Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Blaðsíða 16
ir tveimur árum. Geir er alinn upp í Vesturbænum, gekk í Vesturbæjar- skóla, Melaskóla, Hagaskóla og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík. Systkini Geirs eru Bernhard, bankastarfsmaður, sem lést 1962, og Steindór Helgi, byggingaverkfræð- ingur og dósent við HR, sem er ellefu árum eldri en Geir. Hálfsystir Geirs samfeðra var Lilly Kinn, húsmóðir í Noregi, sem lést 1995. Geir er kvæntur Ingu Jónu Þórð- ardóttur, viðskiptafræðingi og fyrr- verandi oddvita Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. Þau eiga tvær dætur saman, Helgu Láru, 24 ára, og Hildi Maríu, 19 ára. Inga Jóna átti fyrir son- inn Borgar Þór Einarsson sem hefur gegnt formennsku í Sambandi ungra sjálfstæðismanna. Geir býr ásamt Ingu Jónu og yngstu dótturinni í ein- býlishúsi við Granaskjól í Reykjavík. Fyrri kona Geirs var Patricia A. Mistretta Guðmundsson húsmóðir sem er fædd og uppalin í Frakklandi. Henni kynntist Geir á námsárunum í Bandaríkjunum. Börn Patriciu og Geirs eru Ilia Anna, sem er rúmlega þrítug, og Sylvia sem er fædd 1981. Patricia er í dag gift öðrum Íslendingi og eru hún og dæturnar búsettar hér á landi. Samband Geirs við Patriciu, Iliu Önnu og Sylviu ku afar gott. Aðvaranir að utan Mismunandi skoðanir eru á því hvernig Geir hefur staðið sig í þeim efnahagsþrengingum sem nú herja á þjóðina. Stjórnarandstaðan hefur bent á að viðvörunarljósin hafi verið farin að blikka fyrir löngu og að rík- isstjórnin og Seðlabankinn hafi ekki hlustað á aðvaranir erlendra aðila. 16. janúar í fyrra sögðu sérfræðing- ar hjá fjármálafyrirtækinu Merrill Lynch & CO að fjárfestar gætu far- ið að selja íslenskar krónur og að hætta væri á harðri lendingu í hag- kerfinu. „Ég myndi fara afar var- lega í að halda í íslenskar krónur,“ sagði Emma Lawsson, sérfræðing- ur Merrill Lynch, í viðtali við frétta- stofuna Bloomberg. Lawson sagði að krónan væri of hátt skrifuð miðað við viðskiptahallann. Geir forsætisráðherra sagði á sama tíma nýjustu spár sérfræðinga fjármálaráðuneytisins benda til þess að viðskiptahallinn myndi lækka hratt á næstunni. „Útlitið er ekk- ert slæmt,“ sagði Geir. „Myndarleg styrking krónunnar í dag og hækk- un hlutabréfa benda til þess að botn- inum sé náð,“ sagði Geir H. Haar- de forsætisráðherra svo í umræðum um efnahagsmál á Alþingi 31. mars 2008. New York Times furðaði sig á því í október síðastliðnum hversu rólegur Geir væri í þeim ólgusjó sem íslenskt efnahagslíf siglir í gegnum þessa dag- ana. „Sem betur fer erum við að sigla í gegnum stærsta vandann,“ er haft eftir Geir og sagt að vandamálin sem nú þurfi að leysa séu tiltölulega fá. New York Times segir að svo geti farið að Ísland verði fyrsta fullvalda ríkið til að verða lausafjárkreppunni að bráð. Engin önnur leið sé fær en að leita á náðir Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins þar sem staða Íslands sé orðin það slæm að það sé nánast orðin gjaldþrota. Mótmælin magnast Almenn ánægja virðist ríkja um störf Geirs þrátt fyrir gríðarlega erfiða stöðu i þjóðfélaginu. Blaðamaður- inn Andy Jordan fjallaði um ástand- ið á Íslandi í vikunni á vefriti í The Wall Street Journal: „Hvar er Geir forsætisráðherra spyrja þau,“ segir Andy Jordan í upphafi fréttar sinn- ar þar sem hann fjallar um röð mót- mæla á Íslandi undanfarið þar sem fólk hefur mótmælt núverandi efna- hagsástandi. Á myndbandinu er fjöldi fólks að kasta eggjum í þing- húsið og spyrja um forsætisráðherr- ann. Andy segir þó yfirleitt ekki erf- itt að finna Geir þar sem hann gangi daglega í og úr Alþingishúsinu í fylgd lífvarða sinna. Andy tekur fram að það sé svolítil yfirlýsing í því fólg- in að ganga í fylgd lífvarða á Íslandi þar sem Stjórnarráðið sjálft, sem líkja mætti við Hvíta hús Bandaríkj- anna, standi ávallt óvarið á götu- horni. Geir H. Haarde fór í viðtal við Wall Street Journal og Andy ræddi við hann. Fréttamaðurinn færir sig úr þvögu mótmælanna og inn í Stjórnarráðið þar sem Geir svarar nokkrum spurn- ingum hans. „Þetta er nokkuð sem við verðum að gera, við erum í stöðu sem er ekki á valdi okkar, hin alþjóð- lega fjármálakreppa snertir okkur mjög djúpt. Og við erum þannig séð fórnarlömb aðstæðna. Íslendingar hafa gengið í gegnum mikla erfiðleika áður, bæði af völdum náttúruham- fara, einnig vegna fjármálakreppna. Við höfum alltaf komist í gegnum það, við höfum alltaf sigrast á því og það munum við gera núna,“ segir Geir við Wall Street Journal á meðan augu heimsins beinast að þjóðinni. Blaðamaðurinn færir sig aftur út á göturnar þar sem mótmælin magn- ast með hverri vikunni. Undarlegt svar við fyrirspurn Svarið sem frjálshyggjumaðurinn Arnar Sigurðsson fékk frá Geir fyr- ir nokkrum árum, við fyrirspurn um rekstur þjóðarbúsins í miðjum stór- iðjuframkvæmdum, verður vart skil- greint öðruvísi en hrokafullt. Í það minnsta var það afar undarlegt og snubbótt. Þá sagði forsætisráðherr- ann, sem þá var fjármálaráðherra, að sér þætti leitt að hann skyldi vilja tala við hann því sjálfur hefði hann engan áhuga á að tala við Arnar. „Ég sendi fyrirspurnina í kring- um árin 2001 eða 2002,“ sagði Arn- ar í viðtali við DV í apríl á þessu ári en fyrirspurnir snerist um þensluá- hrif vegna Kárahnjúkavirkjunar. Í að- draganda stóriðjuframkvæmdanna óskaði hann eftir viðtali við Geir en þá lék Arnari forvitni á að vita hvern- ig hann hygðist haga ríkisfjármálum til að vinna á móti fyrirsjáanlegum þensluáhrifum. Áhrif sem bersýni- lega komu í ljós fyrr á þessu ári. Arn- ar fékk svar um hæl frá fjármála- ráðherranum þar sem stóð orðrétt: „Sæll Arnar, mér þykir leiðinlegt að þú skulir vilja tala við mig því ég hef engan áhuga á að tala við þig.“ Vandaður maður Steingrímur J Sigfússon, formaður vinstri-grænna, hefur gagnrýnt ríkis- stjórn Geirs mikið undanfarið. Hann segir ummæli hans í janúar þess efn- is að botninum væri náð vera dæmi um lélegt stöðumat eða andvara- leysi. Hann tekur fram að fundirn- ir sem haldnir hafi verið í kjölfarið í Danmörku og Bandaríkjunum til þess að eyða misskilningnum um íslenska hagkerfið hafa verið hjákát- lega. „Stjórnmálamaðurinn Geir er vandaður og velviljaður maður en kannski ekki endilega sá sterki for- ingi sem maður hefði getað hugsað sér að hafa í þessari sterku glímu,“ segir hann. Steingrímur segir að það megi spyrja sig þeirrar spurning- ar hvort forsætisráðherra hafi verið nógu kraftmikill og fastur fyrir und- anfarið. Hann vill þó ekki taka Geir út úr myndinni og einblína á hann heldur bendir hann á það að hon- um finnist fólkið sem sitji í ríkisstjórn einfaldlega of veikt. Steingrímur seg- ir Geir vera þægilegan í samskiptum. Aðgerða- og andvaraleysi Steingrímur segir risavaxin verkefni hafa borið á hendur manna og erf- ið staða sé fram undan. „Geir hefur alveg haldið haus í gegnum þetta og reynt sitt besta og verður ekkert sak- aður um að hafa ekki reynt að sinna þessum verkum. En mér finnst þó að verkstjórnin og forystan í þessu hafi verið veiklulegri en maður hefur vilj- að sjá,“ segir hann. Steingrímur seg- ir vanda Geirs stundum vera þann að hann virðist einungis halla sér að einni leið eða einum kosti. „Ég myndi ekki lýsa Geir sem hugmyndaríkum og skapandi stjórn- málamanni. Heldur sem velviljuð- um,“ segir Steingrímur sem finnst skorta á það að staðan sé greind og fleiri möguleikar skoðaðir. Varð- andi ríkisstjórnina sem situr í um- boði Geirs segir Steingrímur hana ábyrga fyrir aðgerða- og andvara- leysi. Varðandi það hvort Geir hafi sagt ósatt eins og þegar hann tjáði blaðamönnum að engir krísufundir væru í gangi þegar seinna kom í ljós að það hefði augljóslega verið segist föstudagur 21. nóvember 200816 Helgarblað Ríkisstjórnartilhugalífið Það fór vel á með geir og Ingibjörgu sólrúnu gísladóttur, formanni samfylkingarinn- ar, þegar þau mynduðu núverandi ríkisstjórn eftir kosningarnar 2007. MYND GúNDi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.