Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Blaðsíða 21
föstudagur 21. nóvember 2008 21Umræða
Hver er maðurinn? „Helgi Hjörvar.“
Hvað drífur þig áfram? „nú,
ástríðan.“
Hvar ertu upp alinn? „Í reykjavík
og Kaupmannahöfn.“
Hvert í heiminum myndr þú
helst vilja fara? „Það er hvergi
betra að vera en hér.“
Hvar er best að slaka á? „Í faðmi
fjölskyldunnar.“
En fá útrás? „Ég hleyp til að
gleyma.“
Af hverju ákvaðst þú að hætta
að þiggja starfskostnaðar-
greiðslur án þess að gera grein
fyrir þeim? „sumir þingmenn gera
þetta og mér fannst fara betur á því
þótt hitt megi líka.“
Finnst þér eðlilegt að ekki sé
gerð grein fyrir útlögðum
kostnaði? „Það gilda reglur um
hvað má telja til kostnaðar, það er
nægilegt.“
Telur þú að efna þurfi til
kosninga í vor? „Ég tel rétt að kjósa
þegar búið er að takast á við
bráðavandann og rannsaka þetta
sem gerðist.“
Á að efna til þjóðaratkvæða-
greiðslu um hvort sækja eigi um
aðild að ESB? „nei, það á að sækja
strax um aðild.“
Ætlar þú að gera jólainnkaupin
snemma í ár líkt og formaður
Neytendasamtakanna mælir
með? „Þau geri ég alltaf á Þorláks-
messu.“
Hvað er í jólamatinn hjá Helga
Hjörvar? „Hamborgarhryggur og
mikið af honum.“
Hvernig líst þér á iMF-lánið?
„bara vel, við þurfum á því að halda.“
KArl SigmuNdSSoN
63 ára Húsvörður
„Ég vona að það verði okkur til góðs.
en hvernig eigum við að borga það til
baka?“
ÁSdíS STEFÁNSdóTTir
64 ára söluKona Í mjódd
„Illa, við áttum ekki að taka þetta lán.
reynsla annarra ríkja af þessum lánum
er ekkert til að hrópa húrra fyrir.“
JóNAS guðmuNdSSoN
67 ára ellIlÍfeyrIsÞegI
„mér líst ekki vel á það ef sömu menn
taka við því og eru við stjórnvölinn
núna.“
ANNA ÞórA ólAFSdóTTir
75 ára prjónaKona Í mjódd
Dómstóll götunnar
HElgi HJörvAr, þingmaður
samfylkingar, er einn fárra þing-
manna sem þiggja ekki starfskostn-
aðargreiðslur án þess að gera grein
fyrir þeim með reikningum. Helgi
segir hvergi betra að vera en á Íslandi
og hann vill fá hamborgarhrygg í
jólamatinn og
Hleypur
til að gleyma
„Það fer eftir því hverjir taka við
peningunum. Ég treysti ekki núverandi
stjórn seðlabankans. Ég vil allt aðra
ráðamenn en þá sem eru við lýði í dag.“
SigrúN mArgréT SigmArSdóTTir
73 ára HarðfIsKsalI
maður Dagsins
Þetta eru ekki bara erfiðir tímar -
einsog skáldið sagði - þetta eru fá-
ránlegir tímar - og hver einasti guð-
slifandi dagur færir okkur nær kjarna
leiksýningar sem er svo margþæfð
og samofin og krossbönduð að við -
áhorfendur - hljótum að krefjast þess
að henni ljúki sem fyrst - bara svo
við köfnum ekki í skelfilegri atburða-
rásinni.
En nei, nei, nei, okkur er ekki
hleypt út; við erum fangar þessarar
leiksýningar sem hefur öðlast sjálf-
stætt og persónulegt líf og hikar ekki
við að svara okkur með skætingi ef
henni þóknast þá að svara okkur yf-
irleitt.
Við erum samt ekki af baki dottin.
Við þjöppum okkur saman við
aðaldyrnar og brýnum kröfur okkar
um útgöngu.
Við þykjumst eiga nokkurn rétt á
að komast burt úr haugnum og við
eigum heimtingu á að vita allt um til-
urð þessarar leiksýningar sem ætlar
okkur lifandi að drepa. Við spyrjum
því aftur og aftur og krefjumst svara
- því það erum við sem þrátt fyrir
allt borguðum sjóið - og það erum
við sem viljum að því ljúki - og það
erum við sem erum lokuð inni - og
það erum við sem viljum út - og það
erum við sem eigum að ríkja yfir okk-
ar eigin lífi og stýra okkar stefnu og
för.
Einfaldar spurningar okkar berg-
mála dag eftir dag:
Hver er höfundur leik-
sýningarinnar?
Hver er leikstjórinn?
Hverjir eru aðalleikararnir.
Hverjir eru aukaleikararnir?
Hver gerði leikmyndina?
Hverjir eru ljósameistaranir?
Hverjir eru förðunarmeistaranir?
Hverjir eru búningahönnuðirnir?
Og leiksýningin - glottið á henni
- svarar og dillar sér í lendunum og
og slær sér á lær og kallar okkur skríl
og vesalinga og grettir sig og sönglar
og vitnar í blóðtökur og drápshringi
og hún sveiflar sér um leið og sann-
leikur hennar hljómar og andskotast
einsog fimm þúsund feilnótur í ær-
andi tónverki:
Höfundurinn er enginn.
Leikstjórinn er enginn.
Aðalleikararnir eru engir.
Aukaleikararnir eru engir.
Leikmyndina gerði enginn.
Ljósameistarinn er enginn.
Förðunarmeistararnir eru engir.
Búningahönnuðarnir eru engir.
Og þá förum við ekkert í grafgötur
með þetta; það ber enginn ábyrgð á
veru okkar á sýningunni, það stjórn-
ar henni enginn, það hefur enginn
skrifað leikritið sem við kveljumst
undan - og viti menn - við tökum
mark á svörunum. Við tökum hönd-
um saman og við stöndum saman og
við tökum þetta leikrit sem ekkert er
og alla sem að því standa sem engir
eru og við blásum öllu um koll og við
komumst út undir bert loft.
Við erum nefnilega fullkomlega
fær um að stjórna framtíð okkar og
við veljum til hönnunarinnar mann-
eskjur með réttlætiskennd en ekki
keyptar ambáttir. Og við gætum þess
að það eigi ekkert skylt við þá augn-
lausu drauga sem læstu okkur inni
í leikriti sem ekkert var og enginn
stýrði ... en tókst samt að breyta okk-
ur í hryðjuverkamenn og börnunum
okkar í eilífðar þræla.
„Enginn vill stríð”
kjallari
vigdíS
grímSdóTTir
rithöfundur skrifar
„Við erum fangar
þessarar leiksýning-
ar sem hefur öðlast
sjálfstætt og per-
sónulegt líf.“
mynDin
SKJAldBorg nýir tímar stóðu fyrir friðsamlegum mótmælum við alþingishúsið á miðvikudag þar sem mótmælendur tóku höndum saman um að slá skjaldborg
umhverfis þinghúsið. myNd JóHANN ÞröSTur PÁlmASoN