Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2008, Page 17
Þegar þrír leikdagar eru búnir af
sautján eru kúrekarnir frá Dall-
as, Dallas Cowboys, taplausir eins
og reyndar fjögur önnur lið. Vic
Carucci, einn virtasti blaðamaður
og greinahöfundur um NFL-deild-
ina, segir að eftir leikinn á sunnu-
dagskvöldið gegn Green Bay Pack-
ers sé engin spurning um hvaða
lið sé best í deildinni. Dallas Cow-
boys. Dallas vann þrjá Superbowl-
titla eða Ofurskálar á árunum 1993
til 1996.
Í fyrra tapaði Dallas í því sem
kallast upp á íslensku 8 liða úrslit
fyrir New York Giants sem varð svo
meistari. Giants hefur einnig unn-
ið fyrstu þrjá leiki sína en tveir af
þeim leikjum hafa verið gegn liðum
með 0-3 árangur. Í fyrradag var Gi-
ants enn meira ósannfærandi þegar
það þurfti framlengingu til að leggja
Bengals í framlengingu en Bengals
hefur ekki unnið leik á árinu.
Styrkur úti um allt í sókninni
Gefum Vic Carucci orðið um hina
mögnuðu sókn Dallas Cowboys.
„Cowboys ógnar úr öllum stöðum
sóknarlega. Með léttu úlnliðskasti
getur leikstjórnandinn Tony Romo
hitt útherja með sendingu sem get-
ur breytt leiknum eins og hann gerði
oft gegn Eagles og Packers. Gegn
Packers á sunnudaginn gaf hann 63
metra sendingu á útherjann Miles
Austin sem setti upp tveggja metra
hlaup í markið fyrir hlauparann
Marion Barber. Það kom liðinu í 20-
9 forystu og svo í fjórða og síðasta
leikhlutanum hitti hann Austin aft-
ur með 53 metra sendingu sem gaf
snertimark og kláraði leikinn.
Hinn magnaði útherji, Terrel
Owens, hafði hægt um sig á sunnu-
daginn en var frábær gegn sínum
gömlu félögum í Eagles fyrir viku.
Hann mun svo sannarlega vera lyk-
ilþáttur á tímabilinu og svo má ekki
gleyma nýliðanum, hlauparanum
Felix Jones.“
Halda sig á jörðinni
Dallas var spáð alla leið í fyrra en
fékk skell í 8 liða úrslitum. Árið áður
hafði leikstjórnandinn Tony Romo
gert hræðileg mistök í fyrstu umferð
úrslitakeppninnar sem kostaði lið-
ið áframhald. Hann heldur sig því
alveg á jörðinni yfir fyrstu þremur
vikunum. „Við erum gott lið. Ég veit
það alveg. Á þessum tíma árs skipt-
ir samt engu hvort þú ert líklegast-
ur eða ólíklegastur til afreka. Maður
vill vera líklegastur í lok tímabils-
ins,“ segir Romo.
Vic Carucci segir Dallas vera heil-
steyptasta liðið af þeim sem eiga að
heita góð í deildinni. Það hefur nú
þegar unnið tvo sterka andstæðinga
og það sannfærandi. Árið í ár gæti
því loks markað endurkomu Dall-
as, allavega í úrslitaleikinn, þang-
að sem það hefur ekki komist síðan
það vann síðast 1996.
þriðjudagur 23. september 2008 17Sport
Sport Morrati Sáttur Með MourinHo massimo moratti, eigandi Ítalíumeist-ara inter, er hæstánægður með störf joses mourinho sem hann réð sem þjálfara liðsins í sumar. mourinho byrjaði með jafntefli í sínum fyrsta leik í deildinni en hefur síðan unnið tvo þar í röð og þrjá í röð með sigrinum á paOK í meistaradeildinni. „þegar ég ákvað að ráða mourinho vissi ég að hann væri sá besti og það er að koma í ljós,“ segir moratti en um helgina bíður mourinhos nágrannaslagurinn gegn aC milan. „er juventus okkar stærsti keppninautur núna? Ég veit allavega að aC milan hræðir mig og roma er að komast í gang. þetta snýst samt um að við sýnum okkar styrkleika,“ segir moratti.
Dallas Cowboys er besta liðið í NFL-deildinni segir sérfræðingur um ameríska fótboltann.
Þetta stórveldi sem á að baki fimm Ofurskálar hefur verið í lægð lengi en verið að byggja
upp sterkt lið síðustu ár. Margir bjuggust við því í úrslitin í fyrra en allt kom fyrir ekki.
Þetta tímabil gæti svo sannarlega markað endurkomu þessa magnaða liðs á toppinn.
ENDURKOMA KÚREKANNA
Sigurður Ragnar Eyjólfsson,
landsliðsþjálfari íslenska kvenna-
landsliðsins í knattspyrnu, gerði
tvær breytingar á hópnum fyrir
leikinn mikilvæga gegn Frakklandi
næstkomandi laugardag. Gréta Mjöll
Samúelsdóttir er frá vegna slitins
krossbands og í hennar stað kemur
Harpa Þorsteinsdóttir úr Breiðabliki.
Þá tekur María Björg Ágústsdóttir,
markvörður bikarmeistara KR, sætið
af Söndru Sigurðardóttur úr Stjörn-
unni.
Leikurinn á laugardaginn er svo
sannarlega sá mikilvægasti frá upp-
hafi. Íslandi dugir jafntefli gegn
Frakklandi til þess að komast beint
á stórmót, Evrópumótið sem hald-
ið verður í Finnlandi á næsta ári. Ís-
land vann Frakkland í fyrri leiknum
hér heima, 1-0, með marki Margrétar
Láru Viðarsdóttur á 81. mínútu.
Tapi Ísland leiknum og endi í 2.
sæti riðilsins er þó öll von langt frá
því að vera úti. Þjóðirnar í 2. sæti og
nokkrar úr 3. sæti komast í umspil og
vegna stiga- og markafjölda íslenska
liðsins ætti mótherjinn með öllu að
vera vel viðráðanlegur. Stelpurnar
þurfa samt ekkert að spá í það. Þær
hafa nú þegar sýnt magnaða takta
í riðlinum og hafa þess utan unn-
ið Frakkland. Fari Ísland í umspil
verða þeir leikir heima og að heiman
í október. tomas@dv.is
Sigurður ragnar eyjólfsson búinn að velja hópinn fyrir mikilvægasta leikinn frá upphafi:
TVÆR BREYTINGAR FYRIR FRAKKLANDSFÖR
eKKi FaLDo
að Kenna
evrópska ryder-liðið í golfi tapaði
fyrir því bandaríska um helgina með
16 og hálfum vinningi gegn 11 og
hálfum. með sigrinum rufu
bandaríkin sigurgöngu evrópu sem
hafði sigrað þrisvar í röð. Nick Faldo
var liðsstjóri evrópska liðsins en
liðsmenn hans kenna honum ekki
um gengið. enn frekar vilja sumir sjá
hann stýra liðinu aftur eftir tvö ár.
„Hefði ég unnið minn leik gegn
anthony Kim værum við kannski að
tala um allt annan hlut. mitt tap kom
Faldo ekkert við,“ segir spánverjinn
sergio garcia og englendingurinn
Lee Westwood tekur í sama streng.
„Leikurinn sem ég og sergio garcia
vorum hvíldir í endaði með sigri hjá
okkur. segð þú mér hvort hann
gerði þar rétt eða rangt?“
Faldo býst ekki við að stýra liðinu
aftur 2010 en annar fyrrverandi
liðsstjóri, bernard gallagher, vill sjá
Faldo áfram. „Faldo verðskuldar
annað tækifæri. Hann hefur gert
mikið fyrir íþróttina og sérstaklega
evrópskt golf,“ segir gallagher sem
sjálfur stýrði liðinu þrisvar og vann
aðeins einu sinni. tomas@dv.is
DÝr DanS
tryggvi guðmundsson fékk gula
spjaldið fyrir léttan dans sem hann
tók eftir að atli Viðar björnsson
skoraði sigurmark FH gegn Keflavík á
sunnudagskvöldið og hélt þar með
titilbaráttunni á lofti. Kristni
jakobssyni, dómara leiksins, fannst
tryggvi þar sýna óíþróttamannslega
hegðun og spjaldaði tryggva. þar
sem þetta er fjórða gula spjald
tryggva verður hann dæmdur í
leikbann þegar aganefndin kemur
saman í dag. það er að segja ef ekki
sömu mistök verða gerð og með
dennis siim. bönn vegna gulra
spjalda taka gildi á hádegi á
föstudögum og verður tryggvi því
með eins og dennis siim þegar FH
mætir breiðabliki klukkan 16.30 á
miðvikudaginn kemur. þeir verða hins
vegar báðir í banni í lokaumferðinni
þegar FH heimsækir Fylki. þar verða
þeir að sigra eins og á miðvikudaginn
til að verða Íslandsmeistarar og verða
að binda vonir sínar við að Fram vinni
helst Keflavík í Keflavík. jafntefli gæti
þó dugað þeim vinni FH næstu tvo
leiki með hagstæðri markatölu.
CoPPeL tiL Í
annan LeiK
sá ótrúlegi atburður átti sér stað í
leik reading og Watford í Champ-
ionship-deildinni á englandi að
reading fékk dæmt mark án þess að
koma boltanum yfir línuna. Í stað
þess að flagga hornspyrnu flaggaði
aðstoðardómari leiksins mark þrátt
fyrir að ekki einum einasta reading-
manni dytti í hug að biðja um mark
enda allir að gera sig klára í
hornspyrnu. þrátt fyrir mikil mótmæli
Watford var markið dæmt gilt og
þannig komst reading í 1-0 en
leikurinn endaði að lokum 2-2.
„Ég veit ekki alveg hvað ég á að
segja. Ég finn til með Watford og ég
mun aldrei neita því að þetta var
ekki mark. ef farið verður fram á að
leikurinn verði leikinn aftur mun ég
ekki heldur mótmæla því á neinn
hátt,“ segir steve Coppel, knatt-
spyrnustjóri reading.
tÓMaS ÞÓr ÞÓrðarSon
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Þrír af fjórum dallas vann þrjá
superbowl-titla frá 93 til 96.
Burðarásar Leikstjórn-
andinn tony romo og
útherjinn terrel Owens
gætu leitt dallas aftur á
toppinn.
MiKiLvægi ÞeSS að Byrja 3-0
miðað við núverandi fyrirkomulag í
úrslitakeppni sem sett var á laggirnar 1990.
n 93 lið hafa komist í 3-0 á þessum
18 árum
n 72 lið af þeim 93 (77,4%) hafa
komist í úrslitakeppnina
n 21 lið af þeim 93 (22,6%) hefur
ekki komist í úrslitakeppnina
LanDSLiðSHÓPur
Kvenna
Markverðir
þóra björg Helgadóttir anderlecht
maría b. Ágústsdóttir Kr
aðrir leikmenn
Katrín jónsdóttir Valur
dóra maría Lárusdóttir Valur
Ásta Árnadóttir Valur
margrét Lára Viðarsdóttir Valur
sif atladóttir Valur
edda garðarsdóttir Kr
guðrún sóley gunnarsdóttir Kr
Hólmfríður magnúsdóttir Kr
Ólína guðbjörg Viðarsdóttir Kr
Katrín Ómarsdóttir Kr
embla sigríður grétarsdóttir Kr
Harpa þorsteinsdóttir breiðablik
sara björk gunnarsdóttir breiðablik
rakel Hönnudóttir þór/Ka
dóra stefánsdóttir Ldb malmö
erla steina arnardóttir Kristianstad
allt ræðst á laugardaginn Íslenska kvennalandsliðinu dugir jafntefli til að komast
á stórmót. MynD aMe