Fréttablaðið - 22.01.2016, Síða 36
Tíu ár eru síðan Fjöru-verðlaunin voru afhent í fyrsta sinn en að vanda eru veitt verðlaun í þremur flokkum; fagur-
bókmenntum, barna- og unglinga-
bókmenntum og flokki fræðibóka
og rita almenns eðlis.
Verðlaunaverkið í flokki fagur-
bókmennta hefur ekki farið hátt
en þar er á ferðinni nóvellan Tvö-
falt gler, eftir Halldóru Thorodd-
sen, sem kom út í tímaritaröðinni
1005 á síðasta ári. Halldóra segir að
það standi þó fyrir dyrum útgáfa á
bókinni á allra næstu dögum. „Ég
var búin að ákveða að gefa bókina
út áður en ég frétti af þessum verð-
launum. Bókaforlagið Sæmundur á
Suðurlandsundirlendinu ætlar að
gera það og vonandi geta lesendur
nálgast þá útgáfu strax í næstu viku.“
Tvöfalt gler segir frá konu á átt-
ræðisaldri sem hefur nýlega misst
eiginmann sinn en lendir óvænt í
ástarsambandi og stendur frammi
fyrir spurningunni um réttmæti
þess að verða ástfangin á efri árum.
Dómnefnd Fjöruveðlaunanna
fer afar lofsamlegum orðum um
verkið og Halldóra segir að þessi
viðurkenning hvetji hana vissu-
lega til dáða. „Nú erum við kon-
urnar mættar til leiks, kvennaliðið í
bókmenntum. Þessi verðlaun hafa
vissulega verið eflandi fyrir konur og
það er gaman að fylla þennan flokk í
umheiminum. Það mætti segja mér
að kvennaverðlaun í bókmennta-
heiminum, sem eru veitt víða um
lönd, séu að greiða götu kvenna.
En maður bara heldur með bók-
menntunum og við konur viljum
að sjálfsögðu taka þátt í þessu sam-
tali sem byggt hefur verið upp í
gegnum bókmenntir í áranna rás.
Bókmenntirnar eru lífsnauðsynlegt
öndunarop fyrir mannkyn og þetta
hlýtur að vera samtal sem við tökum
líka þátt í.“
Þakklát og hrærð
„Ég er afskaplega þakklát og hrærð.
Mér finnst Fjöruverðlaunin mikil
viðurkenning,“ segir Þórunn Sig-
urðardóttir, en bók hennar Heiður
og huggun – Erfiljóð, harmljóð og
huggunarkvæði á 17. öld, hlaut
verðlaunin í flokki fræðibóka og rita
almenns eðlis. Útgefandi er Stofnun
Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum.
„Bókin mín byggist á rannsókn
sem ég lagði fram til doktorsvarnar
árið 2014. Hún fjallar um íslensk
kvæði sem hafa varðveist í hand-
ritum en aldrei verið prentuð fyrr en
þau birtust í þessari bók minni, bæði
stafrétt og með nútíma stafsetningu.
Í viðauka er ég líka með skrá yfir
kvæði af þessu tagi sem eru varðveitt
í 17. og 18. aldar handritum.“
Þórunn segir það hafa komist í
tísku upp úr siðaskiptum að yrkja
tækifæriskvæði og sú tíska hafi borist
hingað frá Þýskalandi og Danmörku.
„Í erfiljóðum er verið að fjalla um
hinn látna, svipað og í minningar-
greinum hjá okkur en í harmljóðum
talar ljóðmælandinn um sína eigin
sorg og í kvæðunum fer eiginlega
fram eins konar sorgarferli,“ útskýrir
hún.
Þórunn er sjálfstætt starfandi
fræðimaður og kveðst ýmist vinna
heima hjá sér eða á söfnum. Núna
við að rannsaka rit með siða- og
hegðunarreglum handa ungum
stúlkum sem var þýtt fyrst snemma
á 17. öld og er bara til í handritum.
„Þar er mjög margt sniðugt og spenn-
andi,“ segir hún glaðlega. „En ég á
ekki von á að það komi út í bók fyrr
en á næsta ári.“
Í samkeppni við góða vinkonu
„Það er mikill heiður að taka við Fjöru-
verðlaunum,“ segir Hildur Knútsdóttir.
Bók hennar Vetrarfrí sem Forlagið gaf
út hlaut verðlaunin í flokki barna- og
unglingabókmennta. „Ég var hissa
þegar ég fékk fréttirnar, enda var ég í
samkeppni við góða rithöfunda sem
tilnefndir voru, þar á meðal Þórdísi
Gísladóttur sem er góð vinkona mín.
En ég hefði samglaðst henni ef hún
hefði verið í mínum sporum og vona
að hún jafni sig á því að ég hafi orðið
hlutskarpari. Við erum líka að skrifa
bók saman,“ segir Hildur glaðlega.
Í umsögn dómnefndar segir að
Vetrarfrí sé spennandi unglingabók
með sterka samsvörun til nútímans
og heimsmálanna og er þar meðal
annars vísað til lífs flóttamanna. „En
þó að sagan lýsi óhugnaði og blóð-
ugu ofbeldi er mikill húmor í henni
og því um leið líka stórskemmtileg.“
Spurð hvort von sé á framhaldi á
Vetrarfríi stendur ekki á svari: „Ég
er langt komin með það, sá fyrir
endann á því verkefni í síðustu viku
en á samt eftir að fara vel yfir og
endurskrifa. Ákvað að gefa ekki út
fyrri hlutann fyrr en ég væri langt
komin með þann seinni, ef eitthvað
kæmi upp á. Það er ekki gott að láta
of langan tíma líða milli svona bóka
en ég býst við að framhaldið komi út
í haust.“
Hildur er í hlutastarfi hjá Náttúru-
verndarsamtökum Íslands og var að
fá ritlaun í sex mánuði. Hún kveðst
vera með mörg járn í eldinum og
hafa nóg að gera.“
En maður bara
hEldur mEð bók-
mEnntunum og við konur
viljum að sjálfsögðu taka
þátt í þEssu samtali sEm
byggt hEfur vErið upp í
gEgnum bókmEnntir í
áranna rás.
En þó að sagan lýsi
óhugnaði og blóð-
ugu ofbEldi Er mikill húmor
í hEnni og því um lEið líka
stórskEmmtilEg
Bættu LGG + við daglegan morgunverð
fjölskyldunnar og styrktu ónæmiskerfið.
Nú fylgja frítt með
Þú getur lesið meira um LGG+ á
ms.is/lgg
+ stuðlar að vellíðan
+ styrkir varnir líkamans
+ bætir meltinguna og
kemur jafnvægi á hana
+ eykur mótstöðuafl
+ hentar fólki á öllum aldri
+ er bragðgóð næring
Eiginleikar LGG+
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/S
ÍA
-
1
2-
00
14
Fyrir fulla virkni
Ein á dag
2
Lífsnauðsynlegt öndunarop fyrir mannkynið
fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna voru afhent í gær við hátíðlega athöfn í höfða og verð-
launahafar í flokkunum þremur eru allar með bók í smíðum þó svo mislangt sé í útgáfu næstu verka.
Verðlaunahafar Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna, tóku við viðurkenningum sínum við hátíðlega athöfn í Höfða í gær. Fréttablaðið/SteFán
Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Gunnþóra Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
2 2 . j a n ú a r 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r28 M e n n i n G ∙ F r É T T a B L a ð i ð
menning
2
1
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
3
D
-0
0
2
8
1
8
3
C
-F
E
E
C
1
8
3
C
-F
D
B
0
1
8
3
C
-F
C
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K