Fréttablaðið - 22.01.2016, Side 6
Í húsnæðinu verða
öryggisgeymslur fyrir stóran
hluta safnkosts, starfsaðstaða
fyrir starfsmenn og aðra,
rannsóknarstofur, verkstæði,
aðstaða til sérhæfðra rann-
sókna og undirbúnings
sýninga. Auk þess aðstaða til
kennslu.
Skólagæsla í Pakistan
Lögreglumaður stendur vopnaður fyrir framan skóla í borginni Peshawar í Pakistan, daginn eftir að tugir manna voru myrtir þar í árás á Bacha
Khan-háskólann. Ákveðið var að lýsa yfir þjóðarsorg í dag og bænastund verður haldin í höfuðborginni Islamabad. Fréttablaðið/EPa
Utanríkismál Uppboð íslenskra
stjórnvalda á tollheimildum búvara
frá Evrópusambandinu (ESB) brýtur
ekki í bága við tollasamkomulag
Íslands og ESB frá árinu 2007. Þetta
er álit sérfræðinga innan landbún
aðardeildar sambandsins.
„Evrópusambandið semur við ríki
um frjálsa verslun sem þýðir að flutt
sé ákveðið magn af vörum á milli
landa, en þegar komið er inn fyrir
landamærin þá skiptir Evrópusam
bandið sér ekki af því hvernig farið
er með þessar vörur eða heimildir,“
segir Klemens Ólafur Þrastarson,
upplýsingafulltrúi sendinefndar ESB
á Íslandi.
Félag atvinnurekenda (FA) hefur
gert athugasemdir við framkvæmd
ina hér og bent á að útboðsgjaldið
sem íslensk innflutningsfyrirtæki
þurfa að greiða til íslenskra stjórn
valda sé svo hátt að ávinningur af
tollfrjálsum innflutningi hverfi að
stórum hluta. Til dæmis sé útboðs
gjald alifuglakjöts svo hátt að álíka
mikið kosti að flytja inn kjúkling frá
ESB á tollfrjálsum kvóta og almenn
um tolli. Aðspurður segir Klemens
Evrópusambandið sjálft ekki leggja
slíkar álögur á íslenskar vörur, eða á
innflutning yfirleitt.
FA hefur sagt vandséð hvernig
framkvæmdin stæðist ákvæði í
samningi Íslands og ESB þar sem
kveðið er á um að gerðar séu ráðstaf
anir til að tryggja að ávinningi sem
samningsaðilar veiti hvor öðrum
verði ekki stefnt í hættu „með
öðrum takmarkandi innflutnings
ráðstöfunum“.
Klemens segir umrætt ákvæði
fyrst og fremst snúa að tækni
legum hindrunum við innflutning
varnings. Þar undir kunni að vera
Uppboð tollkvóta
stenst skoðun ESB
Evrópusambandið (ESB) skiptir sér ekki af því hvernig ríki kjósa að útdeila
tollkvótum. Fyrirkomulag sem hér tíðkast er ekki notað innan ESB. Kostnaður
vegna uppboðs tollkvóta hér eyðir ávinningi af tollfrelsi.
Kjúklingabringur, innfluttar og frosnar. litlu skiptir hvort reynt er að flytja inn kjúk-
lingakjöt innan eða utan tollfrjáls kvóta. Fréttablaðið/anton
Þegar komið er inn
fyrir landamærin þá
skiptir ESB sér ekki af.
Klemens Ólafur
Þrastarson upplýs-
ingafulltrúi sendi-
nefndar ESB
„ýmsar skapandi eða nýstárlegar
heilbrigðiskröfur“ líkt og dæmi
séu um að komið hafi upp í öðrum
löndum. „Þarna er átt við raunveru
legar hindranir, þannig að vörurnar
komist ekki í gegn. En hvað Evr
ópusambandið varðar þá komast
þessar vörur í gegn og svo er það
undir íslenska ríkinu komið hvernig
það útdeilir þessum innflutnings
heimildum.“ – óká
Ríkið þarf að endurgreiða hálfan milljarð
Hæstiréttur Íslands dæmdi í gær íslenska ríkið til að endurgreiða þremur
innflutningsfyrirtækjum, Innnesi, Högum og Sælkeradreifingu, til baka út-
boðsgjald tollkvóta upp á um fimm hundruð milljónir króna. Fyrirtækin þrjú
greiddu þessa kvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum.
Niðurstaða Hæstaréttar er að útboðsgjaldið sem fyrirtækin voru krafin um
hafi verið ólögmætt og í andstöðu við stjórnarskrá. Ráðherra sé ekki heimilt
að ákveða einn síns liðs hvort greiða þurfi gjald sem þetta.
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir dóm-
inn mikilvægan sigur í baráttunni fyrir eðlilegu viðskiptafrelsi með búvörur
eins og aðrar vörur. „Það molnar stöðugt úr þeim múrum sem hafa verið
reistir til að hindra eðlilega samkeppni á búvörumarkaði,“ segir Ólafur.
könnUn Í nýrri skoðanakönnun
Gallup sem nú er verið að gera
er spurt hvort viðtakandinn sé
jákvæður eða neikvæður gagnvart
því að dr. Baldur Þórhallsson, pró
fessor í stjórnmálafræði, verði næsti
forseti Íslands og setjist ásamt maka
sínum, Felix Bergssyni, á Bessastaði.
Spurningin er hluti af Gallupvagn
inum og er send á 1.400 manns.
Ekki var spurt um aðra mögulega
frambjóðendur í könnuninni.
„Ég kem alveg af fjöllum,“ segir
Baldur inntur eftir því hvort hann
hafi vitað af könnuninni. Hann
segist ekki hafa keypt spurninguna
og að forsetaframboð sé ekki á dag
skrá.
„Það hefur fólk talað við okkur
og spurt um þetta en meira veit ég
ekki,“ segir Baldur.
Að sögn starfsmanns Gallup
kostar ein spurning í könnuninni
120.900 krónur, reiknuð með
virðisaukaskatti. Hver sem er getur
spurt um hvað sem er svo framar
lega sem spurningin þyki ekki sær
andi. – snæ
Kanna
landið fyrir
framboð
Það hefur fólk talað
við okkur og spurt
um þetta en meira veit ég
ekki.
Baldur Þórhallsson
prófessor
menning Þáttaskil verða í þjóð
minjavörslu á Íslandi í sumar þegar
varðveislu og rannsóknasetur Þjóð
minjasafns Íslands verður tekið í
notkun. Undirritun samnings um
setrið fer fram í dag, en í setrinu verða
kjöraðstæður til varðveislu þjóð
minja og vel búin starfsaðstaða til
rannsókna, forvörslu, sýningaundir
búnings og kennslu á fagsviði Þjóð
minjasafnsins sem er höfuðsafn á
sviði menningarminja.
Í frétt frá ÞÍ segir að húsnæðið, sem
er að Tjarnarvöllum í Hafnarfirði, sé
4.270 fermetrar að stærð.
Í húsinu verða öryggisgeymslur
fyrir stóran hluta safnkosts Þjóð
minjasafns og starfsaðstaða fyrir
starfsmenn, sérfræðinga, fræði
menn og nemendur. Fullkomin
hita og rakastýring verður í öryggis
geymslum svo tryggja megi varð
veislu viðkvæms safnkosts.
Í húsnæðinu verða einnig rann
sóknarstofur, forvörsluverkstæði,
aðstaða til sérhæfðrar varðveislu og
rannsókna jarðfundinna gripa og
aðstaða til undirbúnings sýninga.
Hluti safnkostsins verður áfram varð
veittur í húsnæði safnsins í Kópavogi,
þar sem Ljósmyndasafn Íslands í
Þjóðminjasafni verður áfram til húsa.
Einnig verður í varðveislu og
rannsóknasetrinu aðstaða til kennslu
en Þjóðminjasafn Íslands er háskóla
stofnun sem felur í sér mikilvægt
hlutverk gagnvart rannsóknaraðilum
og námsmönnum.
Hönnuður húsnæðis er ArkÞing
en það er í eigu fasteignafélagsins
Regins. – shá
Þáttaskil við varðveislu
íslenskra dýrgripa
Þjóðminjar eru dýrgripir sem nauðsynlegt er að varðveita og geyma við bestu að-
stæður. Fréttablaðið/gva
2 2 . j a n ú a r 2 0 1 6 F ö s t U D a g U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
2
1
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
3
D
-2
2
B
8
1
8
3
D
-2
1
7
C
1
8
3
D
-2
0
4
0
1
8
3
D
-1
F
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K