Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Blaðsíða 2
föstudagur 21. nóvember 20082 Fréttir
Þetta helst
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
Hækkandi stýrivextir, fallandi
króna, hærri skattar og nið-
urskurður í ríkisútgjöldum er
meðal þess sem búast má við
á næstunni. Þetta er meðal
þess sem kemur fram í leyniskjali
sem yfirvöld sendu Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum vegna lánsumsóknar
sinnar. Skjalið, sem undirritað er af
Árna Mathiesen fjármálaráðherra
og Davíð Oddssyni seðlabanka-
stjóra, birtist fyrst í DV og á dv.is síð-
asta mánudag. Fram að þeim tíma
hafði stjórnvöldum tekist að halda
skjalinu leyndu. Þar kemur meðal
annars fram að fyrrverandi yfir-
stjórnendur og helstu hluthafar í yfirteknu bönkunum, sem gerst
hafa sekir um afglöp í rekstri eða misnotkun á bönkunum, eiga ekki
að gegna sambærilegum störfum næstu þrjú árin.
LeyniskjöL Árna og Davíðs
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
dv.isbesta rannsóknarblaðamennska ársins
mánudagur 17. nóvember 2008 dagblaðið vísir 214. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
fréttir
fjölskylda fékk kött ungrar stúlku en ákvað að skila honum
endurheimti
köttinn sinn
LEYNIskjaL Davíðs og ÁrNa tIL IMF:
kaupþing
í hendur dana
SKJALIÐ
SEM VIÐ
MEgUM
EKKI SJAaðgerðaáætlun í 26 liðum
vilja hegna bankamönnum
en ekkert minnst á ráðamenn
við þurfum þrjár billjónir í lán
krónan gæti hrapað enn meira
ríkisstjórnin tafði imf-lánið
esB hótaði refsiaðgerðu
trÚnaðarmál
ríkið reynir að losa eignir
gillzenegger
gerist nörd
„mig langaði
að gráta“
fólk
Formaður Framsóknar-
flokksins kom öllum í
opna skjöldu við upphaf
þingfundar á Alþingi
þegar Sturla Böðvarsson,
forseti Alþingis, las upp bréf
þar sem hann tilkynnti afsögn
sína af þingi. Guðni Ágústsson
sendi á sama tíma bréf á sam-
starfsfólk sitt og lýsti því yfir að
hann væri hættur sem formað-
ur flokksins. Sjálfur vildi Guðni
engar skýringar gefa á því hvers
vegna hann er horfinn á braut.
Hann svaraði ekki fyrirspurnum
um starfslok sín og fór snemma
næsta dag í Leifsstöð og flaug þaðan til Kanaríeyja. Eins og kom fram
í DV hafði ferðalagið staðið til í einhvern tíma en Guðni ákvað að
framlengja það þegar hann hætti afskiptum af stjórnmálum.
guðni hættir og fer
Þriðjudagur 18. Nóvember 20088
Fréttir
Guðni Ágústsson
Guðni Ágústsson kom þingheimi og
þjóðinni í opna skjöldu í gær þegar
Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis,
tilkynnti við upphaf þingfundar að
Guðni hefði ákveðið að segja af sér
þingmennsku. Sjá mátti á andlitum
þingmanna að þeim var brugðið þeg-
ar Sturla Böðvarsson, forseti Alþing-
is, las upp bréfið frá Guðna þar sem
hann tilkynnti afsögn sína.
„Þetta er bara svona. Hann er bú-
inn að taka þessa ákvörðun. Ég virði
hana,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir,
nýr formaður Framsóknarflokksins, í
gær örfáum mínútum eftir að tilkynnt
var um afsögn Guðna. Þá sagðist hún
enga skýringu kunna á afsögninni.
Siv Friðleifsdóttir sagðist slegin við
tíðindin.
Eruð þið að elta okkur eða?
Guðni neitaði að ræða við DV í gær
um ástæður afsagnar sinnar. Blaða-
maður og ljósmyndari DV reyndu að
ná tali af Guðna á Selfossi en Mar-
grét Hauksdóttir, eiginkona Guðna,
sló skjaldborg um eiginmann sinn
þannig að hvorki náðist af honum
mynd né eitt einasta orð. „Eruð þið að
elta okkur eða? Hann bað kærlega að
heilsa ykkur en myndataka er ekki til
umræðu. Það eru til milljón myndir af
manninum,“ sagði Margrét við blaða-
mann og hélt Guðna í öruggu skjóli.
Þau hjónin voru að sögn Margrétar á
leið til dóttur sinnar og Margrét sagði
að einhvern tíma þyrftu þau að eiga
„prívat líf“.
Ákvörðun Guðna virðist falla
ágætlega í kramið hjá hans nánustu
og þannig skrifaði dóttir hans, Sigur-
björg Guðnadóttir, þetta á Facebook-
síðu sína í gær: „er sátt en líður samt
skringilega.“ Fyrir þetta kvittaði hún
svo með broskalli.
Guðni og Margrét þurfa ekki að
hafa miklar áhyggjur af ágangi fjöl-
miðla á næstu vikum þar sem þau
flugu í sólina á Kanarí snemma í
morgun að sögn Sturlu S. Þórðarson-
ar, vinar Guðna og fararstjóra á Kan-
aríeyjum. Þá staðfesti Klara Baldurs-
dóttir, eigandi Klörubars á Kanarí, í
samtali við DV í gærkvöldi að Guðni
væri væntanlegur. Guðni hefur í gegn-
um tíðina átt öruggt skjól á Klörubar
og fundir hans þar með framsókn-
arfólki eru vel þekktir og vinsælir. Ís-
lendingar í bænum hafa fyrir sið að
hittast á barnum á hverjum laugar-
dagsmorgni og að sögn Klöru eru
umræður oft heitar. Eftir að fréttist af
komu Guðna býst Klara við metmæt-
ingu en hún segir um 550 Íslendinga
búa á eyjunum.
Hverfur hægt og hljótt
Guðni forðaðist fjölmiðla í gær en
sendi þingmönnum Framsóknar-
flokksins bréf og af því að dæma er
ljóst að innanflokksátök hafa átt sinn
þátt í ákvörðun hans. Hann sagðist
hafa tekið við flokknum í erfiðri stöðu
og vonast til að byggja hann upp.
Hins vegar hafi ekki fengist starfsfrið-
ur til þess.
Þess er skemmst að minnast að há-
værar deilur urðu um forystu flokks-
ins á miðstjórnarfundi á laugardag.
Þar kröfðust ungliðar þess að skipt
yrði um forystu. Guðni reiddist gagn-
rýni þeirra mjög en baðst síðar afsök-
unar á orðum sem hann lét falla.
Bjarni Harðarson, sem sagði af
sér þingmennsku í síðustu viku og
var dyggasti stuðningsmaður Guðna,
segist hafa stutt ákvörðun þessa fyrr-
verandi formanns síns. „Ekki vegna
þess að mér hugnaðist þessi lending,
heldur ve na þess að ég tel að þær
aðstæður sem honum voru skapaðar
í flokknum hafi verið utan þess sem
hægt sé að leggja á nokkurn mann,“
sagði Bjarni á bloggsíðu sinni.
Ball með Örvari Kristjáns
Sturla S. Þórðarsson sagði í samtali við
DV að Guðni hefði hringt í sig í gær og
beðið hann um að framlengja áður
bókaða ferð til Kanarí um „nokkrar
vikur“. Sturla segir ekki ákveðið hve-
nær Guðni og Margrét haldi svo aft-
ur heim. „Hann ætlar bara að vera
hérna. Það er ekkert ákveðið en hann
ætlar ekki heim 26. nóvember eins og
hann gerði ráð fyrir.“ Sturla býst við að
í það minnsta 300 manns muni leggja
leið sína á Klörubar á laugardag-
inn. „Það hefur ekki stoppað hjá mér
síminn í dag og fólk spyr hvort hann
komi ekki örugglega á laugardaginn.
Það verður alveg kjaftfullt. Það verður
mikið fjör á fundinum og svo ball um
kvöldið með Örvari Kristjáns.“
Nýtur góðs af eftirlaunalögum
Guðni Ágústsson bætist nú í hóp
þeirra stjórnmálamanna sem greiddu
atkvæði með eftirlaunalögunum og
njóta góðs af þeim breytingum sem
þingið samþykkti þá. Guðni kemst
á eftirlaun um leið og biðlaunarétti
hans lýkur og eftirlaunin sem hann
fær eru hærri en þau hefðu verið
samkvæmt gömlu lögunum.
Samkvæmt gömlu eftirlaunalög-
unum hefði Guðni þurft að bíða til 65
ára aldurs eftir að fara á eftirlaun sem
ráðherra og hefði þurft að vera tvö ár
í viðbót á þingi til að geta farið strax á
eftirlaun við starfslok á Alþingi. Aðr-
ir þingmenn sem hafa notið góðs
af eftirlaunalögunum frá 2003 eru
meðal annarra fyrrverandi forsæt s-
ráðherrarnir Halldór Ásgrímsson og
Davíð Oddsson og ráðherrann Tóm-
as Ingi Olrich. Eftirlaun þeirra allra
hækkuðu við breytingarnar og þeim
var gert kleift að fara fyrr á eftirlaun
en ella. Davíð Oddsson sagði þegar
hann tók við starfi seðlabankastjóra
að hann ætlaði sér ekki að hefja töku
eftirlauna, aðrir hafa ekkert gefið út
um hvort þeir nýti sér eftirlaunarétt
sinn eða ekki.
Rífleg eftirlaun
Guðni á rétt á biðlaunum næsta hálfa
árið. Eftir það fer hann á eftirlaun.
Nú er hann með 843 þúsund krónur
í bein laun á mánuði sem þingmað-
ur og flokksformaður. Þar á ofan bæt-
ast ýmsar starfstengdar greiðslur, svo
sem vegna ferðalaga og starfskostn-
aðar. Eftirlaun hans munu hins vegar
nema 563 þúsund krónum á mánuði.
Guðni fær 60 prósent þingfararkaups
fyrir að hafa verið 20 ár á þingi og 48
prósent ráðherralauna vegna átta ára
ráðherraferils.
Eftirlaunin eru nær 20 þúsund
krónum hærri á mánuði en þau
hefðu verið samkvæmt þeim lögum
sem giltu áður en umdeild eftirlauna-
lög voru samþykkt rétt fyrir jól 2003.
Hann getur hins vegar hafið töku eft-
irlauna mun fyrr en ella hefði verið.
Reyndar er það svo að hann hefði
getað farið á eftirlaun fyrir um það
bil ári hefði kann kosið að hætta þá.
Og vegna eins umdeildasta ákvæð-
is þessarar lagasetningar sem hefur
sætt svo mikilli gagnrýni gæti Guðni
farið í annað starf en samt þegið eft-
irlaun. Þá skertust þau hins vegar um
30 prósent ef hann færi beint af bið-
launum og í aðra vinnu samhliða eft-
irlaunum.
LauN oG EftiRLauN GuðNa
bein laun nú 843.030 krónur
eftirlaunaréttur 563.215 krónurBRyNjóLfuR ÞóR GuðmuNdssoN
oG Boði LoGasoN
blaðamenn skrifa: brynjolfur@dv.is og
bodi@dv.is
„Ég tel að þær aðstæður sem honum voru sk
ap-
aðar í flokknum hafi verið utan þess sem hæ
gt sé
að leggja á nokkurn mann.“
SjálfSkipaður
Útlagi á kanarí
guðNi ágústssoN
í stjórNmálum
1949 Fæddur 9. apríl.
1972 Kosinn formaður Félags ungra fra
msóknarmanna í árnessýslu, gegnir
formennsku til 1975.
1979 Kosinn í kjördæmissamband fram
sóknarfélaganna á suðurlandi, gegnir
formennsku til 1986.
1980 Kosinn formaður sambands ungr
a framsóknarmanna 1980, gegnir
formennsku til 1982.
1987 Kosinn á þing í fyrsta sinn, gegnd
i þingmennsku þar til í gær.
1999 verðurlandbúnaðarráðherra, gegn
ir ráðherradómi til 2007.
2001 Kosinn varaformaður Framsóknar
flokksins, gegndi embættinu þar til á
síðasta ári.
2007 tekur við formennsku í Framsókn
arflokknum af jóni sigurðssyni eftir
ófarir Framsóknarflokksins í kosningum, g
egndi embættinu þar til í gær.
Guðni Ágústsson Hætti í pólitík á
ögurstundu í sögu þjóðarinnar og
Framsóknarflokksins og mun hafa það
náðugt á Kanaríeyjum næstu vikurnar.
Klara vertinn á Klörubar tekur
guðna fagnandi og gerir ráð fyrir
að dvöl guðna á Kanarí verði til
þess að auka viðskiptin.
2
Þingmenn geta
fengið 66.400
krónur mánað-
arlega til við-
bótar við laun í
nafni starfskostn-
aðargreiðslu, jafnvel
þótt enginn kostnað-
ur sé. Og þeir fá rúmar
sextíu þúsund krón-
ur í ferðakostnað þótt
þeir sitji heima. Ekki fæst uppgefið
á Alþingi hverjir þiggja þessa greiðslu né hvort einhverjir þiggi þær
án þess að skila nokkurn tíma reikningum vegna útlagðs kostnað-
ar. DV hafði samband við alla þingmennina, en 54 þeirra önsuðu
ekki spurningum. Þingmenn fá fleiri greiðslur sem þeir þurfa ekki
að framvísa reikningum fyrir. Helgi Hjörvar afsalaði sér starfskostn-
aðargreiðslum og segist þar hafa fylgt fordæmi Péturs Blöndal og
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um að fá aðeins endurgreiddan útlagðan
kostnað. Launakerfi Alþingis er fullt af aukagreiðslum og er þingfar-
arkaup allt niður í helming raunverulegra tekna þingmanna.
sporsLur þingmanna
fimmtudagur 20. nóvember 20082
Fréttir
Allir alþingismenn geta tekið sér rúm-
ar sextíu þúsund krónur á mánuði
vegna meints ferðakostnaðar, jafnvel
þótt þeir ferðist ekki neitt. Þeir fá líka
vel yfir sextíu þúsund krónur í starfs-
kostnað, jafnvel þótt kostnaðurinn
sé enginn. Þjóðin má hins vegar ekki
vita hvaða þingmenn taka sér þessi
dulbúnu laun af almenningi, vegna
þess að þetta eru “persónuupplýsing-
ar”, eins og þingið segir.
Leynilaun þingmanna
„Þetta eru bara dulbúnar launagreiðsl-
ur,“ segir Kristján Gunnarsson, for-
maður Starfsgreinasambands Íslands,
um greiðslur til þingmanna vegna
starfskostnaðar. Hver þingmaður á
lögbundinn rétt til þess að fá mánað-
arlega 66.400
krónur
til
viðbótar við föst laun og kallast þetta
starfskostnaðargreiðslur. Þingmönn-
um er þó í sjálfvald sett hvort þeir
skila inn reikningum til að sýna fram
á kostnaðinn.
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, tekur undir
orð Kristjáns. „Þetta eru ekkert annað
en launagreiðslur,“ segir hann.
Starfskostnaðargreiðslurnar eru
þó fjarri því einu föstu greiðslurnar
sem bætast við laun þeirra. Hver og
einn þingmaður fær greiddar 61.400
krónur í fastan ferðakostnað. Þetta
er óháð því hversu mikið þingmenn
ferðast vegna starfs síns og fyrir hvaða
kjördæmi þeir sitja. Við þetta bæt-
ist að þingmenn í landsbyggðarkjör-
dæmum fá greiddan húsnæðis- og
dvalarkostnað. Þær greiðslur nema
frá 30 þúsund krónum upp í 127 þús-
und krónur. Þeir sem fá hæstu greiðsl-
urnar halda tvö heimili. Þeir sem fá
lægstu greiðslurnar fá borgað
aukalega fyrir daglegar ferð-
ir milli heimilis og vinnu-
staðar.
Leynd á Alþingi
Á fjármálaskrifstofu
Alþingis fást ekki
upplýsingar um
hvaða þingmenn
skila inn reikning-
um og hverjir ekki.
Uppgefin ástæða er að
þetta séu persónuupp-
lýsingar um þing-
menn.
Kristján furðar sig á því fyrirkomu-
lagi. „Ef þetta eru kostnaðargreiðslur
getur það ekki verið neitt persónu-
legt. Ekki nema menn séu að nota
kostnaðargreiðslurnar til persónu-
legra nota,“ segir hann.
Skýrar reglur eru um greiðslur
vegna starfskostnaðar. Þeir þingmenn
sem fá þær sem fasta greiðslu borga
af þeim skatt en ef reikningar koma til
eru þær skattfrjálsar.
Vilhjálmi finnst miður að Alþingi
upplýsi ekki hvaða þingmenn nýta
sér hvora leið fyrir sig. „Slíkt á ekki
að vera neitt leyndarmál í mínum
huga. Ég myndi vilja að launagreiðsl-
ur þingmanna væru algjörlega gegn-
sæjar en ekki með þeim hætti að erf-
itt sé að átta sig á því hver laun þeirra
eru nema sökkva sér ofan í rannsókn-
arvinnu,“ segir hann.
„Hluti af launakjörum“
Vegna þeirrar leyndar sem ríkir á Al-
þingi um tilhögun greiðslna til ein-
stakra þingmanna sendi blaðamaður
DV öllum 63 þingmönnunum tölvu-
póst í fyrradag og spurði út í
þær. Aðeins níu svöruðu.
Ellert B. Schram, þing-
maður Samfylkingar-
innar, er einn þeirra.
„Starfskostnaðar-
greiðslur eru hluti
af launakjörum al-
þingismanna,“ seg-
ir hann aðspurð-
ur hvort hann líti
á greiðslurnar sem
laun. Kolbrún
Halldórsdótt-
ir, þingmaður
vinstri-grænna,
er á sama máli.
„Já, ef þing-
maður hefur
ekki kostnað af
starfi sínu sem fellur undir reglur um
starfskostnað er hann launagreiðsla,“
segir hún.
Katrín Jakobsdóttir, þingmað-
ur vinstri-grænna, segir að hjá þeim
sem þiggja fasta greiðslu án þess að til
komi reikningar hljóti starfskostnað-
argreiðslan að teljast sem laun.
Svo ég geti unnið
vinnuna mína
Jón Magnússon, þingflokksformað-
ur Frjálslynda flokksins, tekur spurn-
ingunni með meiri fyrirvara: „Það
er í sjálfu sér ekki mitt að túlka það.
Miðað við reglur skattayfirvalda er
sá starfskostnaður sem ekki er skilað
inn reikningum fyrir skattlagður sem
tekjur,“ segir Jón.
Guðbjartur Hannesson, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, segir: „Ég lít á
starfskostnað sem hluta af kjörum til
að gera mér kleift að vinna mitt starf
án þess að bera af því kostnað.“
Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins, segist ekki líta á starfs-
kostnaðargreiðslurnar sem launa-
greiðslur. Helgi Hjörvar, þingmaður
Samfylkingarinnar, er á sama máli.
Hans svar er einfalt: „Nei.“
Hlutabréfaeign aðgengileg
Tekið skal fram að á vefsíðu Vinstri
hreyfingarinnar - græns framboðs má
finna upplýsingar um tekjur og eign-
ir allra þingmanna flokksins, þar með
talin hlutabréfaeign, hlunnindi og
hagsmunatengsl. Hjá hverjum og ein-
um þeirra kemur fram að þeir þiggi
66.400 krónur vegna starfskostnaðar.
Helga Sigrún Harðardóttir, sem
er nýsest á þing fyrir Framsóknar-
flokkinn, svaraði einnig DV en sagði
að þar sem hún væri aðeins búin að
sitja á þingi í viku væri hún ekki búin
að ganga frá hvernig hún myndi haga
starfskostnaðargreiðslum.
Framvísar alltaf reikningum
Helgi sker sig úr hópi þeirra fáu þing-
manna sem svöruðu DV að því leyti
að hann fær starfskostnaðargreiðsl-
urnar ekki greiddar að nokkru leyti
án þess að skila inn reikningum. Ef
reikningarnir ná ekki 66.400 krónum
yfir mánuðinn fær hann mismuninn
ekki greiddan.
Aðrir
þingmenn
segja
misjafnt
hvort
þeir skili
inn reikn-
ingum en
allir fá þeir
greiðsluna.
Helgi seg-
ir að fyrstu
árin sín sem
þingmaður hafi
hann haft ann-
an háttinn á. „Þá
fékk ég þetta
greitt sem laun
en komst að
því að nokkr-
ir þingmenn,
þeirra á
meðal Guð-
laugur Þór
Þórðarson og Pétur Blöndal, tóku að-
eins við greiðslum vegna kostnaðar.
Mér fannst fara betur á því og ákvað
að fara að þeirra fordæmi. Þetta er
nokkuð sem ég ákvað fyrir mig og fel-
ur ekki í sér gagnrýni á þá sem fara
aðrar leiðir,“ segir hann.
Flestir þeirra þingmanna sem svör-
uðu DV vísa í reglur um starfskostn-
aðargreiðslur þegar þeir eru spurðir
um hvort þeir telji greiðslurnar vera
einkamál hvers þingmanns. Kolbrún
Halldórsdóttir tekur þó alfarið fyrir að
um einkamál sé að ræða: „Nei. Þess
vegna svara ég þessum spurningum
með glöðu geði,“ segir hún í svari til
blaðamanns. Atli Gíslason, þing-
maður vinstri grænna, er henni sam-
mála: „Nei. Ég vil hafa þetta allt uppi
á borðinu og gegnsætt.“
Verkafólk borgar skatt
Kristján Gunnarsson bendir á að al-
mennu verkafólki sé gert að borga
skatta af öllum greiðslum frá vinnu-
veitanda sem bætast ofan á laun.
Honum finnst að sama eigi að gilda
um þingmenn, jafnvel þótt þeir geti
sýnt fram á kostn-
að með reikning-
um. „Menn eru
að koma sér hjá
því að borga af
þessu skatta og
skyldur eins og
aðrir í þjóðfé-
laginu,“ segir
Kristján enda
lítur hann á
greiðslurnar
sem laun.
Jón
Magnússon
varpar fram
hugmynd
að breyttu
fyrirkomu-
lagi starfs-
kostnaðar-
greiðslna.
„Þá er jafn-
vel spurn-
ing hvort
DULBÚIN LAUN ÞINGMANNA
erLA HLynSdóttir og
brynjóLFur þór guðmundSSon
blaðamenn skrifa: erla@dv.is og brynjolfur@dv.is
Viðbótargreiðsla allir þingmenn geta fengið 66.400 krónur mánaðarlega ofan á föst laun. upphæðin á að nýtast í kostnað vegna starfsins.
nýkomin Helga
Sigrún Harðardóttir er
nýsest á þing og hefur
ekki ákveðið fyrirkomu-
lag starfskostnaðar-
greiðslna.
mynd Sigtryggur Ari
ekkert einkamál
Kolbrúnu Halldórsdóttur
finnst það ekki einkamál
þingmanna hvernig
greiðslum vegna
starfskostnaðar er háttað.
mynd Vg
Hluti af launum
ellert b. Schram lítur á
starfskostnaðar-
greiðslur sem hluta af
launakjörum
þingmanna.
mynd SteFÁn KArLSSon
Sker sig úr Helgi Hjörvar
hafnar greiðslum vegna
starfskostnaðar nema hann
hafi skilað inn reikningum.
Hann segist hafa ákveðið fyrir
sig að fara þá leiðina.
mynd SAmFyLKingin
Allt aðgengilegt Katrín Jakobsdóttir bendir á að upplýsingar um laun, eignir, hlutafé og hlunnindi þingmanna vinstri-grænna séu á netinu.
mynd Vg
Þingmenn og ráðherrar búa við ríflegan biðlauna- og eftirlaunarétt. Þannig eiga þeir rétt á allt að hálfs árs biðlaunum eftir
að þeir láta af störfum. Þar að auki eiga þeir rétt á eftirlaunum samkvæmt umdeildum eftirlaunalögum sem þingið samþykkti á aðventunni árið 2003. Samkvæmt þeim geta eftirlaunin orðið hæst 879 þúsund krónur og eiga þá forsætisráð-
herrar í hlut.
ef litið er til þeirra þingmanna sem hafa hætt á þingi núna nýlega sést afdrif þeirra eru mjög ólík. guðni Ágústsson fær þannig sex mánaða biðlaun og eftirlaun sem nema að lágmarki 580 þúsund krónum á mánuði með hliðsjón af því að hann
sat 21 ár á alþingi, var ráðherra í átta ár og nefndarformaður í nokkur ár þar á undan. bjarni Harðarson hættir hins vegar á al-
þingi eftir mun skemmri starfsferil og það hefur sín áhrif. vegna þess að bjarni sat ekki á þingi heilt kjörtímabil á hann ekki
rétt á biðlaunum. eftirlaun hans fyrir að hafa unnið eitt og hálft ár á alþingi nema 4,5 prósentum af þingfararkaupi eða 25
þúsund krónum á mánuði. talsverður munur er á hvenær bjarni og guðni geta hafið töku eftirlauna. guðni getur gert það
um leið og hann hættir á biðlaunum, eða eftir hálft ár. bjarni verður hins vegar að bíða í nítján ár eftir að geta hafið töku eftirlauna.
eftirlaunaréttur margra batnaði til mikilla muna með samþykkt eftirlaunalaganna. einkum batnaði hagur forsætisráðherra. eftirlaunaréttur davíðs Oddssonar hækkaði um tæpar fjögur hundruð þúsund krónur á mánuði. eftirlaunaréttur Halldórs Ásgrímssonar hækkaði um 270 þúsund krónur. núverandi forystumenn ríkisstjórnarinnar njóta báðir góðs af breytingun-um frá 2003. vegna nýs kafla um eftirlaun forsætisráðherra fengi geir, ef hann hætti í dag tæpar 770 þúsund krónur í eftirlaun á mánuði, það er 205 þúsund krónum meira en hann hefði fengið samkvæmt gömlu lögunum. ingibjörg Sólrún fengi 196 þúsund krónur á mánuði, 29 þúsund krónum meira en gömlu lögin hefðu fært henni. Hér er sem fyrr segir miðað við það sem þau hafa þegar unnið sér inn. ef ríkisstjórnin situr út kjörtímabilið og verður ekki við kröfum um að kjósa að nýja hækka eftirlaun beggja. Þá yrði hagur geirs af lagabreytingunni 2003 um 270 þúsund krónur á mánuði.
Rífleg biðlaunog eftiRlaun
eftiRlaunin þeiRRa hækkuðu um...
davíð Oddsson 392 þúSund
Halldór Ásgrímsson 268 þúSund
geir H. Haarde 205 þúSund
Halldór blöndal 86 þúSund
ingibjörg Sólrún gísladóttir 29 þúSund
guðni Ágústsson 27 þúSund
tómas ingi Olrich Gat farið beint á eftirlaun
„Ef þetta eru kostnaðar-
greiðslur getur það ekki
verið neitt persónulegt.“
fimmtudagur 20. nóvember 2008 3
Fréttir
FALIN LAUN ÞINGMANNABeinar launagreiðslur
Þingfararkaup 562.020formannsálag 281.010varaforseti alþingis 84.301formenn þingflokka 84.301nefndarformaður 84.301varanefndarformaður* 56.020*varaformenn fjárlaganefndar
og utanríkismálanefndar fá álag fyrir störf sín.
Fastar greiðslur
Húsnæðis- og dvalarkostnaður, 2 heimili* 126.980Húsnæðis- og dvalarkostnaður * 90.700Húsnæðis- og dvalarkostnaður,
daglegar ferðir* 30.233fastur ferðakostnaður 61.400Starfskostnaður 66.400
*Þingmenn fyrir landsbyggðarkjördæmi fá greiddan húsnæðis- og dvalarkostnað.
**Þingmenn fyrir landsbyggðarkjördæmi sem búa utan höfuðborgarsvæðis og fá greitt sérstaklega fyrir daglegar ferðir til þings fá greiddan þriðjung af húsnæðis- og dvalarkostnaði.
Þingmenn fá tölvu til afnota utan skrifstofu sinnar.Þingmenn á ferðum erlendis fá greiddan hótelkostnað og áttatíu prósent dagpeninga.
Þingmenn fá greiddan ferðakostnað fyrir ferðir á fundi og samkomur sé ferðast meira en 15 kílómetra hvora leið.Þingmenn fá endurgreiddan ferðakostnað milli heimilis/starfsstöðvar og alþingis. Þó með takmörkunum ef þingmaður fær greitt fyrir húsnæðis- og dvalarkostað.ferðakostnaður á fundi í öðrum kjördæmum er endur-greiddur.
ferðist þingmaður með flugi skal greitt fyrir flug og leigubíl. ferðist þingmaður á eigin bíl er greitt kílómetragjald.Þingmenn geta fengið bílaleigubíl ef það er hagkvæmara en að þeir noti eigin bíl.
greiða má gistikostnað í kjördæmi við sérstakar aðstæður þó þingmaður fá greitt vegna húsnæðis- og dvalarkostnað-ar.
eigi þingmaður húsnæði í kjördæmi sínu sem hann leigir út eða leyfir börnum sínum afnot af fær hann ekki greitt vegna húsnæðis- og dvalarkostnaðar.
alþingi greiðir allan kostnað við skrifstofurekstur. Líka er borgað fyrir farsíma og heimasíma. Þingmenn fá dagblöð send heim eða á skrifstofu og eiga rétt á að fá greidda áskrift að allt að þremur héraðsfréttablöðum. brynjolfur@dv.is
lægstu Föstu greiðslurÞingfararkaup 562.020fastur ferðakostnaður 61.400Starfskostnaður 66.400
samtals: 689.820
Hæstu Föstu greiðslurÞingfararkaup 562.020flokksformaður 281.010Húsnæðis- og dvalarkostnaður,
2 heimili 126.980fastur ferðakostnaður 61.400Starfskostnaður 66.400
samtals: 1.097.810
689.820
1.097.810
ekki sé eðlilegra að hafa þann hátt á
að afnema starfskostnaðargreiðsl-
ur en taka tillit til áætlaðs starfs-
kostnaðar í þingfararkaupi,“ segir
hann.
Þingmenn fengu í ágúst þriðju
launahækkunina á rúmu ári sam-
kvæmt ákvörðun kjararáðs. Hækk-
unin var afturvirk um fjóra mánuði. Þá hækkuðu laun þeirra um 20.300 á mánuði og fengu þeir eingreiðslu að upphæð 81.200 krónur vegna aftur-
virkninnar.
DV leitaði einnig eftir upp-
lýsingum hjá Alþingi um
kostnað við aðstoðar-
menn þingmanna.
Þau svör fengust að
ekki hefði enn ver-
ið tekinn saman
kostnaður vegna
hvers og eins að-
stoðarmanns.
ekki launatengt Ásta
möller telur greiðslur
vegna starfskostnaðar
ekki vera hluta af launum.
mynd Ásgeir m. einarsson
sameinaðar launum Jón
magnússon leggur til að
greiðslur vegna starfskostnaðar
verði sameinaðar þingfararkaupi.
mynd Karl Petersson
Vel nýtt guðbjartur Hannesson
segir lítinn ef nokkurn afgang vera
af starfskostnaðargreiðslunni sem
ekki fari í beinan kostnað.
mynd Karl Petersson
D arnbjörg Sveinsdóttir
864.823V atli gíslason
720.053S Ágúst ólafur Ágústsson
774.123V Álfheiður ingadóttir
689.820D Ármann Kr. ólafsson
689.820S Árni Páll Árnason
746.022D Árni Johnsen
780.520D Árni m. mathiesen
1.211.012V Árni Þór Sigurðsson
689.820S Ásta r. Jóhannesdóttir
774.123D Ásta möller
774.123D birgir Ármannsson
774.123B birkir J. Jónsson
780.520D bjarni benediktsson
774.123S björgvin g. Sigurðsson
1.211.012B björk guðjónsdóttir
720.053D björn bjarnason
1.120.312D einar K. guðfinnsson
1.247.292S einar már Sigurðarson
864.823S ellert b. Schram
689.820B eygló Harðardóttir
780.520D geir H. Haarde
1.226.008F grétar mar Jónsson
720.053S guðbjartur Hannesson
804.356D guðfinna S. bjarnadóttir
689.820F guðjón arnar Kristjánsson 1.061.530D guðlaugur Þór Þórðarson 1.053.912S gunnar Svavarsson
774.123B Helga Sigrún Harðardóttir 780.520S Helgi Hjörvar
707.723D Herdís Þórðardóttir
720.053B Höskuldur Þórhallsson
780.520S illugi gunnarsson
689.820S ingibjörg Sólrún gísladóttir 1.120.312S Jóhanna Sigurðardóttir 1.120.312V Jón bjarnason
780.520D Jón gunnarsson
689.820F Jón magnússon
774.123S Karl v. matthíasson
720.053V Katrín Jakobsdóttir
689.820S Katrín Júlíusdóttir
774.123D Kjartan ólafsson
864.823V Kolbrún Halldórsdóttir
689.820F Kristinn H. gunnarsson
864.823D Kristján Þór Júlíusson
836.722S Kristján L. möller
1.247.292S Lúðvík bergvinsson
864.823B magnús Stefánsson
780.520D ólöf nordal
864.823D Pétur H. blöndal
707.723D ragnheiður e. Árnadóttir 689.820D ragnheiður ríkharðsdóttir 774.123D Sigurður Kári Kristjánsson 774.123B Siv friðleifsdóttir
774.123V Steingrímur J. Sigfússon 1.061.530S Steinunn valdís óskarsdóttir 774.123D Sturla böðvarsson
1.061.530B valgerður Sverrisdóttir
1.061.530D Þorgerður Katrín gunnarsdóttir 1.120.312S Þórunn Sveinbjarnardóttir 1.120.312V Þuríður backman
864.823V Ögmundur Jónasson
774.123S Össur Skarphéðinsson
1.120.312
LAUN ÞINGMANNA
3
* Töffari á Akureyri
* Skítafýlubombur í Borgarbíói
* Mætti með saltfiskinn á ballið
* Rakvélablöðin borðuð með bestu lyst
* Lás opnaður með augnaráðinu
* Náði úrum, veskjum og brjósthaldara
* Uppskurður með berum höndum
* Morðhótun
* Löggubíl ekið undir áhrifum
* Hjartastopp í sjónvarpsviðtali
holar@simnet.is – www.holabok.is
Einlæg,
áhugaverð, fyndin,
átakanleg!
Pattaralegi skógarkötturinn sem
Davíð strauk og talaði blíðlega við
eitt kvöldið eftir vinnu heitir Eldi-
brandur og kemur frá Noregi. Hann
er innfluttur eðalköttur sem heit-
ir fullu nafni Aliosha’s Eldibrand
Fortranson og er ættfaðir margra
hreinræktaðra skógarkatta. Hann
er sýningarköttur, mjög vel þekktur,
vinsæll og með sögu. Eldibrandur er
því að mörgu leyti líkur vini sínum
Davíði Oddssyni.
Eldibrandur býr í Skerjafirðinum
líkt og Davíð en þeir kynntust fyrir
nokkrum árum. Þá var Eldibrandur
í miðju heilsuátaki og gekk ágætlega
eða allt þar til vegir hans og Davíðs
mættust. Davíð er nefnilega mik-
ill kattavinur og á það til að dekra
við kettina í hverfinu. Eldibrandur
komst upp á lagið hjá Davíð, fékk
dýrindis gúmmelaði og harðfisk í
hvert mál. Hann hætti því að taka
þátt í heilsuátakinu heima hjá sér
og beið þess í stað eftir því að Davíð
sneri heim frá vinnu.
Vel upp alinn
„Eldibrandur veit hjá hverjum hann
á að komast í mjúkinn,“ segir Mar-
grét Birna Garðarsdóttir, eigandi
Eldibrands.
„Heldurðu að þetta sé ekki vel
upp alið hjá mér? Annars kom það
mér ekkert á óvart að hann væri í
heimsókn hjá Davíð. Fyrir einhverju
átti Eldibrandur að fara í smá heilsu-
átak heima hjá sér og var því settur í
megrun. Honum líkaði það eitthvað
illa, fór og klagaði mig í Davíð og
frú og komst að því að þau lumuðu
á ansi góðum skyndibitamat. Hann
var því farinn að fá harðfisk í öll mál
og gerðist daglegur gestur heima hjá
þeim. Ég held að þau hafi ekki náð
að losa sig við hann síðan,“ segir
Margrét Birna og bætir við: „Það er
engin kreppa hjá Eldibrandi.“
Styður Davíð
Margrét Birna segir Davíð eiga tvo
stuðningsmenn á sínu heimili en
það er sonur hennar og síðan Eldi-
brandur. „Þeir tveir styðja Davíð
fram í rauðan dauðann. Það má ekki
hallmæla Davíð í þeirra eyru,“ segir
Margrét Birna og hlær.
Félagar í Skógarkattaklúbbi Ís-
lands ræddu á spjallþræði klúbbsins
um vinabönd Davíðs og Eldibrands
en þar vonuðu bæði karlar og konur
að kötturinn hefði góð áhrif á Dav-
íð. Sumir vildu þó meina að flokks-
hollustan væri ofar öllu í Skerjafirð-
inum á meðan aðrir vildu meina að
Eldibrandur vildi öllum vel, meira
að segja Davíð Oddssyni.
Á meðan öll spjót standa á Davíð
getur hann stólað á stuðning þeirra
katta sem búa í hverfinu en sam-
kvæmt heimildum DV eru þeir ansi
margir sem heimsækja Davíð og frú
reglulega. Margrét Birna slær á létta
strengi og segir Eldibrand „töku-
barn“ þeirra hjóna.
Kattavinur af guðs náð
„Eldibrandur er í fóstri í Skerja-
firðinum því ég fór í smá viðhald á
húsinu mínu og bý þar ekki eins og
staðan er í dag. Hann fékk að vera í
fóstri hjá nágranna Davíðs á með-
an ég flutti tímabundið að heiman.
Þau Davíð og Ástríður sjá um hann
til móts við nágrannakonuna,“ segir
Margrét Birna og hlær.
„Ég held að hann fái ekki enn-
þá að gista uppi í rúmi hjá þeim
en hann reynir það samt alltaf.
Þau hjón tóku að sér flækingsgrey
í hverfinu og skutu yfir það skjóls-
húsi. Þá varð Eldibrandur að sætta
sig við það að fá ekki að koma inn.
Hann gúdderar Eldibrand fyr-
ir utan en ekki inni,“ segir Margrét
Birna sem veit sitthvað um katta-
vininn hann Davíð.
„Davíð á þetta til gagnvart kött-
unum og hann er mikið fyrir þá.
Hann hænir þá að sér alveg ósp-
art þarna í hverfinu. Þetta er mjög
viljasterkur köttur en Davíð er ef-
laust vanur því.“
Skógarkötturinn sem tók á móti Davíði Oddssyni
seðlabankastjóra eftir erfiðan vinnudag er vafalaust orðinn fræg-
asti kötturinn á Íslandi. Hann heitir Eldibrandur og á sér mikla
sögu líkt og vinur hans seðlabankastjórinn. Davíð er mikill katta-
vinur og hefur alltaf gefið köttum í hverfinu góðgæti. Það mun þó
hafa eyðilagt megrun Eldibrands sem vill ekki sjá heilsufæðið á
sínu heimili heldur sækist frekar í harðfiskinn hjá Davíð.
Davíðs
Besti vinur
hitt málið
„Það kom mér ekkert
á óvart að hann væri í
heimsókn hjá Davíð.“
Atli Már GylfASOn
blaðamaður skrifar: atli@dv.is
talaði við Eldibrand blaðamaður dv
sem reyndi að ná tali af davíð fékk engin
svör. davíð nýtti tímann í að klappa
eldibrandi og tala blíðlega til hans.
MynDir SiGtryGGur Ari
Eldibrandur Hér ásamt syni
margrétar birnu. eldibrandur er
einn af betri „vinum“ davíðs.