Lögmannablaðið - 01.10.2010, Blaðsíða 13

Lögmannablaðið - 01.10.2010, Blaðsíða 13
LÖGMANNABLAÐIÐ – 3 / 2010 > 13 Aðsent efni stjórnarskrárinnar norsku. Í greininni segir að ríkisrétturinn skuli dæma í málum sem Stórþingið höfðar gegn ráðherra, dómurum hæstaréttar og þingmönnum fyrir refsivert eða annað ólögmætt athæfi þegar þeir hinir sömu teljast hafa brotið sínar stjórnskipulegu skyldur. Norska fyrirkomulagið hefur sérstöðu hvað það varðar hvers konar mál heyra undir ríkisréttinn en lögsaga dómsins nær eins og áður segir ekki aðeins til embættisbrota ráðherra heldur einnig til brota sem framin eru af þingmönnum og dómurum hæsta­ réttar. Þegar ásakanir koma fram um meint brot ráðherra í starfi á sér stað frum­ athugun á málinu í þinginu sem gerist gjarnan með athugun fastanefnda, oftast í eftirlits­ og stjórnskipunar­ nefndinni. Nefndin getur, telji hún þörf á, ákveðið að leggja til við þingið að skipuð verði sérstök rannsóknarnefnd þingsins á grundvelli 14. gr. a norsku þingskapanna eða eftir atvikum að málinu verði vísað til svokallaðrar ábyrgðarnefndar sem fjallað er um í 3. kafla laga nr. 2/1932 um málsmeðferð í málum fyrir ríkisrétti. Telji þingið að ekki sé nægilegur grundvöllur til ákvörðunar um ákæru getur það með samþykki að minnsta kosti þriðjungs þingmanna vísað máli til ábyrgðar­ nefndar þingsins til framhalds rann­ sóknar. Ábyrgðarnefnd Stórþingsins var komið á fót í tengslum við endur­ skoðun á lagaákvæðum um ríkisréttinn árið 2007. Nefndin er skipuð fimm einstaklingum utan þings sem eru kjörnir af Stórþinginu til sex ára í senn. Skipan nefndarinnar er því óháð hverju einstöku máli sem fyrir hana kann að koma. Nefndinni er ætlað að leggja grundvöll að ákvörðun þingsins um það hvort ákæra skuli ef upp kemur ásökun um brot sem varðað geti við lagalega ábyrgð og gefa þinginu skýrslu þar um, sbr. 31. gr. laga nr. 2/1932 um máls­ meðferð í ríkisréttarmálum. Þinginu er þó ekki skylt að kalla nefndina saman þótt slík mál komi upp, það hefur val um það og hingað til hefur ekki á þetta reynt. Skýrslu ábyrgðarnefndar skal síðan leggja fyrir eftirlits­ og stjórn­ skipunarnefndina til umsagnar áður en hún er lögð fyrir þingið, sem tekur endanlega ákvörðun um hvort ákært skuli. Eftir að eftirlits­ og stjórnskipunar­ nefnd hefur gefið álit sitt um niðurstöðu ábyrgðarnefndar, rannsóknarnefndar eða eftir atvikum þeirrar fastanefndar sem gerði frum skoðun á málinu, er málið lagt fyrir þingið með tillögu um ákæru eða að málið sé látið niður falla. Um ábyrgð ráðherra og þeirra sem falla undir ríkisrétt er fjallað í lögum um embættismannaábyrgð nr. 1/19363 en í 8. – 11. gr. laganna er fjallað um embættisbrot ráðherra. Þann 1. október 2009 tóku gildi í Noregi ýmsar breytingar á stjórnarskrá og lögum um ábyrgð embættismanna og ríkisrétt í kjölfar mikillar gagnrýni á undirbúning og meðferð slíkra mála. Með breytingunum var dómurum í ríkisrétti fækkað úr 15 í 11 en eingöngu var fækkað í þeim hópi dómara sem kjörnir eru af þinginu og þannig dregið úr pólitísku ívafi dómsins. Nú koma 5 dómarar úr hópi þeirra hæstaréttar­ dómara sem lengst hafa setið í embætti en 6 dómarar eru kjörnir af Stórþinginu. Miklar umræður höfðu áður verið í þinginu um ríkisréttinn og skipan hans og m.a. hafði komið fram tillaga frá nefnd um endurskoðun laga um þingeftirlit, að hann yrði lagður af og málum sem undir heyra komið fyrir hjá almennum dómstólum. Ekki féllst norska þingið á þær tillögur en þess í stað voru gerðar lagfæringar á lögum sem um ríkisréttinn gilda og rann­ sóknarferlið vegna slíkra mála styrkt í sessi. Ríkisréttinum norska svipar í dag til landsdómsins íslenska ef undan er skilið valdssvið hans, sem er víðara í Noregi eins og áður greinir. Dómar ríkisréttar eru endanlegir og verður ekki áfrýjað. Svíþjóð Í Svíþjóð er fyrirkomulagið um rannsókn og meðferð mála vegna embættisbrota ráðherra að nokkru leyti ólíkt því sem gerist í Danmörku og Noregi. Þingið hefur ekki sett á fót sérskipaðar rannsóknarnefndir en það getur kallað eftir rannsókn tiltekinnar fastanefndar þingsins, stjórnskipunar­ nefndar (konstitusjonsutskottet), sem hefur að hluta til sama hlutverk og eftirlits­ og stjórnskipunarnefnd norska þingsins hvað varðar rannsókn og undirbúning slíkra mála. Nefndinni er á grundvelli stjórnarskrárinnar4 m.a. ætlað að rannsaka embættisfærslur ráðherra en tillögur um rannsókn nefndarinnar geta komið frá einstökum þingmönnum eða þingnefndum. Stjórnskipunar nefndin skal síðan að minnsta kosti einu sinni á ári gefa þinginu skýrslu um það sem henni þykir athygli vert í rannsóknum sínum og ástæða til að gera þinginu grein fyrir og í kjölfar þess eiga sér stað umræður í þinginu um athugasemdir nefndar­ innar. Ekki er unnt að leggja fram tillögu um vantraust undir slíkum umræðum, en með því er leitast við að aðskilja umræður um niðurstöður rannsókna stjórnskip unarnefndarinnar þeim flokkspólitísku átökum sem gjarnan fylgja framlagningu vantrausts­ tillagna. Rannsókn stjórn skipunar­ nefndarinnar byggir á frjálsri upp­ lýsingagjöf en í reynd líta þeir sem kallaðir eru fyrir nefndina á það sem skyldu sína að gefa henni þær upp­ lýsingar sem hún kallar eftir. Telji nefndin ástæða til að gagnrýna ráðherra fyrir embættisfærslur hans getur það leitt til þess að lögð er fram van­ trausttillaga gegn ráðherranum. Nefndin hefur einnig ákæruvald í slíkum málum en ekki þingið sjálft eins og í Noregi og Danmörku. Hæstiréttur Svíþjóðar dæmir í málum vegna embættisbrota ráðherra. 1 Lov nr. 357/1999 om undersøgelses- kommissioner. 2 Lovnr. 100/1954 om Rigsretten. 3 Lov om ansvar for handlinger som påtales ved Riksrett. 4 1. gr. 12. kap. Regeringsformen.

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.