Lögmannablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 35

Lögmannablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 35
35L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð sáttamanns og hlutverki hans sem dómara. Sátta- maður á ekki að leysa ágreining aðila né koma með tillögu til lausnar. Sáttamaður hefur hvorki vald til þess né heimild. Það eru málsaðilar sem bera ábyrgð á efni samkomulagsins en sáttamað- urinn ber ábyrgð á vinnuferlinu sem leiðir til sam- komulags aðila eða afmörkunar á ágreiningsefn- inu. Hvert þrep í samningaferlinu er mikilvægt og ómissandi og leiðir til þess að aðilar ganga í gegnum sálrænt ferli við sáttamiðlunina. Sáttafundur er ólíkur þinghaldi í grundvallaratriðum. Í sáttamiðlun fyrir dómi er ekki stuðst við máls- meðferð réttarfarslaga en sáttamaðurinn verð- ur að halda sig við ágreiningsefnið sem lagt hefur verið fyrir dóminn. Athyglin beinist þó ekki að kröfugerð aðila heldur fyrst og fremst að hagsmunum þeirra og þörfum tengdum ágreiningsefninu. Sáttamaður þarf að ávinna sér traust aðila. Hann þarf að vera óformlegur í fram- komu, opinn og jákvæður, sýna skiln- ing, hafa innsæi á stöðu aðila og skapa jákvætt andrúmsloft á sáttafundinum. Við slíkar aðstæður finna aðilar sig örugga og þora að opna sig gagnvart hvor öðrum og gera grein fyrir hagsmunum sínum og þörfum. Sáttaferlið miðast við að sáttamaður haldi fundi með báðum aðilum samtímis en einnig með hvorum aðila fyrir sig. Eintal sáttamanns og aðila getur létt undir sátta- ferlið. Þagnarskylda Þagnarskylda er í sáttamiðlun. Þagnarskylda sáttamanns er m.a. grundvöllur að því trausti sem þarf að skapast milli aðila og sáttamanns. Þagnar- skylda sáttamanns tekur til allra upplýsinga sem hann fær vitneskju um á sáttafundum með aðilum og á sérfundum með þeim. Sérfundir sáttamanns með aðilum eru oftar en ekki nauðsynlegt skref til að hjálpa aðilum til að tjá sig við gagnaðila um hagsmuni sína og þarfir og ekki síst um þá niður- lægingu eða misgjörð sem aðili telur sig hafa orðið fyrir af hendi hins. Þagnarskyldan á einnig við um málsaðila. Þeir undirgangast þagnarskyldu um það sem þeir fá vit- neskju um frá gagnað- ilanum á sáttafundum og er óheimilt undir öllum kringumstæðum að notfæra sér þá vit- neskju sér til fram- dráttar, ekki síst ef málið fer í hefðbundna dómsmeðferð. Sátta- manni er þá óheimilt að upplýsa þann dóm- ara, sem tekur við mál- inu eftir árangurslausa sáttamiðlun, um það sem hann hefur orðið áskynja um ágreining- inn og aðila í sáttaferl- inu. Einkenni sáttamiðl- unar fyrir dómi. Hvað er það sem einkennir sáttamiðlun fyrir dómi? Sátta- miðlun fyrir dómi felur í sér að ágreiningi aðila hefur verið skotið til dómstóla, sem þýðir að aðilar hafa notið aðstoðar lögmanna til kröfugerðar og andmæla og væntanlega gert sér einhverjar hugmyndir styrk- leika málstaðs síns í málinu. Þegar dómstóll býður aðilum upp á sáttamiðlun hafa grunngögn máls- ins, stefna og greinargerð, borist dóminum en frekari gagnaöflun hefur ekki átt sér stað. Þá fer fram mat á vegum dómstólsins hvort málið þykir henta fyrir sáttamiðlun. Ef svo er talið er aðilum sent bréf og boðið upp á það úrræði. Þetta á aðal- lega við í þeim málum sem aðilar hafa málsfor- ræði á sakarefni og þeim því frjálst að taka boðinu eða hafna því. Grunnhugsun sáttamiðlunar er að aðilar séu Teiknað af Ragnhild Steineger úr ritinu Rettsmekling í Praksis

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.