tveimur vikum
kom í ljós að mjólkurvörur fyrirtækis-
ins innihéldu melamín og hafa vald-
ið veikindum og dauða kínverskra
barna.
Fjöldi þeirra barna sem hafa veikst
vegna neyslu mjólkurvöru sem hefur
innihaldið melamín er kominn yfir
fimmtíu og þrjú þúsund og því ekki
loku fyrir það skotið að vandinn sé
mun útbreiddari en stjórnvöld reikn-
uðu með. Málið hefur vakið miklar
efasemdir um öryggi í allri matvæla-
framleiðslu Kínverja.
Einungis um þrettán þúsund
þeirra barna sem veikst hafa hafa
verið lögð inn á sjúkrahús og eru um
áttatíu prósent þeirra yngri en tveggja
ára og ástand yfir eitt hundrað barna
er alvarlegt. Tilkynnt hefur verið um
fjögur dauðsföll vegna melamíneitr-
unar.
Mealmínmengunarinnar varð
fyrst vart í vörum frá Sanlu-verk-
smiðjunni, en síðan þá hafa að
minnsta kosti tuttugu og tvær aðr-
ar verksmiðjur tengst hneykslinu og
vörur frá fjölda þeirra hafa verið inn-
kallaðar úr verslunum.
Tvær helstu stórverslanakeðjur
Hong Kong hafa meðal annars inn-
kallað vörur frá Nestlé, sem á sunnu-
daginn sendi frá sér yfirlýsingu þar
sem sagt var að stjórnendur væru
þess „fullvissir“ að ekkert melamín
væri að finna í vörum frá fyrirtækinu.
Wen Jiabao, forsætisráðherra
Kína, hefur heimsótt veik börn á
sjúkrahúsum og beðist afsökunar.
Hann sagði að hann væri „afar sak-
bitinn“ og að kínversk stjórnvöld
myndu aldrei láta neitt í líkingu við
þetta koma fyrir aftur.
Danir senda sérfræðinga til Kína vegna mjólkurvöruhneykslisins:
Áttatíu prósent undir tveggja ára aldri
Barn í höndum lækna Yfir eitt hundrað börn eru illa haldin vegna neyslu mengaðrar
mjólkurvöru. mynd AFP
Lengi hefur verið grunnt á því góða
á milli Írans og Ísraels og Mahmoud
Ahmadinejad, forseti Írans, hef-
ur ekki farið í grafgötur með álit sitt
á Ísrael og hvað réttast væri að gera
ríkið. Nú keppast háttsettir embætt-
ismenn í Íran við að færa sönnur á
hvrsju mjög þeir eru andvígir Ísrael
og síonisma. Í hinum opinberu kreð-
sum í Íran er litlum efa undirorpið
að síonismi er af hinu illa, og jafnvel
undirrót all þess sem illt er í heimin-
um. Forseti Írans hefur farið fremst-
ur í flokki í gagnrýni sinni gegn Ísrael
og þau ummæli hans að „þurrka ætti
Ísrael af heimskortinu“ voru fyrstu
teikn um að hann yrði umdeildur í
forsetaembætti. Reyndar eru einhver
áhöld um nákvæma þýðingu um-
mæla hans.
Vinur forsetans, vinur Ísraela
En nú gerast undur og stórmerki
því náinn vinur Ahmadinejad for-
seta er sakaður um að vera of vin-
veittur ríki gyðinga, í það minnsta
íbúum þess. Í viðtali í júlí lét Es-
fandiar Rahim Mashaei, yfirmað-
ur menningar- og ferðamannamála
í Íran, ummæli falla sem vakið hafa
hörð viðbrögð heima fyrir. Haft var
eftir honum að Íranar væru vin-
ir ísraela þrátt fyrir að ríkisstjórnir
landanna elduðu grátt silfur saman.
„Í dag eru Íranar vinir Bandaríkja-
manna og ísraelskra borgara. Engin
þjóð í heiminum er óvinur okkar,“
sagði Mashaei. Í ummælum sínum
skírskotar Mashaei til staðlaðra um-
mæla frá utanríkisráðuneyti Banda-
ríkjanna: „Við erum ekki óvinir
þjóðar X-ríkis, eingöngu leiðtoga
hennar.“
Í því andrúmslofti sem svífur yfir
vötnunum í Íran valda öll ummæli
þar sem ekki er gengið út frá því að
allt sem varðar Ísrael sé af hinu illa
fjaðrafoki. Sú varð raunin í þessu til-
felli. Haldnar voru bænastundir, rit-
stjórnarpistlar fjölluðu um málið,
kvörtunum rigndi yfir þing landsins
og mótmæli voru höfð í frammi.
mashaei situr við sinn keip
Á fréttamannafundi sem halfinn var
í síðustu viku fór mestur hluti tímans í
að fjalla um málefnið og umdeild orð
Esfandiar Rahim Mashaei. Mahmoud
Ahmadinejad studdi ummæli vinar
síns, en notaði tækifærið til að halda
eina mestu skammarræðu sem hann
hefur haldið um „leiðtoga síonismans“.
Í máli forsetans kom fram að það
væri einungis handfylli síonista sem
fyllti valdakjarna vestrænna ríkja,
aðeins um tvöþúsund síonistar. Þeir
væru trúleysingjar sem vildu ráða
heiminum og ganga í auðæfi annarra
þjóða.
Aukinheldur hélt Mahmoud Ah-
madinejad því fram að margir þeirra
sem byggju í Ísrael hefðu verið blekkt-
ir til að flytja þangað af þessari hand-
fylli síonista. Það væri kominn tími til
að opna hliðin og leyfa þeim að snúa
heim. Þeir ættu samúð hans, sagði
hann, rétt eins og George W. Bush,
Bandaríkjaforseti, ætti samúð hans.
Hann hefði getað orðið betri mann-
eskja, þrátt fyrir þá óteljandi glæpi
sem hann hefði á samviskunni.
Æðstiklerkur kveður sér hljóðs
En hörð orð Mahmoud Ahmad-
inejad í garð Ísraels nægðu ekki
til að lægja öldurnar og þess var
skammt að bíða að Ayatollah Kham-
enei, æðstiklerkur léti í sér heyra.
Við föstudagsbænir ítrekaði Aya-
tollah Khamenei að hann hefði enga
samúð með þegnum Ísraels. „Hverj-
ir eru Ísraelar? Þeir gleypa húseignir,
jarðsvæði, ræktarlönd og viðskipti.
Þeir eru bardagamenn sem aðgerð-
arsinnar síonista hafa aðgang að,“
sagði Khamenei.
„Þjóð múslima getur ekki látið
sér á sama standa um slíkt fólk sem
er handbendi til reiðu erkióvinum
múslima,“ sagði erkiklerkurinn við
föstudagsbænir.
Esfandiar Rahim Mashaei lýsti
umsviflaust yfir fullum stuðningi
við erkiklerkinn, en dró ummæli sín
ekki til baka. Stjórnmálaskýrendur
telja að Ahmadinejad, forseti, hafi
lagt blessun sína yfir ummæli Mas-
haei og að þau séu jafnvel undan
hans rifjum runnin. Vinsakap þeirra
má rekja til þess tíma þegar þeir
þjónuðu í byltingarverðinum og
þeir eru einnig tengdir fjölskyldu-
böndum því dóttir Mashaei er gift
syni Ahmadinejad.
Forleikur að friði
Menn hafa leitt líkur að því að
með þessum leik vilji Ahmadinejad
útfæra og þróa hugmyndina um
heim án Ísraels, eða sé að undirbúa
jarðveginn fyrir árlega för sína til
New York á aðalráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna.
Ef hið síðara er raunin er erfitt
að sjá stjórnkænskuna í aðferðinni,
því það getur ekki talist vænlegt til
árangurs í friðarviðleitni að saka
viðmælandann um að vera í greip
fárra illra trúleysingja.
Þess utan eru engin teikn á lofti
um að Íranar ætli að sér að leggja
til hliðar kjarnorkuáætlun sína,
en hún hefur lengi verið Þrándur
í götu í samskiptum landsins við
vestræn ríki.
Kannski er málið miklu einfald-
ara en horft til hér að framan og
eingöngu um að ræða deiluefni í
æðstu stjórn landsins sem ætlað
er að skilgreina nákvæmlega mörk
andsíonismans sem þjóðin virðist
nota til að skilgreina eigin tilvist.
KolBeinn þorsteinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Aukinheldur hélt Mahmoud Ahmadinejad því
fram að margir þeirra sem byggju í Ísrael hefðu
verið blekktir til að flytja þangað af þessari hand-
fylli síonista.
Ísrael og síonismi verða Írönum ávallt hug-
leikin. Nú ber svo við að esfandiar rahim
mashaei, varaforseti Írans, og Ayatollah
Khamenei, æðsti trúarleiðtogi þjóðarinnar,
eru á öndverðum meiði. Varaforsetinn er
vinur ísraelskra borgara en æðsti klerkurinn
óvinur þeirra. mahmoud Ahmadinejad, for-
seti landsins, styður varaforsetann en les Ísra-
elum og síonistum pistilinn sem aldrei fyrr.
Íranir rÍfast um ÍsraeL
mahmoud Ahmadin-
ejad Forseti Írans dregur
ekki dul á andstyggð
sína í garð Ísraels.
Þeir ættu samúð hans, sagði hann, rétt eins
og George W. Bush Bandaríkjaforseti ætti
samúð hans. Hann hefði getað orðið betri
manneskja, þrátt fyrir þá óteljandi glæpi
sem hann hefði á samviskunni.