Lögmannablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 27

Lögmannablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 27
27 Í fjórða sæti einnig á 77 höggum netto var Geir Gestsson, en hann lék seinni níu holurnar á 52 höggum. Við þökkum þeim kylfingum sem tóku þátt í mótum þessa árs fyrir golfsumarið. Við getum verið ánægð með úrslit fjórleikjanna í ár því 2 1/2 af 3 vinningum er ekki slæmt. Við vonumst til að sjá enn fleiri lögmenn með golfkylfur að ári og ekki síst hinn mikla fjölda af upprennandi golf- spilurum sem sögur fara af í stéttinni. Með kveðju frá sjálfskipaðri golfnefnd LMFÍ L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð PIST ILL FORMANNS: Eflaust þykir dómurum stöðug krafa lög-manna um endurskoðun og úrbætur varðandi málskostnaðarákvarðanir þreyttur og margsunginn söngur. Þó vissulega hafi þokast í rétta átt í þessum málum, t.a.m. hvað varðar opinber mál, má betur gera. Enn er tímagjald það sem dómstólar miða við allt of lágt auk þess sem lögmenn geta alls ekki treyst því að dómarar (a.m.k. sumir) taki trúanlegar tímaskýrslur lögmanna og hafi skilning á þeim tíma sem mál geta oft tekið þó þau láti ekki mikið yfir sér. Þá færist í vöxt með fjölgun flókinna refsimála á sviði félagaréttar að verjendur og grunaðir þurfi að leggja mikinn kostnað í vörn í formi aðkeyptrar aðstoðar. Hvernig munu dómstólar taka á kröfum um endur- greiðslu slíks kostnaðar? Í einkamálum er enn allt of algengt að dæmdur málskostnaður nægi aðeins fyrir hluta af kostnaði viðkomandi skjólstæðings við málaferlin. Það er ótækt. Enn verra er svo þegar málskostnaður er felldur niður, og það jafnvel án nokkurs rökstuðnings, í málum sem vinnast að verulegu eða öllu leyti. Ég er reyndar þeirrar skoðunar að slíkar niðurstöður séu skýlaust brot á 130. gr. laga 91/1991. Meðan þessi mál eru í ólestri getum við ekki barið okkur á brjóst og státað af öflugu og rétt- látu réttarkerfi. Réttarkerfi með þann innbyggða galla að aðili dómsmáls með réttmæta lög- varða hagsmuni sem hann þarf að ná fram eða verjast órétt- mætum kröfum geti endað með því að bera stórkostlegt fjárhags- legt tjón af, getur ekki verið fyr- irmyndaréttarkerfi. Réttarkerfi sem tryggir ekki grunuðum mönnum fyrirtaks lögmannsaðstoð vegna þess að lögmenn veigra sér við að taka að sér málin nema hinn grunaði greiði sjálfur hluta kostnaðar, getur ekki verið fyrirmynd- arréttarkerfi. Það er hlutverk okkar lögmanna að halda þessum sjónarmiðum á lofti sífellt og ætíð meðan við teljum að bæta megi úr. Það munum við gera. Helgi Jóhannesson hrl. Helgi Jóhannesson hrl. Betur má ef duga skal þátttakendum upp á veglegar veitingar að leik loknum, auk verðlaunagripa. Úrslit urðu eftirfarandi: Án forgjafar: 1 Haukur Örn Birgisson, hdl. 84 högg (41 á seinni 9) 2. Rúnar S. Gíslason, hdl. 84 högg (42 á seinni 9) 3. Gestur Jónsson, hrl. 85 högg Með forgjöf: 1 Hjörleifur Kvaran, hrl. 76 högg 2. Gestur Jónsson, hrl. 77 högg (38 á seinni 9) 3. Eiríkur Elís Þorláksson, hdl. 77 högg (51 á seinni 9)

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.