Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2008, Blaðsíða 15
mánudagur 27. október 2008 15Ættfræði
40 ára í dag
30 ára
n Ólafur Valdimar Júlíusson Rjúpnasölum 14,
Kópavogur
n Katarzyna Anna Podsiadlik Ölduslóð 37,
Hafnarfjörður
n Dalibor Pauletic Flyðrugranda 18, Reykjavík
n Þórdís Yrsa Stefánsdóttir Laufrima 24, Reykjavík
n Elsa Þóra Árnadóttir Schiöth Lækjarvaði 19,
Reykjavík
n Pálmi Þór Atlason Heiðarbraut 9f, Reykjanesbær
n Kristrún Einarsdóttir Grettisgötu 60, Reykjavík
n Ásdís Kjartansdóttir Akurgerði 16, Reykjavík
40 ára
n Vineta Karimova Eggertsgötu 6, Reykjavík
n Artur Jaworski Einivöllum 5, Hafnarfjörður
n Guðni Jónsson Klettabergi 38, Hafnarfjörður
n Margrét Fanney Bjarnadóttir Flúðaseli 63,
Reykjavík
n Halldór Einarsson Melási 12, Njarðvík
n Gunnar Th Gunnarsson Hraunbæ 26, Hveragerði
n Hrafn Guðnason Ástjörn 5, Selfoss
n Hulda Pjetursdóttir Öldugötu 11, Reykjavík
n Björgólfur H Ingason Tjarnarmóa 1, Selfoss
50 ára
n Halldóra Elín Ásgeirsdóttir Vörðugili 2, Akureyri
n Ragnar Smári Ólafsson Háuborg, Akureyri
n Brynjar Björnsson Borgarholtsbraut 64, Kópavogur
n Einar Albert Sverrisson Melbæ 31, Reykjavík
n Sigurður Örn Helgason Aflagranda 21, Reykjavík
n Helga Björk Gunnlaugsdóttir Víðigrund 4,
Sauðárkrókur
n Gunnar Sigurjónsson Ægisíðu 64, Reykjavík
n Óskar Guðbjörn Jónsson Árbakka 15, Selfoss
n Marianne Olsen Kaldaseli 6, Reykjavík
n María Adoracion Finnjónsson Vogagerði 28,
Vogar
60 ára
n Páll Birkir Reynisson Grænlandsleið 45, Reykjavík
n Hjörtur Gunnarsson Skeggjastöðum, Mosfellsbær
n Sjöfn Hákonardóttir Silungakvísl 16, Reykjavík
n Sigurleif B Þorsteinsdóttir Suðurgötu 91,
Siglufjörður
n Þór Steinsson Steinarsson Hverafold 136,
Reykjavík
70 ára
n Halla Gísladóttir Vatnsnesvegi 29, Reykjanesbær
n Erla Helga Ragnarsdóttir Þorsteinsgötu 13,
Borgarnes
75 ára
n Sigríður Inga Ingvarsdóttir Norðurtúni 31,
Álftanes
n Ólafur Friðrik Bjarnason Geitlandi 17, Reykjavík
n Unnur Haraldsdóttir Hlaðhömrum 2, Mosfellsbær
n Auður Sigurðardóttir Reynihvammi 2, Hafnar-
fjörður
n Guðrún Esther Halldórsdóttir Engjahlíð 1,
Hafnarfjörður
n Elsebeth Finnsson Melseli 22, Reykjavík
n Bruno M Hjaltested Borgartúni 30a, Reykjavík
n Elín Albertsdóttir Stapa, Vestmannaeyjar
80 ára
n Haraldur S Magnússon Æsufelli 2, Reykjavík
n Gísli Þorleifsson Langholti, Dalvík
n Geir H Þorsteinsson Strandvegi 11, Garðabær
n Svava Auðunsdóttir Samtúni, Reykholt
n Guðrún S Kristjánsdóttir Árskógum 8, Reykjavík
n Bjarni Jónsson Bjarnason Miðleiti 7, Reykjavík
85 ára
n Vilhjálmur Þórðarson Tryggvagötu 30, Selfoss
n Jón H Jónsson Lyngrima 15, Reykjavík
n Þórólfur Helgason Tungu, Sauðárkrókur
90 ára
n Björg Sóley Ríkarðsdóttir Lágholti 23,
Mosfellsbær
n Unnur Jónsdóttir Lindasíðu 4, Akureyri
n Valur Guðmundsson Hringbraut 50, Reykjavík
95 ára
n Ingibjörg Einarsdóttir Mýrum 1, Egilsstaðir
Sveinn valdimarSSon
byggingaverkfræðingur í reykjanesbæ
Sveinn fæddist í Keflavík og ólst
þar upp. Hann var í Barnaskóla
Keflavíkur, Gagnfræðaskóla Kefla-
víkur, stundaði nám við Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja og lauk þaðan
stúdentsprófi 1987, stundaði nám í
verkfræði við HÍ og lauk þaðan verk-
fræðiprófi og stundaði síðan fram-
haldsnám í vatnsverkfræði við Há-
skólann í Karlsruhe og lauk þaðan
prófum.
Sveinn starfaði í hellugerð í Kefla-
vík, var handlangari við húsasmíðar
og vann í frystihúsi í Keflavík á ungl-
ingsárunum auk þess sem hann
vann sem foringi og staðarráðsmað-
ur í Vatnaskógi í nokkur sumur. Þá
vann hann við hlaðdeild á Keflavík-
urflugvelli.
Sveinn starfaði á Verkfræðistofu
Njarðvíkur eftir háskólanám hér
heima og hóf síðan störf þar sem
fastráðinn eftir námið í Þýskalandi
1996. Hann hefur starfað þar síðan
en eftir sameiningu heitir verkfræði-
stofan nú Mannvit þar sem Sveinn
er framkvæmdastjóri skrifstofunn-
ar á Suðurnesjum. Þá hefur Sveinn
verið stundakennari við öldunga-
deild Fjölbrautaskólans á Suður-
nesjum í nokkra vetur.
Sveinn sat í varastjórn Ung-
mennafélags Keflavíkur um skeið,
hefur starfað í Gideonfélaginu í
Keflavík í um 20 ár og sinnt flestum
trúnaðarstörfum þess, sat í stjórn
Skógarmanna, situr í stjórn KFUM
og KFUK á Suðurnesjum, sat í stjórn
Landsambands KFUM og K og situr
nú í sóknarnefnd Keflavíkurkirkju
og er gjaldkeri þar.
Fjölskylda
Eiginkona Sveins er Brynja Ei-
ríksdóttir, f. 30.10. 1970, húsmóðir.
Foreldrar hennar eru Ágústa Þór-
hildur Guðmundsdóttir og Eiríkur
Guðbjartsson.
Börn Sveins og Brynju eru Ívar
Karl Sveinsson, f. 5.11. 1996; Adam
Sveinsson, f. 13.7. 1999.
Bræður Sveins eru 3 þeir Gaui,
Baddi og Gilli: Sæmundur Guðjón
Valdimarsson, f. 1963, endurskoð-
andi, búsettur í Reykjavík; Gunn-
ar Baldvin Valdimarsson, f. 1966,
húsasmíðameistari og kennari í
Reykjanesbæ; Rúnar Gísli Valdi-
marsson, f. 1972, verkfræðingur í
Kópavogi.
Foreldrar Sveins eru Valdimar
Sigurður Gunnarsson, f. 31.7. 1931,
sjómaður í Reykjanesbæ, og Jó-
hanna Sæmundsdóttir, f. 23.9. 1928,
húsmóðir.
Til
hamingju
með
afmælið!
Andri fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann var í Fossvogsskóla,
Réttarholtsskóla, stundaði nám
við Iðnskólann í Reykjavík og lauk
þaðan prófum af tölvubraut og síð-
an stúdentsprófi af tæknibraut. Þá
stundaði hann nám við HR og lauk
þaðan BS-prófi í rafmagnstækni-
fræði.
Andri vann lengi í Hljóðfæra-
versluninni Rín við Frakkastíg með
skóla. Hann hóf störf hjá iðntækni-
fyrirtækinu Samey sumarið 2007 og
hefur starfað þar síðan.
Andri hefur leikið á bassagítar
með hljómsveitinni Shadowparade
frá 2004.
Fjölskylda
Kona Andra er Kolbrún Björg
Þorsteinsdóttir, f. 20.1. 1979, sjúkra-
liði.
Bræður Andra eru Stefán Már
Magnússon, f. 28.7. 1971, tónlistar-
maður; Magnús Örn Magnússon, f.
21.8. 1983, tónlistarmaður og versl-
unarmaður..
Foreldrar Andra eru Magnús Ei-
ríksson, f. 25.8. 1945, tónskáld og
tónlistarmaður í Reykjavík, og Elsa
Guðrún Lyngdal, f. 14.1. 1949, d.
26.5. 1999, húsmóðir.
Ætt
Magnús er sonur Eiríks, loft-
skeytamanns og skrifstofumanns í
Reykjavík Ólafssonar, gjaldkera hjá
Kveldúlfi Jónssonar, b. á Hafursstöð-
um Jasonarsonar. Móðir Ólafs var
Ásta María, systir Júlíu Ingibjargar,
ömmu Páls Kolka læknis. Ásta María
var dóttir Ólafs, b. og smiðs á Vatns-
enda í Vesturhópi Ásmundssonar, b.
á Halldórsstöðum í Laxárdal Sölva-
sonar. Móðir Ástu Maríu var Ingi-
björg Magnúsdóttir, af Stórubrekku-
ætt í Fljótum Óbeðssonar. Móðir
Eiríks var Ingibjörg, systir Guðfinns
útgerðarmanns, föður útgerðar-
mannanna í Keflavík, Guðmundar
og Sigurþórs. Ingibjörg var dóttir Ei-
ríks, sjómanns í Nýjabæ á Miðnesi,
sonar Jóns Benónýssonar og Guð-
rúnar Eiríksdóttur. Móðir Ingibjarg-
ar var Guðríður Jónsdóttir. Móðir
Guðríðar var Kolfinna Kjartansdótt-
ir, b. á Króki í Villingaholti Jónssonar,
Kjartanssonar, Eyvindssonar. Syst-
ir Kjartans Eyvindssonar var Ragn-
heiður, móðir Fjalla-Eyvindar.
Móðir Magnúsar tónlistar-
manns: Rannveig, dóttir Axels, hús-
gagnasmiðs í Reykjavík Grímssonar,
b. á Króki í Grafningi Jóhannsson-
ar, b. á Nesjavöllum, bróður Jóns,
langafa Ólafs Ragnars Grímssonar
forseta. Annar bróðir Jóhanns var
Bjarni, langafi Guðjóns Bjarnason-
ar arkitekts. Þriðji bróðir Jóhanns
var Eiríkur, langafi Kristjóns, föður
Braga bóksala og Jóhönnu blaða-
manns, móður Illuga Jökulssonar.
Jóhann var sonur Gríms, skyttu á
Nesjavöllum Þorleifssonar, ættföð-
ur Nesjavallaættar Guðmundsson-
ar, b. í Norðurkoti Brandssonar, b. á
Krossi Eysteinssonar, bróður Jóns,
föður Guðna, ættföður Reykjakots-
ættar, langafa Halldórs, afa Halldórs
Laxness, og langafa Guðna, lang-
afa Vigdísar Finnbogadóttur. Móð-
ir Axels var Rannveig, systir Ingólfs,
föður Lárusar leikara. Rannveig var
dóttir Lárusar, b. á Reykjum í Lund-
arreykjadal Bjarnasonar, og Rósu
Jónasdóttur.
Móðir Rannveigar Axelsdótt-
ur var Marta Kolbeinsdóttir. Móðir
Mörtu var Ólöf Jónsdóttir. Hún var
dóttir Kristjáns, b. í Ytra-Garðshorni
í Svarfaðardal, Jónssonar og Sólveig-
ar Jónsdóttur, b. í Syðra-Garðshorni,
Jónssonar.
Elsa Guðrún Lyndal var dóttir
Stefáns Lyngdal sem er látinn, kaup-
manns í versluninni Rín, og Herdís-
ar Sigurðardóttur Lyngdal húsmóð-
ur.
andri magnússon
rafmagnstæknifræðingur í reykjavík
rakel runólfsdóttir
sérfræðingur hjá vinnumálastofnun á hvammstanga
Rakel fæddist á Siglufirði og ólst
þar upp. Hún var í Grunnskóla Siglu-
fjarðar, stundaði nám við Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra á Sauðár-
króki, lauk þaðan stúdentsprófi 1998,
stundaði nám við KHÍ og lauk grunn-
skólakennaraprófi 2006 og stundar
nú mám í opinberri stjórnsýslu við
HÍ.
Rakel vann í fyrstihúsinu á Siglu-
firði á unglingsárunum, sinnti
barnagæslu, var í bæjarvinnunni á
Siglufirði og í Sauðárkróksbakaríi á
framhaldsskólaárunum. Hún starfaði
hjá Íbúðalánasjóði í Reykjavík 1999-
2000, vann síðan á fasteignastofum í
Reykjavík, kenndi við Grunnskólann
á Hvammstanga 2002-2006 og hefur
verið sérfræðingur hjá Fæðingaror-
lofssjóði frá 2006.
Rakel hefur verið sveitarstjórnar-
maður í Húnaþingi vestra fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn frá 2006. Hún situr í
ýmsum nefndum á vegum sveitar-
félagsins. Þá situr hún í stjórn sjálf-
stæðisfélags Vestur-Húnavatnssýslu
og í stjórn Hvammstangadeildar
Rauða kross Íslands.
Fjölskylda
Eiginmaður Rakelar er Jóhann-
es Kári Bragason, f. 4.8. 1976, húsa-
smiður og starfrækir fyrirtækið Tveir
smiðir á Hvammstanga. Hann er
sonur Braga Arasonar, nú látinn,
vöruflutningabílstjóra, og Laufeyjar
Jóhannesdóttur sjúkraliða.
Börn Rakelar og Jóhannesar Kára
eru Karen Ásta Guðmundsdóttir, f.
20.4. 1998; Dagur Smári Kárason, f.
16.7. 1999; Aron Óli Kárason, f. 8.7.
2003.
Bróðir Rakelar er Birgir Runólfs-
son, f. 23.7. 1970, starfsmaður hjá
Glitni.
Foreldrar Rakelar eru Runólfur
Birgisson, f. 4.3. 1948, starfsmaður
við Fjármálasvið Reykjavíkurborg-
ar, og Hólmfríður Alexandersdóttir,
f. 2.6. 1948, starfar við umönnun við
þjónustuíbúðir aldraðra.
30 ára í dag
30 ára í dag