Fréttablaðið - 22.01.2016, Qupperneq 15
Í dag David Bowie er dáinn. Hann er kominn til rokk-himna og dvelur þar með Elvis (sem átti
sama afmælisdag og hann), Lennon,
Jim Morrison og fleirum. Ég held
reyndar að Bowie dvelji í þeim salar-
kynnum rokkhimna sem tilheyra
poppi. Ég segi þetta af mikilli virðingu
því ég er einn af þeim sem finnst popp
merkilegra en rokk þó að þessi hugtök
útiloki ekki hvort annað. Með mikilli
einföldun skilgreini ég rokk sem tónlist
sem ýtir við fólki á meðan popp hefur
fremur að gera með hvernig miðlar
eru notaðir til að láta áhrifin ná til sem
flestra. Þannig var Elvis bæði rokkari
og poppari, líka Lennon, líka Bowie.
Tölum aðeins um popp.
David Bowie lést í íbúð sinni í New
York í faðmi fjölskyldunnar en í raun
dó hann frammi fyrir öllum heim-
inum því hann var meistari poppsins,
frumkvöðull í notkun nýrra miðla í
sjónvarpi og á netinu. Hann blandaði
saman listformum og notaði hvert
tækifæri til að magna upp verk sín
fyrir fjöldann. Poppið er iðnvæðing
sköpunarkraftsins. Það sem meira er:
gott popp byggist á sérhæfingu, að hafa
valinn mann í hverju rúmi. Þannig
starfaði Bowie. Hann vann alltaf með
besta fólkinu, lét ferskustu leikstjórana
gera myndbönd fyrir sig og vinsælustu
fatahönnuðina sauma á sig.
Rafmagn, gítarar, sjónvarp
Bowie var einn sá fyrsti sem gat gert
þetta. Hann fullkomnaði byltingu sem
hófst þegar hann var lítill strákur þegar
frumrokkararnir mættu með rafmagns-
gítarana sína í beinar sjónvarpsút-
sendingar. Grundvöllur poppsins lá í
tækninni. Sjónvarp, rafmagnsgítarar,
plötuspilarar. Þetta var jafn nýtt fyrir
fólki og Snapchat og sjálfkeyrandi bílar
eru í dag. Að vera einn sá fyrsti sem
nýtti sér tæknina til fulls í þágu eigin
sköpunargáfu er meira afrek en tón-
listarhæfileikar einir og sér. Bowie, sem
oft var kallaður popp-guð meðan hann
lifði (hann gerði það meðal annars
sjálfur), gæti endað sem nákvæmlega
það: Guð, eða öllu heldur spámaður
sem fólk mun hugsa um í þúsundir ára.
Þúsund ár. Ímyndið ykkur hvað tími
að viðbættri opinni túlkun gæti til
dæmis gert við eftirfarandi textabrot:
Tárin sem aldrei munu þorna
Dómi sem fallið hefur
verður aldrei breytt.
Svo orti Davíð árið 1983. Ég tel mig
ekki vera að boða nein sérstök tíðindi
hér. Elvis er þegar dýrkaður sem guð.
Auk þess er ekkert óvenjulegt við að
spámenn séu tónlistarmenn. Hver sló á
tístrengja hörpu fyrir þrjú þúsund árum
og samdi þetta?
Ég lauga rekkju mína í tárum,
læt hvílu mína flóa hverja nótt.
Augu mín eru döpruð af harmi
Var það ekki hinn dáði? Tónlistarmað-
urinn Davíð sem er spámaður í tvennum
stærstu trúarbrögðum mannkyns?
Trúarjátningin
En hvenær verður maður alvöru spá-
maður? Þegar maður hefur fylgis-
menn? Já. En það þarf eitthvað meira
en það. Spámenn skapa meira en
hefðbundna aðdáun. Það er enginn
spámaður nema að orð hans séu hafin
yfir gagnrýni, eða persónutöfrarnir
slíkir að fólk hundsi alla skynsemi og
fylgi spádómunum í blindni.
Undir einu af mörgum myndbönd-
um sem sett voru á netið eftir að Bowie
dó sá ég þetta komment:
„John Lennon was nothing. Bowie is
the God.“
Kannski var þetta sett fram í sakleysi,
þó varla hálfkæringi, þessi einlæga
trúarjátning sem undirstrikar orsök
allra deilna mannkynsins, allar styrj-
aldir og allt sem aflaga fer. Fyrir suma
er ekki nóg að tilbiðja sinn eina Guð.
Þörfinni til að gæða trúna trúverðug-
leika fylgir yfirlýsing um að guðir hinna
séu máttlausari. Bowie er ekki bara
voldugri Guð heldur en Lennon. Það
er ekki nóg. Lennon var ekkert. Þannig
hljóðar hið heilaga orð. Svona eru allar
trúarjátningar. Minn Guð er bestur,
hinir eru drasl.
Ég veit. Það hefur enginn verið
drepinn enn þá vegna þessa máls.
Flestir núlifandi aðdáendur Bowies og
Lennons eru friðelskandi manneskjur
og flestir myndu aldrei gera upp á milli
þeirra. En spólum nokkur hundruð ár
fram í tímann og sjáum hvað verður.
Fólk drepur fyrir minna. Kristnir
hafa í gegnum aldirnar drepið hver
annan yfir rifrildi um hvort þeir eigi að
hvíla sig á laugardegi eða sunnudegi.
Leiðinleg staðreynd.
Smurning sögunnar
Svo líður tíminn og allt skolast saman.
Frank Sinatra verður að eins konar
Móse, sá sem ruddi brautina og hóf
vegferðina, Dylan verður klínt í hlut-
verk Abrahams og þannig koll af kolli.
Spurningin er svo hvern sagan mun
smyrja. Hver fullkomnaði verkið? Hver
er hinn eini sanni spámaður popp-
byltingarinnar, sá sem sogar til sín
orð og töfra allra hinna. „John Lennon
was nothing. Bowie is the God.“ Ég er
reyndar ekki alveg sammála en mín
skoðun hefur enga þýðingu. Skoð-
anir eru vigtaðar í blóði. Þannig enda
byltingar, sama hversu friðsamlega þær
hefjast. Þar sem eru völd, þar eru fórnir
þó að líða þurfi þúsund ár.
Að lokum. Hvíl í friði David Bowie.
Þessi pistill var í raun ekki um þig.
Dauði felur í sér uppreisn hugmynda,
uppgjör, greiningar og vangaveltur.
Dauðinn er eitt af því fáa sem er ekki
hægt að horfa fram hjá. Dauði, eins
fánýtur og hann kannski er, ýtir hugs-
unum fólks í átt að tilgangi. Þetta var
einn fyrsti fagurfræðilegi dauðinn sem
mannkynið hefur horft á í sameiningu.
Það telur. Það mun telja. Við lifum
kannski á árinu núll þegar horft verður
til baka.
Spámenn, popp og tækni
Bergur Ebbi
Fyrir suma er ekki nóg að til
biðja sinn eina Guð. Þörfin til að
gæða trúna trúverðugleika fylgir
yfirlýsing um að guðir hinna
séu máttlausari. Bowie er ekki
bara voldugri Guð heldur en
Lennon. Það er ekki nóg. Lenn
on var ekkert. Þannig hljóðar
hið heilaga orð. Svona eru allar
trúarjátningar.
MÍNÍMALÍSKUR
LÍFSSTÍLL
BREIÐIST ÚT
UM ALLAN HEIM
Einfaldaðu líf þitt
og njóttu þess betur!
Metsölulisti
Eymundsson
Handbækur / Fræðibækur
/ Ævisögur
1.
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 15F Ö s T u d a g u R 2 2 . j a n ú a R 2 0 1 6
2
1
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
3
D
-1
3
E
8
1
8
3
D
-1
2
A
C
1
8
3
D
-1
1
7
0
1
8
3
D
-1
0
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K