Lögmannablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 4

Lögmannablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 4
4 3 / 2 0 0 5 FRÁ RITSTJÓRN Ísíðasta tbl. Lögmannablaðs-ins birtist grein eftir undirrit- aða þar sem velt var upp spurn- ingum um það hvort lögmenn gegndu hlutverki fjölmiðlafull- trúa fyrir skjólstæðinga sinna auk hefðbundinnar hagsmuna- gæslu. Telja verður að þeirri spurningu hafi verið svarað nú í sumar í svonefndu Baugsmáli þar sem verjendur sakborninga í málinu stóðu ötullega að mál- flutningi í fjölmiðlum allt frá því að upplýsingar bárust um að búið væri að birta ákæru í málinu þar til ákærunni var vísað frá með úrskurði héraðsdóms. Telja verður að framvegis muni fjölmiðlar og almenningur gera auknar kröfur um að lögmenn tjái sig um málin fyrir hönd skjólstæðinga og því brýnt að þess verði gætt að lögmenn fái viðeigandi þjálfun til þess. Ekki verður skilið við fjölmiðla án þess að minnast á grein sem birtist á síðu 2 í DV í júní sl. undir yfirskriftinni „Fyrst og fremst“ en tilefni þess var grein undirrit- aðrar í síðasta tölublaði Lögmannablaðs- ins. Í DV var því haldið fram að í Lög- mannablaðinu væri að finna nafnlausar dylgjur og fullyrt að ritstjórinn þverbrjóti allar reglur sem fjölmiðlar setja sér um beinar og óbeinar tilvitnanir í nafnlausa heimildarmenn. Rétt er hins vegar að taka það fram að fáir af viðmælendum Lög- mannablaðsins, vegna greina- flokksins, fóru fram á nafnleynd heldur var það ákvörðun rit- stjórans að setja greinina upp með þessum hætti enda tekur ritstjórinn alla ábyrgð á efni þessa blaðs. Á þessu ári á Lögmannablaðið 10 ára afmæli. Það er ekki hár aldur ef litið er til þess að LMFÍ er orðið 94 ára gamalt en áður hafði LMFÍ gert tilraun til þess að halda úti blaði fyrir félagsmenn án árangurs. Það ber að fagna því að félagsmönnum LMFÍ hafi nú tekist að halda úti samfelldri útgáfu blaðsins í áratug. Af því tilefni hyggst stjórn LMFÍ gefa út öflugt afmæl- isblað í lok þessa árs. Treystir ritstjórinn því að allir félagsmenn sýni frumkvæði og sjálfstæði og sendi ritstjórn greinar í afmælisútgáfuna. Vakin er athygli á því að nýtt fólk hefur tekið sæti í ritnefnd LMFÍ, en það eru þau Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttur, Sigurður Arnalds, Svanhvít Axelsdóttir, Sölvi Sölvason, Tómas Eiríksson og Þorsteinn Einarsson. Er fyrrum ritnefndarfólki þökk- uð störf í þágu blaðsins og þeim óskað vel- farnaðar á nýjum vettvangi. Umfjöllunarefni þessa blaðs er tengt eilífðar ásteytingarsteini lögmanna, þ.e. málskostnaðarákvörðunum dómara. Guðrún Björg Birgisdóttir hdl.

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.