Fréttablaðið - 22.01.2016, Page 26
Smoothie-Skál
Handfylli spínat
1/2 lárpera
1 dl frosið mangó
1 dl frosin jarðarber
1 msk. chia-fræ
1 banani
1 msk. hnetusmjör
Möndlu mjólk, magn eftir
smekk
Setjið allt í blandarann í nokkrar
mínútur og berið fram í skál með
góðum berjum, kókosflögum og
chia-fræjum.
Salat með
mexíkóSkum blæ
Salatskálar
Tortillahveitikökur
Ólífuolía
Setjið smá ólífuolíu í pott, skál
eða form sem þolir að fara inn í
ofn. Setjið eina tortillahveitiköku
í formið og mótið skál. Bakið við
180°C í 10–15 mínútur eða þar til
kakan er orðin stökk.
lárperusósa:
1 lárpera
2 hvítlauksrif
4–5 msk. grískt jógúrt
Safinn úr 1/2 límónu
Skvetta af hunangi
Salt og pipar
Setjið allt í matvinnsluvél eða
maukið með töfrasprota, smakk-
ið ykkur gjarnan áfram og kælið í
smá stund áður en þið berið sós-
una fram með salatinu.
Salatið:
800 g kjúklingakjöt, helst
kjúklingalæri með skinni
Salt og pipar
1/2 tsk. kumminkrydd
1 tsk. Bezt á allt-krydd
1 askja kirsuberjatómatar
1 laukur
Handfylli kóríander
1 mangó
Ólífuolía
Límónusafi
Gott kál, t.d. lambhagasalat
og klettasalat
Steikið kjúklinginn upp úr olíu,
kryddið skinnhliðina og steikið á
þeirri hlið í tíu mínútur. Kryddið hina
hliðina með salti, pipar, kummink-
ryddi og Bezt á allt-kryddblöndunni.
Þegar kjúklingurinn er tilbúinn er
gott að setja hann inn í heitan ofn á
meðan salatið er útbúið.
Skerið allt grænmetið fremur
smátt, blandið salsanu vel saman
og bætið saman við lambhagasal-
atið og klettasalatið í lokin. Fyll-
ið hverja tortillaskál með salati og
skerið kjúklinginn í bita og raðið yfir.
Setjið væna skeið af lárperusósu
yfir og myljið fetaost rétt í lokin yfir
allt salatið, osturinn setur punktinn
yfir i-ið.
ómótStæðileg
jarðarberjaoStakaka
botninn:
250 g hafrakex
150 g smjör, brætt
Bræðið smjör við vægan hita, setj-
ið kexkökurnar í matvinnsluvél og
maukið. Hellið smjörinu saman
við og hellið síðan í form. Sléttið
úr blöndunni með bakhlið á skeið
og þrýstið vel. Best er að nota
smelluform.
ostafyllingin:
600 g hreinn rjómaostur, við
stofuhita
3 msk. flórsykur
200 g hvítt súkkulaði, brætt
yfir vatnsbaði
300 ml rjómi
1 tsk. vanilla
1 askja jarðarber
Þeytið rjómaostinn í smá stund,
bætið flórsykrinum, rjómanum
og vanillu saman við og hrær-
ið. Bræðið súkkulaðið yfir vatns-
baði og hellið út í ostablönduna
(kælið súkkulaðið aðeins áður) í
mjórri bunu. Skerið nokkur jarð-
arber og blandið saman við í lokin
með sleif. Hellið blöndunni ofan
á kexbotninn og inn í kæli. Best
er að geyma kökuna í kæli yfir
nótt en hún er orðin stíf og fal-
leg eftir rúma klukkustund. Skerið
niður ber og skreytið kökuna, sigt-
ið smávegis af flórsykri yfir í lokin
áður en þið berið kökuna fram.
góð byrjun á árinu
Þriðja þáttaröðin af Matargleði Evu hófst á Stöð 2 í gær en í henni
býður hún upp á hollar og fljótlegar uppskriftir í bland við rjómalagaðar
og aðeins flóknari. Hér fylgja uppskriftir fyrsta þáttar.
Súperhollt í morgunsárið. Jarðarberin gefa kökunni frísklegt bragð.
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
Vertu einstök – eins og þú ert
stærðir 38-52
my styleStærðir 38-52
Netverslun á tiskuhus.is
ÚTSALAN
Í FULLUM GANGI
30-50% afsláttur
af öllum útsöluvörum
Salatskáliarnar setja skemmtilegan svip á salatið.
Matargleði
Eva Laufey
Hermannsdóttir
6 Fólk 22. janúar 2015LíFSStíLL
2
1
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
3
D
-0
5
1
8
1
8
3
D
-0
3
D
C
1
8
3
D
-0
2
A
0
1
8
3
D
-0
1
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K