Lögmannablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 19

Lögmannablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 19
19 stillt hér á landi, útlagður kostnaður vegna gagna- öflunar, vinnutekjutap og þóknun málflutnings- manna, sem að jafnaði vegur þyngst. Miklu máli skiptir fyrir málsaðila hvernig þessum kostnaði er skipt þeirra í milli með málskostnaðarákvörðun dómara. Málshöfðun hefur ávallt áhættu í för með sér. Málsaðili getur átt á hættu að tapa máli og þurfa að greiða lögmanni sínum þóknun og gagn- aðila málskostnað eða jafnvel að vinna mál og þurfa samt að greiða lögmanni sínum þóknun. Til þess að unnt sé að meta þessa áhættu rétt þurfa nið- urstöður dómsmála, þ.m.t. um málskostnað að vera að einhverju leyti fyrirsjáanlegar en þar kemur góður rökstuðningur til hjálpar. Mikilvægt er að hafa í huga að dómarar eru ekki að skammta lögmönnum þóknun með ákvörðunum sínum, nema þegar um ákvörðun málsvarnarlauna eða þóknunar í gjafsóknarmáli er að ræða, heldur að skipta kostnaði af málsmeðferðinni á milli þeirra. Málskostnaðarákvörðun getur þó haft áhrif á þóknun lögmanns í raun. Dómarar verða ávallt að hafa í huga að máls- kostnaðarákvarðanir mega ekki standa í vegi fyrir því að lögmenn treysti sér til að leggja þá vinnu í dómsmál sem nauðsynleg er til að tryggja hags- muni umbjóðanda þeirra. Slík réttarframkvæmd getur orðið til þess að takmarka aðgang manna að dómstólum í reynd. L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð Guðríður Svana Bjarnadóttir og Garðar G. Gíslason. Hdl útskrift Þann 31. maí síðastliðinn útskrifuðust 24 lögfræð- ingar af námskeiði til öflunar réttinda til að vera héraðsdómslögmaður. Frá vinstri: Anna Svava Þórðardóttir, Hólmsteinn Gauti Sigurðsson og Lilja Aðalsteinsdóttir. Í bakrunni sést í Eirík Tómasson, formann prófnefndar, spjalla við Huldu María Stefánsdóttur. Aftasta röð t.v.: Hulda María Stefánsdóttir, Eva Halldórsdóttir og Ásgerður Ragnarsdóttur. Fyrir miðju sitja þeir Arnar Þór Stefánsson (t.v.) og Stefán A. Svenson og fremstir eru þeir Haukur Örn Birgisson og Oddgeir Einarsson.

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.