Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2008, Blaðsíða 20
þriðjudagur 23. september 200820 Fókus
Seth Rogen og Judd Apatow eru
forystumenn í nýju gríngengi sem
hefur slegið í gegn í Hollywood und-
anfarið. Pineapple Express er nýj-
asta kvikmyndin úr smiðju þeirra.
Dale Denton (Seth Rogen), reyk-
ir allt of mikið gras, hann er metn-
aðarlaus og vinnur við að keyra út
stefnur. Hann á kærustu sem er enn
í menntaskóla (high school) og er
algjörlega óvirkur samfélagsþegn að
öðru leyti, en á sér háleita drauma
um að komast að sem spjallþátta-
stjórnandi í útvarpi. Hann kaupir
grasið sitt af Saul, (James �ranco),
sem er jafn slakur á því. �jörið
hefst svo þegar Dale verður vitni
að morði, sem morðinginn rekur
aftur til Sauls, og saman fara þeir á
flótta undan kaldrifjuðum glæpon-
um með tilheyrandi látum og gras-
reykingum.
Pineapple Express er virkilega
fyndin mynd, myndin hreinlega líður
framhjá manni þar sem maður ligg-
ur og gólar úr hlátri. Seth Rogen leik-
ur nákvæmlega sömu týpu og hann
gerir í Knocked Up, sem sleppur al-
veg, á meðan James �ranco tekst að
hrista af sér ógeðs Spiderman-slen-
ið og finnur sig vel í hlutverki hins
trega Sauls, sem hefur legið á sjóð-
heitri pönnunni nokkrum mínútum
of lengi. Þeir sem stela senunni al-
gjörlega eru þeir Danny R. McBride
sem hinn magnaði Red og Craig Ro-
binson, sem leikur tilfinninganæm-
an leigumorðingja.
Pineapple Express minnir um
margt á Superbad og Knocked Up,
en á góðan hátt. Hún er jafn snið-
ug, þótt ótal þemu sé kunnugleg, og
inniheldur sama grófa og harkalega
húmorinn, sem hefur þó verið al-
gjörlega fínstilltur. PE er langfyndn-
asta mynd sem ég hef séð í lengri
tíma, alveg jafn góð og þær sem þeir
Apatow og Rogen hafa sent frá sér
að undanförnu og miklu betri en
aðrir djókarar sem komu út í sum-
ar, þá sérstaklega Tropic Thunder.
Að vísu verða grasreykingarnar á
þeim félögum þreyttar til lengdar,
eins og oft vill verða í þannig mynd-
um, en hins vegar detta þeir aldrei í
hinn hasshausa grínpyttinn, sem er
óþolandi. Pineapple Express renn-
ur áfram áreynslulaust, fín mynda-
taka, skemmtileg tónlist, skemmti-
legir leikarar og æðislegt handrit.
Hvað meira er hægt að biðja um á
Íslandi í september? �yrir utan betri
hagstjórn, annan gjaldmiðil, betra
veður og eina pylsu með öllu nema
hráum. Dóri DNA
Skil vegna eddunnar
tíundu EdduvErðlaunin verða afhent 16. nóvember næstkomandi. Nú styttist óðum
í að fresti til að skila inn verkum vegna tilnefningaferlis ljúki en fresturinn er til 1.
október. tilnefningar verða kynntar réttum mánuði síðar. sjónvarpið sendir beint út
frá afhendingunni.
Dísætur
a a s
kinkir geir
Ólafsson
Lýðveldisleikhúsið sýnir einsöng-
leikinn Kinkir - skemmtikraftur
að sunnan í Salnum í Kópavogi á
fimmtudaginn klukkan 20. Söngleik-
urinn hverfist um kertaljósakons-
ert Kinkis Geirs Ólafssonar sem er
söngvari og mannkynsfræðari. Hann
er líka með hjartað fullt af ást sem
hann úthellir á kertaljósakonsert-
um sínum, eins og segir í tilkynn-
ingu. Þetta er eina tækifæri íbúa
höfuðborgarsvæðisins til að njóta
listar hans því Kinkir Geir ætlar að
einbeita sér að því að gleðja konur á
landsbyggðinni næstu misseri. Ben-
óný Ægisson er höfundur verksins
og leikur eina hlutverkið.
vídeógrafík
við sjónar-
rönd
Sæþór Örn Ásmundsson opnaði á
dögunum einkasýningu í Saltfélag-
inu á Grandagarði 2. Sýningin ber
yfirskriftina Sjónarrönd og er fjórða
einkasýning listamannsins. Sæþór er
útskrifaður frá IED Milano í vídeó-
grafík og hefur hann meðal annars
sýnt vídeóverk og innsetningar á
samsýningu í Guggenheim-safninu í
�eneyjum. Að þessu sinni sýnir Sæ-
þór málverk ásamt einu „vídeómál-
verki“ þar sem hann blandar saman
málverkinu og vídeóinu. Sæþór er
í dag sjálfstætt starfandi vídeógraf-
íker og vinnur við gerð sjónvarps-
auglýsinga samhliða myndlistinni.
Sýningin í Saltfélaginu stendur út
september.
Stelum bara
frá sjálfum
okkur
„Menn hafa svipaðan tónlistar-
smekk í hljómsveitinni þannig
að það þarf lítið til að við séum
sammála. Við hikum ekki við að
stela frá sjálfum okkur ef okkur
langar til.“ Þetta er haft eftir Jóni
Ólafssyni, hljómborðsleikara
Ný danskrar, á vef Monitors en
hljómsveitin er að taka upp nýja
plötu þessa dagana. Sjö ár eru
liðin frá útgáfu síðustu hljóð-
versskífu sveitarinnar. Jón segir
jafnframt að mórallinn í hljóm-
sveitinni sé til fyrirmyndar og
þeir skemmti sér konunglega við
upptökurnar.
Dennis Quaid leikur Lawrence
Wetherhold. Hann er ansi sérstakur
karakter, sannferðuglega skrifaður og
maður kannast nú við nokkra svip-
aða. Hann er óútgefinn rithöfund-
ur og sérvitur leiðindagarmur sem
kennir nemendum sem hann gefur
ekki mikið fyrir. Hann leggur Saab-
num sínum reglulega skakkt í stæðið
og virðist ekki vera jafngáfaður þegar
kemur að félagslegum samskiptum.
Hann hefur misst konu sína og sinn-
ir krökkum sínum illa. Dóttir hans lít-
ur þrátt fyrir það upp til hans og er á
leiðinni að verða sami leiðindaplebb-
inn og hann. Tilviljanir bjóða upp
á möguleika á breytingum og eftir-
fylgni við þær. Hann kynnist vinaleg-
um lækni og fyrrverandi nemanda en
einnig leggst ættleiddur bróðir hans
upp á hann til mikilla leiðinda.
Ísraelski leikstjórinn Murro er hér
að gera „evrópska“ mynd fyrir Kana
sem hefur verið gert talsvert af sein-
ustu ár. Þetta er lágstemmd mynd um
óhefðbundnar fjölskyldur í landi ýkt-
ra fjölskyldugilda. Ættleiddur bróð-
ir, hálfsystkin og fjölskyldumeðlimir
sem neyta kannabisefna og áfengis
saman. Ekkert nema gott um efnivið-
inn að segja. �orsaga persónanna er
sögð fljótt og snurðulaust án þess að
virka sem tilgerðarlegar útskýringar-
samræður. Myndin er prýðilega vel
leikin og er Ellen Page einna best þar
sem dóttir Wetherholds. Sarah Jessica
Parker er líka fín, sjarmerandi en ekki
smáfríð og óhrædd við að sýna það
hér án Prada-búninganna.
Hápunkturinn er sennilega sam-
skipti ættleidda bróður Wetherholds
og dóttur hans. Þar eru skemmtileg-
ustu samræðurnar og pælingarnar að
finna. Þær senur héldu 100% og gætu
haldið uppi heilli mynd. Þrátt fyrir að
hér sé prýðileg mynd á ferð er hún að
öðru leyti einfaldlega of hæg. Virðist
vera hluti af einhverjum stíl en það er
stíll sem þyrfti að skerpa á. Kvikmynd-
ir eru ekki smurhnífar.
Erpur Eyvindarson
Fjölskyldusögur leiðindagarms
kvikmyndir
Smart PeoPle
Leikstjórn: Noam murro
Aðalhlutverk: dennis Quaid, sarah jessica
parker, thomas Haden Church, ellen page
Of hæg „þrátt fyrir að hér sé prýðileg mynd á
ferð er hún að öðru leyti einfaldlega of hæg.“
kvikmyndir
PineaPPle exPreSS
Leikstjóri: david gordon green
Aðalhlutverk: seth rogen, james Franco,
danny r. mcbride
á þ r i ð j u D e g i
Pineapple Express Virkilega
fyndin mynd, myndin hreinlega
líður framhjá manni þar sem
maður liggur og gólar úr hlátri.