Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Side 35
föstudagur 21. nóvember 2008 35Helgarblað
Neyðarlegar aðstæður
þingmanna
Halldór reyndi að taka
Guðna í fallinu
Halldór Ásgrímsson sagði af sér sem forsætisráðherra og um leið
sem formaður framsóknarflokksins á Þingvöllum sumarið 2006.
afsögnin kom mörgum á óvart, en það sem kom ekki síður á
óvart var að Halldór sagði að guðni Ágústsson, þáverandi
landbúnaðarráðherra og varaformaður framsóknarflokksins,
ætlaði einnig að hætta í pólitík. viðbrögðin hjá guðna bentu
hins vegar strax til þess að hann væri ekki par sáttur. eftirminni-
legt er þegar Haukur Holm, fréttamaður stöðvar 2, og fleiri
fjölmiðlamenn eltu guðna eftir veginum við ráðherrabústaðinn
á Þingvöllum þar sem hann arkaði niðurlútur á brott og vildi
ekki veita nein viðtöl. Það kom enda á daginn að guðni ætlaði
sér ekki að hætta þingmennsku á þessum tímapunkti þótt
Halldór hafi viljað taka hann með sér í „fallinu“. eins og kunnugt
er var á hinn bóginn tilkynnt á dögunum að guðni hefði nú sagt
af sér þingmennsku. Líklega er óhætt að fullyrða að pólitískt fall
bjarna Harðarsonar nýverið hafi mikið með ákvörðun guðna að
gera þar sem hann var helsti skoðanabróðir formannsins innan
þingflokks framsóknarflokksins.
Aðsvif í ræðustól
framsóknarþingmaðurinn magnús
stefánsson fékk aðsvif í ræðustól alþingis í
mars á síðasta ári og hætti framsögu sinni í
miðjum klíðum. Í ljós kom að hann var með
flensu. magnús var félagsmálaráðherra þeg-
ar atvikið átti sér stað og í tilkynningu sem
ráðuneytið sendi frá sér síðar um daginn
kom fram að talið væri að samspil
flensunnar og langvarandi álags hafi komið
niður á heilsu ráðherrans. magnús var frá
störfum í nokkra daga og lítið hefur farið
fyrir ráðherranum fyrrverandi í íslenskri
pólitík frá því veikindi og álag yfirbuguðu
hann í miðri ræðu.
Ölvunarakstur verðandi
þingmanns
sigurður Kári Kristjánsson var stöðvaður af lögreglunni, grunaður um ölvunarakst-
ur, stuttu eftir að hann var kosinn á þing fyrir sjálfstæðisflokkinn árið 2003. nýkjörni
þingmaðurinn var sviptur ökuréttindum sínum í eitt ár. nokkru seinna prýddi
sigurður Kári forsíðu glanstímaritsins séð og heyrt þar sem hann var sagður vera
að keyra bíl, próflaus. sigurður Kári þvertók fyrir fréttina og sagðist hafa verið
farþegi í bínum. málið var ekki skoðað frekar. flokksbróðir sigurðar Kára, gunnar I.
birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi og fyrrverandi þingmaður, varð einnig uppvís að
ölvunarakstri fyrir nokkrum árum. Heimildir herma að hann hafi þá verið að koma
af súlustaðnum goldfinger í Kópavogi, þótt það hafi ekki fengist staðfest.
Harðort bréf til
Baugsmanna
össur skarphéðinsson sendi forsvarsmönnum
baugs tölvupóst snemma árs 2002. bréfið olli
miklum titringi og var baugsmönnum afar brugðið.
Í bréfinu segir össur að bróðir hans hafi verið rekinn
frá fyrirtæki þeirra vegna skoðana össurar. Hann
kallar baugsfeðga hreinræktaða drullusokka og
segist ekki munu gleyma hvernig þeir komi fram við
fólk. Þar lætur hann þá eftirminnilegu setningu falla:
„You´ve ain´t seen nothing yet“ og vísar í að hann
láti þetta ekki þagga niður í sér.
Aðgerðalaus í beinni
össur skarphéðinsson, þáverandi formaður samfylkingar-
innar, varð óöruggur með sig eftir að niðurstöður úr
skoðanakönnun á fylgi flokkanna árið 2001 birtist í dv. sam-
fylkingin tapaði fylgi á meðan vinstri-grænir bættu verulega
við sig. skoðanakönnunin var gerð stuttu eftir að heibrigðis-
ráðherrann, Ingibjörg Pálmadóttir, féll í yfirlið í beinni
útsendingu í sjónvarpinu og stóð össur aðgerðalaus við
hlið hennar á meðan. taldi hann að skýringuna á minna
fylgi væri að finna í því hversu óhetjulega hann stóð sig.
Hvort þetta hafi eitthvað með það að gera að össur er ekki
lengur formaður samfylkingarinnar skal ósagt látið.
Dæmdur fyrir
kvótasvindl
gunnar örlygsson, þáverandi þingmaður
frjálslynda flokksins, fékk dóm fyrir brot á
bókhaldslögum, tollalögum og lögum um
stjórn fiskveiða árið 2003. gunnar var kosinn á
þing um vorið en neyddist til að fresta því að
setjast á þing um haustið þar sem hann þurfti
að afplána þriggja mánaða fangelsisdóm.
Áður en hann fór í framboð hafði gunnar svo
verið tekinn fyrir ölvunarakstur sem hann
hafði ekki gert forystu frjálslynda flokksins
grein fyrir þegar framboðslisti flokksins var
ákveðinn fyrir þingkosningarnar 2003, öfugt
við hin brot sín. „Ég hef öðlast ákveðna reynslu
er varðar dóms- og fangelsismál sem mun
nýtast mér í þingstörfum,“ sagði gunnar við
dv þegar hann settist svo á þing í desember-
mánuði á því herrans ári 2003. Þess má geta að
gunnar er ekki lengur þingmaður.
Yfirlið í beinni
margir muna eflaust eftir því þegar
Ingibjörg Pálmadóttir, þáverandi
heilbrigðisráðherra, féll í yfirlið í beinni
útsendingu hjá rÚv þar sem hún var í
viðtali árið 2001. Ingibjörg féll nánast
beint í fangið á Jóhönnu vigdísi
Hjaltadóttur fréttakonu þar sem
viðtalið fór fram í kringlu alþingishúss-
ins. nokkrar umræður fóru í gang í
kjölfarið um að þetta hafi verið sviðsett.
Ingibjörg sagði af sér ráðherraembætti
skömmu seinna og var ástæðan sögð
veikindi hennar.
Áfengisdíll fjármálaráð-
herrans
Jón baldvin Hannibalsson, þáverandi fjármálaráðherra og
formaður alþýðuflokksins, hélt glæsilega afmælisveislu til
heiðurs Ingólfi margeirssyni, ritstjóra alþýðublaðsins.
veislan var haldin á veitingastað í bænum og heppnaðist
gríðarlega vel að sögn þeirra sem þar voru. Jón baldvin
gerði samning við þennan tiltekna veitingastað um að fá að
kaupa þar áfengið sem veitt var í veislunni og kaupa svo
áfengi af Átvr til að greiða skuld sína. ráðherrar á þessum
tíma gátu keypt áfengi í Átvr án tolla og opinberra gjalda.
Þegar upp komst um þennan skiptidíl fjármálaráðherrans
endurgreiddi hann áfengið. Jón baldvin viðurkenndi svo
síðar að hann hefði gert sig sekan um dómgreindarbrest.
Hann sagði þó ekki af sér þingmennsku eða ráðherrasætinu.