Lögmannablaðið - 01.10.2010, Blaðsíða 27
LÖGMANNABLAÐIÐ – 3 / 2010 > 27
Nú leggja starfsmenn mat á
ákveðna þætti í
vinnuumhverfi sínu í
könnuninni, vinnið þið
markvisst að ánægju
starfsmanna?
„Já, eins og ég sagði áðan þá leggjum
við uppúr því að fólki líði vel í vinnunni.
Það er þó hópurinn sjálfur sem þar
ræður mestu en ekki stjórnendur. Ef þú
ert með gott og jákvætt fólk sem er
tilbúið að leggja sig fram félagslega og
faglega, það skapar góðan anda. Það er
svo stjórnenda að sjá til þess að vinnu
aðstaða, í víðtækri merkingu þess orðs,
sé til þess fallin að fólk geti sinnt sínu.
Við fórum í mikla stefnumótunarvinnu
síðasta vetur og þar komu fram margar
góðar hugmyndir sem við erum enn að
vinna úr. Eitthvað af því er komið í
framkvæmd, annað er í vinnslu og enn
annað bíður þess að vera sett í gang.
Við leggjum árlega fyrir formlegt
frammistöðumat fyrir starfsmenn. Í
slíkri yfirferð er einnig farið yfir það
hvernig starfsmanninum líkar hjá
fyrirtækinu, hvað vel er gert og hvað
má bæta. Ef traust ríkir milli starfs
manna og stjórnenda þá ætti það helsta
að skila sér í slíku samtali. Vandinn
hefur verið að ná að gera þetta árlega
fyrir allan hópinn en við erum vonandi
að ná í skottið á okkur með það
núna.“
Hvaða þætti leggið þið mest
upp úr í starfsmannastefnu
ykkar?
Þau fimm atriði sem eru efst á lista
eru:
A. Ánægjulegur vinnustaður
B. Hjá LOGOS starfi besta fáanlega
fólk í hverri stöðu
C. Endurmenntun og þjálfun
D. Virðing og traust
E. Fjölskylduvænn vinnustaður
Vinnustaðurinn getur ekki orðið
ánægju legur nema virðing og traust ríki
milli starfsmanna. Við val á fólki er
horft til faglegrar þekkingar en jafnframt
er reynt að leggja mat á það hvort
viðkomandi falli vel í hópinn. Það þýðir
þó ekki að hópurinn sé einsleitur, langt
því frá. Okkur hefur almennt séð tekist
vel til í ráðningum og það hefur skilað
sér í góðum starfsanda og skemmti
legum vinnustað.
Það er ljóst að við getum ekki alltaf
staðið undir því að teljast fjölskyldu
vænn vinnustaður þar sem kröfur
viðskiptavina okkar og vilji okkar til að
veita framúrskarandi þjónustu sam
ræmist ekki alltaf kröfum fjölskyldunnar
en við gerum okkar besta.“
EI
Ár %
2010 82% fyrirtækja með lægri heildareinkunn en LOGOS
2009 93% fyrirtækja með lægri heildareinkunn en LOGOS
2008 88% fyrirtækja með lægri heildareinkunn en LOGOS
2007 91% fyrirtækja með lægri heildareinkunn en LOGOS
2006 70% fyrirtækja með lægri heildareinkunn en LOGOS
2005 87% fyrirtækja með lægri heildareinkunn en LOGOS
2004 93% fyrirtækja með lægri heildareinkunn en LOGOS
Í könnun VR leggja starfsmenn mat á átta lykilþætti í vinnuumhverfi sínu með því að gefa hverjum
þætti einkunn á bilinu 15.
1. Trúverðugleiki stjórnenda (stjórnun). Starfsmenn leggja mat á stjórnendur fyrirtækis, stuðning,
hvatningu, traust, hrós, sanngirni og til hvers sé ætlast af því.
2. Starfsandi. Starfsfólk leggur mat á samskipti þeirra í milli.
3. Launakjör. Ánægja starfsfólks með launakjör sín, sanngirni og hvort vinnuveitandi veiti betri, svipuð eða
verri launakjör en gert er á öðrum sambærilegum vinnustöðum.
4. Vinnuskilyrði. Ánægja með vinnuaðstöðu, öryggi á vinnustað, tækjabúnað og aðgengi að bíla stæðum.
5. Sveigjanleiki vinnu. Sveigjanlegur vinnutími, sumarleyfi, samræming starfs og einkalífs.
6. Sjálfstæði í starfi. Tök starfsfólks á starfi sínu, yfirsýn, markmið starfs skýr og áhrif starfsfólks á hvernig
starf er unnið.
7. Ímynd. Ímynd fyrirtækis út á við, jákvæð afstaða viðskiptavina til fyrirtækis og traust til þess.
8. Ánægja og stolt. Ánægja með starf, stolt af fyrirtæki og að geta mælt með vinnustaðnum.
Í vali á fyrirtæki ársins er þeim skipt upp í minni og stærri fyrirtæki.
Þegar öll fyrirtæki eru skoðuð saman sést eftirfarandi: