Lögmannablaðið - 01.06.2008, Side 8
8 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 4 / 2007
Lögmanna félagsins í CCBE léki þar
veigamikið hlutverk.
Helgi kom inn á starfsemi félags-
deildar sem hafi verið fjölbreytt og
skemmtileg. Ráðist var í umfangs-
miklar breytingar á bókasafni félags-
ins á starfsárinu og hvatti hann
lögmenn til að nýta sér þá þjónustu.
Að lokum þakkaði Helgi stjórnar-
mönnum og öðru samstarfs fólki fyrir
samstarfið í þriggja ára formannstíð
sinni sem hafi verið gefandi og
skemmtilegur tími. Öðrum félags-
mönnum var þakkað traust og
stuðning í gegnum árin.
Reikningar félagsins
Ingimar Ingason, framkvæmdastjóri
LMFÍ, kynnti ársreikninga fyrir árið
2007. Fram kom að afkoma félagsins
og félagsdeildar af starfsemi ársins
hefði í heild verið ásættanleg og
jákvæð. Samanlagðar tekjur félags-
ins umfram gjöld numu rúmum 10,6
milljónum króna. Þar af hafi afkoma
lögbundna hlutans verið jákvæð um
rúmar 10,1 mill jón króna og
félagsdeildar um rúmar 500 þúsund
krónur.
Breytingar á samþykktum
Eftirfarandi tillaga um breytingar á
3., 7. og 16. gr. samþykkta félagsins
voru samþykktar samhljóða:
5. mgr. 3. gr. „Lögmaður, sem öðlast
hefur málflutningsréttindi hér á
landi samkvæmt reglugerð nr.
900/2004, getur fengið aðild að
LMFÍ.“
1. mgr. 7. gr. „Aðalfundur LMFÍ skal
haldinn fyrir lok maímánaðar ár
hvert. Hann er lögmætur, ef
löglega er til hans boðað“.
1. mgr. 16. gr. „Fyrir lok mars
mánaðar ár hvert skal gjaldkeri
félagsins hafa lokið við samning
reikningsins fyrir liðið reikningsár
og sent hann skoðunarmönnum,
en þeir skulu aftur hafa sent stjórn-
inni reikninginn með athuga -
semdum sínum innan tveggja
vikna“.
Ný stjórn
Lárentsínus Kristjánsson, hrl., var
kjörinn formaður Lögmanna félagsins
næsta starfsár en auk þess voru
Hildur Friðleifsdóttir, hdl. og Heimir
Örn Herbertsson, hrl., kjörin í stjórn
í stað Helga Jóhannessonar, hrl., og
Ástríðar Gísladóttur, hdl. Áfram í
st jórn félagsins sit ja Hjördís
Halldórsdóttir, hdl., og Jóhannes
Bjarni Björnsson, hrl. Í varastjórn
voru kjörin Hörður Felix Harðarson,
hrl., Óskar Sigurðsson, hrl. og Katrín
Helga Hallgrímsdóttir, hdl.
Gústaf Þór Tryggvason, hrl., og
Othar Örn Petersen, hrl., voru
kjörnir skoðunarmenn félagsins og
Þorbjörg I. Jónsdóttir, hrl., til vara. Í
laganefnd félagsins næsta starfsár
voru kjörin Eva Bryndís Helgadóttir,
hrl., Ólafur Eiríksson, hrl., Gísli G.
Hall, hrl., Sigríður Rut Júlíusdóttir,
hrl., Viðar Lúðvíksson, hrl., Eva
Margrét Ævarsdóttir, hdl. og Kristín
Benediktsdóttir, hdl.
Félagsdeild LMFÍ
Á aðalfundi félagsdeildar, sem
haldinn var í kjölfar aðalfundar
Lögmannafélagsins, var eftirfarandi
breyting á 3. gr. reglna deildarinnar
samþykkt samhljóða:
„Allir lögmenn geta átt aðild að
félagsdeildinni. Aðild að félags-
deildinni geta einnig átt sérgreina-
félög og hagsmunafélög, enda séu
félagsmenn slíkra félaga jafn
framt aðilar að félagsdeild.
Sérgreinafélög fjalla um málefni
hinna ýmsu sérgreina lögfræðinnar
en hags munafélög gæta hagsmuna
félags manna sinna og geta í því
skyni, að fengnu samþykki stjórn ar
félags deildarinnar, átt aðild að
öðrum samtökum. Sérgreina- og
hags munafélög sem æskja aðildar
að félagsdeildinni skulu senda um
það umsókn til stjórnar svo tíman-
lega að hennar sé hægt að geta í
fundar boði aðalfundar. Með
umsókninni skal fylgja stað
festing þess efnis að allir
félagsmenn sérgreina eða
hagsmunafélagsins, séu aðilar að
félagsdeild. Stjórninni er skylt að
leggja slíka umsókn fyrir aðal¬fund
og geta hennar í fundarboði. Til
samþykktar á slíkri aðild þarf ein-
faldan meirihluta atkvæða á
aðalfundi.“
Þá var umsókn Félags sáttalögmanna
um aðild að félagsdeild LMFÍ
samþykkt mótatkvæðalaust.
F.v. Sveinn andri Sveinsson, jóhannes albert Sævarsson, jónas Haraldsson, Heimir Örn Herbertsson og benedikt ólafsson.
Ingimar Ingason