Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Blaðsíða 26
HIN HLIÐIN
Á heyrnar-
lausan kött
Nafn og aldur?
„Óttar M. Norðfjörð. 28
ára.“
Atvinna?
„Rithöfundur.“
Hjúskaparstaða?
„Í sambúð.“
Fjöldi barna?
„Núll, en hangi mikið með
sonum bróður míns.“
Áttu gæludýr?
„ Já, tvo ketti, Annar er 19
ára og heyrnarlaus, hinn er
5 ára og feitur.“
Hvaða tónleika fórst þú á
síðast?
„FM Belfast síðasta laug-
ardag í æfingahúsnæði
þeirra.“
Hefur þú komist í kast við
lögin?
„Ég hef að minnsta kosti
aldrei verið dæmdur fyrir
neitt.“
Hver er uppáhaldsflíkin
þín?
„Nýja appelsínugula vetr-
arúlpan mín frá 66° Norður.
Hún er einfaldlega mögnuð;
hlý, létt og flott.“
Hefur þú farið í megrun?
„Nei.“
Hefur þú tekið þátt í skipu-
lögðum mótmælum?
„Já.“
Trúir þú á framhaldslíf?
„Nei.“
Hvaða lag skammast þú þín
mest fyrir að hafa haldið
upp á?
„Mr. Vain með Culture Beat.
Reyndar varð lagið aftur
töff þegar 90‘s varð vinsælt,
en ég fæ samt alltaf aula-
hroll þegar ég heyri lagið og
minnist þess að hafa fílað
það.“
Til hvers hlakkar þú núna?
„Jólanna.“
Afrek vikunnar?
„ Að mölva kjallaragólfið
heima hjá mér með múrbrjót.
Alvöru karlmennskuvinna,
enda var ég ónýtur eftir það. “
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Nei.“
Spilar þú á hljóðfæri?
„Ekki lengur, spilaði einu
sinni á bassa.“
Styður þú ríkisstjórnina?
„Ég verð því miður að svara
því neitandi, hún virðist ekki
alveg vera með á nótunum.“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Að vera hamingjusamur.“
Hvaða fræga einstakling
myndir þú helst vilja hitta?
„Engan sérstakan, ég vil helst
bara hitta venjulegt fólk,
svo framarlega að það sé
skemmtilegt og áhugavert.“
Ertu með tattú?
„Nei.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já, hef meira að segja gefið
út nokkrar ljóðabækur.“
Hverjum líkist þú mest?
„Pabba.“
Ertu með einhverja leynda
hæfileika?
„Ef svo er, eru þeir mér ennþá
huldir.“
Af hverju stafar mannkyninu
mest hætta?
„Ég veit það ekki. Kannski
heimsku. Eða misskilinni
hugsjónamennsku. Eða fólki
sem þykist vita af hverju
mannkyninu stafar mest
hætta.“
Á að leyfa önnur vímuefni en
áfengi?
„Nei.“
Hver er uppáhaldsstaðurinn
þinn?
„Heima er best.“
Óttar M. Norðfjörð rithöfuNdur gaf út bÓkiNa SÓlkroSS á döguNuM. Þetta
er öNNur SkáldSaga haNS eN fruMrauN haNS, hNífur abrahaMS, vakti Mikla
athygli uM SíðuStu jÓl.
föstudagur 21. nóvember 200826 Helgarblað
MyNd rÓbert
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Tökum að okkur hellulagnir,
smíði sólpalla, parket- og
flísalögn,innréttingar,
pípulagnir og málningarvinnu.
Hafðu samband,
Agnar - sími: 690 6220
Gunnar - sími: 690 6250
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson