Lögmannablaðið - 01.10.2010, Blaðsíða 11
Laganám við Háskólann í Reykjavík miðar að því
að útskrifa framúrskarandi lögfræðinga sem láta
til sín taka í íslensku og alþjóðlegu samfélagi.
· 3ja ára nám til BA-gráðu.
· 2ja ára nám til meistaragráðu.
· 3ja-4ra ára nám til doktorsgráðu.
Kynntu þér metnaðarfullt og nútímalegt
laganám á www.hr.is
LÁTTU
TIL ÞÍN TAKA!
HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK | Menntavegi 1 | 101 Reykjavík | www.hr.is
Í máli úrskurðarnefndarinnar nr.
3/2008 var meðal annars fundið að
aðgerðarleysi lögmanns við að svara
fyrirspurnum kæranda og slíkt talið
fela í sér brot gegn 41. gr. siðareglna
lögmanna.
Málsatvik voru þau að kærandi fól
lögmanni að reka fyrir sig mál í
tengslum við samþykkt byggingar
fulltrúans í Reykjavík um breytingar
á afmörkun sérnotalóðar. Taldi
kærandi undirritun sína á samþykki
meðlóðarhafa fyrir breytingunni hafa
verið falsaða. Lögmaðurinn tók málið
að sér í desember 2006 og var honum
þá afhent gögn málsins auk viðbót
argagna sem afhent voru í janúar
2007. Eftir þetta tímamark hefði
kæranda reynst ómögulegt að ná
sambandi við lögmanninn og lagði
hann þessu til stuðnings m.a. fram
tölvupóst þar sem kvartað var yfir
sambandsleysinu og óskað upplýsinga
um rekstur málsins. Engin gögn
bárust hins vegar frá lögmanninum
sem sýndu að tölvupóstinum hefði
verið svarað. Lögmaðurinn andmælti
því að ekkert hefði verið aðhafst í
málinu og vísaði í því sambandi til
tveggja bréfa, annars vegar til
byggingafulltrúans í Reykjavík, og
hins vegar til lögreglunnar í
Reykjavík, sem fylgdu greinargerð
hans til úrskurðarnefndarinnar.
Kærandi taldi hins vegar ekkert mark
takandi á þeim bréfum þar sem þau
væru ódagsett og óundirrituð.
Úrskurðarnefndin taldi að sú
staðreynd að umræddum tölvupósti
hefði ekki verið svarað af hálfu
lögmannsins styddi staðhæfingu
kæranda um sambandsleysi af hálfu
lögmannsins gagnvart kæranda og að
lögmaðurinn hefði ekki svarað
fyrirspurnum og skilaboðum
kæranda. Nefndin taldi að slík
vinnubrögð væru aðfinnsluverð og
fælu í sér brot gegn 41. gr. siðareglna
lögmanna.
Ingvi Snær Einarsson hdl. tók saman.
Ástæðulaus dráttur á svari
Umfjöllun
Úr Codex