Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Blaðsíða 42
föstudagur 21. nóvember 200842 Matur & vín
KöKusKreytingar Í nýjasta tölublaði gest-
gjafans má finna viðtal við sonju b. guðfinnsdótt-
ur, móður, lyfjafræðing og kökuskreytingarkonu
með meiru. sonja hefur stofnað glæsilega vef-
síðu þar sem hún sýnir afrakstur sinn og deilir
uppskriftum og hugmyndum með lesend-
um. Áhugasamir ættu endilega að kíkja á þessa
skemmtilegu síðu, cakedecoideas.com.
umsjón: kolbrún pÁlÍna helgadóttir, kolbrun@dv.is
umsjón: sigríður björk bragadóttir
mynd: karl petersson
Hver man ekki eftir þessari?
aðaltertan í hverju boði og hún var til í
mismunandi útgáfum á hverju heimili.
amma setti oft berjamauk líka á milli
botnanna svo og makkarónukökur, rifið
súkkulaði og stundum vanillukrem ef
vel lá á henni, það fannst mér ótrúlega
gott. síðan var hún listilega skreytt,
rjómanum sprautað með rjómasprautu
upp með hliðunum, ananassneiðar
látnar mynda blómamynstur ofan á og
eldrauð kirsuber á völdum stöðum. vá!
hvað manni fannst þetta flott. Ásamt
þessari dýrindis veislutertu má finna
margar gamlar og góðar uppskriftir í
bland við nýjar í glæsilegu nýútkomnu
kökublaði gestgjafans.
uppsKrift fyrir 10 til 12
n 4 egg
n 180 g sykur
n 70 g kartöflumjöl
n 70 g hveiti
n 1 tsk. lyftiduft
n 1 tsk. vanilludropar
n 60 g smjör brætt og kælt
hitið ofninn í 200°C. Þeytið saman egg
og sykur þar til blandan verður ljós og
létt. besta útkoman verður ef eggin eru
ekki köld og eggjamassinn er þeyttur
saman í 5-10 mín. sigtið kartöflumjöl,
hveiti og lyftiduft út í og blandið
varlega saman við með sleikju. bætið
vanilludropum og smjöri saman við. Það
er ekki nauðsynlegt að hafa smjör í
kökubotnunum en það gefur kökunni
aukna mýkt. smyrjið eða setjið
bökunarpappír í botninn á 2 smellu-
formum, 22-24 cm í þvermál. bakið
botnana í 18-20 mín. og kælið.
fylling og sKraut:
n 1/2-3/4 l rjómi
n 1 stór dós kokteilávextir (825 g) eða
aðrir ávextir í dós
Þeytið rjóma. sigtið safa frá ávöxtum og
geymið hann. leggið annan botninn á
tertudisk og vætið vel í honum með
safanum, það er lykilatriði að væta
botnana vel svo kakan verði ekki þurr.
smyrjið svolitlu af rjómanum ofan á og
dreifið 1/3 af ávöxtunum yfir. leggið
hinn kökubotninn ofan á, vætið í
honum með ávaxtasafanum og þekið
síðan alla kökuna með rjóma, ofan á og
með hliðum. skreytið með kokteilávöxt-
um eftir smekk.
fyrir fólK
með fæðuóþol
Þeir sem ekki geta notið venjulegra
brauð- og kökuuppskrifta vegna
óþols eða ofnæmis af einhverju tagi
þurfa oftast að leita lengi að nothæf-
um uppskriftum. langflestir eru
með mjólkur- eða eggjaofnæmi.
aðrir eru með hveiti- eða glútein-
óþol. dv tíndi saman nokkrar
uppskriftir sem ættu að höfða til
þeirra sem ekki mega neyta einhvers
af ofangreindu.
eggjalausar skonsur
n 200 g hveiti, spelt eða heilhveiti
n 3 tsk. lyftiduft
n 1 tsk. púðursykur
n ¼ tsk. salt
n 50 g mjúkt smjör
n 25 g kúrennur
n 150 ml mjólk
hitið ofninn í 220 gráður. blandið
saman hveiti, lyftidufti, sykri og salti.
klípið mjúku smjörinu saman við
þurrefnin. blandið svo mjólkinni í og
mótið úr þessu deigkúlu. leyfið
deiginu að bíða í 15 mínútur. rúllið
deigið út en hafið það 3 cm þykkt.
skerið út skonsur með kaffibolla eða
öðru kringlóttu formi. setjið á
bökunarplötu og bakið í 10 til 15
mínútur.
mjólkurlaust Ciabatta-brauð
n 250 g hveiti eða spelt
n ½ tsk. salt
n 1 tsk. þurrger
n 1 tsk. sykur
n 150 ml vatn
n 4 msk. ólífuolía
blandið saman hveiti, salti, þurrgeri
og sykri saman í skál. bætið vatninu
út í og blandið vel þar til deigið
verður mjúkt og meðfærilegt. látið
deigið standa hulið á heitum stað í
klukkustund svo það lyfti sér. látið
deigið aftur í skálina og bætið
ólífuolíu út í. hnoðið þar til olían er
vel blönduð við deigið. mótið
brauðið að vild og látið standa í 30
mínútur. bakið í 25 til 30 mínútur við
200 gráðu hita.
glúteinlaust sódabrauð
n 500 g glúteinlaust mjöl (fæst í
heilsubúðum)
n ½ tsk. salt
n 2 tsk. cream of tartar (fæst í
heilsubúðum)
n 1 stk. matarsódi
n 450 ml mjólk
n 3 msk. múslí
hitið ofninn í 220 gráður. blandið
saman mjölinu, salti, cream of tartar
og matarsóda. bætið mjólk við eða
þar til deigið verður mjúkt og örlítið
klístrað. mótið deigið í kúlu og veltið
henni upp úr múslíinu. Það er líka
hægt að láta mjöl utan um brauðið.
setjið brauðið á smurða plötu og
bakið í ofni í 35 til 40 mínútur.
Tagliatelle með heimatilbúnu pestói
friðrik ragnarsson „Ég ætla að bjóða upp á uppskrift að tagliatelle með
heimatilbúnu pestói og heitri súkkulaðiköku í desert.“
tagliatelle með heima-
tilbúnu pestói
n 400 g tagliatelle
n 100 g svartar ólífur
n 100 g sólþurrkaðir tómatar
n 100 g marineraðir ætiþistlar
n 50 ml ólífuolía
n ½ appelsína
n klettasalat
n ferskur parmesanostur
aðferð:
maukið saman ólífur, ætiþistla og
sólþurrkaða tómata í matvinnsluvél.
setjið í skál og bætið ólífuolíu og
appelsínuberki saman við.
sjóðið 400 g af tagliatelle í vel söltu
vatni. setjið eina ausu af pastasoði á
heita pönnu. hrærið 4 matskeiðum
af pestóinu saman við og bætið
soðnu tagliatelle við. gott er að setja
klettasalat saman við og rífa ferskan
parmesanost yfir.
heit súKKulaðiKaKa
n 225 g dökkt súkkulaði 70%
n 240 g smjör
n 8 stk. egg
n 300 g sykur
n 120 g hveiti
n Ís
aðferð:
bræðið súkkulaði og smjör saman yfir
vatnsbaði. Þeytið eggin og sykurinn
saman á meðan súkkulaðið bráðnar.
blandið hveitinu út í súkkulaðiblönd-
una. að því loknu bæta eggjablönd-
unni við með sleif. geymið deigið í
ísskáp fyrir bakstur. hellið deiginu í
vel smurt form og látið bakast við
200 gráðu hita í nákvæmlega 10
mínútur. hellið úr forminu og dreifið
flórsykri yfir. borið fram með ís.
Ég ætla að skora á Hermann Hauksson,
verslunarstjóra hjá Sævari Karli, sem næsta
matgæðing.
Matgæðingurinn
Veisluterta
með sykruðum ávöxtum