Lögmannablaðið - 01.10.2010, Blaðsíða 14

Lögmannablaðið - 01.10.2010, Blaðsíða 14
14 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 3 / 2010 Franski Lýðveldisdómurinn (Cour de justice de la république) var stofnaður árið 1993 með stjórn­ skipunarlögum nr. 93­952 frá 27. júli 1993. Lögin bættu nýjum kafla við stjórnarskrána, sem fjallar um refsiábyrgð ráðherra. Áður en Lýðveldisdómurinn var stofnaður var Hæstidómur (Haute Cour de Justice) hæfur til að kanna refsi­ ábyrgð ráðherra. Hæstidómur hafði jafnframt lögsögu til að dæma forseta lýðveldisins fyrir landráð. Lýðveldisdómurinn leysti síðan Hæstadóm af hólmi, en einungis varðandi refsiábyrgð ráðherra. Hæsti dómur er ennþá hæfur til að dæma forseta lýðveldisins og úr­ skurða um brottvikningu hans. Hæstidómur og Lýðveldisdómur eru báðir sérdómstólar. Í þessari grein verður eingöngu fjallað um Lýð­ veldis dóminn. Lögsaga Samkvæmt 1. mgr. 68­1. gr. frönsku stjórnarskrárinnar, bera ráðherrar refsiábyrgð fyrir afbrot sem teljast glæpur (crime) eða brot (délit), sem framin eru í embættisrekstri þeirra. Rétt er að taka fram að í frönskum refsirétti er ítarleg flokkun á afbrotum m.t.t. þeirrar refsingar sem við þeim liggur. Óhægt væri að gefa ítarlega skilgrein­ ingu á hugtökunum crime og délit án þess að fara yfir meginreglur og undatekningar sem hegningarlögin hafa að geyma, en meginreglan er sú að crime eru afbrot sem varða að lágmarki 15 ára en að hámarki ævilöngu fangelsi og délit eru afbrot sem varða að lágmarki sekt og fangelsi í 2 mánuði en í 10 ár að hámarki. Lýðveldisdómurinn er einn hæfur til að dæma um refsi­ ábyrgð ráðherra sem tengist embættis­ rekstri þeirra. Lýðveldis dómurinn er ekki hæfur til að kanna t.d. einka­ réttarkröfur brotaþola enda á sam­ kvæmt lögum um Lýðveldisdóminn að bera slíkar kröfur upp við almenna dómstóla. Auk þess er Lýðveldis­ dómurinn ekki hæfur heldur til að dæma ráðherra fyrir afbrot sem þeir fremja á meðan þeir eru í embætti en sem tengjast ekki beint embættisrekstri þeirra. Samsetning Lýðveldisdómsins Almenn lög um Lýðveldisdóminn hafa að geyma ákvæði um samsetningu dómsins. Í Lýðveldisdómnum eiga sæti fimmtán dómarar. Tólf þeirra eru þingmenn, en sex eru kosnir af öldungaráðinu (sénat) og sex af þjóðþinginu (assemblée nationale). Hinir þrír dómararnir eru kosnir af dómurum við franska Hæstaréttinn (Cour de Cassation) og einn þeirra er skipaður forseti Lýðveldisdómsins. Ákæruvaldið við Lýðveldisdóminn er í höndum saksóknara Hæstaréttar. Í rannsóknarnefndinni eru þrír dómarar og þrír varamenn skipaðir af Hæstarétti. Rannsóknarnefndin sér um að upplýsa mál eftir að saksóknari hefur gefið fyrirmæli um að hefja rannsókn. Kærunefndin sér um að taka á móti kærum og senda þær á saksóknarann. Í kærunefndinni eru þrír dómarar Hæstaréttar, tveir dómarar úr Stjórn­ sýsluhæstaréttinum (Conseil d‘Etat) og tveir dómarar frá fjármála dómstólnum (Cour des Comptes). Meðferð máls fyrir Lýðveldisdóminum Hver sá maður sem kveðst hafa orðið fyrir misgerð af völdum afbrots (crime eða délit) sem ráðherra hefur framið í embættisrekstri, getur sent kæru um slíkt afbrot til kærunefndarinnar. Þegar kæran berst kærunefndinni, metur hún hvort kæran sé nægilega rökstudd til að vísa henni til saksóknara. Saksóknarinn gefur síðan rannsóknarnefndinni fyrir­ mæli um að hefja rannsókn, sem byggð er á ákvörðun kærunefndarinnar. Saksóknari getur og vísað máli til rannsóknarnefndarinnar ex officio þ.e.a.s. að hann getur gefið fyrirmæli um að hefja rannsókn án þess að afbrot hafi verið kært. Í slíkum tilvikum eru Aðsent efni Franski lýðveldisdómurinn Antoine Lochet, hdl.

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.