Lögmannablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 24
vallar umræðum á þinginu og sem birtust í fyrra
hefti fundargerða þingsins. Seinna hefti fundar-
gerðanna verður gefið út síðar á þessu ári en í því
verða birt fyrirlestrar og umræður á þinginu.
Margir dagskrárliðir voru á þinginu til viðbótar
við hina fræðilegu dagskrá. Lögfræðingar gátu
skráð bæði sig sjálfa og maka til þátttöku á þing-
inu og boðið var upp á sérstaka dagskrá fyrir
maka. Áður en þingið hófst, miðvikudaginn 17.
ágúst, héldu landsdeildir norrænu lögfræðinga-
þinganna sameiginlegan stjórnarfund, en í kjölfar
hans var þeim boðið á Bessastaði í móttöku for-
seta Íslands, herra Ólafs Ragnars Grímssonar, og
til kvöldverðar í Þjóðmenningarhúsinu í boði
dómsmálaráðherra, Björns Bjarnasonar. Að
kvöldi 17. ágúst var einnig haldið sérstakt boð
fyrir unga þátttakendur á þinginu á Thorvaldsen
Bar. Var þetta í fyrsta sinn sem slíkt boð var
haldið í aðdraganda norræns lögfræðingaþings og
þótti þetta frumkvæði stjórnar Íslandsdeildar
þinganna takast mjög vel. Verður sams konar boð
vonandi fastur liður á komandi þingum.
Hefð er fyrir því að þjóðhöfðingi gestgjafa-
landsins sé viðstaddur setningu þinganna og var
forseti Íslands viðstaddur þegar þingið var sett 18.
ágúst. Afhenti hann þar norrænu lögfræðinga-
verðlaunin sem rannsóknastofnunin Institutet för
rättsvetenskaplig forskning veitir til lögfræðings
sem skarað hefur fram úr með framlagi til nor-
rænnar lögfræði. Verðlaunasjóðurinn var stofn-
aður af Knut og Alice Wallenbergs Stiftelse og
nema verðlaunin 250 þúsund sænskum krónum
auk heiðursskjals. Verðlaunin hafa verið veitt frá
1981 í tengslum við norræna lögfræðingaþingið
og voru nú veitt í 8. sinn. Að þessu sinni hlaut
verðlaunin Leif Sevón forseti Hæstaréttar Finn-
lands. Einn Íslendingur hefur hlotið þessi verð-
laun, Ármann Snævarr, fyrrverandi prófessor,
háskólarektor og hæstaréttardómari.
24 3 / 2 0 0 5
Að kvöldi 18. ágúst var þátttakendum boðið í
móttöku sem Reykjavíkurborg, í samstarfi við
Valgerði Sverrisdóttur, samstarfsráðherra Norður-
landa, hélt í Listasafni Reykjavíkur. Næsta kvöld
var tæplega 300 erlendum þátttakendum boðið í
heimboð til íslenskra lögfræðinga en öðrum
erlendum þátttakendum var boðið í annars konar
boð. Í þessum boðum gafst norrænum lögfræð-
ingum sem þekkjast og/eða vinna á sams konar
sviðum gott tækifæri til að hittast og kynnast.
Þannig fóru til að mynda flestir fræðimenn í boð
lagadeildar Háskólans í Reykjavík, flestir starfs-
menn ráðuneyta í boð dómsmálaráðherra, flestir
fjármála- og viðskiptalögfræðingar í boð KB
banka og flestir starfsmenn umboðsmanna-
embætta í boð á vegum Umboðsmanns Alþingis.
Flestir dómarar (tæplega 250) fjölmenntu í boð
sem var haldið í Félagsheimili Seltjarnarness, en
flestir ungir lögfræðingar (fæddir 1969 og síðar)
Þátttakendur við setn-
ingu á þinginu minn-
ast lögfræðinga á
Norðurlöndunum
sem hafa látist frá
síðasta þingi
Sigurður Líndal, fyrrverandi
prófessor, flytur fyrirlestur við
setningu þingsins.
Greinarhöfundur:
Ragnar Tómas Árnason,
aðalritari þingsins,
ávarpar þingið við setn-
ingu þess