Lögmannablaðið - 01.10.2010, Blaðsíða 18
18 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 3 / 2010
Í lok september síðastliðinn fór 34
manna hópur í námsferð á vegum
félagsdeildar LMFÍ til Tallinn í
Eistlandi. Tallinn þykir ein fallegasta
borg í Evrópu með gömlum borgar
hluta frá tímum Hansa kaupmanna
sem er á heimsminjaskrá UNESCO.
Námsferðir eru yfirleitt skipulagðar
þannig að fagleg dagskrá og fróðleg
skemmtun eru stundaðar jöfnum
höndum. Þessi ferð var engin undan
tekning þar á. Fyrsta morguninn var
ekið og gengið um borgina með
innlendum leiðsögumanni. Leiðsögu
maðurinn, kona um sjötugt, var mikill
karakter og það var sérstaklega
skemmti legt að heyra hversu opinskátt
hún talaði um þann tíma þegar landið
var undir sovéskri stjórn. Þá er um
hugsunarefni hversu mikla áherslu hún
lagði á mikilvægi tjáningarfrelsisins. Að
skoðunarferð lokinni var farið í dómhús
í miðborginni sem hýsir tvö dómstig af
þremur en Hæstiréttur er staðsettur í
Tartu. Þegar Eistar fengu sjálfstæði frá
Sovétríkjunum árið 1991 héldu
dómarar, sem höfðu verið á tímum
Sovétmanna, áfram störfum en horft
var til þýskra laga við endurnýjun þeirra
eistnesku.
Löggjafinn
Eistland varð lýðveldi árið 1918 en
þjóðþing þeirra, Riigikogu, var í fyrsta
skipti kosið árið 1921. Árið 1940 var
landið hertekið af Rauða hernum í
kjölfar leynisamninga Hitlers og Stalíns
og allir þingmenn skotnir eða sendir til
Síberíu. Sömu örlög biðu 10.000 manna
af milljón íbúum Eistlands en árin 1941
1944 var landið hertekið af þýska hern
um. Að loknu stríði tóku Sovét menn
aftur við stjórnartaumum og við tók
tímabil þar sem reynt var að afmá öll
þjóðareinkenni Eista.
Á níunda áratug 20. aldar hófu
Eistar að berjast fyrir sjálfstæði og
markast upphafið af tónleikum sem
tugþúsundir Eista komu saman og
sungu kjark í þjóðina. Eistar tala sjálfir
um „söngbyltinguna“ en þeir fengu
sjálfstæði árið 1991 án þess að blóði
væri úthellt.
Það var fróðlegt að heimsækja
Riigikogu þar sem 101 þingmaður situr.
Sex stjórnmálaflokkar eiga nú fulltrúa á
þinginu og það vakti athygli okkar að
42 þingmenn sitja á sínu fyrsta kjör
tímabili sem lýkur vorið 2011. Einungis
13 þeirra eru lögfræðingar en margir
lögfræðingar starfa þó hjá þinginu. Þrír
þeirra tóku á móti okkur, kynntu starf
semi þingsins og svöruðu öllum
spurningum okkar greiðlega.
Lögmenn í Eistlandi
Ein stærsta lögmannsstofa Eistlands,
Tark Grunte Sutkiene, var heimsótt. Á
móti okkur tók Hannes Vallikivi, sem er
einn eigenda stofunnar auk þess sem
hann var kosinn í stjórn Lögmannafélags
Eistlands sl. vor. Á lögmannsstofunni
starfa 34 lögmenn og þrír í útibúi í
Tartu. Lögmannsstofan sameinaðist
nýlega stórum stofum í Lettlandi og
Námsferð til Tallinn
Hópurinn fór í dómhús tallinnar en það hýsir tvö dómstig. Þriðja og hæsta dómstigið er í háskólaborginni tartu sem er um 200
kílómetra frá höfuðborginni.
Á léttum nótum
Það sem mér þótti merki legast við
Eistland voru ungir lögmenn.
Þórdís Bjarnadóttir
Það sem mér þótti merki legast við
Eistland var hvað allt er hreint og
fágað og engir betlarar. Svo var
gaman að heyra í fólki sem kann
að meta málfrelsið og sjálfstæði
landsins.
Arnfríður Einarsdóttir