Lögmannablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 33

Lögmannablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 33
33L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð Lögmenn Suðurlandi ehf. hafa opnað útibú að Austurvegi 4 á Hvolsvelli Christiane L. Bahner hdl. og löggiltur fasteignasali mun vera á staðnum, til að byrja með alla fimmtudaga frá kl. 9:00 til kl. 16:00 og eftir samkomulagi. Hún mun veita íbúum svæðisins lögfræðiþjónustu, annast fasteignasölu og sjá um mætingar hjá sýslumönnum í Rangárvalla- og Skaftársýslu. Hægt er að ná í hana í síma 480 2900 og í tölvupósti: clb@log.is. Hagsmunaárekstrar í lögmennsku – morgunverðarfundur Lögmannafélags Íslands. Fimmtudaginn 20. október n.k. stendur Lögmannafélag Íslands fyrir morgunverðarfundi undir yfirskriftinni: „Hagsmunaárekstrar á 21. öldinni – ný áskorun fyrir lögmannastéttina”. Framsögumaður á fundinum verður dr. jur. Mads Bryde Andersen, prófessor við lagadeild Kaupmannahafnarháskóla og mun hann fjalla um þetta mikilvæga siðferðilega málefni út frá þeirri þróun sem orðið hefur á lögmannastéttinni í Evrópu á síðustu árum. Fundurinn, sem fram fer á ensku, verður haldinn í Hvammi á Grand Hótel, og hefst stundvíslega kl. 08:15.

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.