Fréttablaðið - 22.01.2016, Qupperneq 28
Helena Sverrisdóttir, körfu-
knattleiksmaður hjá Hauk-
um, er einn af okkar bestu
leikmönnum. Hún hefur sýnt
snilli sína í hverjum leiknum
á fætur öðrum. Helena er
fædd árið 1988 og situr fyrir
svörum.
1. Hvað hefur þú spilað
körfubolta lengi? Ég byrjaði
að æfa með strákum þegar
ég var 5 ára og hef æft síðan,
eða í 22 ár.
2. Af hverju valdir þú þessa
íþrótt? Mamma og pabbi
voru bæði í körfunni og eldri
bróðir minn var að æfa. Ég
var alltaf líka í fótbolta en
valdi síðan körfubolta því
mér fannst það orðið miklu
skemmtilegra.
4. Er körfubolti gott
kvennasport? Held að það
sé hollt fyrir allar stelpur
að æfa íþróttir sama hvaða
íþrótt það er. Körfubolti er
mikil liðsíþrótt og því full-
komin fyrir kvenmenn því
við elskum að vera í liði og
treysta á hver aðra.
5. Er harður vetur fram
undan? Ég er í fyrsta skipti á
Íslandi í um 8 ár og er bara
spennt að upplifa veturinn
hér. Það er nóg að gera í
körfunni þar sem ég er bæði
að þjálfa og spila þannig
að okkar annað heimili er í
íþróttahúsinu.
6. Hvað gerir þú í frí-
stundum? Æfi aukalega, hitti
vini og fjölskyldu eða nota
tímann til að slaka vel á og
endurnæra líkamann. Ég
elska að ferðast og eyða tíma
með unnustanum.
7. Ertu gaflari? Já, það er
hægt að segja það, uppalinn
Hafnfirðingur og líður alltaf
mjög vel þar. Ég bý akkúrat
núna í Laugardalnum sem er
æðislegt en örugglega stutt í
að við færum okkur í Hafnar-
fjörðinn.
8. Ertu í námi eða vinnu
samhliða boltanum? Er að
þjálfa nokkra yngri flokka í
Haukunum sem og Afreks-
sviðið.
9. Að hverju stefnir þú í
framtíðinni? Ég er nokkuð
viss um að körfubolti verður
alltaf partur af lífinu, sé fyrir
mér að vera þjálfari þegar ég
hætti að spila sjálf. Annars
er það bara góð heilsa
og hamingja sem maður
sækist eftir, hlakka til búa til
fjölskyldu með manninum
mínum og eiga gott líf.
10. Hver er uppáhalds-
maturinn þinn? Lambalæri er
í miklu uppáhaldi.
12. Áttu kærasta? Er trúlofuð
Finni Atla Magnússyni, og
við erum búin að vera saman
í um tvö ár. elin@365.is
Ónægur svefn, það er sjö
tímar eða minna á nóttu,
getur leitt af sér þyngdar-
aukningu.
Rannsókn sem sagt er frá í
Annals of Internal Med icine
sýndi að mikill munur var á
þyngdartapi tveggja hópa
sem voru á sama megrun-
arfæði. Annar svaf reglu-
lega en hinn óreglulega og
of lítið. Fyrri hópurinn fann
fyrir töluverðu þyngdartapi
meðan sá seinni léttist helm-
ingi minna. Að auki greindi
fólkið sem fékk of lítinn
svefn frá mun meira hungri,
mun minni seddu strax eftir
máltíð og að auki minni orku
til æfinga.
Hér eru nokkrar árangursrík-
ar leiðir til að bæta svefninn:
l Reyndu að vakna og sofna
á svipuðum tíma daglega.
l Sofðu í niðamyrkri.
l Deyfðu ljósin heima hjá
þér nokkru áður en þú ferð
að sofa.
l Ekki skoða netið í síman-
um þínum eða spjaldtölv-
unni rétt fyrir svefninn,
ljósin hafa hamlandi áhrif
á svefn.
SvEfn Er bESti vinur þinn
H
o
LLRá
ð
u
M
H
EilSu
Njóttu þess
Kjarngóð ávaxtafylling
í léttum kexhjúp
– gott á milli mála.
*Aðeins 57 kcal per kex
Go Ahead
Létt í bragði
Lífsstíll
HElEnu
8 Fólk 22. janúar 2015LÍFSStÍLL
2
1
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
3
D
-1
8
D
8
1
8
3
D
-1
7
9
C
1
8
3
D
-1
6
6
0
1
8
3
D
-1
5
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K