Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2008, Síða 15
þriðjudagur 23. september 2008 15Umræða
Ég man dagana eftir 11/9. Óvænt al-
vara lagðist yfir heiminn eftir tíma
sem hafði einkennst af kjánaskap og
ærslum. Menn héldu í alvörunni að
allt myndi breytast. Við værum að
kveðja tíma léttúðar, myndum hætta
að eitra huga okkar með drasli. Um
stundarsakir greip um sig áhugi á al-
þjóðastjórnmálum, trú og heimspeki
– þrá eftir svörum. Það var talað um
að orðið hefði grundvallarbreyting á
viðhorfum – pólskipti.
En auðvitað var þetta ekki svona.
Vélin hökti aðeins og svo hrökk hún
aftur í gang. Minni fólks er stutt og
fjölmiðlanna ennþá styttra.
Nú, sjö árum síðar, er aftur talað
um meiriháttar umskipti. Það er sagt
að tímabilið sem hófst með Thatcher
og Reagan sé á enda; tími hömlu-
lausrar frjálshyggju, auðsöfnunar og
græðgi. Maður les í erlendum blöð-
um að upp renni tími annars konar
gildismats; meiri ríkisafskipta, meiri
samhjálpar, minni egóisma – að við
getum ekki búið við kerfi sem þrífst
ekki nema það þenjist stöðugt út.
Meira að segja Mogginn er farinn
að segja að Steingrímur J. hafi haft rétt
fyrir sér. Það er samhljómur með ís-
lenska sósíalistaforingjanum og Fin-
ancial Times.
Úti um allan heim fer fram áköf
naflaskoðun. Hverju var um að
kenna? Gráðugum fjármálamönn-
um, skammsýnum stjórnmálamönn-
um, stærðfræðingum sem bjuggu til
ótrúlegar fjármálaflækjur sem eng-
inn skilur lengur, fjölmiðlamönn-
um sem spurðu ekki réttu spurning-
anna. Menn trúðu því í alvörunni að
búið væri að búa svo um hnútana að
öll áhætta á fjármálamarkaði væri úr
sögunni; með því að dreifa henni eftir
nógu flóknum formúlum myndu hin-
ir góðu tímar vara að eilífu.
Svo springur þetta allt í loft upp og
þá sjá allir samstundis að við vorum
eins og villuráfandi sauðir úti í skógi.
Að þetta var eins og fjöldadáleiðsla.
Hvar er Hannes?
Bent hefur verið á að ef stjórnmála-
mönnum hefði orðið svona rosalega
á í messunni væri búið að hlaða bál-
köst eða festa einhvern upp í staur. Ef
þetta hefði verið herforingi væri hann
löngu búinn að kasta sér á sverð sitt.
En ofurmennin sem um tímabil voru
meistarar alheimsins taka þetta ekki
svona nærri sér. Þeir hafa bara lát-
ið sig hverfa þegjandi og hljóðalaust;
leyst upp í frumeindir eins og köttur-
inn í Lísu í Undralandi þar til ekkert er
loks eftir nema glottið.
Hvar er Hannes Smárason? er
spurningin sem hljómar oftast á
mannamótum á Íslandi.
Hlutabréfamarkaðurinn
Á Íslandi var stofnaður hluta-
bréfamarkaður. Fiskurinn var einka-
væddur, síðan bankarnir. Hugmynd-
in var að almenningur tæki þátt í
markaðnum með sitt sparifé, sér og
samfélaginu til hagsbóta. Það voru
veittir skattaafslættir vegna hluta-
bréfakaupa; ríkið beinlínis hvatti til
svona viðskipta. Í raun var þetta eins
og boð til hákarlanna að taka nú ær-
lega til matar síns í síldartorfunni.
Hlutabréfamarkaðurinn með sínu
flókna eignarhaldi, tilbúnu hækkun-
um og félögum sem komu og fóru,
var eiginlega ekki annað en brandari
í þessu litla klíkusamfélagi.
Sumir stjórnmálamenn létu þetta
fara í taugarnar á sér. Viðbrögð þeirra
voru þó aldrei neitt nema fálm, byggð-
ust ekki á neinni yfirvegaðri hugsun
eða framkvæmd, heldur lýstu sér best
í því þegar forsætisráðherranum var
ofboðið og fór og tók peningana sína
út úr banka eða í herferð gegn Baugi
sem einkenndist af því að skjóta bara
nógu mikið í von um að eitthvað hitti.
En í rauninni var ekkert gert til að
hafa hemil á græðginni, ofurlaunun-
um, ofþenslunni eða spekúlöntum
sem fóru inn í fyrirtæki, skuldsettu
þau til andskotans og skildu þau eftir
á hvínandi kúpunni. Samfylkingin lét
einn sinn klárasta mann, Jón Sigurðs-
son, gera skýrslu um neikvæðar af-
leiðingar af þessu, en gleymdi henni
undireins og hún kom í ríkisstjórn.
Ekki heldur hún vildi skemma veislu-
fögnuðinn.
Seilst í orkuna
Ég var að velta því fyrir mér hvort
yrði grundvallarbreyting. Fjárfest-
ingarbankar heyra sögunni til í bili.
Skattgreiðendur víða um heim þurfa
að borga brúsann vegna ruglsins.
Það verður sjálfsagt sett upp flóknara
regluverk fyrir fjármálastarfsemi – og
mun ekki af veita á Íslandi.
Hetja dagsins er Warren Buffet
sem segist aldrei fjárfesta í neinu sem
hann skilur ekki. Það er stórmerkilegt
að heyra íslenska bankajöfra tala um
að framtíð okkar sé fólgin í orku og
fiski en ekki fjármálum. Þetta er í raun
algjört afturhvarf til gamals tíma.
Reyndar verður manni hugsað til
þess að ekki er nema ár síðan mestu
lukkuriddararnir voru stöðvaðir þar
sem þeir voru komnir með lúkuna í
orkuauðlindirnar með aðstoð spilltra
stjórnmálamanna. Þeir voru stöðvað-
ir á síðasta augnabliki. Ég skrifaði á
vefinn um daginn að þetta hefði verið
„hjúkit“. Það mátti ekki tæpara standa.
Eða hvernig hefði mönnum litist á
það í dag að Hannes og co hefðu tut-
tugu ára einkarétt á að nota aðstöðu,
rannsóknir og nafn Orkuveitunnar?
Hver er konan? „Ég er yfirleitt kölluð
magga. Fæst við skriftir, tónlist,
heimilisstörf og margt fleira.“
Hvað drífur þig áfram? „Lífsþorst-
inn og eirðarleysið.“
Uppáhaldsbíómynd? „ef ég neyðist
til að velja eina er það La dolce vita
eftir Fellini. aðallega út af tónlist Ninos
rota sem er best af öllu.“
Uppáhaldsbókin þín? „alfinnur
álfakóngur.“
Af hverju ert þú stoltust?
„börnunum mínum fjórum. svo er ég
stolt af sjálfri mér stundum.“
Hefur þú sagt skilið við tónlist-
ina? „Nei, það er ekki hægt að segja
skilið við tónlistina. Hún er hluti af
lífinu. tónlistin er ekki í eins miklum
forgrunni núna eins og skriftirnar.“
Hefur þú gaman af spennuefni?
„já, að sjálfsögðu, hef mjög gaman af
því. það er spenna í öllum sögum. það
þarf ekki endilega einhver að drepast.
mannleg samskipti eru spennandi.“
Hvort er betra að spila á hljóm-
borð eða skrifa handrit? „þetta er
bara mjög svipað. maður skrifar
handrit með lyklaborði og alveg hægt
að ímynda sér að maður sé að spila
tónlist. það er einnig mikil spenna í því
að spila á hljómborð.“
Eru þættirnir betri en bókin? „Nei,
þetta er allt annar miðill. Fólk nýtur
bókar allt öðruvísu en sjónvarps- og
kvikmyndaefnis. þetta er annars konar
upplifun, en auðvitað er sami
kjarninn.“
Ert þú sátt við útkomuna? „það
sem ég hef séð lofar mjög góðu. Ég er
mjög spennt.“
Hvað er fram undan? „Núna er ég
að skrifa næstu spennuseríu. þetta er
lögmannadrama sem ég, sigurjón
Kjartansson og Kristinn þórðarson
erum að skrifa. það kallast Lög og
réttur. svo er ég að skrifa barnamynd
upp úr bók guðrúnar Helgadóttur,
Öðruvísi dagar, ásamt ingu Lísu
middleton.“
Eruð þið Sigurjón orðin einhvers
konar teymi? „Við höfum skrifað
heilmikið saman. byrjuðum að skrifa
saman stelpurnar, síðan svarta engla
og nú lögfræðiþættina. það má segja
að við séum eins konar skrifdúó.“
Fjöldadáleiðsla
SmAlAð í SnjónUm snjór var yfir öllu þegar smali fór teymdi hest sinn í Landmannalaugum í leit að kindum um helgina. Veturinn er því sannarlega á næsta leiti.
mYnD HEiðA HElgADóttir
Hvað finnst þér um afturvirkar launaHækkanir ráðamanna?
„mér finnst þær bara fáránlegar, þeir
ættu að hækka við láglaunafólkið
frekar.“
júlíUS ÞorbErgSSon
65 ára VersLuNarmaður
„þetta er bara rugl.“
bjArnAr mAgnúSSon
28 ára Nemi
„Finnst þær bara út í hött, þeir geta
haldið því sem þeir eru með það er
nógu hátt fyrir.“
gUnnAr SvAn niElSEn
66 ára ÖryrKi
„bara skandall, þetta eru menn sem eru
ekki á lægstu laununum í þjóðfélag-
inu.“
mAgnúS jónASSon
51 árs byggiNgaFræðiNgur
Dómstóll götunnar
mArgrét ÖrnólfSDóttir
tónlistarkona er einn af handritshöf-
undum svartra engla sem frumsýndir
voru á ríkissjónvarpinu á sunnudaginn.
Hún segir hljómborðsleikinn og
handritsskriftirnar mjög svipað listform.
Mannleg saMskipti
eru spennandi
„þetta er bara bull, mér finnst þetta í
lagi ef þeir hækka líka laun leikskóla-
kennara.“
mArk ZimmEr
37 ára KeNNari í mH
kjallari
mynDin maður Dagsins
Egill HElgASon
fjölmiðlamaður skrifar
„Hvar er Hannes Smára-
son? er spurningin sem
hljómar oftast á manna-
mótum á Íslandi.“